Morgunblaðið - 10.03.2006, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. MARS 2006 11
FRÉTTIR
Hlíðasmára 11 • Kópavogi • sími 517 6460 • fax 517 6565
Nýjar vörur
Str. 38-60
FÉLAGSFUNDUR Blindrafélags-
ins mótmælir eindregið þeim vinnu-
brögðum sem viðhöfð hafa verið við
undirbúning og gerð frumvarps um
sameiningu Heyrnar- og talmeina-
stöðvar Íslands og Sjónstöðvar Ís-
lands í ályktun sem samþykkt var á
fundinum í gær. Þrátt fyrir vilyrði um
hið gagnstæða á fundum með ráð-
herra og starfsmönnum heilbrigðis-
ráðuneytisins hafi nær ekkert verið
tekið tillit til þeirra athugasemda sem
stjórn Blindrafélagsins lagði fram.
Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráð-
herra var gestur fundarins.
Í ályktuninni segir að inntak frum-
varpsins sé óbreytt frá þeim frum-
drögum sem félaginu voru kynnt í
október sl. og ummælum aðstoðar-
manns ráðherra í fjölmiðlum um að
frumvarpið hafi tekið breytingum til
samræmis við athugasemdir félagsins
er vísað til föðurhúsanna.
„Ljóst er að mikil andstaða er við
frumvarpið meðal notenda þjónust-
unnar enda er ekki að finna í því nein-
ar nýjungar sem bæta þjónustu við
blinda og sjónskerta,“ segir í álykt-
uninni, en fundurinn skoraði á heil-
brigðis- og trygginganefnd Alþingis
að afgreiða frumvarpið ekki úr nefnd-
inni í andstöðu við félög notenda.
Halldór Guðbergsson, formaður
Blindrafélagsins, segir fundinn hafa
verið fjölmennan og málefnalegan.
Ánægjulegt hafi verið að fá heilbrigð-
isráðherra á fundinn þótt hún hafi
ekki komið með neinar afgerandi yf-
irlýsingar um málið. „Við túlkum það
þannig að hún muni skoða málið en
hún lagði á það áherslu að það væri í
raun komið úr hennar höndum og
væri hjá heilbrigðisnefnd,“ segir
Halldór.
Mótmæla vinnubrögðum
við undirbúning frumvarps
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis- og tryggingaráðherra kynnir sig fyrir fund-
armönnum á félagsfundi Blindrafélagsins, en hann var mjög vel sóttur.
Fjölmenni á félagsfundi Blindrafélagsins í gær
NÝJASTI stórmeistari Íslendinga,
Henrik Danielsen, er á meðal níu
efstu manna á Reykjavíkurskák-
mótinu þegar tefldar hafa verið fjór-
ar umferðir, hefur aðeins misst nið-
ur eitt jafntefli og er með 3,5
vinning.
Aðrir sem hafa 3,5 vinning eru
Norðmaðurinn Magnus Carlsen,
Armeninn Gabriel Sargissian, Rúss-
inn Pavel Tregubov, Ísraelsmaður-
inn Sergey Erenburg, Svíinn Tiger
Hillarp Persson, Frakkinn Laurent
Fressinet, Marokkómaðurinn Hic-
hem Hamdouchi og Litháinn Aloy-
zas Kveinys.
Í fjórðu umferð lagði Henrik stór-
meistarann Ivan Ivanisevic, frá
Serbíu og Svartfjallalandi, að velli í
skemmtilegri skák.
Hvítt: Ivan Ivanisevic
Svart: Henrik Danielsen
Hollensk vörn
1.d4 f5 2.c4 Rf6 3.Rc3 d6 4.Rf3 g6
5.g3 Bg7 6.Bg2 0–0 7.0–0 c6 8.b3 Ra6
9.Ba3 Da5 10.Dc1 Bd7 11.Hb1 b5!?
(Hraustlega leikið. Eftir 11...Rb4
12.Bxb4 Dxb4 13.a3 Db6 14.c5 Dc7
15.b4 fær hvítur betra tafl.)
12.b4 Dd8 13.d5Hc8 14.dxc6Bxc6
15.cxb5Bxf3! 16.exf3!?Re4 17.fxe4
Hxc3 18.Dd2 Hxa3 19.bxa6 f4!?
20.b5?—
(Ivanisevic ruglast í ríminu. Eftir
20.gxf4 Hxa6 21.Dd3 Hb6 22.f5 á
hann betra tafl.)
20...Kh8 21.Dd5 Be5 22.Hb3? ---
(Leikur af sér peði. Betra er
22.Hbc1 Ha5 23.Hc6 o.s.frv.)
