Morgunblaðið - 27.02.2006, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. FEBRÚAR 2006 19
g ótrúlega vel miðað við erfiðar að-
mundur Guðjónsson, bráðaliði hjá
rgarsvæðisins (SHS), sem stjórnaði
gunni sem jeppinn með mönnunum
fan í á Hofsjökli á laugardag. „Það
ofan í sprungunni og ís allt í kringum
aðstæðum. Ekkert hafi tafið aðgerðir
arlega erfiðu aðstæður sem unnið var
voru bara þannig, þær voru næsta
ili leið mér mjög illa yfir því að ég
ekki ganga.“
ðaður á þann hátt að erfitt var að ná
est hætta stafaði af ís sem hrundi
narmennina. „Það var mikið íshrun
n sem búnaður var að fara yfir
kkar. Þá rigndi ísnum stöðugt yfir
örgunarmennirnir vissulega verið í
gunni.
að mjakast og við fórum að geta
ira af bílnum með klippunum, sá
farið að ganga vel og í lokin náðum
nina.“
ar hægt að koma nálægt sprungunni
búnað að slysstað fótgangandi. Þá
búnaður hífðir upp og niður í
ndafli. Hátt í kílómetri var á milli
rlnanna að mati Guðmundar.
áðir fastir inni í jeppanum og til að
yndar ýmsar aðferðir. Fyrst í stað
mennirnir að nota spennijárn og
ðan fengu þeir handknúinn klippi-
Í lokin kom svo sérhæfður og öflugur
kjalanna sem bíllinn var klipptur í
r loks hægt að mönnunum út.
ysstað
ásamt Ara Haukssyni frá SHS og Jóni
ni, sem er sérþjálfaður fjallabjörg-
yrlu danska varðskipsins Triton frá
ir að sprungunni sigu ofan í hana. Fyrstur fór Jón
Haukur og þá Guðmundur sem stjórnaði þaðan í frá
björgunaraðgerðum úr sprungunni. Ari Hauksson frá
SHS tók að sér vettvangsstjórn við sprungubrúnina.
„Gatið er í sjálfu sér mjög sakleysislegt, kannski þrír
sinnum fimm metrar,“ segir Guðmundur um sprunguop-
ið sem jeppinn fór niður um. „En síðan er gríðarstór
sprunga undir.“ Guðmundur segir engan veginn hægt
að segja til hversu djúp sprungan hafi verið en jeppinn
hrapaði 30 m, þar sem hann skorðaðist og þangað sigu
björgunarmennirnir einn af öðrum. Svo vildi til að
snjórinn, sem huldi sprunguna, stöðvaðist neðan við bíl-
inn og virkaði sem n.k. gólf svo að björgunarmenn gátu
athafnað sig undir bílnum. Þegar leið á kvöldið fengu
björgunarmennirnir betri búnað til að klippa mennina
út, með þeim björgunarmönnum sem bættust í hópinn
og þyrlu sem fór suður að sækja m.a. öflugar klippur.
Það var svo nokkru fyrir miðnætti að mennirnir náðust
út úr bílnum.
Sérþekking allra sameinaðist
Guðmundur segir að við þessar aðstæður hafi sannast
hversu dýrmætt það sé að hafa með í för sérþjálfaðan
fjallabjörgunarmann. „Þarna sameinaðist sérþekking
allra,“ segir Guðmundur en þessir aðilar hafi margoft
æft saman sem hafi skilað sér vel í þessari björgunar-
aðgerð.
„Maður hefur svo sem lent í ýmsu en þetta er með
þeim mest krefjandi aðstæðum sem ég hef unnið í og við
vorum sammála um það sem komum að þessu. En við
vorum jafnframt mjög sammála um að samvinnan hefði
gengið vel og hversu hratt þetta gekk þó að tíminn virð-
ist gríðarlega langur.“
Guðmundur leggur áherslu á að viðbrögð samferða-
manna þeirra sem lentu ofan í sprungunni hafi verið
hárrétt. „Þeir tilkynntu um slysið og biðu svo átekta og
það var í raun það eina sem hægt var að gera í stöðunni
því það þurfti sérhæfðan búnað til að fara inn á þetta
svæði.“
Reykjavík um kl. 16. Þyrlan lenti um 700–800 m frá
slysstaðnum. Síðan var notaður jeppi samferðamanna
þeirra sem féllu í sprunguna til að ferja búnað og björg-
unarmenn nær slysstaðnum en þó ekki nær en 300 m
þar sem það þótti ekki óhætt. Þaðan gengu björg-
unarmenn í átt að sprungunni. „Það var mjög hættulegt
svæði þannig að við urðum að gæta ýtrustu varúðar og
það var ekki óhætt fyrir neinn að ganga um svæðið
nema að vera tryggður í línu,“ segir Guðmundur. Fyrst
fóru þeir þrír sem komu með dönsku þyrlunni í átt að
sprungunni en fljótlega bættust við þrír fjallabjörg-
unarmenn, þar með taldir tveir varnarliðsmenn, sem
komu með annarri varnarliðsþyrlunni. „Þarna á þessu
svæði er mikið af mjög stórum sprungum,“ segir Guð-
mundur um leiðina að slysstaðnum. „Svæðið er mjög
erfitt og varasamt yfirferðar og í raun ekki fyrir neinn
að vera að ferðast um.“
Fjórir af þeim sex björgunarmönnum sem komu fyrst-
rigndi ísnum stöðugt yfir okkur“
Morgunblaðið/Eggert
Guðmundur Guðjónsson stjórnaði aðgerðum úr sprung-
unni á Hofsjökli við erfiðar aðstæður á laugardag.
