Morgunblaðið - 27.02.2006, Side 12
12 MÁNUDAGUR 27. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
BRIAN Prime, forseti Evrópusam-
taka smáfyrirtækja, hitti að máli
Davíð Oddsson seðlabankastjóra og
fv. forsætisráðherra í Íslandsheim-
sókn sinni fyrir helgi. Með í för var
Gústaf Skúlason, formaður samtaka
sænskra smáfyrirtækja.
Prime sagði við Morgunblaðið að
það hefði verið einkar ánægjulegt
og fróðlegt að hitta Davíð, enda
hefði hann átt stóran þátt í að
skapa það rekstrarumhverfi sem ís-
lensk fyrirtæki byggju nú við og
hver Evrópuþjóð mætti taka sér til
fyrirmyndar.
Prime sagðist ekki geta mælt
með því við Íslendinga að þeir
gengju í Evrópusambandið. Miklu
frekar væri þetta spurning um að
Evrópusambandið færi að fram-
fylgja stefnu Íslendinga í efnahags-
málum. Skriffinnskan í ESB væri
orðin slík og pólitíkin allsráðandi,
að ekkert bólaði á framförum fyr-
irtækjum til hagsbóta.
„Oddsson í stað Lissabon“
„Breytingarnar sem Davíð stuðl-
aði að hafa gert Ísland að einu öfl-
ugasta hagkerfi heimsins. Af mörg-
um ástæðum hef ég haft áhuga á að
kynna mér aðstæður á Íslandi.
Loksins fékk ég að hitta þann
mann sem kom þessu öllu af stað,“
sagði Prime og bætti því við að
ekkert gengi hjá ESB að fram-
fylgja Lissabon-áætluninni frá síð-
ustu aldamótum, sem hefði verið
ætlað að gera ESB að samkeppn-
ishæfasta umhverfi í heimi fyrir ár-
ið 2010. Nú væru sex ár liðin en
menn kæmust ekkert áfram fyrir
reglugerðarfargani og vinnu við að
afnema viðskiptahindranir. Við þær
aðstæður gætu evrópsk fyrirtæki
ekki keppt við önnur markaðssvæði
í heiminum.
„Evrópusambandið ætti frekar
að kynna sér „Oddsson-áætl-
unina“,“ sagði Prime og brosti.
Spurður hvort Íslendingar ættu
að taka upp evruna sagði hann það
algjöran óþarfa. Á meðan flest virt-
ist ganga Íslandi í hag væri hvorki
ástæða til að taka upp evruna né
óska eftir aðild hjá ESB. Þetta
væri svipað og að senda íslenskan
skíðagöngumann á vetrarólymp-
íuleika með sandpoka á bakinu.
„Ef þið gangið í Evrópusam-
bandið þá munu íslensk fyrirtæki fá
yfir sig haug af reglugerðum sem
erfitt er að komast upp úr, ekki síst
fyrir smáfyrirtækin. Í Evrópu er sú
stefna við lýði að ef þú ert með fót-
brotna manneskju þá verður að
brjóta leggina á hinum svo allir búi
við sömu fötlunina,“ sagði Prime.
Hann sagði íslenskan sjávarút-
veg standa vel að vígi, í samanburði
við önnur lönd, og hið sama mætti
ekki gerast hér og hefði gerst í
Bretlandi. Þar væri sjávarútvegur-
inn í rúst sökum fiskveiðistefnu
ESB.
ESB ætti að framfylgja
stefnu Íslendinga
Morgunblaðið/ÞÖK
Ánægjulegur fundur Gústaf Skúlason, Davíð Oddsson og Brian Prime á
fundi þeirra þriggja þegar þeir hittust í síðustu viku.
SS hagn-
ast um
353 millj-
ónir kr.
HAGNAÐUR samstæðu Slát-
urfélags Suðurlands á árinu 2005
var 353 milljónir króna, en árið áður
var hagnaðurinn 101 milljón. Mest
munar um að
seldur var eign-
arhluti í Fersk-
um kjötvörum
hf. og Mjólk-
urfélagi
Reykjavíkur
hf., auk fast-
eignar að Laxá
í Leirárssveit
og var hagn-
aður vegna
þessa tæp 201 milljón.
Rekstrartekjur Sláturfélagsins
voru um 4,9 milljarðar á árinu 2005
en um 4,4 milljarðar árið áður og
hækkuðu því um 10%. Vörunotkun
jókst um 13% og var um 2,5 millj-
arðar í fyrra.
Rekstrarhagnaður án fjár-
munatekna og fjármagnsgjalda var
195 milljónir á árinu 2005 en 99
milljónir árið áður. Fjármagnsgjöld
umfram fjármunatekjur voru 49
milljónir samanborið við 24 milljónir
árið 2004. Heildareignir Slátur-
félagsins í árslok 2005 voru um 3,6
milljarðar og eiginfjárhlutfall 44%.
Í tilkynningu frá Sláturfélaginu
segir að aðstæður á kjötmarkaði séu
nú í betra jafnvægi en undanfarin
ár. Það eigi að leiða til viðunandi af-
komu félagsins.
Hægir á dönskum
húsnæðismarkaði
● FJÁRMÁLASÉRFRÆÐINGAR í
Danmörku spá því að hægja muni á
verðhækkunum á húsnæðismark-
aði þar í landi á þessu ári og að
hækkanir í ár verði ekki jafn miklar
og á síðasta ári.
Í danska við-
skiptablaðinu
Børsen er haft
eftir sérfræð-
ingum hjá tveimur
stærstu bönkum
Danmerkur, Nor-
dea og Den
Danske Bank, að það muni hægja
á verðhækkunum í kjölfar þess að
vextir hafa farið hækkandi í Dan-
mörku að undanförnu. Reikna þeir
með um 5% hækkun húsnæð-
isverðsins á árinu, sem er umtals-
vert minna en á síðasta ári, en þá
hækkaði húsnæðisverðið um tæp
22%.
● HAGVÖXTUR í Bretlandi var 1,8%
á síðasta ári og er þetta minnsti
hagvöxtur þar í landi síðan árið
1992. Landsframleiðsla jókst um
0,6% á fjórða ársfjórðungi 2005 frá
þriðja ársfjórðungi en lands-
framleiðslan, og þar með hagvöxt-
urinn, jókst um 1,8% miðað við árið í
heild.
Hagvöxtur í Bretlandi
1,8% í fyrra
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI