Morgunblaðið - 10.03.2006, Qupperneq 20
Mýrdalur | „Það er gaman að þessu, krakkarnir
sýna svo mikinn áhuga,“ segir Guðmundur Hall-
grímsson, ráðsmaður við Landbúnaðarháskóla Ís-
lands á Hvanneyri. Hann fer ásamt fólki úr Ull-
arselinu á Hvanneyri í nokkra grunnskóla á
hverju ári til að sýna rúning og kynna ull og ullar-
menningu.
Guðmundur og samstarfsfólk hans fékk aðstöðu
í fjárhúsunum í Þórisholti í Mýrdal til að bjóða
börnun úr grunnskóla Mýrdalshrepps til kynn-
ingar. Guðmundur klippti kind og afhenti hverju
barni lagð úr reyfinu. Síðan tók Ullarselsfólkið við
og kembdi ullarlagðana og spann úr þeim þráð.
Krakkarnir fengu að taka þátt í því og taka sinn
spotta með sér heim.
Guðmundur segir að börnin fylgist alltaf vel
með á þessum kynningum og finnist gaman að sjá
hvernig efnið í fötin komi af kindinni.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Sýna rúning og ullarvinnslu
Ullarmenning
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri sími 461-1601, Margrét Þóra Þórs-
dóttir, maggath@mbl.is, 669-1117 og Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, 669-1114. Vesturland
Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími
569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Úr
bæjarlífinu
Hætta að flagga í hálfa | Fyrirtæki og
stofnanir í Borgarnesi hafa komið sér sam-
an um að hætta að flagga í hálfa stöng við
andlát og útfarir. Staðan var orðin sú að
þetta tákn þótti ofnotað enda hefur verið
venja í Borgarnesi að flagga í hálfa stöng
bæði við andlát og jarðarfarir og það hefur
orðið til þess að fáni er í hálfa stöng flesta
daga ársins.
Fram kemur á vef Skessuhorns að
fulltrúar nokkurra fyrirtækja og stofnana
komu saman til fundar ásamt séra Þorbirni
Hlyni Árnasyni sóknarpresti til að ræða
málið. Fyrirtækin ákváðu að hætta almennt
að flagga í hálfa stöng. Dvalarheimilið í
Borgarnesi er þar undanskilið sem og
kirkjurnar í Borgarnesi og á Borg.
Sjómælingasamstarf ræktað | For-
stjóri Bresku sjómælingastofnunarinnar
(UKHO), dr. Wyn Williams, heimsótti
Landhelgisgæsluna nýverið og átti fundi
með Georg Kr. Lárussyni, forstjóra Land-
helgisgæslunnar, Hilmari Helgasyni, fram-
kvæmdastjóra sjómælingasviðs/Sjómæl-
inga Íslands, og Sólmundi Má Jónssyni,
framkvæmdastjóra rekstrarsviðs, þar sem
meðal annars voru ræddir möguleikar á
auknu samstarfi stofnananna.
Samkvæmt upplýsingum Hilmars Helga-
sonar komu upp athyglisverðar hugmyndir
sem nú er verið að koma í framkvæmd.
Fundurinn var ákveðinn í framhaldi af því
að forstjórarnir hittust sl. sumar og end-
urnýjuðu samstarfssamning stofnananna.
Dr. Williams og aðstoðarmaður hans
kynntu sér starfsemi Landhelgisgæsl-
unnar, einkum sjómælingasviðs, og lauk
heimsókninni með því að gestirnir fengu
ásamt fylgdarliði far með Syn til Eyja.
Margir Norðfirðingar hafa notaðgóða veðrið að undanförnu tilútivistar. Meðal þeirra eru
starfsfólk og börnin á leikskólanum Sól-
völlum. Börnin á deildinni Ólátagarði
brugðu sér í vettvangsferð í bæinn og
var ekki annað að sjá en að þau skemmtu
sér vel og vönduðu sig við að halda takti
á göngunni. Starfsfólk deildarinnar sá
um að hópurinn færi að settum reglum í
umferðinni. Einn fór fyrir gönguhópnum
og tveir starfsmenn ráku lestina.
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Einn tveir áfram gakk
Valgeir Sigurðssonyrkir um málefnilíðandi stundar:
Árna tel ég mann að meiri
mettur kvaddi þennan dans
eitt er víst að ýmsir fleiri
ættu að fylgja dæmi hans.
Pétur Stefánsson hefur
drepið í sinni síðustu síg-
arettu og segist einnig
hættur öðrum gleðilifn-
aði:
Eins og draumur er mitt líf,
opnast greiðfær vegur.
laus við tóbak, vín og víf,
verð ég ódauðlegur.
Davíð Hjálmar Har-
aldsson rifjar upp að
Metúsalem varð upp und-
ir 1000 ára:
Enn þú hefur amlað skammt,
oft því hrasað getur
ef meinlætið er mæðusamt,
Metúsalem Pétur.
