Morgunblaðið - 10.03.2006, Side 4

Morgunblaðið - 10.03.2006, Side 4
4 FÖSTUDAGUR 10. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Engjaþykkni – allir eiga sitt uppáhald „ÞETTA hefur að mínum dómi verið mjög góður dagur sem hefur ein- kennst af ánægjulegum og opnum skoðanaskiptum,“ sagði Geir H. Haarde, utanríkisráðherra, í samtali við Morgunblaðið, en opinber heim- sókn hans til Noregs hófst í gær. Geir sagði að heimsóknin hefði gengið vel og dagskráin verið þétt- setin. Dagurinn hefði byrjað með áheyrn hjá konungi og síðan hefði hann átt ágæta fundi með utanrík- isráðherra Noregs, Jonas Gahr Støre, og varnarmálaráðherranum, Anne Grete Ström Erichsen. Þá hefði hann einnig átt fund með Tor- bjørn Jagland, forseta Stórþingsins og með utanríkismálanefnd þings- ins. „Ég er mjög ánægður með þessa fundi. Þeir hafa einkennst af mikilli vinsemd í okkar garð og því góða sambandi sem er á milli landanna,“ sagði Geir. Hann sagði að það væru fyrst og fremst tvö vandamál sem væru uppi í samskiptum ríkjanna sem hann hefði rætt ítarlega við starfsbróður sinn. Annars vegar væri um að ræða málefni norsk-íslenska síldarstofns- ins og þann samning sem Noregur hefði gert við Evrópusambandið í desember án aðildar Íslendinga og nauðsyn þess að náð yrði heildar- stjórn á veiðum úr stofninum. Ís- lendingar hefðu orðið fyrir miklum vonbrigðum með að Norðmenn skyldu ganga til slíkra samninga án samráðs við þá og aðra sem gætu átt hagsmuna að gæta í þessum efnum, en reynt yrði að ná samkomulagi hvað þetta snerti fyrir næsta ár. Hitt vandamálið væri Svalbarða- málið. Hann hefði gert grein fyrir afstöðu Íslendinga í þeim efnum og að við hefðum hafið undirbúning að því að höfða mál fyrir dómstólnum í Haag ef málið leystist ekki með öðr- um hætti. Fram hefði komið að Norðmenn gerðu enga athugasemd við að við færum þá leið. Þeir væru einfaldlega ósammála okkur hvað málefni Svalbarða snerti og því væri eðlilegt að leita til úrskurðaraðila um úrlausn þess ágreinings. Geir sagði að einnig hefði verið rætt um fjöldamörg önnur mál á fundunum. Þar á meðal mætti nefna varnarmálin á Íslandi og stöðu Norðmanna hvað þau snerti, en það væri hagsmunamál þeirra að það ríkti stöðugleiki og festa hér á landi í þeim efnum. Þá hefði ástandið í Rússlandi verið rætt, staða EES- samningsins, sem menn væru sam- mála um að hefði reynst vel, og Evr- ópusambandið og afstaða landanna til þess og einnig framboð okkar til öryggisráðsins, en mikill áhugi væri á því máli í Noregi. Geir og eiginkona hans, Inga Jóna Þórðardóttir, sátu kvöldverðarboð utanríkisráðherra Noregs þeim til heiðurs í gærkveldi. Í dag verða utanríkisráðherrar beggja landanna viðstaddir stofnun norsk- íslensks viðskiptaráðs í bústað sendi- herra Íslands í Osló. Að því loknu halda ráðherrahjónin til Stavanger þar sem þau munu meðal annars heimsækja herstjórnarmiðstöð Atl- antshafsbandalagsins. Þá heldur ráðherra erindi um stöðu Íslands í hnattvæddum heimi í hátíðarsal Stavanger-háskóla og heimsækir höfuðstöðvar Statoil í Stavanger. Heimsókninni lýkur í kvöld með kvöldverði bæjarstjórnar Stav- anger, en á morgun fer utanrík- isráðherra í einkaheimsókn til Sand- eid, þar sem faðir hans fæddist. Opinber heimsókn utanríkisráðherra til Noregs hófst í gær Átti ánægjuleg og opin skoðanaskipti í Noregi SCANPIX Geir H. Haarde utanríkisráðherra og hinn norski starfsbróðir