ur Guðjónsson, bráðaliði hjá SHS, stjórnaði aðgerðum úr sprungunni
unarmenn að norðan einnig með
búnað með sér sem notaður var við
björgunina.
Flugvél Landhelgisgæslunnar,
Syn, var kölluð út og var hún notuð
sem endurvarpi fyrir fjarskipti milli
björgunaraðila á slysstaðnum. Er
þetta hefðbundinn þáttur í stórri að-
gerð sem þessari til að tengja saman
alla aðila. En eins og víðar á hálend-
inu getur fjarskiptasamband verið
stopult á Hofsjökli. Það hamlaði þó
ekki aðgerðum að sögn Gunnars
Stefánssonar, sviðsstjóra björgun-
arsviðs Landsbjargar.
Snjólítið á hálendinu
og vegir erfiðir
Skyggni var gott á svæðinu,
stjörnubjart og átta stiga frost, en
annað kom til sem torveldaði að-
gerðir nokkuð. Sigurður Jónsson,
fréttaritari Morgunblaðsins, sem fór
að Hofsjökli á laugardag, hefur eftir
björgunarmönnum á Suðurlandi að
gott veður hafi auðveldað þeim
störfin en á móti hafi komið að snjó-
lítið var við jökulinn og því erfitt að
keyra vegi og slóða þar sem mikið
var runnið úr þeim. Þetta hægði á
björgunarmönnum á leið á jökulinn.
Eftir að þyrlurnar voru búnar að
finna slysstaðinn úr lofti varð ljóst
að aðstæður væru mjög erfiðar og
yfir mikið sprungusvæði þyrfti að
fara. Það var ekki fyrr en undir mið-
nætti, eða tæpum fimm tímum eftir
að slysstaðurinn fannst, að búið var
að ná mönnunum út úr bílnum með
klippum og koma þeim slasaða í
kjölfarið í aðra þyrlu Varnarliðsins.
Hún lenti við Landspítalann í Foss-
vogi um kl. 1 aðfaranótt sunnudags,
eða tæpum tíu tímum eftir að til-
kynning um slysið barst Neyðarlínu.
Björgunarmenn við sprunguna
Til að komast að slysstað þurftu
björgunarmenn að bera búnað sinn
um 300 m vegalengd því nær var
ekki talið öruggt að fara akandi.
Voru björgunarmenn festir við línu
til að tryggja öryggi þeirra á þessu
mikla sprungusvæði. Aðstæður við
sprunguna og ofan í henni voru sér-
staklega erfiðar. Ís hrundi stöðugt
yfir þá fjóra björgunarmenn sem
sigu niður að jeppanum, sem hafði
skorðast í sprungunni á um 30 m
dýpi, en sprungan sjálf var miklu
dýpri.
Frá því að niður í sprunguna var
komið liðu margar klukkustundir
áður en tókst að klippa bílinn í sund-
ur og ná mönnunum út. Bílinn var
algjörlega samanpressaður að sögn
viðstaddra. Voru björgunarmenn á
tímabili orðnir svartsýnir á að bún-
aðurinn sem þeir höfðu fyrst í stað
myndi duga til að klippa mennina út
og var farið að huga að því að fá
jeppa að sprungunni til að draga
bílflakið upp. Ýmis búnaður var
prófaður til að reyna að komast að
mönnunum en það var ekki fyrr en
mjög öflugar klippur komu frá
slökkviliðinu á Akureyri, sem tækja-
bílar slökkviliðanna eru útbúnir, að
tókst að klippa bíllinn nægilega mik-
ið í sundur til að ná mönnunum út.
Þeir voru svo hífðir upp á brúnina í
sjúkrabörum þaðan sem þeim var
komið í þyrluna sem flutti þá til
Reykjavíkur. Annar maðurinn er
sem fyrr segir talinn hafa látist sam-
stundis en hinn liggur alvarlega
slasaður á gjörgæsludeild Landspít-
alans.
út. Komu fyrstu menn úr þeim á
slysstað um kl. 19.30. Einnig voru
kallaðar út þyrlur varnarliðsins og
þyrla af danska varðskipinu Triton
sem fór í loftið frá Reykjavík um kl.
