Morgunblaðið - 10.03.2006, Blaðsíða 55
GOÐALAND Í FOSSVOGI - SKIPTI
Eignin er aðeins í makaskiptum fyrir 100-
140 fm íbúð í Fossvogi. Um er að ræða
fallegt 227,5 fm endaraðhús á tveimur
hæðum sem stendur fyrir ofan götu. Bíl-
skúr er í lengju fyrir neðan húsalengjuna.
Húsið skiptist þannig að á efri hæð (aðal-
hæð sem er 137 fm) er forstofa, gest-
asnyrting, hol, þrjú herbergi (voru fjögur),
baðherbergi, eldhús og stofa. Á neðri hæð
er hol, stórt sjónvarpsherbergi, tvö her-
bergi, baðherbergi, gufubað og geymsla.
Verð 47 millj. 5666.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. MARS 2006 55
DAGBÓK
Samkynhneigðir og samfélag: hvað mótarvitund, viðhorf og veruleika samtímans“er yfirskrift nýs námskeiðs við Endur-menntun Háskóla Íslands.
Námskeiðið er sérstaklega ætlað þeim sem
starfa með börnum og unglingum, s.s. kennurum,
heilbrigðisstéttum og þeim sem starfa að fé-
lagsstarfi ungmenna, en er einnig opið öðrum
áhugasömum, og er námskeiðið kennt miðviku-
daginn 17. maí nk. kl. 9 til 16.
„Mikil umræða hefur verið í samfélaginu um
samkynhneigð og samkynhneigða síðustu misseri.
Margir sem vinna með börnum og unglingum hafa
kallað eftir fræðslu um þessi mál en slík fræðsla
hefur verið af mjög skornum skammti,“ segir
Harpa Njáls, umsjónarmaður námskeiðsins.
„Mikilvægt er að þeir sem vinna með börnum og
unglingum hafi haldgóða þekkingu á þessu sviði,
og læri, líkt og samfélagið allt, að þekkja samkyn-
hneigð sem einn þátt í litrófi lífsins. Þeir þurfa að
vera vel í stakk búnir að ræða um þessi mál í stað
þess að þegja af ótta yfir eigin vanþekkingu, enda
er þögnin skaðleg og viðheldur neikvæðum við-
horfum. Mikilvægt er, um leið, að fólk sé meðvitað
um eigin viðhorf og á hverju þau byggjast. “
Harpa hefur fengið til liðs við sig góðan hóp
fræðimanna til að fjalla um ólík svið er snerta sam-
kynhneigð: „Fjallað verður um hvað mótar viðhorf
samfélagsins, og samkynhneigð skoðuð í sögulegu
ljósi, og rætt um grundvallarþætti félagskerfisins;
fjölskylduna, uppeldið og menntakerfið, sem og
stofnanir eins og ríki og kirkju sem tengja ein-
staklinga saman. Dr. Sólveig Anna Bóasdóttir, sið-
fræðingur og guðfræðingur, ræðir hvað Biblían
segir um samkynhneigð, og hvernig samkyn-
hneigð horfir við kristinni trú og kristinni siðfræði;
hver er vandi kristins manns varðandi samkyn-
hneigð, eigin dómgreind og mannhelgi,“ segir
Harpa.
