Morgunblaðið - 27.02.2006, Side 36
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 MÁNUDAGUR 27. FEBRÚAR 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
STÓRI
BÓKAMARKAÐURINN
Perlunni og Akureyri
23. feb. - 5. mars
OPIÐ ALLA DAGA
FRÁ KL. 10-18
Sími 568 6625
STARTARAR
FYRIR BÁTA OG BÍLA
ÞORGERÐUR Katrín Gunn-
arsdóttir, menntamálaráðherra, og
staðgengill utanríkisráðherra í op-
inberri heimsókn til Indlands, opn-
aði í gær nýtt íslenskt sendiráð í
Nýju-Delhí, höfuðborg landsins, við
formlega athöfn.
„Það var áhrifamikið að sjá ís-
lenska fánann dreginn að húni hér í
Nýju-Delhí höfuðborg Indlands,
næstfjölmennasta ríkis heims og
fjölmennasta lýðræðisríkisins,“
sagði Þorgerður Katrín í gær í sam-
tali við Morgunblaðið.
Hún sagði að heimsóknin hefði
verið ánægjuleg. Hún hófst í gær-
morgun og stendur til föstudagsins
3. mars, en með Þorgerði Katrínu í
för er fjölmenn íslensk viðskipta-
sendinefnd skipuð fulltrúum 23 ís-
lenskra fyrirtækja. Ráðherra mun
eiga fundi með indverskum ráða-
mönnum, m.a. forseta og forsætis-
ráðherra Indlands. Þá hefur Út-
flutningsráð Íslands í samvinnu við
utanríkisráðuneytið skipulagt við-
skiptaráðstefnur og tvíhliða fundi
indverskra og íslenskra fyrirtækja í
Nýju-Delhí, Mumbai og Bangalore.
Þorgerður Katrín sagði að sendi-
ráðið væri í sama húsi og danska
sendiráðið og Danir hefðu verið okk-
ur mjög vinsamlegir og hjálplegir
hvað þetta snerti. Opnun sendiráðs
væri mikilvæg og ætti eftir að stuðla
að öflugum og skilvirkum sam-
skiptum þjóðanna, en viðskiptahags-
munir Íslendinga á Indlandi færu
stöðugt vaxandi. Það væru allir sam-
mála um að þessi samskipti myndu
aukast á næstu árum, enda væru
feikileg tækifæri framundan. Hag-
vöxtur væri nú 8% á Indlandi og þeir
stefndu að 10% árlegum hagvexti.
Uppgangurinn væri því mjög mikill.
Ráðherra átti einnig fund með An-
and Sharma, ráðherra í utanrík-
isráðuneytinu. Á fundinum ræddu
þau m.a. tvíhliða samskipti ríkjanna
en þau hafa verið að aukast.
Íslenskt sendiráð opnað í Nýju-Delhí
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra dregur íslenska
fánann að húni við opnun íslensks sendiráðs í Nýju-Delhí á Indlandi. Með
henni á myndinni er Sturla Sigurjónsson, sendiherra á Indlandi.
Eftir Hjálmar Jónsson
hjalmar@mbl.is
PALOMAR Pictures, fyrirtæki Sig-
urjóns Sighvatssonar hefur náð
mjög hagstæðum samningum við
Sony um endurgerð dönsku mynd-
arinnar Brødre.
Einn vinsælasti handritshöf-
undur Hollywood, David Benioff,
mun skrifa handrit endurgerð-
arinnar og hafa bæði Steven Spiel-
berg og Ang Lee lýst áhuga sínum
á að leikstýra myndinni. | 30
Spielberg og
Ang Lee
áhugasamir
Morgunblaðið/Þorkell
ÞYRLA Varnarliðsins sótti tvo menn
í skálann við Hrafntinnusker í fyrri-
nótt eftir að þeir höfðu velt bíl sínum
þar í nágrenninu. Þeir komu sér sjálf-
ir í skálann og kölluðu eftir aðstoð.
Björgunarsveitin Ársæll, sem var að
koma frá því að aðstoða þá sem lentu í
slysinu á Hofsjökli, var skammt frá
Hrafntinnuskeri þegar útkallið kom
og fór á staðinn. Mennirnir voru flutt-
ir á Landspítala – háskólasjúkrahús í
Fossvogi, talsvert slasaðir, og lenti
þyrlan þar seint í fyrrinótt.
Hafþór Freyr Víðisson, annar
mannanna, sagðist í samtali við Morg-
unblaðið í gærkveldi vera afar þakk-
látur öllum þeim sem komu að björg-
un þeirra, áhöfn þyrlunnar og
björgunarsveitinni sem kom á stað-
inn. Björgunin hefði gengið vel, en
það hefði verið erfitt að bíða eftir
þyrlunni og tíminn lengi að líða.
