Morgunblaðið - 10.03.2006, Side 1
„ÉG er afar sleginn, en ég slapp vel
miðað við aðstæður,“ segir Jón Bald-
ur Hlíðberg, en hann varð fyrir því í
fyrradag að ekið var þrisvar sinnum á
hann þar sem hann var á ferð um
Gagnveg í Grafarvogi, þar sem hann
er búsettur. Bíll Jóns Baldurs er
ónýtur eftir ákeyrslurnar, en ungir
piltar sem hann þekkti ekkert til óku
á hann. Jón Baldur mun leggja fram
kæru vegna líkamsárásar til lögreglu
vegna atburðarins.
„Ég vinn heimavið og hafði rétt
brugðið mér út til þess að aka tveim-
ur barna minna, sem eru 9 og 12 ára, í
píanótíma í hverfinu. Þau voru nýfar-
in út úr bílnum og ég á leið heim um
Gagnveg þegar ég fann hressilegt
högg og áttaði mig á að það hafði ver-
ið ekið aftan á mig. Ég hélt ró minni
og ætlaði að stöðva bílinn eftir
ákeyrsluna en þá fann ég annan og
verri skell dynja á bílnum. Við það
hrökk mælaborðið í sundur og bíllinn
þeyttist út fyrir veg og snerist þvers-
um,“ segir Jón Baldur. Þegar hann
var að komast til sjálfs sín eftir högg-
in tvö varð honum litið út um hliðar-
rúðu bílsins. Þá sá hann bílinn sem
ekið hafði á hann nálgast enn á ný.
„Þeir eltu mig út fyrir veginn og óku
af afli inn í vinstri hlið bílsins,“ segir
Jón Baldur.
Eftir að hafa ekið þrisvar sinnum á
bíl Jóns Baldurs óku ungu piltarnir
áfram í eina 20–30 metra. Þá stöðv-
uðu þeir bíl sinn og flúðu af vettvangi.
Um var að ræða fjóra pilta sem Jón
Baldur telur á aldrinum 18–20 ára.
Lögregla var kölluð til en nokkur
vitni urðu að því sem átti sér stað. Jón
Baldur segir að tæplega hálfri
klukkustund eftir ákeyrslurnar hafi
tveir piltar komið á staðinn, og virtist
annar þeirra hafa ekið bílnum og hinn
verið farþegi í honum. Eitt vitnanna
sagðist hafa séð annan bíl aka um
svæðið og segir Jón Baldur útlit fyrir
að piltarnir hafi talið sig eiga harma
að hefna gagnvart þeim sem þar fóru
og farið bifreiðavillt.
Átti erfitt með svefn um nóttina
Jón Baldur segist ekki hafa meiðst
að ráði og hann sé nokkurn veginn
búinn að jafna sig líkamlega eftir at-
burðinn. Hann hafi hins vegar átt erf-
itt með svefn nóttina eftir atvikið og
taugarnar séu uppspenntar. Mikil
mildi hafi verið að börnin voru farin
úr bílnum þegar ákeyrslurnar áttu
sér stað. „Ef drengurinn minn, sem
er níu ára, hefði verið í bílnum, hefði
hann setið fyrir aftan mig eins og
vanalega, en sú hurð gekk hins vegar
alveg inn í sætið við eina ákeyrsluna.“
Samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar í Reykjavík var einn maður
handtekinn vegna atviksins í fyrra-
dag en sleppt að yfirheyrslu lokinni.
Lögreglan segir málið í rannsókn.
Ungir piltar óku þrisvar sinnum á bifreið á ferð og eyðilögðu hana
Bifreið Jóns Baldurs Hlíðbergs er ónýt eftir ákeyrslurnar.
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
„Er sleginn en slapp vel“
STOFNAÐ 1913 68. TBL. 94. ÁRG. FÖSTUDAGUR 10. MARS 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Ráðstefna SI á stórsýningunni Verk og Vit 2006
Nánari upplýsingar, dagskrá og skráning á www.si.is
HEILBRIGÐUR
ÚTBOÐSMARKAÐUR?
Fékk Pyma í
stað Puma
Egill Gillzenegger svarar spurn-
ingum í Íslenskum aðli | Menning
Bílar og Íþróttir
Bílar | Viltu koma í stórfiskaleik? Enn aflmeiri Explorer
Bílasýningin í Genf Formúlan hefst Íþróttir | Uppstokkun
framundan hjá Real Madrid Birgir Leifur ætlar sér stóra hluti
DAGSKRÁIN var þétt skipuð hjá Geir H. Haarde ut-
anríkisráðherra sem hóf opinbera heimsókn sína til
Noregs með áheyrn hjá Haraldi Noregskonungi í gær-
dag. Í kjölfarið átti hann fund með utanríkisráðherra
Noregs, Jonas Gahr Støre, og varnarmálaráðherr-
anum, Anne Grete Ström Erichsen, áður en hann hitti
Torbjørn Jagland, forseta Stórþingsins og fundaði
með utanríkismálanefnd þingsins.
