Morgunblaðið - 27.02.2006, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. FEBRÚAR 2006 13
ERLENT
! " !
!#
$%
& '( (
!"#$ %&'()*
"+$ + , )) # "--*
! "
!"# # $! $ %"
&'
()*+,-
) ./(01
2"*-- "
/
*+,*
) ./*01
3"*-- "
4 $5 &%
3 6 & 7 $ 5"
$ % & % '"(() " "
/(*+)-
3 .//01 (8"8-- "
/(*+)*
3 ./*01 /("8-- "
TALIÐ er að um fimmtíu þúsund
manns hafi tekið þátt í mótmælaað-
gerðum gegn taílenska forsætisráð-
herranum, Thaksin Shinawatra, í
Bangkok í gær. Mótmælendur
héldu m.a. á lofti kröfuspjöldum
þar sem Thaksin var líkt við Adolf
Hitler. Thaksin leysti á föstudag
upp taílenska þingið og boðaði til
kosninga 2. apríl nk. en andstæð-
ingar hans hafa undanfarnar vikur
sakað hann um spillingu og hvatt
hann til að segja af sér. En Thaksin
gaf lítið fyrir þær óskir er hann
ávarpaði taílensku þjóðina á laug-
ardag. „Best er einfaldlega að
spyrja fólkið. Hver maður hefur
eitt atkvæði,“ sagði hann um vænt-
anlegar kosningar, en aðeins ár er
síðan flokkur Thaksins vann stór-
sigur í kosningum. „Það er þjóðin
sem tekur ákvarðanirnar. Ef þér
líkar ekki við mig, kjóstu þá ein-
hvern annan.“
AP
Mótmæli í Bangkok
heyrðust í allan gærdag og hafði
BBC eftir heimildarmönnum sínum
að sjö hefðu týnt lífi. Afganskir emb-
ættismenn neituðu hins vegar þeim
fregnum.
Hundruð liðsmanna afganska
hersins voru kallaðir á vettvang í
gær og höfðu þeir umkringt fang-
elsið í því skyni að tryggja að enginn
fanganna slyppi.
Vilja ekki nýja búninga
Svo virðist sem óánægja með
breytingar á reglum um klæðnað
fanganna hafi orsakað uppreisnina.
Breytingarnar voru ákveðnar í kjöl-
far þess að sjö talibönum tókst að
flýja fangelsið í janúar en þeir munu
hafa klætt sig líkt og þeir væru gest-
ir í fangelsinu.
Haft var eftir Mohammad Qasin
Hashimzai varadómsmálaráðherra
síðdegis í gær að viðræður væru
hafnar og hafa fangarnir m.a. krafist
þess, að þeir þurfi ekki að bera nýju
fangabúningana. „Það er gott að við-
ræður skuli farnar af stað,“ sagði
Hashimzai. Hann sagði að í hópi
upphaflegra 1.350 uppreisnarmanna
hefðu verið um 350 talibanar eða al-
Qaeda-menn. Sögðu afganskir emb-
ættismenn að þeir hefðu kynt undir
óánægju annarra vistmanna.
Þegar skyggja tók í gærkvöldi
mun hafa verið gert hlé á viðræðum
við fangana í Pul-e-Charkhi.
Kabúl. AP, AFP. | Hundruð afganskra
hermanna höfðu í gær umkringt
Pul-e-Charkhi-fangelsið í útjaðri
Kabúl eftir að fangarnir tóku eina
álmu á sitt vald í uppreisn. Fangelsið
er með hámarksöryggisbúnaði og
geymir marga talibana og liðsmenn
al-Qaeda-hryðjuverkasamtakanna.
Talið er að um 1.350 fangar hafi
tekið þátt í uppreisninni, en alls eru
um 2.000 vistmenn í fangelsinu.
Virðist sem fangauppreisnin hafi
hafist seint á laugardagskvöld að
staðartíma, um kl. 17.30 að íslensk-
um tíma. Réðust fangarnir gegn
vörðum sínum og náðu fyrst einni
álmu á sitt vald, og bættu annarri
svo við síðar í gær. Skothvellir
Mikill viðbúnaður eftir
fangauppreisn í Kabúl
HVARVETNA í höfuðstöðvum
orkusölufyrirtækisins Enron í Hou-
ston í Texas sýndu litlir síritar, bein-
tengdir við kauphöllina, verðgildi
hlutabréfanna í fyrirtækinu. Strax í
anddyrinu blasti það við; í öllum lyft-
um mátti fylgjast með uppganginum
og á skrifstofu forstjórans, Jeff
Skilling, skipaði kauphallarsíriti
heiðurssess á skenknum á bak við
skrifborð hans.
„Alls staðar í Enron-húsinu blasti
hlutabréfaverðið við manni,“ sagði
Ken Rice, fyrrv. framkvæmdastjóri
hjá Enron, í síðustu viku í framburði
sínum við réttarhöldin yfir tveim
fyrrverandi æðstu stjórnendum En-
ron, Skilling og Ken Lay.
Rice er vitni ákæruvaldsins, en
réttarhöldin snúast í raun fyrst og
fremst um það hvort þeir hafi lagt á
ráðin um að halda verði hlutabréf-
anna háu, hvað sem það kostaði, og í
því skyni villt um fyrir fjárfestum á
Wall Street. Verjendur segja að
Skilling og Lay hafi verið öflugir
frumkvöðlar er hafi einbeitt sér að
því sem öllum fyrirtækjastjórn-
endum beri að sinna öðru fremur:
tryggja hagnað hluthafanna.
