Morgunblaðið - 10.03.2006, Side 51
húsráðenda ríkti, menning sam-
félagsins og vandamál líðandi stund-
ar voru rædd. Ég sé hana Hebbu
fyrir mér, létta á fæti, bera fram
veitingar og miðla af glaðværð sinni.
Þegar söngglaða gesti bar að garði,
sem algengt var, var Hebba fljót að
finna rétta tóninn. Margir munu því
minnast þessarar einstöku konu,
sem aldrei lét bugast þrátt fyrir ým-
is áföll á lífsleiðinni. Sá sem hér
stýrir penna minnist margra
ógleymanlegra vinafunda á Varma-
læk.
Á vegamótum þegar leiðir skilur
óskum við samferðamönnum vel-
farnaðar á nýjum leiðum. Þótt vorið
sé í nánd vil ég ljúka þessum kveðju-
orðum með haustvísu eftir eigin-
mann hennar, Svein á Varmalæk:
Laufbörð fjalla lituð grá,
liljan vallar kalin.
Blóm sér halla bölum á,
bjarkir falla í valinn.
Vina- og þakkarkveðjur til fjöl-
skyldunnar á Varmalæk frá Vind-
heimaheimilinu.
Sigmundur Magnússon.
Ég minnist Herdísar Björnsdótt-
ur, hennar Hebbu, sem konu sem
geislaði af visku og gæsku. Hún var
staðföst og sveigjanleg, ákveðin og
blíð, glaðvær og geislandi, Hebba
var nánast fósturmóðir mín á tíma-
bili á unglingsárum. Vináttu átti ég
mikla á Varmalæk hjá tvíburunum
Siggu og Gísla og sótti hana óspart.
Alltaf var ég velkomin.
Ég man Hebbu í búðinni, Hebbu í
eldhúsinu, Hebbu kallandi á okkur
krakkana að koma að drekka eða
borða og við komum og sátum við
stóra eldhúsborðið á Varmalæk. Jói
stundum heima segjandi brandara,
óskiljanlegt að geta verið svo glað-
vær í svona erfiðum líkama. Allir
eitthvað svo glaðir á Varmalæk og
ég sótti þangað í þessa gleði, í þenn-
an góða félagsskap og hlýju og það
var Hebba sem hélt utan um þetta
allt.
Nú er Hebba farin til Sveins síns
sem líka dó úr krabbameini. Allt
sem ég hefði viljað segja við Hebbu
sem fullorðinn einstaklingur kemst
ekki til hennar, en af veikum mætti
og í auðmýkt þakka ég fyrir að hafa
fengið að deila lífi mínu með fjöl-
skyldunni á Varmalæk í æsku. Það
er vart hægt að minnast Hebbu án
þess að minnast á Svein. Þau ráku
verslun í Lýtingsstaðahreppi sem
örugglega gaf ekki mikið af sér en
þau áttu sinn þátt í að aldrei var
skortur á nauðsynjum á nokkru
heimili í hreppnum. Og það var ekki
gengið hart eftir að rukka það sem
skrifað var. Hebba og Sveinn voru
samstiga hjón og maður gat vart
hugsað sér Varmalæk án þeirra
beggja. En fyrst yfirgaf Sveinn svið-
ið og Hebba stóð keik eftir í mörg ár
og hélt utan um sína stórfjölskyldu
af ást og hlýju.
Nú er Hebba farin. Guð blessi
minningu hennar, hún er ein af þeim
sem ekki fór mikið fyrir en skilur
eftir sig stóra arfleifð og góðar
minningar.
Ég votta fjölskyldu hennar og ást-
vinum samúð og hluttekningu.
Sólborg Alda Pétursdóttir.
Herdís Björnsdóttir á Varmalæk
var ein þeirra samferðamanna, sem
eftir er að þakka, – einu sinni enn.