Hann sagði að þau hefðu farið sam-
an á fimm bílum á laugardagsmorg-
uninn. Einn bíll hefði farið til baka um
kvöldið en fjórir orðið eftir. Um
kvöldið hefði verið stjörnubjartur
himinn og dansandi norðurljós og þau
ákveðið að fara ofar til að sjá betur.
Þeir hefðu verið tveir saman í bíl á
leiðinni til baka þegar slóðin hefði allt
í einu horfið og bíllinn endastungist
fyrirvaralaust. Þeir hefðu komist út
úr bílnum og verið studdir í skálann,
sem hefði verið 2–300 metra í burtu,
af samferðafólkinu, en hann hefði
ekki getað gengið þangað hjálpar-
laust.
Hjálparbeiðnin barst um tvöleytið í
fyrrinótt og var björgunarsveitin Ár-
sæll á leiðinni heim úr Hofsjökuls-
slysinu þegar beiðni barst. Gylfi Sæv-
arsson hjá Ársæli sagði að þeir hefðu
ákveðið að fara svolítið lengri leið
heim og hefðu verið hjá stað sem heit-
ir Hungurfit, þegar beiðnin barst, en
þaðan væri um 40 mínútna ferð í
Hrafntinnusker. Þeir hefðu búið um
mennina og kallað út þyrluna og beðið
eftir að hún kæmi. Klukkan hefði ver-
ið orðin margt og þeir því ákveðið að
leggja sig í skálanum að björguninni
lokinni og þess vegna ekki komið í
bæinn fyrr en seinnipartinn í gær.
Slösuðust þegar bíll valt
nærri Hrafntinnuskeri
Eftir Hjálmar Jónsson
hjalmar@mbl.is
$%
&
!
!
'
&
&
/
$ KONUR frá Ghana dönsuðu af
lífi og sál á þjóðahátíð Alþjóða-
hússins nú um helgina. Undir
var leikið á trommur og götu-
stemmning ríkti undir dans-
inum. Hátíðin, sem er hluti af
Vetrarhátíð í Reykjavík, var
líkt og nafnið gefur til kynna
mjög fjölbreytt og ýmislegt
sem fyrir augu og eyru bar.
Önnur skilningarvit voru ekki
undanskilin og bragðlaukarnir
blómstruðu hjá þeim sem
smökkuðu á þeim fimmtíu mis-
munandi þjóðaréttum sem voru
á boðstólum.
Þá voru fjölmörg önnur
skemmtiatriði í boði. Það var
sungið, það var dansað og töluð
í það minnsta 30 til 40 tungu-
mál. | 10 Morgunblaðið/Eggert
Af lífs
og sálar
kröftum
GENGIÐ hefur verið frá samkomu-
lagi um að Yoko Ono reisi friðarsúlu
hér á landi og hefur hún óskað eftir
því að súlan verði staðsett í Viðey.
Hún segist stefna að því að haldin
verði friðarhátíð vikuna í kringum
afmælisdag Johns Lennons, 9. októ-
ber, og að á tveggja ára fresti verði
veittur friðarstyrkur á afmælisdegi
Lennons, sem afhentur verði í
Reykjavík. Friðarsúlan verður úr
gleri og 10 til 15 metra há. Hún
verður lýst upp að innan og utan og
er ætlað, vegna staðsetningar sinnar
á hnettinum, að varpa ljósi friðarins
á allar þjóðir heims. Inn í súluna
verða settar óskir um frið, sem
hengdar voru á óskatré á listsýn-
ingum Yoko Ono víða um heim.
Áformin voru tilkynnt á blaða-
mannafundi á Kjarvalsstöðum á
laugardag. Jafnframt kom fram að
Reykjavíkurborg og Orkuveita
Reykjavíkur fjármögnuðu verk-
efnið, en Listasafn Reykjavíkur
hefði umsjón með listrænum og
verklegum þáttum þess. Stefán Jón
Hafstein, formaður borgarráðs,
sagði stefnt að því að reisa friðarsúl-
una eins og fljótt og hægt væri, e.t.v.
á næsta ári. Þá kom fram á fund-
inum að Yoko Ono hygðist hvetja
fólk um allan heim til að senda óskir
um frið til Íslands og einnig til að
koma til landsins vikuna í kringum
afmæli Lennons, skoða friðarsúluna,
koma við hana og óska friðar. | 11
Friðarsúla
Yoko Ono
verði reist
í Viðey
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Yoko Ono áritar plötu úr fórum
tónlistarmannsins KK og Alfreð
Þorsteinsson, stjórnarformaður
Orkuveitu Reykjavíkur, fylgist
með.