Morgunblaðið - 10.03.2006, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 10.03.2006, Qupperneq 6
6 FÖSTUDAGUR 10. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÖGMUNDUR Helga- son cand. mag., fyrr- um forstöðumaður Handritadeildar Landsbókasafns, lést á Landspítalanum miðvikudaginn 8. mars á 62. aldursári. Hann var fæddur á Sauðárkróki 28. júlí 1944. Ögmundur varð stúdent frá Mennta- skólanum á Akureyri 1965, stundaði nám í íslensku og sagnfræði og lauk cand.mag. prófi í sagnfræði 1983. Ögmundur var íslenskukennari í Menntaskól- anum við Tjörnina (síðar við Sund) 1973–82, stundaði fræðastörf í Kaupmannahöfn 1983–86, lengst af sem starfsmaður Árnastofnunar þar. Árið 1986 réðst hann sem starfsmaður að Handritadeild Landsbókasafns og varð síðar for- stöðumaður hennar, einnig eftir að Landsbókasafn og Háskólabóka- safn sameinuðust 1994. Um síð- ustu áramót réðst hann til starfa við Stofnun Árna Magnússonar. Ögmundur Helgason var mik- ilvirkur fræðimaður. Hann sá um ljósprent og textaútgáfu Pass- íusálma sem Lands- bókasafn-Háskóla- bókasafn gaf út 1996 og einnig útgáfu galdrakvers sem kom ljósprentað með út- gefnum texta og greinargerð á tíu ára afmæli stofnunarinnar 2004. Þá var hann meðhöfundur bindis af Handritaskrá sem út kom 1996 og ritstýrði Ritmennt, árbók safnsins síðustu ár. Ögmundur var fjölfróður sagn- og þjóðfræðingur og birti fjölda greina um rannsóknir sínar auk þess sem hann kenndi við þjóð- fræðaskor Félagsvísindadeildar. Hann lagði mikla rækt við fræði sem tengdust átthögum hans, ann- aðist um skeið útgáfu á Skagfirð- ingabók og fleiri ritum. Árið 1970 gaf hann út ljóðabókina Fardaga. Eftirlifandi eiginkona Ögmund- ar er Ragna Ólafsdóttir skóla- stjóri. Þau eiga tvö uppkomin börn. ÖGMUNDUR HELGASON Andlát „ÉG ÓSKA ykkur til hamingju með þennan mikilvæga dag, þetta er mik- ill gleðidagur,“ sagði Þorgerður Katr- ín Gunnarsdóttir menntamálaráð- herra þegar samningur milli Portus-hópsins, sem átti vænlegasta tilboðið í hönnun, byggingu og rekst- ur tónlistarhúss, ráðstefnu- miðstöðvar og hótels við Reykjavík- urhöfn, og Austurhafnar-TR ehf., framkvæmdafélags í eigu ríkis og borgar um byggingu tónlistarhúss og ráðstefnumiðstöðvar, var undirrit- aður við hátíðlega athöfn í Ráð- herrabústaðnum í gær. Menntamálaráðherra gerði gott samstarf ríkis og borgar sérlega að umtalsefni í ávarpi sínu. „Við erum öll búin að átta okkur á mikilvægi þess að vera í góðu samstarfi með það að markmiði að hlúa að og efla tónlistar- líf landsins. Vissulega er þetta glæsi- legt hús, en það sem síðan skiptir máli er það sem verður inni í þessu húsi,“ sagði Þorgerður Katrín og lagði í því samhengi áherslu á að ríki og borg haldi áfram að hlúa vel að Sinfóníuhljómsveit Íslands. Sjaldséð að fjármálaráðherra eyði peningum glaður Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri tók undir með ráðherra um gildi góðs samstarfs. „Í samvinnu tekst okkur vonandi að gera þetta hús að lifandi húsi, að húsi fólksins, að því húsi sem við erum öll búin að bíða svo lengi eftir.“ Gert er ráð fyrir að bygging tón- listarhúss og ráðstefnumiðstöðvar taki þrjú ár. Síðar í þessum mánuði verður hafist handa við að rífa þau mannvirki sem fyrir eru á lóðinni við Austurhöfn og standa vonir manna til þess að hægt verði að taka fyrstu skóflustunguna innan nokkurra vikna. Stefnt er að því að starfsemi hefjist í húsinu haustið 2009 og að hótelið verði opnað á sama tíma. Stofnkostnaður tónlistarhússins og ráðstefnumiðstöðvarinnar er áætl- aður 12,5 milljarðar króna. Verður það fjármagnað með eigin framlagi eigenda Portus ásamt lánsfé, auk fasts árlegs framlags eigenda Aust- urhafnar sem nemur um 608 millj- ónum króna á ári á samningstím- anum og leigugreiðsla frá Sinfóníuhljómsveit Íslands sem nem- ur 75 milljónum króna árlega á nú- virði. „Þið eigið ekki oft eftir að sjá fjár- málaráðherra eins glaðan við að eyða svona miklum peningum,“ sagði Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra og útskýrði í framhaldinu að hann hefði á sl. fimmtán árum setið í þremur undirbúningsnefndum að byggingu tónlistarhúss og því væri það sérlega ánægjulegt að geta loks fylgt verk- efninu formlega eftir með undirritun samningsins sem færir verkefnið yfir til einkaaðila. Mun blása nýju lífi í miðborgina „Það eru nýir tímar fram undan,“ sagði Björgólfur Guðmundsson, stjórnarformaður Portus hf., og tók fram að með samningnum sem verið væri að undirrita væri jafnframt ver- ið að blása nýju lífi í miðborgina. „Við í Portus erum ánægðir