Morgunblaðið - 27.02.2006, Page 14
Yamaha píanó.
Yamaha píanó og flyglar
með og án SILENT búnaðar.
Veldu gæði – veldu Yamaha!
Samick píanó.
Mest seldu píanó á Íslandi!
Fáanleg í svörtu, hnotu og mahoný.
Verð frá 357.000 kr.
Goodway píanó.
Fáanleg í svörtu, hnotu og mahoný.
Verð frá 238.000 kr.
15 mán. Vaxtalausar greiðslur.
Estonia flyglar.
Handsmíðuð gæðahljóðfæri.
Steinway & Sons
Fyrir þá sem vilja aðeins það besta.
Til sýnis í verslun okkar.
H L J Ó Ð F Æ R A H Ú S I Ð
Suðurlandsbraut 32 • 108 Reykjavík • 591 5350
„ÞURRKUR í leggöngum er veru-
legt vandamál margra kvenna og
kemur jafnvel fyrir á öllum aldri,
en er þó langalgengast hjá konum
eftir tíðahvörf. Það er hinsvegar
algjörlega ónauðsynlegt fyrir kon-
ur að lifa við þetta því vandamálið
er vel viðráðanlegt. Með réttri
meðhöndlun fá langflestar konur
góða bót og ættu að geta notið
kynlífs fram eftir öllum aldri,“
segir Ósk Ingvarsdóttir kven-
sjúkdómalæknir, eftir að Daglegt
líf spurði um úrræði gegn leg-
gangaþurrki.
Ósk segir að aldurinn einn og
sér þurfi ekki að setja kynlífinu
skorður því svo lengi sem konur
séu frískar og líði vel eigi þær að
geta stundað kynlíf. Oftast eigi
heilsubrestur hlut að máli þegar
dregur úr kynlífi beggja kynja.
Aldurinn skipti engu máli. Úrval
úrræða gegn þurrki í leggöngum
sé til og því þurfi bara að bera sig
eftir björginni. „Konur eru nú til
dags líka orðnar mun opnari um
þessi mál en áður var og þora orð-
ið að tala um vandamálið.“
Slímhúðin byggist upp á ný
Með hækkandi aldri þynnist
slímhúð í leggöngum og hún fram-
leiðir minni raka. Mjög mismun-
andi er hvenær konur fara að
finna fyrir þessu, flestar eftir tíða-
hvörf, en sumar fyrir tíðahvörf
auk þess sem sumar konur upplifa
líkt ástand eftir barnsburð.
Svokölluð staðbundin horm-
ónameðferð fyrir leggöng hefur
breytt miklu fyrir eldri konur á
síðustu fimmtán árum, segir Ósk
og bætir við að sú meðferð sé ólík
þeirri hormónameðferð, sem sum-
ar konur kjósa að vera á til að
draga úr öðrum fylgikvillum
breytingaskeiðsins sjálfs. Lyfið,
sem ýmist kemur í formi krema,
stíla eða hringja, losar frá sér ör-
lítið magn af kvenhormóninum
estrogeni, sem gerir slímhúðina
sem líkasta því sem hún var á
frjósemisskeiðinu. Við meðferðina
losna konur við þurrkinn. Slím-
húðin byggist upp að nýju, þolir
núning og mótstöðu og verður rök
og sterkari.
Ósk segir að konur, sem séu
með þetta vandamál, geti gengið
að veikasta flokki hormónanna í
hvaða apóteki sem er. Lyfið heiti
„ovestin“ og er selt í lausasölu án
lyfseðils.
Ovestinið nægir flestum konum,
en dugi þessi veikasti flokkur
hormónanna ekki sem skyldi, er
um að gera að leita til kven-
sjúkdómalækna, sem skrifa þá út
lyfseðil á kröftugri staðbundna
hormónameðferð sé það staðfest
að þurrkurinn stafi eingöngu af
aldursbreytingu, að sögn Óskar.
Sleipiefni og gel við samfarir
Þurrkur í leggöngum getur auð-
veldlega leitt til sprungna og sára
við samfarir og stundum blæðir út
frá þunnri slímhúð.
Ekki er hægt að rekja allan
þurrk í kynfærum kvenna til ald-
ursbreytinga því dæmi eru um að
þurrkur í leggöngum stafi af t.d.
húðsjúkdómum eða sveppasýk-
ingum, sem þarf að greina og
meðhöndla síðan á annan hátt en
með staðbundinni hormónameð-
ferð. Sumar konur, sem kvarta um
þurrk í leggöngum, kvarta líka yf-
ir þurrki annars staðar í slímhúð,
svo sem í munni og augum og
gæti þá verið um að ræða Sjög-
rens- eða sicca-heilkenni, sem
tengist flokki gigtarsjúkdóma. Þá
er nauðsynlegt að meðhöndla
heildarvandamálið, en ekki bara
leggöngin ein og sér, segir Ósk.
„Oft verða konur að prófa sig
áfram með þau ráð, sem hægt er
að grípa til því vandamálið er vel
leysanlegt. Ég myndi í fyrstu ráð-
leggja konum að prófa staðbundna
hormónameðferð með lausasölulyfi
og fá sér sleipiefni eða gel til að
bera á þurra barma við samfarir.
Það eru ýmis efni fáanleg nú orð-
ið. Ég myndi hins vegar frekar
mæla með hreinum efnum á borð
við vaselín og vatnsgel, eins og
t.d. þau hlaup, sem við kven-
sjúkdómalæknar notum á tækin
okkar í stað olía, sem innihalda oft
ýmis aukaefni og ilmefni,“ segir
Ósk að lokum.
Vandamálið
vel viðráðanlegt
Ósk Ingvarsdóttir
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is
Reuters
Þurrkur í leggöngum er algengt vandamál hjá konum eftir tíðahvörf. Það
er þó vel viðráðanlegt og með réttri meðhöndlun geta langflestar konur
fengið bót sinna mála að sögn Óskar Ingvarsdóttur kvensjúkdómalæknis.
LEGGANGAÞURRKUR | Staðbundin hormónameðferð hefur góð áhrif á eldri konur
Daglegtlíf
febrúarSPILAFÍKLAR geta átt von ábata með nýju lyfi. Niðurstöður
rannsóknar sem birtust nýlega
í American Journal of Psychi-
atry benda til þess að lyf með
efninu nalmefene geti verið góð
meðferð við spilafíkn. Vís-
indamenn við Háskólann í
Minnesota komust að þessu en
um er að ræða fyrstu stóru
rannsóknina sem gerð er á því
hvort lyfjameðferð hafi áhrif.
Nalmefene dregur úr
vímunni sem spilafíklar fá við
að spila fjárhættuspil og dreg-
ur úr þörfinni fyrir það. Þátt-
takendum í rannsókninni var
skipt í tvo hópa, annar fékk
lyfjameðferð en hinn gervilyf.
Á fjögurra mánaða rannsókn-
artímabili sást merkjanlegur
árangur á lyfjahópnum og
breytingar urðu á hugsunum
og hegðun. Ef frekari rann-
sóknir á lyfinu reynast jákvæð-
ar mun það verða aðgengilegt
almenningi í Bandaríkjunum
eftir um tvö ár, að því er fram
kemur á vef Háskólans í Minne-
sota.
Lyf gegn
spilafíkn
HEILSA