Í samtali við Morgunblaðið sagðist Geir mjög
ánægður með fundina sem einkenndust af mikilli vin-
semd í garð Íslendinga og því góða sambandi sem rík-
ir á milli landanna. Meðal þess sem var rætt voru mál-
efni norsk-íslenska síldarstofnsins, varnarmálin á
Íslandi og staða EES-samningsins.
Í gærkvöldi sátu Geir og eiginkona hans, Inga Jóna
Þórðardóttir, kvöldverðarboð utanríkisráðherrans en
í dag verða utanríkisráðherrar landanna viðstaddir
stofnun norsk-íslensks viðskiptaráðs í bústað sendi-
herra Íslands í Ósló. Að því loknu halda ráðherrahjón-
in til Stafangurs þar sem þau munu meðal annars
heimsækja herstjórnarmiðstöð Atlantshafsbandalags-
ins. | 4
Scanpix
Ánægjuleg Noregsheimsókn
EKKERT eitt ríki veldur Bandaríkj-
unum eins miklum vanda og Íran nú
um stundir. Þetta er skoðun Condo-
leezzu Rice, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, en hún kom fyrir
þingnefnd í Washington í gær. Sagði
hún stjórnvöld í Íran haga sér með
þeim hætti, að það væri fullkomlega
ósamrýmanlegt þeirri sýn sem
Bandaríkjamenn hefðu á framtíð-
arþróun mála í Mið-Austurlöndum.
„Þetta er ríki sem er staðráðið, að
því er virðist, í því að þróa kjarnorku-
vopn og þannig storka alþjóðasam-
félaginu sem er staðráðið í því að það
komist ekki yfir kjarnorkuvopn,“
sagði Rice í vitnisburði sínum en hún
fer fram á að Bandaríkjaþing sam-
þykki 75 milljóna dollara fjárveitingu
svo að hægt verði að styðja við bak
óháðum félagasamtökum í Íran og ná
til íransks almennings með endur-
varpi sjónvarpsefnis í landi þeirra og
einnig um netið.
Sakaði Rice írönsk stjórnvöld um
að vera „seðlabanki hryðjuverka“ í
heiminum og fullyrti að þau stuðluðu
að hryðjuverkum í suðurhluta Íraks,
á svæðum Palestínumanna og í Líb-
anon.
Donald Rumsfeld, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, tók í svipaðan
streng við þetta sama tækifæri. Hann
sagði Bandaríkin engin áform hafa
uppi um árás á Íran en varaði við því
að Bandaríkjaher myndi grípa til
„viðeigandi“ aðgerða í því skyni að
koma í veg fyrir að útsendarar Írana í
Írak skipulegðu aðgerðir sem væru
„skaðlegar og hættulegar“ banda-
rískum hermönnum í landinu.
Kallar Íran
„seðlabanka
hryðjuverka“
Reuters
Donald Rumsfeld hlýðir á Condo-
leezzu Rice ávarpa þingmenn í gær.
Rumsfeld | 16
Telja að | 18
Eftir Davíð Loga Sigurðsson
david@mbl.is
BRESKA sjónvarpið, BBC, mun
annað kvöld sýna fram á það í nýjum
þætti, að það er unnt að bæta gáfna-
farið um allt að
40% á einni
viku. Philip
Morrow, fram-
leiðandi hjá
BBC, segir, að
lengi hafi verið
litið á gáfur
sem fasta
stærð. Æ fleiri
vísindamenn
séu þó komnir á þá skoðun, að þær sé
hægt að auka eða virkja betur með
ýmsum aðferðum. Forsenda þess sé
að breyta út af venjunni.
Mánudagur: Takið lýsi, hjólið,
gangið eða farið með strætisvagni
í vinnuna.
Þriðjudagur: Leitið uppi ný orð í
orðabók og notið þau í samtali.
Miðvikudagur: Stundið jóga eða
aðra hugleiðslu. Talið við einhvern
ókunnugan.
Fimmtudagur: Farið nýja leið í
vinnuna. Glímið við þrautir.
Föstudagur: Forðist kaffi og
áfengi. Lærið innkaupalistann ut-
anað.
Laugardagur: Burstið tennurnar
með „hinni“ hendinni og farið í
sturtu með augun lokuð.
Sunnudagur: Ráðið krossgátu eða
sudoku og farið í góða gönguferð.
Gáfurnar
auknar á
einni viku