„Sigrún Sveinbjörnsdóttir sálfræðingur fjallar
um samkynhneigð út frá þróunarsálfræði, uppeldi
og ábyrgð samfélagsins og mun m.a. draga fram
vísindalegar skýringar á kynhneigð manna. Þá
mun Sara Dögg Jónsdóttir grunnskólakennari,
sem hefur verið fræðslufulltrúi Samtakanna ’78
um árabil, fjalla um líf og reynslu samkyn-
hneigðra, um það ferli að horfast í augu við kyn-
hneigð sína, og kynna fyrir hvað Samtökin ’78
standa.“
Nánari upplýsingar og skráningu má finna hjá
Endurmenntun HÍ, www.endurmenntun.is
Menntun | Námskeið við Endurmenntun HÍ um viðhorf samfélagsins til samkynhneigðar
Samkynhneigðir og samfélag
Harpa Njáls fæddist
á Suðureyri 1946. Hún
lauk BA-námi í fé-
lagsfræði frá Háskóla
Íslands 1998, mast-
ersgráðu frá sama
skóla 2002 og stundar
nú doktorsnám. Harpa
starfaði hjá Borg-
arfræðasetri 2001–
2005. Hún hefur starf-
að að ýmsum fé-
lagsmálum, m.a. innan kirkjunnar frá 1998 og
er formaður sóknarnefndar Fellasóknar við
Fella- og Hólakirkju. Harpa stóð að stofnun
hóps foreldra og aðstandenda samkyn-
hneigðra árið 2000 og er formaður FAS.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
Hunangsfluga – þýðingar
FÖSTUDAGSKVÖLDIÐ 3. mars
var í sjónvarpinu sýnd kvikmyndin
Mjólkurpósturinn (The Calcium Kid)
sem ekki er ætlunin að fjalla um hér
en geta atriðis varðandi þýðingu á
texta myndarinnar. Þýðendur virðast
oft þýða erlend heiti úr dýraríkinu
með því að grípa íslenskt heiti sem
hljómar líkt þótt það sé ekki endilega
samsvarandi erlenda (enska) orðinu.
Í myndinni, eins og svo oft áður, var
enska orðið bumblebee þýtt sem bý-
fluga þar sem réttari þýðing hefði
verið hunangsfluga (sem sumir nefna
ranglega randaflugu).
Mikilvægt er að þýðendur fletti
upp í orðabók svona heitum en þýði
ekki t.d. ameríska orðið elk sem elg
eða loon sem lóm eða enska orðið
camel (úlfaldi) sem kameldýr. Hér
verður þó að geta þess að orðabækur
eru ekki óskeikular og meinlegt er
það að Ensk-ensk orðabók með ís-
lenskum lykilorðum (Mál og menn-
ing, 1996, 1999) slær upp aftan á kápu
rangri (a.m.k. hæpinni) þýðingu á
orðinu honeybee sem hunangsfluga.
Þarna hefði orðið býfluga verið eðli-
leg þýðing.
Vigfús Ingvar Ingvarsson
Laugavöllum 19, Egilsstöðum.
Farsími tapaðist
ÉG SKRIFA þetta bréf vegna þess
að ég tapaði farsímanum mínum,
PDA, þegar ég var á Íslandi nýlega.
Þar sem þetta er PDA-sími inniheld-
ur hann fjölmargar persónulegar
upplýsingar, sem ég sakna verulega.
Ég var að velta fyrir mér hvort það
væri möguleiki að setja smáklausu
eða bréf í blaðið með upplýsingum
um hvernig ná mætti í mig, ef svo vel
vill til að finnandi símans lesi þetta.
Síminn er Hewlett-Packard (HP
Ipaq) og ég tapaði honum milli klukk-
an 13:30 og 18:00, sennilega nálægt
Kringlunni eða Smáralind. Ég býð
5.000 krónur í fundarlaun ef finnandi
sendir mér símann, eða sendir mér
bréf um að þeir hafi skilað símanum
til lögreglunnar.
Ég vona að einhver geti hjálpað í
þessu máli, en netfangið er:
ltm@vip.cybercity.dk
Með kveðju,
Lau Melchiorsen.
Góð grein um strætó
ÉG VIL þakka Þurðíi Guðmunds-
dóttur fyrir mjög góða grein í Velvak-
anda þriðjudaginn 7. mars sl. Greinin
bar yfirskriftina „Beðið eftir strætó“,
og ég er sammála hverju orði sem þar
er skrifað. Það er hörmung hvernig
búið er að fara með leiðakerfið og
bráðnauðsynlegt að leiðrétta það aft-
ur.
Annað sem ég vil nefna: Ásgeir for-
stjóri Strætó og fleiri hafa verið að
dásama þessi dönsku biðskýli sem
búið er að setja upp, en að dásama
þau er tóm vitleysa. Þau eru galopin
og halda hvorki vatni né vindi. Mætti
ég þá heldur biðja um gömlu skýlin
aftur. En ég vil aftur undirstrika að
grein Þuríðar er afskaplega góð og ég
skora á fleiri að láta frá sér heyra um
þessi mál.
Matthildur.