Hvað það var sérstaklega er
kannski farið að mást út eftir ára-
tug, einn eða nokkra, kannski helst
að hún var til, var á þessum stað í
hjarta sveitarinnar, þangað sem
margir sóttu, flestir í dagsins önn,
einhverjir einmana, fáeinir sem
fannst heimurinn hafa brugðist sér.
Hún auðgaði samfélag sitt. Hún
gaf sér tíma í önn sinni. Rík eru þau
samfélög sem eiga konur – menn –
eins og Hebbu innan sinna marka.
Leitað skal til skáldsins Hannesar
Péturssonar sem orti Kvöldljóð:
Eitthvað er það
sem innstu hnúta bindur
og leysir þá aftur
létt eins og vindur
sem strýkur um þak
á þessum fjallakofa
án þess nokkur heyri
– meðan allir sofa
eitthvað er það
sem engin hugsun rúmar
en drýpur þér á augu
sem dögg – þegar húmar
Innilegar samúðarkveðjur til
Varmalækjarsystkina og fjölskyldna
þeirra.
Ingi Heiðmar Jónsson.
Til þín elsku langamma:
Bæn frá okkur amma mín,
englar himins heyra
hún er flutt af þökk til þín
þangað sem að sólin skín
og söngvagleði ómar hverju eyra.
Guð vor áfram gæti þín,
gleðji þig með rósum,
þar sem allt er orðið nýtt,
endurvakið vorið hlýtt
og veröldin í himinbornum ljósum.
(Sigurður Hansen.)
Elsku langamma. Það eru nú ekki
nema svona þrír mánuðir síðan við
vorum að leika okkur saman í elt-
ingaleik og fótbolta. Svo allt í einu
varðstu svo mikið veik og lást bara í
rúminu. En núna ertu orðin frísk
aftur og ert uppi í skýjunum hjá afa
í Djúpadal og við vitum að hann
passar þig þar og þið kíkið annað
slagið á okkur niður úr skýjunum.
Elsku langamma, við söknum þín
svo mikið en við vitum líka að þú ert
aftur farin að syngja, spila fótbolta
og fara í eltingaleik, bara á öðrum
stað. Saknaðarkveðjur. Þín
Skarphéðinn Rúnar
og Herdís Eir.
Hetja varst’ til hinstu stundar
heilbrigð lundin aldrei brást.
Vinamörg því við þig funda
vildu allir, glöggt það sást.
Minningarnar margar, góðar
mikils nutum, bjarminn skín.
Bænir okkar heitar hljóðar
með hjartans þökk við minnumst þín.
(María Helgadóttir.)
Sigurður og María.
Það er komið að leiðarlokum með
Hebbu frænku á Varmalæk. Hebba
spilaði stórt hlutverk í lífi okkar
systkinanna á Ökrum. Sambandið
milli heimilanna var sterkt því pabbi
okkar og hún voru mjög náin systk-
ini og þau og mamma perluvinir.
Hebba kallaði hann Brósa, það gerði
enginn annar. Það var þeirra tungu-
mál. Hebba ólst upp á Stóru-Ökrum.
Hún gekk í farskóla, fór um tíma í
gagnfræðaskóla á Króknum og í
Löngumýrarskóla veturinn 1948–
1949. Hún giftist Sveini Jóhannssyni
árið 1950 og þau fluttu í Varmalæk
1954. Börnin þeirra: Lovísa, Björn,
Jóhann Pétur, Sigríður, Gísli og
Ólafur Stefán urðu hluti af tilveru
okkar. Sveinn kvaddi árið 1987 og
Jói árið 1994, langt fyrir aldur fram.
Hebba og Svenni hófu hefðbundinn
blandaðan búskap á Varmalæk 1954,
en hrossunum fjölgaði er árin liðu
og einkenndu búskapinn.
Börnin tóku þátt í öllum verkum
og leystu hana af þegar mikið lá við.
