Morgunblaðið - 10.03.2006, Side 40

Morgunblaðið - 10.03.2006, Side 40
40 FÖSTUDAGUR 10. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Steinunn Aðal-heiður Hannes- dóttir fæddist á Melbreið í Fljótum 8. apríl 1924. Hún lést á Hjúkrunar- heimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi fimmtu- daginn 2. mars síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin á Melbreið í Fljót- um, Hannes Hann- esson kennari og skólastjóri, f. 25. mars 1888, d. 20. júlí 1963 og Sigríður Jónsdóttir, f. 30. júlí 1900, d. 11. ágúst 1995. Systkini Aðalheiðar eru: Valberg, f. 1922, d. 1993, Pálina, f. 1927; Guðfinna, f. 1930; Sigurlína, f. 1933; Erla, f. 1935; Snorri, f. 1937; og Haukur, f. 1938. Aðalheiður giftist 29. júní 1945 Stefáni Jónassyni frá Vogum í Mývatnssveit, f. 11. júní 1919, d. 22. ágúst 2000. Foreldrar hans voru hjónin í Vogum, Jónas Hall- grímsson, f. 3. desember 1877, d. 5. desember 1945 og Guðfinna Stef- ánsdóttir, f. 5. nóv- ember 1896, d. 8. janúar 1977. Dætur Aðalheið- ar og Stefáns eru: 1) Guðfinna Sjöfn, f. 2 september 1946, maki Guðgeir Ein- arsson. Dóttir þeirra er Aðalheið- ur, maki Erlendur Birgir Blandon. Börn þeirra eru Bjarndís Sjöfn, Guð- geir Ingi og Einar Dagur. 2) Sig- ríður, f. 5. mars 1955, maki Reyn- ir Ólafsson. Synir þeirra eru Stefán og Gylfi. Stefán og Aðalheiður bjuggu lengst af í Eskihlíð 22 í Reykja- vík, en fluttu 1995 í Gullsmára 9 í Kópavogi. Síðustu árin dvaldi Að- alheiður á Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi. Útför Aðalheiðar verður gerð frá Háteigskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Frábær kona hefur kvatt þessa jarðvist, kona sem skilur eftir sig hlýjar og fallegar minningar. Heiða tengdamóðir mín var einstakt ljúf- menni, sem aldrei sá annað en það góða í hverjum og einum. Því var það mér mikil gæfa er ég gekk að eiga Sjöfn dóttur hennar að eignast hlut- deild í henni og vera í nánum tengslum upp frá því. Tengdamóðir mín var glæsileg kona og glöð í bragði, hún var smekkleg og ávallt vel til fara. Hún vildi hafa reglu á hlutunum og fallegt í kringum sig. Hún naut þess að vera með fjölskyldunni og lét velferð hennar sig miklu varða. Barnabörn- in og langömmubörnin áttu hug hennar allan og veittu henni mikla lífsfyllingu. Fljótlega eftir að hún missti manninn sinn, hann Stefán, árið 2000, fór að bera á hræðilegum sjúk- dómi (alzheimer) sem smám saman ágerðist og tók að lokum frá henni hæfnina til að sjá um sig sjálf. Hún naut ríkulegrar umönnunar dætra sinna sem endurguldu henni þá ást og umhyggju sem hún veitti þeim, ásamt því góða starfsfólki Sunnu- hlíðar í Kópavogi sem svo frábær- lega ræktuðu starf sitt gagnvart henni. Hafið miklar þakkir fyrir. Nú þegar komið er að leiðarlokum er mér ómetanlegt þakklæti efst í huga, þakklæti fyrir að hafa fengið að kynnast svo mætri konu sem Heiða var sem alla tíð sýndi mér kærleika, ást og hlýju. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Guðgeir. Svo er því farið: Sá er eftir lifir deyr þeim sem deyr en hinn dáni lifir í hjarta og minni manna er hans sakna. Þeir eru himnarnir honum yfir. (Hannes Pétursson.) Elsku amma, nú skilja leiðir. Tíma erfiðra veikinda er lokið. Þú hafðir átt við veikindi að stríða í mörg ár, en kvartaðir aldrei. Okkar fyrstu minningar tengjast afa og ömmu í Eskihlíð. Allar þær góðu og skemmtilegu samveru- stundir, sem við áttum saman. Hjá ykkur leið okkur best og með ykkur eigum við flestar af okkar bestu minningum. Við kveðjum þig með sorg og söknuði, en minningin um ástkæra ömmu lifir í hjarta okkar. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Stefán og Gylfi. Nú er Heiða mín sofnuð og hvíldin er kærkomin. Kærleiksríkur Faðir okkar á himnum hefur lofað því að við höfum engar áhyggjur né þrautir í þessum síðasta svefni. Eins og seg- ir í fyrra bréfi Páls til Korintumanna 15:21. Því að þar eð dauðinn kom fyrir mann, kemur og upprisa dauðra fyrir mann. Því ekki skal gleyma því á þeirri stund er við sjáum á bak ástvinum að Kristur kom og gaf okkur lykilinn að eilífu lífi fyrir sína eigin fórn og kær- leiksgjöf til okkar allra sem viljum þiggja. Hann sagði við okkur öll: ,,Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið. Enginn kemur til föðurins, nema fyrir mig. (Jóhannesarguðspjall 14:16.) Mér finnst svo gott að vita þetta. Ég er svo örugg um að einn góðan dag hitti ég Heiðu aftur og þá verða fagnaðarfundir. Þá verður hún ung og heilbrigð og allar sorgir horfnar. Engar styrjaldir munu þá þjaka hugann, engar áhyggjur um ástvini sem kunni að lenda í slysum, engir sjúkdómar framar. Allt það sem ekki kom upp í huga nokkurs manns. Guð sem skapaði þennan heim mun gefa líf sem er betra en nokk- urn mann getur órað fyrir. Það er gott að geta sofið í friði þangað til og vakna svo þegar Frelsarinn kemur í mætti og mikilli dýrð, eins og hann lofaði. Ekki væri gott að þurfa að vera áhorfandi að þessum heimi og sjá ástvini, sem eftir lifa lenda í hremmingum og sorgum. Nei, Guð leggur slíkt ekki á nokk- urn mann heldur leyfir svefninum langa að hvíla þreytta sál þar til tím- inn kemur til að vakna til nýs lífs. Kristur sagði um Lasarus að hann væri sofnaður, en líka að hann væri dáinn. Sá sami Kristur og kallaði þennan vin sinn til lífs og sýndi þar með hver hann er í raun og veru, þessi Kristur stendur við orð sín og er máttugur og voldugur Guð. Minnumst þess hvað sagt er um hann í bréfi Páls til Rómverja 6:9. Vér vitum að Kristur, upp vakinn frá dauð- um, deyr ekki framar. Dauðinn drottnar ekki lengur yfir honum. Ég minnist Heiðu fyrst er ég var um 5 ára aldur. Þá bjuggu þau, Stef- án maður hennar og hún á Leifsgöt- unni. Síðar er ég átti heima norður í Fljótum á æskuheimili Heiðu, sá ég hana líklega á hverju sumri. Fátt vakti eins mikla tilhlökkun og það að vita að þau Heiða og Stebbi voru að koma í árlega heimsókn. Ég man Heiðu ekki öðruvísi en hlýlega og brosandi. Ég hændist að henni og fannst hún einfaldlega svo góð að ekki væri hægt að biðja um meira í einni manneskju. Sem táningur bjó ég svo stutt frá þeim í hlíðunum. Og það var sama sagan, ég sótti í að líta inn og heim- sækja Heiðu og Stebba. Hún tók alltaf á móti fólki með hlöðnu borði. Gestrisni var aðalsmerki á því heim- ili. Ég kveð Heiðu með söknuði og djúpu þakklæti fyrir allt. Ég hlakka til að hitta hana og þau bæði aftur við nýjar aðstæður. Ég les í helgri bók enn eitt loforð frá Guði og treysti