hans, Jonas Gahr Støre, ræða við fréttamenn í Noregi í gær. GRÍÐARLEG ásókn er í bújarðir á Íslandi, sérstaklega hlunnindajarðir. Fjölmargar jarðir hafa því skipt um hendur undanfarið og hefur verð jarðanna, sem og hlunnindanna, hækkað verulega. Jarðirnar sem um ræðir eru víða um land. Jafnt eyði- jarðir sem og jarðir í búskap sem dæmi er um að leggist þá af við kaup- in. Nýju eigendurnir, sem eru fjár- sterkir aðilar, búa margir hverjir á jörðum sínum aðeins hluta úr ári og hafa því ekki lögheimili sitt þar, þótt dæmi séu vissulega um hið gagn- stæða. Þannig verður sveitarfélagið af tekjum. Bændur, sem vilja stunda hefðbundinn búskap á umræddum jörðum, geta ekki keypt þær á því uppsprengda verði sem efnamennirn- ir bjóða í þær. En áhrif þessara jarðakaupa, sem færst hafa verulega í vöxt sl. fimm ár eða svo, eru mun víðtækari. Þau gætu haft mikil áhrif á byggðaþróun í land- inu sem og landbúnaðinn í heild. Þetta segir Jón Benediktsson, bóndi og formaður Veiðifélags Laxár og Krákár. Hann segir fjársterka aðila, jafnt einstaklinga sem lögaðila, standa að baki jarðakaupunum og dæmi séu um að þeir safni jörðum, hafi jafnvel eignast um tug jarða og ásælist fleiri. Á Búnaðarþingi sem lauk í gær var samþykkt tillaga þess efnis að Bændasamtök Íslands kanni stöðuna og hvaða áhrif uppkaupin geti haft á íslenskan landbúnað. „Það er gríðarlega vaxandi ásókn í jarðir og það má segja að það sé um mest allt land,“ segir Jón. „Sérstak- lega jarðir sem eiga einhver veiði- hlunnindi. Þetta gengur svo langt að núna fyrir viku síðan var auglýst eftir jörð til rjúpnaveiða,“ tekur Jón sem dæmi. „Þannig er nú komið að það er nánast gengið á eftir hverjum einasta manni sem á jarðnæði eða hluta úr [hlunninda]jörð.“ Jón segir þessa þróun hafa byrjað fyrir nokkrum árum en hafi undið hratt upp á sig síðustu fimm árin þeg- ar þeim mönnum fjölgaði sem hafi yf- ir miklu fé að ráða. Þá hefur verðmæti hlunnindanna aukist á sama tíma. Jákvætt að gott verð fæst nú fyrir jarðir „Það eru auðvitað ýmsir fletir á málinu og það eru skiptar skoðanir á þessari þróun,“ segir Jón. Ýmsir líti svo á að jákvætt sé fyrir jarðeigendur að koma landi sínu í gott verð. Síðan séu aðrir sem telja þetta geta haft neikvæð áhrif á landbúnað og byggð í landinu, t.d. sé þeim sem ætli að stunda hefðbundinn búrekstur á jörð- um ókleift að keppa í verði við auð- mennina og því sé hætta á að búrekst- ur leggist af sé hann til staðar á viðkomandi jörð. Þá segir hann fjársterka menn einnig vera að kaupa jarðir til að vera með hrossabúskap eða skógrækt. „Ég þekki mörg dæmi um það að það hafi verið seldar jarðir til annarra en þeirra sem vildu gjarnan eignast þær til að bæta við sig landi,“ segir Jón, en bændur leitast við að stækka bú sín til frekari hagræðingar í rekstri með því að sameina jarðir. Uppkaupin geri þeim það stundum ókleift. „Ég býst við að það standi mörgum bændum fyrir þrifum að þeir hafi ekki yfir að ráða því jarð- næði sem þeir gætu nýtt og vildu nýta.