Morgunblaðið - 27.02.2006, Síða 18
18 MÁNUDAGUR 27. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Hallgrímur B. Geirsson.
Styrmir Gunnarsson.
Framkvæmdastjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjórar:
Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
JOE MCCARTHY OG NÚTÍMINN
Íbyrjun sjötta áratugar síðustu aldarsat maður að nafni Joe McCarthy íöldungadeild Bandaríkjaþings.
Kalda stríðið var að skella á, Kóreustríð-
ið geisaði og margir töldu heimsstyrjöld
vofa yfir. Óttinn við kommúnismann, sem
hafði flætt yfir Austur-Evrópu eftir
stríð, var yfirgnæfandi.
Joe McCarthy nýtti sér þetta and-
rúmsloft ótta og að sumu leyti móður-
sýki. Hann sá kommúnista í hverju horni.
Hann hélt uppi lygaherferð gegn sak-
lausu fólki vegna þess eins, að það hefði
einhvern tíma þekkt fólk, sem hefði stutt
kommúnismann. Segja má, að Joe
McCarthy hafi um skeið haldið Banda-
ríkjunum í heljargreipum.
Aðrir stjórnmálamenn voru tregir til
að snúast gegn honum. Þeir töldu, að
hann nyti mikils fylgis almennings og
hætta væri á, að hann beindi spjótum sín-
um að þeim sjálfum, ef þeir létu hann
ekki í friði. Jafnvel Eisenhower Banda-
ríkjaforseti hafði hægt um sig framan af,
þótt hann tæki af skarið að lokum, sem
Bandaríkjaþing gerði líka, þegar fjarað
hafði rækilega undan öldungadeildar-
þingmanninum í almannahylli.
Einn maður stóð þó upp og tók upp
baráttu gegn McCarthy. Það var frétta-
maður að nafni Ed Murrow, sem hafði
vakið gífurlega athygli í Bandaríkjunum
á stríðsárunum, þegar hann sendi dag-
legar fréttir heim frá London. Ed Murr-
ow beindi spjótum sínum að öldunga-
deildarþingmanninum á efnislegum
forsendum. Hann og samstarfsmenn
hans rannsökuðu ásakanir McCarthy á
hendur einstaklingum og skýrðu frá nið-
urstöðunum í sjónvarpi.
Joe McCarthy brást við á sama hátt og
hans líkar gera alltaf. Hann svaraði engu
þeim staðreyndum, sem dregnar voru
fram og sýndu í skýrt þann lygaáróður,
sem hann hafði haldið uppi. Þess í stað
reyndi hann að grafa upp einhvern
óþverra um andstæðing sinn og ef hann
fann hann ekki var hann búinn til.
Og Ed Murrow kynntist auðvitað þeim
veruleika, sem þeir blaðamenn kynnast
oft, sem taka upp baráttu í einhverjum
málum; ef rógurinn dugar ekki er gripið
til peningavaldsins og reynt að hóta við-
komandi fjölmiðli með tekjumissi.
Nú hefur verið gerð kvikmynd um bar-
áttu Ed Murrows gegn McCarthy, sem
nefnist Góða nótt og gangi ykkur vel.
Hún er sýnd hér nú og ástæða til að
hvetja fólk til að sjá hana. Hún hefur að
geyma mikilvægan boðskap.
Verst er þó að vinnubrögð Joe
McCarthy lifa góðu lífi á Vesturlöndum á
okkar tímum og líka hér á Íslandi.
Það er athyglisvert hvað erfitt er að fá
fram umræður hér á landi um efni þeirra
mála, sem til umræðu eru. Í stað þess að
taka upp málefnalegar umræður er alltof
oft reynt að beina umræðum frá kjarna
máls að formi máls og ef það dugar ekki
til er gripið til hinnar gamalkunnu að-
ferðar Joe McCarthys, þ.e.a.s. rógsins.
Og þar sem Ed Murrow hefur ekki
eignast marga verðuga eftirmenn enda
umræðurnar með því að snúast upp í ein-
elti, sem margir fjölmiðlar taka hugsun-
arlaust þátt í. Ef hægt er að lýsa vinnu-
brögðum Joe McCarthys með einu orði
þá er það þetta orð – einelti.