og stoltir yfir því að hafa fengið þetta stórkostlega verkefni. Við leggjum allan okkur metnað í þetta, enda er þetta stærsta borgarþróunarverkefnið sem hefur komið upp og við hefðum aldrei farið út í þetta nema af því að áhuginn er brennandi. En það er best að segja sem minnst og láta verkin tala. Enda er það hlutverk okkar framkvæmda- mannanna,“ sagði Björgólfur. Í máli Sturlu Böðvarssonar sam- gönguráðherra kom fram að hann bindur miklar vonir við það að nýja tónlistarhúsið og ráðstefnumiðstöðin verði góður fulltrúi landsins sem muni laða til sín gesti erlendis frá. Í ávarpi Stefáns P. Eggertssonar, stjórnarformanns Austurhafnar-TR ehf., kom fram að undirritun samn- ingsins markaði þau tímamót að frumkvæðið og forystan í verkefninu færðist nú frá Austurhöfn yfir til eignarhaldsfélagsins Portus. „Samn- ingurinn er yfirgripsmikill, gerður til langs tíma og varðar mikilvæga hags- muni beggja aðila. Auk þessa samn- ings hefur Portus þurft að semja við samstarfsaðila sína um fjármögnun, framkvæmdir og hönnun og það leynir sér ekki að það er mikið ein- valalið sem Portus hefur stillt upp til að taka á þessu stóra verkefni,“ sagði Eggert og þakkaði í framhaldinu hversu hratt og örugglega Reykja- víkurborg hefur unnið að því að ganga frá deiliskipulagi og undirbúa nauðsynlegar framkvæmdir til að gera lóðina byggingarhæfa. Skrifað undir samning við Portus um byggingu og rekstur tónlistarhúss við Reykjavíkurhöfn „Það eru nýir tímar fram undan“ Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is Morgunblaðið/ÞÖK Björgólfur Guðmundsson, stjórnarformaður Portus hf., Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra, Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra, Sturla Böðvarsson samgöngu- ráðherra, Stefán P. Eggertsson, stjórnarformaður Austurhafnar-TR ehf., og Stefán Hermannsson, fram- kvæmdastjóri Austurhafnar. Við undirskriftina voru einnig viðstaddir þeir Úlfar Örn Friðriksson, fram- kvæmdastjóri Landsafls hf., og Stefán Þórarinsson, stjórnarformaður Nýsis hf. KARLMAÐUR á þrítugsaldri er grunaður um ölvun við akstur eftir bílveltu sem varð á Garðvegi á miðvikudagskvöld. Hvorki sak- aði ökumann né farþega, sem var kona á svipuðum aldri. Þegar lögreglan í Keflavík kom á stað- inn var jeppabifreiðin á hvolfi ut- an vegar og stóð annar aðilinn fyrir utan bifreiðina en hinn hafði gengið í burtu. Fann lög- regla hann skammt frá slysstað en bæði voru þau undir áfeng- isáhrifum og fengu að gista fangageymslur yfir nótt en var sleppt að loknum yfirheyrslum í gærdag. Bifreiðin er talin mikið skemmd. Drukkinn öku- maður velti bíl TOLLGÆSLAN og lögreglan í Borgarnesi, með aðstoð tollgæsl- unnar í Reykjavík, lögðu hald á 33.800 vindlinga í fraktskipinu m/s Sunna í Grundartangahöfn í hádeginu í gær. Skipafélagið Nes hf., sem á skipið, greiddi rúmlega 642 þúsund krónur fyrir hönd sex skipverja sem gengust við að eiga varninginn. Skipið hélt áfram för sinni frá Grundartanga í gær- kvöldi. Vindlingar gerðir upptækir FORDÆMI eru fyrir því að fjármála- eftirlitsstofnanir í nágrannalöndun- um geti knúið fram breytingar á stjórnum og endurskoðun fjármála- fyrirtækja, eins og nefnd þriggja ráðuneyta, Seðlabankans og Fjár- málaeftirlitsins (FME) leggur til að FME geti gert. Þetta kemur fram í skýrslu starfshóps þessara aðila, sem skilað var til stjórnvalda, banka- stjórnar Seðlabankans og stjórnar- formanns FME 17. febrúar sl. og greint var frá í Morgunblaðinu í gær. Starfshópurinn telur æskilegt að FME geti knúið fram breytingar á stjórnum og endurskoðun fjármála- fyrirtækis. Í skýrslu hópsins segir að heimildir fjármálaeftirlitsstofnana til að knýja fram breytingar á stjórnum og endurskoðun fjármálafyrirtækis séu í samræmi við alþjóðlegar grunn- reglur um árangursríkt bankaeftirlit. „Í þessu sambandi má nefna að í út- tekt Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á fjár- málastöðugleika hér á landi á árinu 2003 kom fram að þrátt fyrir að heim- ildir og úrræði Fjármálaeftirlitsins hefðu verið auknar á undanförnum misserum, væri enn skortur á að eft- irlitið hefði nauðsynlegar heimildir m.t.t. kjarnareglna fyrir árangursríkt bankaeftirlit, útgefnum af Basel- nefnd um bankaeftirlit á árinu 1997.“ Í Noregi, Svíþjóð og víðar eru nú þegar ákvæði í lögum sem gera fjár- málaeftirlitsstofnunum í þessum löndum kleift að setja fjármálastofn- anir undir opinbert eftirlit, sem svip- ar til ábendinga starfshópsins. Í samræmi við alþjóðlegar reglur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.