Pelsjakki tapaðist
íKiwanishúsinu
SVARTUR pelsjakki úr gerviskinni
með nýjum hönskum í hvorum vasa
tapaðist í Kiwanishúsinu laugardags-
kvöldið 4. mars sl. Jakkinn hefur lík-
lega verið tekinn í misgripum úr fata-
hengi því annar jakki var skilinn eftir
á sama stað. Sú sem hefur tekið jakk-
ann er vinsamlegast beðin að skipta
um jakka í Kiwanishúsinu. Upplýs-
ingar í síma 581-4995 eða 860-4995.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
70 ÁRA afmæli. Í dag, 10. mars, ásjötugsafmæli Þóra Björns-
dóttir, Tjarnarlundi 15 c, Akureyri.
Þóra verður heima á afmælisdaginn.
Gamlir meistarar.
Norður
♠G9
♥Á953
♦KDG
♣ÁG107
Suður
♠ÁKD105
♥D10
♦Á6432
♣6
Suður spilar sjö tígla án afskipta AV
af sögnum. Útspilið er laufkóngur.
Hvernig er best að standa að verki?
Spilið er frá úrslitaleik Bandaríkj-
anna og Ítalíu á HM 1951. Í suðursæt-
inu var Bandaríkjamaðurinn Howard
Schenken (1905-1979), sem var frægur
fyrir vandað handbragð í sæti sagn-
hafa.
Tólf slagir eru á borðinu og sá þrett-
ándi gæti komið á ýmsan hátt. Ef
trompið er 3-2 má búa til aukaslag á
tígul með öfugum blindum. Stinga lauf
þrisvar heima og henda hjartatíu í síð-
asta tromp blinds. Það færi til dæmis
þannig fram: Laufás og lauf trompað.
Tígull á kóng, lauf trompað. Tígull á
blindan og lauf trompað með ás. Síðan
spaði á gosa, síðasti tígulinn tekinn og
hjarta hent.
En þessi spilamennska er ónákvæm
og hreint afspil ef trompið er 4-1 og
hjartakóngur í vestur. Þá er nefnilega
hægt að svíða af vestri úrslitaslaginn
með þvingun í hjarta og laufi. Ekki
þarf annað en taka slagina á tromp og
spaða, og vestur mun neyðist til að fara
niður á hjartakóng blankan.
Schenken tókst að sameina báðar
þessar leiðir á einfaldan hátt. Hann
trompaði lauf í öðrum slag, tók svo
tvisvar tromp. Ef báðir eru með, er
hægt að halda áfram með öfugan blind-
an og nota innkomuna á hjartaás til að
taka síðasta trompið. Ella verður að
spila upp á þvingun.
Í reynd lá allt til sagnhafa - trompið
3-2 og hjartakóngur í vestur - en það
skyggir ekki á vandaða tækni Schenk-
ens.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Einbýlishús í Seljahverfi óskast
Traustur kaupandi óskar eftir 250 fm einbýlis-
húsi í Seljahverfi, gjarnan á einni hæð.
Nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
Íbúð í 101 Skuggi óskast
Traustur kaupandi óskar eftir 110-150 fm íbúð í
101 Skuggi eða nágrenni.
Nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson.
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
SIGURLÍN Grímsdóttir sýnir
vatnslitamyndir í Listagjánni í Bæj-
ar- og héraðsbókasafninu á Selfossi
í marsmánuði. Viðfangsefnið er
fjöll og náttúra á Íslandi. Flestar
myndirnar eru frá árunum 2005 og
2006.
Sýningin er sölusýning og er opin
á afgreiðslutíma Bæjar- og héraðs-
bókasafnsins á Selfossi alla virka
daga frá kl. 10–19 og laugardaga
kl. 11–14.
Sigurlín við eitt verka sinna.
Sigurlín í Listagjánni
NÚ stendur yfir sýning
Svövu Sigríðar, í nýju gall-
eríi bókasafns Grafarvogs. Á
sýningunni eru tólf vatns-
litamyndir, Svava Sigríður
hefur haldið fjölda einkasýn-
inga og tekið þátt í samsýn-
ingum. Sýningin stendur til
25. mars.Verk eftir Svövu Sigríði.
Vatnslitir
Svövu Sigríðar