Vonandi eiga margir eftir að sjá þessa
merku kvikmynd – og kannski einhverjir
þeirra líti í eigin barm og horfist í augu
við sjálfa sig.
LEYNIRÆÐA KRÚSTSJOVS
Fyrir fimmtíu árum flutti NikítaKrústsjov ræðu á 20. flokksþingi
sovéska kommúnistaflokksins sem segja
má að hafi markað upphafið að hruni
Sovétríkjanna. Ræðan var flutt á lokuð-
um fundi í lok flokksþingsins að morgni
mánudagsins 25. febrúar 1956. Í leyni-
ræðunni afhjúpaði Krústsjov glæpi Stal-
íns. Ræðan hófst sakleysislega en hún
stóð í fjórar klukkustundir og þegar
Krjústjov hafði lokið máli sínu voru við-
staddir slegnir. „Við gátum ekki horfst í
augu,“ sagði Alexander Jakovlev, einn
fulltrúanna á þinginu. „Ég veit ekki
hvort það var út af skömm, áfallinu eða
einfaldlega vegna þess hvað það sem
gerðist var óvænt.“
Í ræðunni lýsti Krúststjov fjölda-
morðum Stalíns þegar ógnarstjórn hans
stóð sem hæst á árunum 1936 til 1938. Á
þeim tíma hefði fjöldi heiðarlegra
kommúnista verið handtekinn og skot-
inn á grundvelli „falsaðra, upploginna
ásakana“. En þótt fjallað væri um
grimmdarverk Stalíns í ræðunni var þó
margt undanskilið. Krústsjov þorði ekki
að ganga alla leið, enda var erfitt að líta
fram hjá því að margir á flokksþinginu,
þar á meðal hann, höfðu verið þátttak-
endur í glæpum Stalíns. Arftaki Stalíns
fann þeim helst það til málsbóta að þeim
hefði verið bráður bani búinn hefðu þeir
möglað. William Taubman, sem gaf út
verðlaunaða ævisögu Krústjovs fyrir
tveimur árum, rifjar upp í grein í The
New York Times á laugardag að þegar
Krústsjov var spurður löngu eftir að
hann var orðinn valdalaus hvers hann
iðraðist helst svaraði hann: „Það er blóð-
ið. Handleggir mínir eru á kafi í blóði
upp að olnbogum. Það er hræðilegasti
hluturinn, sem liggur á sál minni.“
Efni leyniræðunnar spurðist hægt og
sígandi út. Efni hennar var kynnt í röð-
um félaga í kommúnistaflokknum, jafnt í
Sovétríkjunum sem í leppríkjum þeirra,
þótt ekki væri greint frá henni opinber-
lega, og alls staðar varð hún tilefni
harðra deilna. Hún birtist hins vegar
fyrst á Vesturlöndum í byrjun júní sama
ár þegar hún var prentuð í heild í dag-
blaðinu The New York Times. Þangað
hafði hún borist eftir krókaleiðum. Ísra-
elska leyniþjónustan hafði komist yfir
eintak í Póllandi og látið í hendur CIA.
Fyrir Krústsjov vakti ekki að veikja
Sovétríkin heldur finna leið til að þau
héldu styrk sínum og sömuleiðis hugðist
hann styrkja sjálfan sig í sessi með því
að taka frumkvæðið. En hann vissi hins
vegar að uppljóstranirnar um Stalín
gætu orðið upphafið að ólgu, sem ekki
yrði séð fyrir endann á.
Í Póllandi var verkfall í Poznan í júní
var brotið á bak aftur með valdi. 53 lágu í
valnum og mörg hundruð manns særð-
ust. Í lok október náði ólgan til Ung-
verjalands. Þegar Ungverjar lýstu yfir
því að þeir hygðust ganga úr Varsjár-
bandalaginu sendi Krústsjov rússneska
herinn til að brjóta byltinguna á bak aft-
ur. 20 þúsund manns létu lífið.
Er Krústsjov var steypt 1964, meðal
annars vegna þess að hann vildi þurrka
út áhrif Stalíns, sagði hann að því hefði
hann þó komið til leiðar að nú gæti leið-
togi Sovétríkjanna misst völdin án þess
að missa lífið.