16 með liðsmenn Slökkviliðs höfuð-
borgarsvæðisins og frá Landsbjörg
auk létts búnaðar. Þá fluttu varn-
arliðsþyrlurnar fleiri björgunar-
menn og lækni á svæðið. Önnur
varnarliðsþyrlan fór svo um kvöld-
matarleytið til Keflavíkur og á
Hvolsvöll til að sækja frekari búnað
til björgunarinnar. Þá komu björg-
klukku-
rguninni
æddi við,
afi tekist
kert hafi
óeðlilega
l
m slysið
. 15.14 á
sveitir á
g höfuð-
kallaðar
uðu björgunaraðgerðir er jeppi með tveimur mönnum féll ofan í sprungu á Hofsjökli
sjúkrahús tíu tím-
ð neyðarkall barst
Morgunblaðið/Júlíus
iðstöðinni í Skógarhlíð.
!
!
"
#
#
" #
$ !# &
' #(
)*
+ %
,-
.-
ÞYRLUR Landhelgisgæslunnar voru
báðar óvirkar á laugardag er slysið á
Hofsjökli átti sér stað. Samkvæmt upp-
lýsingum Gæslunnar var Líf, stóra
björgunarþyrlan, í 3.000 tíma skoðun
sem er mjög viðamikil og tekur nokkrar
vikur. Búist er við að hún komist í gagn-
ið upp úr miðjum mars. Sif, minni björg-
unarþyrla Landhelgisgæslunnar, var
einnig óvirk vegna ófyrirséðs viðhalds
en beðið er eftir varahlutum í hana og er
reiknað með að hún komist í gagnið í
vikulok.
Landhelgisgæslan er með samstarfs-
samning við Varnarliðið um gagn-
kvæma aðstoð við leit og björgun. Felur
samningurinn það í sér að Varnarliðið
er látið vita ef þyrlur Landhelgisgæsl-
unnar eru óvirkar og þá er leitast við að
hafa þyrlur Varnarliðsins í viðbragðs-
stöðu.
Landhelgisgæslan er einnig með
samstarfssamning við danska sjóherinn,
Coop Saga, sem kveður á um gagn-
kvæma aðstoð við leit og björgun. Svo
heppilega vildi til að danska varðskipið
Triton var við bryggju í Reykjavík-
urhöfn á laugardag og brugðust áhöfnin
á Triton og varnarliðsmenn fljótt og vel
við aðstoðarbeiðni frá Landhelgisgæsl-
unni.
Báðar þyrlur
Gæslunnar
óvirkar
Kl. 15.14. Tilkynning berst til
Neyðarlínunnar (112) um að jeppi
hafi fallið í sprungu á Hofsjökli og
í honum tveir menn. Samhæfing-
armiðstöð virkjuð og Landsbjörg,
lögregla, 112 og Landhelgis-
gæslan koma að aðgerðum. Á
annað hundrað björgunarsveit-
armönnum frá höfuðborgar-
svæðinu, Suðurlandi og Norður-
landi er stefnt á jökulinn á
jeppum, snjóbílum og vélsleðum.
16.00. Þyrla frá danska varðskip-
inu Triton fer af stað með liðs-
menn Slökkviliðs höfuðborgar-
svæðisins (SHS) og Landsbjargar
auk búnaðar. Tvær þyrlur varn-
arliðsins flytja fleiri björgunar-
sveitarmenn og búnað á vettvang.
17.45. Þyrla frá danska varðskip-
inu og þyrla Varnarliðsins komn-
ar á Hofsjökul. Ekki hefur tekist
að finna slysstað en bæði er leitað
úr lofti og á landi. Veður og
skyggni með ágætum.
18.00. Búið að finna slysstað og
þyrlurnar lenda á svæðinu, um
600 m frá slysstað. Björgunar-
aðgerðir hefjast þegar í stað.
19.30. Fyrstu björgunarsveit-
armenn að norðan koma á vett-
vang. Björgunarmenn að sunnan
koma síðar um kvöldið. Aðstæður
mjög erfiðar og björgunarmönn-
um hefur ekki tekist að komast að
jeppanum. Þyrla Varnarliðsins
flýgur til Keflavíkur og á Hvols-
völl til að sækja frekari búnað til
björgunarinnar.
19.39. Flugvél Landhelgisgæsl-
unnar, Syn, fer í loftið og er notuð
sem endurvarpi fyrir fjarskipti
milli björgunaraðila á slysstað.
Vélin var á flugi í 5 tíma og 40
mín.
21.00. Björgunaraðgerðir ofan í
sprungunni farnar að ganga vel
og klippur komnar á staðinn, sem
og læknir.
23.00. Um þetta leyti er orðið
ljóst að menn á vettvangi eru bún-
ir að ná utan um verkefnið og öðr-
um björgunarmönnum á leið á
jökulinn snúið við.
23.50. Búið að ná mönnunum úr
jeppanum og þeir í kjölfarið flutt-
ir með þyrlu Varnarliðsins til
Reykjavíkur.
00.43. Björgunarsveitarmenn á
jöklinum undirbúa heimferð.
01.00. Þyrlan lendir með hinn
slasaða við Landspítalann í Foss-
vogi.
02.10. Þyrla Varnarliðsins lendir
með björgunarmenn í Reykjavík.
Aðgerð lokið.
Frá tilkynn-
ingu um slys
til björgunar