Býður hættunni heim
Þetta kemur m.a. fram í ítarlegri
umfjöllun fréttavefs dagblaðsins
Houston Chronicle um réttarhöldin.
Þar er haft eftir sérfræðingum að ef
forstjórarnir setji allt kapp á að
halda hlutabréfaverðinu uppi skap-
ist andrúmsloft sem bjóði heim
hættunni á siðareglubrotum og jafn-
vel fjársvikum, hvort sem forstjór-
arnir leggi á ráðin um slíkt eður ei.
„Ef kaupréttur og kaupaukar eru
það sem fyrst og fremst hvetur for-
stjórann til að halda hlutabréfaverð-
inu uppi, og hann er manngerðin
sem metur frammistöðu eftir hluta-
bréfaverði, þá mun hann leiða
stjórnina, fyrirtækið og hluthafana
út á hálan ís,“ er haft eftir Arthur
Levitt, fyrrverandi yfirmanni verð-
bréfa- og viðskiptaráðsins (SEC).
Levitt segir að „síritahugs-
unarhátturinn“ sé sérstaklega vara-
samur þegar laun stjórnenda eru
tengd kauprétti, eins og var tilfellið
með forstjóra Enron.
„Þegar ég er spurður að því hver
hafi verið meginástæða þess sem
gerðist í fyrirtækjum á borð við En-
ron og Tyco svara ég því alltaf, að
áherslan á hátt hlutabréfaverð til
skamms tíma litið sé að mínu mati
aðalástæðan fyrir svona framferði,“
segir Jeff Salters, hjá Alþjóðlegu
viðskiptasiðfræðistofnuninni í
Washington. Hann segir slíka
áherslu geta leitt til þess að starfs-
fólk reyni að stytta sér leið eða
brjóti siðareglur vegna þess að sam-
kvæmt þessum hugsunarhætti sé
starfsmönnum umbunað fyrir að ná
hlutabréfamarkmiðum, en sjaldnast
hugað að því hvernig þeir hafi farið
að því að ná þessum markmiðum.
Siðfræðingar segja ekkert rangt
við það að stjórnendur fyrirtækja
vilji hækka hlutabréfaverðið. Það
vilji fjárfestar líka. En þetta verði að
gerast á opinskáan og heiðarlegan
hátt. Gavin Anderson, forstjóri Go-
vernanceMetrics International, sem
metur stjórnunaraðferðir hjá fyr-
irtækjum og tengir mati á fjárfest-
ingaráhættu, segir að bein tengsl
séu á milli slæmrar fyrirtækj-
astjórnunar og fjársvika. Í öllum
stóru gjaldþrotamálunum und-
anfarin ár hafi vanræksla stjórnenda
verið undanfari fjársvika.
Malcolm Salter, prófessor við við-
skiptadeild Harvard-háskóla, segir
„síritahugsunarháttinn“ í rauninni
bara hlægilegan, því að í honum fel-
ist að horft sé nokkrar mínútur eða
daga fram í tímann, en við stjórnun
fyrirtækja eigi að líta til margra ára.
Þessu er Levitt sammála: „Það er
mín eigin reynsla að bestu forstjór-
anir séu þeir sem láta sig í raun lítið
varða sveiflur í verði hlutabréfanna
frá degi til dags.“ Segist Levitt ekki
myndu koma nálægt fyrirtækjum
þar sem forstjórar taki ákvarðanir
með tilliti til hlutabréfaverðsins
þann daginn. Reyndar telur Levitt
að núorðið sé algengara en það hafi
verið á síðasta áratug að stjórn-
endur fyrirtækja líti til lengri tíma.
„Síritahugsunar-
háttur“ forstjóra
Enron gagnrýndur
Jeff Skilling Ken Lay
Bagdad. AFP, AP. | Að minnsta kosti
tuttugu og einn Íraki og tveir banda-
rískir hermenn týndu lífi í nokkrum
árásum í Írak í gær. Embættismenn
höfðu lýst vonum um að mesta hætt-
an á skálmöld í landinu væri yfirstað-
in, en árásirnar í gær þykja ekki
benda til að svo sé.
Næstum tvö hundruð manns hafa
fallið í árásum í Írak frá því að hvelf-
ing helgidóms sjía-múslíma í borg-
inni Samarra var eyðilögð í spreng-
ingu um miðja síðustu viku. Var
árásin túlkuð sem tilraun til að etja
sjítum og súnnítum saman.
Bílaumferð bönnuð
Mikill viðbúnaður hefur verið í
Bagdad alla helgina, útgöngubann
var um tíma í gildi og bílaumferð var
bönnuð með öllu í borginni í gær og
þótti sú ráðstöfun gefa góða raun.
Engu að síður tókst hryðjuverka-
mönnum að drepa sextán og særa
fjörutíu í árás í sjítahverfi í Doura-
hverfinu í suðurhluta Bagdad sem að
öðru leyti er mest byggt súnnítum.
Einnig voru gerðar árásir í borginni
Diyala, norðaustur af Bagdad, og í
Baquba, skammt norður af höfuð-
borginni.
Tugir Íraka
týndu lífi