Um 20 árum síðar komst Míkhaíl Gor-
batsjov til valda. Líkt og Krústsjov vildi
hann bjarga Sovétríkjunum með umbót-
um, en ekki leggja þau niður. Honum
gekk ætlunarverk sitt ekki betur, en
lauk því, sem hófst með leyniræðunni.
Sennilega var ekki hægt að bæta sov-
éska kerfið. Það var aðeins hægt að
halda því við eða leggja það niður.
Þegar Krústsjov lést var greint frá því
í einni setningu í Prövdu. Þá hafði enn
ekki verið greint opinberlega frá leyni-
ræðunni í Sovétríkjunum. Það gerðist
ekki fyrr en 1989.
„ÞETTA gekk alveg
stæður,“ segir Guðm
Slökkviliði höfuðbor
aðgerðum úr sprung
tveimur féll 30 m of
var svartamyrkur o
okkur,“ lýsir hann a
annað en þær gríða
við. „Aðstæðurnar v
vonlausar. Á tímabi
hélt að þetta myndi
Jeppinn var skorð
mönnunum út en me
stöðugt yfir björgun
ofan frá í hvert sinn
brúnina niður til ok
okkur.“ Því hafi bjö
hættu ofan í sprung
„Þegar þetta fór a
opnað meira og mei
maður að þetta var
við að losa um menn
Engum jeppum va
og fluttu menn því b
voru allir menn og b
sprungunni með han
sprungunnar og þyr
Mennirnir voru b
ná þeim út voru rey
reyndu björgunarm
handverkfæri en síð
búnað til verksins. Í
klippibúnaður til sk
sundur með. Þá var
Gengið í átt að sly
Guðmundur fór á
Hauki Rögnvaldssyn
unarmaður, með þy
„Þá
Guðmundu
MAÐURINN sem lést er jeppi sem
hann var í féll um 30 m ofan í
sprungu á Hofsjökli á laugardag er
talinn hafa látist samstundis. Hinn
maðurinn, sem var bílstjóri bílsins,
var með meðvitund er björgunar-
menn komu á staðinn en liggur al-
varlega slasaður á gjörgæsludeild
Landspítalans. Að sögn eins við-
staddra var maðurinn ótrúlega vel á
sig kominn eftir þetta mikla fall og
þann langa tíma sem hann þurfti að
vera í jeppanum niðri í sprungunni.
Mennirnir voru í samfloti við tvo
aðra jeppa sem tilkynntu um slysið
til Neyðarlínunnar. Höfðu mennirn-
ir lagt upp frá Akureyri fyrr um
daginn. Um 150 björgunarmenn á
þremur þyrlum, flugvél, 28 jeppum,
tveimur snjóbílum og 15 vélsleðum
tóku þátt í björgunaraðgerðinni
vegna slyssins þó aðeins hluti þeirra
hafi farið upp á jökulinn sjálfan eða
um 30–40 manns. Báðar þyrlur
Landhelgisgæslunnar voru óvirkar
og voru því tvær þyrlur Varnarliðs-
ins kallaðar út, sem og þyrla danska
varðskipsins Triton sem svo heppi-
lega vildi til að var statt í Reykjavík-
urhöfn.
Hofsjökull er mjög sprunginn á
svæðinu þar sem slysið átti sér stað
jeppanum liðu rúmlega 8½
stund. Þeir sem að björ
unnu, og Morgunblaðið ræ
eru þó sammála um að vel ha
til miðað við aðstæður. Ekk
komið upp á sem tafið hafi ó
fyrir aðgerðum.
Margir kallaðir til
Eftir að tilkynning um
barst Neyðarlínunni, um kl.
laugardag, voru björgunars
Norðurlandi, Suðurlandi og
borgarsvæðinu þegar í stað k
og voru aðstæður þær sem björg-
unarmenn unnu við því gríðarlega
erfiðar, ekki síst ofan í sprungunni
sjálfri þar sem ís hrundi stöðugt yfir
þá. Einnig hægði snjóleysi á svæð-
inu kringum Kerlingarfjöll, þaðan
sem farið var á jökulinn að sunn-
anverðu, verulega á björgunarsveit-
armönnum á leið á slysstað því erfitt
var að keyra vegi og troðninga
vegna úrrennslis.