“ Jón bendir á að engin takmörk séu nú á sölumeðferð jarðeigna. Sveitar- félög hafi t.d. ekki lengur þann for- kaupsrétt sem þau áður höfðu. Þetta sé ólíkt því sem gerist í mörgum ná- grannalöndum okkar, t.d. séu veru- legar takmarkanir á því hversu marg- ar jarðir einn og sami aðilinn geti eignast og búsetuskylda á jörðunum. „Það er að gerast hér,“ segir Jón um jarðasöfnun. Eitt dæmi sé að minnsta kosti um það að lögaðili, sem nokkrir einstaklingar standa að baki og hefur verið að kaupa jarðir og það af mikilli einurð, sé skráður í Lúxemborg. Þessi aðili hefur sóst eftir hlunninda- jörðum, meðal annars við Laxá. „Tekjurnar af þessum jörðum koma því ekki inn til skattlagningar hér á landi,“ segir Jón. Þá segir hann að þeir sem séu með búrekstur á jörðum sínum séu algjör- lega ósamkeppnisfærir við þá sem engan rekstur hafa á hlunnindajörð sinni. „Það eru skattareglur sem gera það að verkum að sá sem hefur bú- rekstur á jörð verður að telja fram hlunnindatekjurnar sem rekstrar- tekjur og greiða af þeim fullan tekju- skatt eftir atvikum. Sá sem er búsett- ur til dæmis í Reykjavík, á slíka jörð og hefur þar engan rekstur, hann greiðir aðeins 10% fjármagnstekju- skatt,“ segir Jón. „Þarna er skattaleg mismunun sem gerir það að verkum að við höfum ekki minnstu samkeppn- ismöguleika um að kaupa þessar jarð- ir og bjóða á móti þessum mönnum.“ Engar leiðréttingar hafa fengist á þessu þrátt fyrir að eftir því hafi verið sóst. Hvað mun gerast? Jón segir marga velta því fyrir sér hvaða áhrif stóraukið eignarhald eignamanna á jarðnæði muni hafa á byggðaþróunina í landinu. Þá telja margir að þetta muni torvelda end- urnýjun í bændastéttinni. Þá bendir Jón einnig á mikilvægi fastrar búsetu á jörðunum. „Það er mikilvægt fyrir mannlífið í sveitunum og skólana að það fækki ekki fólki. Það stefnir í þá átt að verða svolítið eyðilegt [í sveitum landsins] að því leyti til að bújörðum fækkar mjög og meira heldur en framleiðslan dregst saman í heildina.“ En skyldi vera í tísku að eiga jarð- næði eða eru jarðakaup fyrst og fremst góð fjárfesting? „Ég held að það sé hvort tveggja,“ svarar Jón. „Síðan virðist það vera ofsalega sterk tilfinning einhvers staðar í sálarkimum manna að eiga land einhvers staðar.“ Fjársterkir menn kaupa bújarðir Morgunblaðið/Golli Jarðir með veiðihlunnindum eru mjög eftirsóttar og verð þeirra hefur hækkað verulega undanfarin ár og aðeins á færi auðmanna að kaupa. Nánast gengið á eftir hverjum þeim sem á jarðnæði Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is BORGARRÁÐ Reykjavíkur sam- þykkti 2. mars síðastliðinn að veita Þríhnúkum ehf. 5,5 milljón króna styrk. Þar með er búið að tryggja fjármögnun undirbúningsrannsókna vegna aðgengis og varðveislu Þrí- hnúkagígs. Þegar hefur verið aflað rannsóknarleyfa vegna verkefnis- ins. Árni B. Stefánsson, augnlæknir og hellakönnuður, hefur haft for- ystu um að kannaðir verði mögu- leikar á að gera Þríhnúkagíg að- gengilegan ferðamönnum. Þar er næststærsta og dýpsta hraunhvelf- ing heims og eitt merkasta nátt- úruundur landsins. Árni kvaðst í samtali við Morgunblaðið vera mjög þakklátur fyrir stuðning Reykjavík- urborgar. Hann sagði verkefnið einnig hafa mætt miklum velvilja og stuðningi hjá bæjaryfirvöldum í Kópavogi, en Þríhnúkar eru innan bæjarmarka Kópavogs. Næsta skref verður að afmarka göngustíga á svæðinu og gera ör- yggisgirðingu við gígopið. Það mun auðvelda fólki að skoða svæðið án þess að skaða landið eða setja sjálft sig í hættu. „Þríhnúkagígur er og verður stórmerkilegt náttúruundur. Spurningin er hvort hægt er að gera hann aðgengilegan almenn- ingi, án þess að spilla gígnum eða umhverfinu. Við ætlum að svara þeirri spurningu,“ sagði Árni. Styður við Þríhnúkagíg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.