Af málefnum
líðandi
stundar
pebl@mbl.is
TVENNAR sameiningarkosningar verða
á morgun, laugardag. Atkvæði verða
greidd um sameiningu Hólmavíkurhrepps
og Broddaneshrepps á Ströndum og um
sameiningu Húnavatnshrepps og Ás-
hrepps í Austur-Húnavatnssýslu.
Í málefnaskrá sem dreift var til allra
íbúa Hólmavíkurhrepps og Broddanes-
hrepps koma fram helstu áherslur sam-
einingarnefndar sem Haraldur V.A. Jóns-
son, Eysteinn Gunnarsson, Ásdís
Leifsdóttir, Sigurður Jónsson og Sigrún
Magnúsdóttir skipuðu. Á vefnum strand-
ir.is kemur fram að ef af sameiningu
verður er ætlunin að leita eftir tillögum
að nafni á sameinaða sveitarfélagið og
kjósa á milli tillagna við sveitarstjórn-
arkosningar í vor.
Atkvæðagreiðsla um sameiningu Ás-
hrepps við hinn nýstofnaða Húnavatns-
hrepps fer fram í samræmi við tillögu
samstarfsnefndar hreppanna um samein-
ingu.
Verði sameining samþykkt verða íbúar
í hinu nýja sveitarfélagi rúmlega 470 tals-
ins. Peningaleg staða verður góð eða um
175 milljónir króna.
Kosið um
sameiningu
á tveimur
svæðum
Reykjavík | Jarðvélar ehf. í Kópa-
vogi og Eykt ehf. í Reykjavík áttu
lægsta tilboð í gerð mislægra gatna-
móta Hringvegar við Nesbraut og
tilheyrandi framkvæmdir á gatna-
mótum Suðurlandsvegar og Vestur-
landsvegar ofan Reykjavíkur. Fyr-
irtækin buðu 340 milljónir í verkið
sem er 9 milljónum kr. undir verk-
áætlun Vegagerðarinnar.
Í verkinu felst að byggja brú með
einni akgrein í hvora átt, yfir Nes-
braut þar sem hún tengist Hring-
vegi á mótum Suðurlandsvegar og
Vesturlandsvegar, nýjan Suður-
landsveg að brúnni á 300 metra
kafla og tilheyrandi rampa, aðreinar
og fráreinar til að fullmóta þessi
mislægu gatnamót. Einnig skal gera
nýja skeringu í gjánni við Suður-
landsveg.
Vegagerðin áætlaði að kostnaður
vegna verktaka yrði 349 milljónir kr.
Fjórir verktakar buðu og voru allir
yfir áætlun, nema lægstbjóðandi.
Lægsta
tilboð 340
milljónir
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Stolt af krökkunum | Grunnskóli Vest-
urbyggðar tekur þátt í verkefninu Ung-
lingalýðræði ásamt Víkurskóla í Reykjavík,
Varmalandsskóla, Grenivíkurskóla og
Hveragerðisskóla. Verkefnið hófst með rit-
gerðarsamkeppni um heimabyggðina. Er
skemmst frá því að segja að nemendur í
Grunnskóla Vesturbyggðar unnu sam-
keppnina. Frá þessu er sagt á vefnum pat-
reksfjordur.is.
Una Áslaug Sverrisdóttir varð í 1. sæti.
Maggý Hjördís Keransdóttir varð í 2. sæti
og Pálmi Snær Skjaldarson varð í 3. sæti. Í
umsögn dómnefndar segir að mikil ein-
lægni og góð úrræði varðandi úrbætur fyr-
ir heimabyggðina komi fram hjá þessu
unga fólki. Nanna Sjöfn Pétursdóttir,
skólastjóri Grunnskóla Vesturbyggðar,
sagði í samtali við vefinn: ,,Við í skólanum
erum stolt af okkar nemendum og óskum
þeim og okkur öllum til hamingju með
þennan góða árangur“.
Sauðárkrókur | Ný um-
boðsskrifstofa Trygg-
ingamiðstöðvarinnar
hefur verið opnuð á
Kaupangstorgi 1 á
Sauðárkróki. Í tilefni
opnunarinnar tóku
starfsmenn TM á móti
gestum með léttum
veitingum en auk þess
var í gangi af þessu til-
efni veglegt opn-
unartilboð á öllum
tryggingum.
Nýr umboðsmaður,
Þórhallur Rúnar Rún-
arsson, sagði ánægju-
legt hvað margir hefðu
komið til að skoða nýja
tryggingamöguleika
og að í Skagafirði væri
markaðurinn stór.
Einnig að TM ætlaði
sér aukna hlutdeild í
honum og með opnun
nýs útibús vænti TM
þess að geta veitt
Skagfirðingum enn
aukna og betri þjón-
ustu.
Morgunblaðið/ Björn Björnsson
Umboðsmaður Þórhallur Rúnar Rúnarsson
umboðsmaður á skrifstofu TM á Sauðárkróki.
TM opnar nýja
umboðsskrifstofu