22...Hxa2 23.gxf4 Hxf4 24.Hd3
Dg8 25.Db7 Dc4 26.Hf3 Hxf3
27.Bxf3 Df7 28.Bg2 Df4 29.Dc8+
Kg7 30.Dh3 --sjá
Sjá stöðumynd
30...Ha3!
Hvítur má ekki drepa hrókinn,
vegan mátsins á h2.
31.f3 Ha2 32.Kh1 Hb2 33.Dg3
Dxg3 34.hxg3 Bxg3 35.Hc1 Bf4!
36.Hd1 –(Auðvitað ekki 36.Hc7?
Hb1+ og hvíti biskupinn fellur.)
36...Hxb5 37.Bf1 Hb2 38.Hd5 Hf2
39.Bg2 Ha2 40.Bf1 Kf6 41.Bb5 Be5
og hvítur gafst upp.
Hann á vonlausa vörn fyrir hönd-
um, því að svarti kóngurinn kemst
inn í hvítu stöðuna á svörtu reitun-
um, g5-f4 og síðan leikur svartur
fram peðunum á kóngsvæng.
Henrik á meðal efstu manna
á Reykjavíkurskákmótinu
Eftir Braga Kristjánsson
bragikr@hotmail.com
VERÐ á skuldabréfum íslensku bank-
anna á eftirmarkaðinum í Evrópu hef-
ur farið umtalsvert lækkandi frá því í
febrúar. Línuritin sýna þróunina á
völdum bréfum bankanna frá því síð-
asta haust en sérstaklega ber að taka
fram að þau ber að skoða sem al-
menna mynd af því hvernig þróunin
hefur verið en alls ekki til þess að bera
bankana saman innbyrðis enda eru
skuldabréfin afar mismunandi, þ.e.
með mismunandi líftíma og mismun-
andi vexti. Skuldabréf Landsbanka og
Kaupþings banka bera hreyfanlega
vexti og þau ættu því einna helst að
endurspegla almenna virðisrýrnun ís-
lensku skuldabréfanna á eftirmarkað-
inum.
Sjálfir hafa íslensku bankarnir ekki
gefið út skuldabréf í Evrópu frá því
síðasta haust og því hefur ekki reynt á
það hvaða kjör þeir fengju þar. Ávöxt-
unarkrafan ofan á vexti á millibanka-
markaði (Libor-vexti) á skuldabréfum
íslensku bankanna á eftirmarkaðinum
í Evrópu hefur hækkað umtalsvert frá
því í febrúar og er nú á bilinu 0,50% til
0,75% á fimm ára bréfum bankanna.
Við lokun markaði í gær var ávöxt-
unarkrafan á fimm ára skuldabréfum
Íslandsbanka um 0,5%, á bilinu 0,70 til
0,75% á bréfum Kaupþings banka og
um 0,75% á bréfum Landsbankans, en
tekið skal fram að gengið er út frá svo-
kallaðri tryggingarpremíu (CDS, cre-
dit default swaps) sem endurspeglar
vaxtaálagið að öllu jöfnu. Hækkun
vaxtaálagsins þýðir með öðrum orðum
að virði skuldabréfanna í huga þeirra
sem kaupa og selja þau á eftirmarkaði
hefur minnkað þar sem þeir meta það
svo, með réttu eða röngu, að því fylgi
meiri áhætta að eiga skuldabréfin.
! #$! %&!
! ! '
!
(
)$
* +
,
"# ! #$! %&!
! ! '
!
(
)$
* +
$ % ! #$! %&!
! ! '
!
(
)$
* +
Skuldabréfin falla enn
í verði á eftirmarkaði
Eftir Arnór Gísla Ólafsson
arnorg@mbl.is
DRENGUR á sextánda ári var flutt-
ur á slysadeild Fjórðungssjúkrahúss-
ins á Akureyri eftir harðan árekstur
létts bifhjóls og pallbíls neðan við
Naustagil á Húsavík síðdegis í gær.
Að sögn sjónarvotta var drengurinn,
sem ók bifhjólinu, á talsvert miklum
hraða þegar óhappið varð en ökutæk-
in mættust á gatnamótum. Engin
hálka var á vegum en götur blautar
og getur hugsast að það hafi átt sinn
þátt í óhappinu. Tildrög slyssins eru
þó að mestu ókunn en lögreglan á
Húsavík fer með rannsókn málsins.
Drengurinn var í rannsóknum í
gærkvöldi en ekki lagður inn á gjör-
gæsludeild. Mikil mildi þykir að ekki
hafi verr farið og trúlega hefur
hjálmur drengsins komið honum til
bjargar. Bifhjólið, sem var óskráð,
skemmdist nokkuð og pallbíllinn varð
sömuleiðis fyrir einhverjum
skemmdum en ökumann hans sakaði
þó ekki.
Lenti í
árekstri
á óskráðu
bifhjóli
Morgunblaðið/Hafþór