því. Og hann mun þerra hvert tár af augum þeirra. Og dauðinn mun ekki framar til vera, hvorki harmur né vein né kvöl er framar til. Hið fyrra er farið. (Opinberun Jóhannesar 21:4.) Megi Guð blessa minningu ynd- islegrar konu og hugga fjölskyldu hennar og ástvini alla Þórdís Malmquist (Dísa á Melbreið). AÐALHEIÐUR HANNESDÓTTIR BÁRA SIGNÝ SIGURVINSDÓTTIR, Fjarðarstræti 55, Ísafirði, lést á heimili sínu föstudaginn 3. mars. Jarðsungið verður frá Suðureyrarkirkju laugardag- inn 11. mars kl. 14.00. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Styrkt- arfélag fatlaðra á Vestfjörðum. Sigurvin Magnússon, Guðný Guðmundsdóttir, Kristbjörg U. Sigurvinsdóttir, Paul A. Fawcett, Margrét A. Sigurvinsdóttir, Ragnar H. Sigurðsson, Þórður E. Sigurvinsson, Þórey M. Ólafsdóttir, Þorleifur K. Sigurvinsson, Arnheiður I. Svanbergsdóttir og frændsystkin. Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma, MARÍA KRISTJANA ANGANTÝSDÓTTIR, Öldustíg 3, Sauðárkróki, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þriðju- daginn 7. mars. Útförin auglýst síðar. Benedikt Agnarsson, Agnes Benediktsdóttir, Helgi Einarsson, Ásta Benediktsdóttir, Rúnar Grétarsson, Björgvin Benediktsson, Guðrún Astrid, Sigrún Benediktsdóttir, Sigfús Benediktsson, Aron Hugi Helgason, Arney Lind Helgadóttir, Benedikt Rúnarsson, Dagmar Björg Rúnarsdóttir. Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar, BÖÐVAR G. BALDURSSON, Smárarima 74, Reykjavík, lést á heimili sínu miðvikudaginn 8. mars. Útförin verður gerð frá Grafarvogskirkju föstu- daginn 17. mars kl. 13.00. Gerður Jensdóttir, Grétar Böðvarsson, Signý Marta Böðvarsdóttir, Haukur Böðvarsson. Elskaður og dáður sonur okkar, bróðir, frændi og barnabarn, SESAR ÞÓR VIÐARSSON, Brakanda II, Hörgárbyggð, lést af slysförum laugardaginn 4. mars. Jarðarförin auglýst síðar. Viðar Þorsteinsson, Elínrós Sveinbjörnsdóttir, Sigurður Elvar Viðarsson, Sigrún Alda Viðarsdóttir, Sara Hrönn Viðarsdóttir, Viðar Guðbjörn Jóhannsson, Steingerður Jósavinsdóttir, Erla Stefánsdóttir, Jón Guðmundsson. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengafaðir, afi og langafi, VILHJÁLMUR ÁRNASON hæstaréttarlögmaður, lést á Landspítala Fossvogi að kvöldi miðviku- dagsins 8. mars. Sigríður Ingimarsdóttir, Guðrún Vilhjálmsdóttir, Pétur Björnsson, Árni Vilhjálmsson, Vigdís Einarsdóttir, Guðbjörg Vilhjálmsdóttir, Torfi H. Tulinius, Arinbjörn Vilhjálmsson, Margrét Þorsteinsdóttir, Þórhallur Vilhjálmsson, Glenn Barkan, barnabörn og barnabarnabörn. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÖGMUNDUR HELGASON, Tómasarhaga 12, Reykjavík, lést á Landspítala Hringbraut miðvikudaginn 8. mars. Útförin verður auglýst síðar. Ragna Ólafsdóttir, Helga Ögmundardóttir, Reynir Sigurbjörnsson, Ólafur Ögmundarson, Hallrún Ásgrímsdóttir og barnabörn. Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HELGI PÁLSSON fyrrv. leigubílstjóri, Hólmgarði 56, Reykjavík, andaðist á heimili sínu miðvikudaginn 8. mars. Jarðað verður frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 14. mars kl. 13.00. Sjöfn Helgadóttir, Valur Helgason, Harpa Bjarnadóttir, Sævar Helgason og fjölskylda.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.