Varmalækjarheimilið var ólíkt öllu
sem við þekktum. Það var eiginlega
eins og umferðarmiðstöð. Þangað lá
leið margra. Tengdamóðir Hebbu
rak Verslunina Varmalæk frá 1954
til 1961 en þá tók Hebba við og rak
búðina til ársins 1998. Þar fékkst
allt milli himins og jarðar. Föt, mat-
ur og olíur og alltaf opnað, hvernig
sem stóð á spori eða tíma. Miðað við
takmarkaða sjón Hebbu síðustu ára-
tugina var þetta ótrúlegt afrek. Oft
fylltu ferðalangar eldhúsið á Varma-
læk og þá var tekið lagið og Hebba
stjórnaði söngnum af lífsins lyst og
kunni öll lög og texta. Hún átti 14
barnabörn og þrjú barnabarnabörn
sem hún var stolt af. Þau nutu þess
að vera farin að syngja með henni
síðustu árin. Það var einstakt að sjá
hana við eldhúsborðið syngjandi
með ungum gestum og barnabörn-
unum án þess að það fipaði nokkurn.
Guð blessi minningu hennar.
Systkinin frá Stóru-Ökrum.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. MARS 2006 51
MINNINGAR FRÉTTIR
LIONSKLÚBBURINN Fjörgyn
stóð fyrir tónleikum í Grafarvogs-
kirkju 10. nóvember sl. til styrktar
Barna- og unglingageðdeild LHS. Á
tónleikunum söfnuðust 1.433.574
krónur.
Eftirtaldir listamenn komu fram
á tónleikunum og gáfu vinnu sína:
Bergþór Pálsson, Egill Ólafsson,
Felix Bergsson, Helgi Björnsson,
Hörður Torfason, Jóhann Friðgeir
Valdimarsson, Jón Jósep Snæ-
björnsson (Jónsi), Jónas Þórir, KK
og Ellen Kristjánsdóttir, Óskar
Pétursson, Ragnar Bjarnason,
Ragnheiður Gröndal, Sigrún Hjálm-
týsdóttir, Þorgeir Ástvaldsson, Þór-
unn Lárusdóttir og Lögreglukórinn.
Auk þess veittu ýmis fyrirtæki
verkefninu lið með beinum fjár-
stuðningi, ókeypis þjónustu eða
verulegum afslætti af þjónustu
sinni. Þessi fyrirtæki eru: Intrum-
Justitia, Íslandsbanki, VISA, Lit-
róf-Hagprent, Morgunblaðið, Olíu-
félag Íslands (Esso), Olíuverslun Ís-
lands (Olís) og Ríkisútvarpið.
Á myndinni afhendir Guðmundur
Helgi Gunnarsson, formaður Lions-
klúbbsins, Ólafi Ó. Guðmundssyni
yfirlækni afrakstur styrktartón-
leikanna en auk þeirra á myndinni
eru félagar úr Lionsklúbbnum
Fjörgyn og Linda Kristmunds-
dóttir, deildarstjóri göngudeildar
BUGL.
Lionsklúbburinn Fjörgyn styrkir BUGL
ÞRIÐJUDAGINN 7. mars sl. um
klukkan 13.39 varð umferðaróhapp
á gatnamótum Vífilsstaðavegar og
Reykjanesbrautar í Garðabæ, en
umferð þar er stjórnað með um-
ferðarljósum.
Lentu þar saman fólksbifreið af
gerðinni Skoda Octavia, ljósbrún að
lit, sem ekið var Reykjanesbraut til
suðurs, og Nissan Primera, dökkblá
fólksbifreið, sem ekið var austur
Vífilsstaðaveg. Ágreiningur er uppi
um stöðu umferðarljósa þegar
áreksturinn varð og því eru þeir
vegfarendur sem kunna að hafa
orðið vitni að óhappinu, beðnir um
að hafa samband við lögregluna í
Hafnarfirði í síma 525 3300.