Frá því tilkynning barst Neyðar-
línunni um slysið og þar til búið var
að ná mönnunum tveimur út úr
Sprunginn jökullinn og snjóleysi á hálendinu torveldu
Kominn á s
um eftir að
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur, Önnu Pálu
Sverrisdóttur og Skapta Hallgrímsson
Farþegi talinn
hafa látist sam-
stundis en
ökumaður slas-
aðist alvarlega
Aðgerðir vegna björgunar af Hofsjökli samstilltar í björgunarmi
„ÞAÐ á náttúrlega almennt við um jökla að það er mjög við-
sjárvert að ferðast um þá. Það eru til leiðir sem menn telja
vera sæmilega öruggar en Hofsjökull flokkast almennt ekki
undir það. Það eru til leiðir þar en þetta svæði [þar sem slysið
átti sér stað], milli Hásteina og Tanna, er nánast alltaf með
stórum sprungum,“ segir Oddur Sigurðsson jarðfræðingur
sem margoft hefur ferðast um Hofsjökul vegna vinnu sinnar
við afkomumælingar jökulsins. Svæðið sé því háskalegt.
Ástæðan er sú að á þessu svæði er jökullinn brattur og
skríður hratt og við slíkar aðstæður springur jökull gjarnan.
Líklegt er að jökullinn fari þarna fram af bergstalli og því séu
sprungurnar stórar. „Í fyrsta lagi þarf maður að vita hvaða leiðir eru nærri því að
vera öruggar og svo þarf maður að sjá mjög vel til,“ segir Oddur um ferðalög á
jöklinum. Hann bendir á að oft snjói yfir sprungurnar svo erfitt sé að átta sig á
hvar þær eru nákvæmlega. „Það er ekkert öruggt að ferðast um jökul, það er
grundvallaratriðið.“
Líkt og aðrir jöklar er Hofsjökull að minnka. Almennt dregur heldur úr
sprungum samfara því, en það á þó ekki alltaf við, sérstaklega ekki um sprungur
sem eru hátt í jöklunum. Þær eru nánast alltaf á sínum stað.
Svæðið háskalegur staður
Oddur Sigurðsson
CARSTEN Basse flaug þyrlu af danska herskipinu Triton, sem statt var í Reykja-
víkurhöfn þegar slysið varð, en hún flutti fyrstu björgunarmennina á staðinn.
„Staðarákvörðunin sem við fengum í upphafi reyndist röng og því flugum við
fyrst á stað um 12 km frá slysstaðnum,“ segir Carsten sem þekkir þó ekki ástæður
þess að rangt var farið með staðsetningu í byrjun. „Við fengum svo leiðréttingu en
þurftum að hringsóla nokkrum sinnum um svæðið því aðstæður til lendingar voru
erfiðar. Þegar nálgast yfirborð jökulsins feykir þyrlan upp snjónum svo allt verður
hvítt í kring.“ Að öðru leyti segir hann aðstæður hafa verið góðar og fjarskipti til
dæmis ekki verið vandamál. „Við vorum með þrjá Íslendinga um borð sem þekktu
aðstæður og það kom sér vel þegar við vorum enn ekki komnir með rétta staðsetn-
ingu. Við fyrstu sýn virtust litlar líkur á að eftirlifendur yrðu úr slysinu þar sem
bíllinn lá á þakinu ofan í sprungunni. Fljótlega var þó maður sendur niður og ljóst
varð að annar væri dáinn og hinn talsvert slasaður.“ Þyrlan var á jöklinum í um
eina og hálfa klukkustund. Eftir að þyrla Varnarliðsins kom á svæðið og farið var
að skyggja, var ljóst að langan tíma tæki að ná mönnunum úr sprungunni og flaug
þá þyrlan til Reykjavíkur enda orðin bensínlítil.
Carsten segist hafa tekið þátt í fjölda björgunarleiðangra, oftast við Grænland og
Færeyjar. Þá hafi hann oft verið við störf á Íslandi vegna samnings íslenskra og
danskra stjórnvalda en sem betur fer aldrei orðið slys áður meðan hann stóð vakt-
ina hér. „Við vorum ánægðir að geta lagt hönd á plóginn og að takast skyldi að ná
öðrum mannanna lifandi.“
Erfitt að lenda á jöklinum