Lýst eftir vitnum
STJÓRN VR samþykkti ályktun á
fundi sínum hinn 8. mars, á alþjóð-
legum baráttudegi kvenna, þar sem
skorað er á ríkisstjórn Íslands að
beita sér af alefli gegn kynbundn-
um launamun með virkum stjórn-
valdsaðgerðum. „Kynbundinn
launamunur er óþolandi mannrétt-
indabrot sem aldrei á að líðast. Rík-
isstjórninni er skylt að tryggja að
mannréttindi séu virt samkvæmt
jafnræðisreglu stjórnarskrár-
innar.“
Gegn kynbundn-
um launamun
NEYTENDASAMTÖKIN lýsa yfir
stuðningi við áskorun Lands-
sambands kúabænda og Svínarækt-
arfélags Íslands um að stjórnvöld
felli niður tolla á innfluttum kjarn-
fóðurblöndum. Þessi tvö félög
benda á að fákeppni ríki hér á landi
í sölu á kjarnfóðri en nú eru aðeins
tvö fyrirtæki sem flytja inn hráefni
og framleiða kjarnfóðurblöndur. Á
hráefnið er lagður tollur sem nem-
ur 80 aurum á hvert kíló en ef flutt-
ar eru inn tilbúnar kjarnfóð-
urblöndur er tollurinn 7,80 krónur
á hvert kíló.
„Ljóst er að ef tollur á innfluttar
kjarnfóðurblöndur verður felldur
niður eða í það minnsta lækkaður
til samræmis við tolla á hráefni í
kjarnfóðurblöndur, geta bændur
tekið sig saman og flutt sjálfir inn
tilbúnar kjarnfóðurblöndur. Með
því myndi þeim tveim fyrirtækjum
sem nú framleiða kjarnfóð-
urblöndur vera veitt verulegt að-
hald. Neytendasamtökin taka undir
þessi sjónarmið Landssambands
kúabænda og Svínaræktarfélags Ís-
lands. Mikil umræða hefur að und-
anförnu verið um hátt matvælaverð
hér á landi. Með því að verða við
þessu gætu stjórnvöld stigið skref
til að lækka matvælaverð frá því
sem nú er,“ segir í ályktun frá
Neytendasamtökunum.
Styðja afnám
fóðurtolls
RÁÐSTEFNAN Skógar í þágu lýð-
heilsu á Íslandi verður haldin á
morgun, laugardaginn 11. mars, í
Öskju, Náttúrufræðahúsi Háskóla
Íslands, og hefst kl. 13. Ráð-
stefnan er á vegum Rann-
sóknastöðvar skógræktar á Mó-
gilsá, Skógræktarfélags Íslands og
Skógræktarfélags Reykjavíkur og
er haldin í tengslum við fulltrúa-
fund skógræktarfélaganna. Ráð-
stefnan er öllum opin og er að-
gangur ókeypis.
Ráðstefnustjórar eru Þuríður
Yngvadóttir í stjórn Skógrækt-
arfélags Íslands og Aðalsteinn Sig-
urgeirsson, varaformaður Skóg-
ræktarfélags Reykjavíkur. Siv
Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra
setur ráðstefnuna.
Nánari upplýsingar má finna á
www.skogur.is.
Skógar í þágu
lýðheilsu
FORSVARSMENN jólatréssölu Landakots afhentu
nýlega Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna
hluta af ágóða jólatréssölu síðasta árs, eða 375.000
krónur.
Jólatréssala Landakots hefur verið starfrækt í
rúman áratug og um árabil hefur hluti ágóðans
runnið til styrktar SKB.
Þórir Kr. Þórisson og Baldur Freyr Gústafsson
frá jólatréssölu Landakots afhentu Rósu Guðbjarts-
dóttur, framkvæmdastjóra SKB, styrkinn.
Veittu SKB 375 þúsund kr. styrk