Morgunblaðið - 10.03.2006, Blaðsíða 61
Ágúst Einarsson, prófessorvið viðskipta- og hag-fræðideild Háskóla Ís-
lands, var í viðtali í Speglinum á
Rás eitt á þriðjudaginn og tók
þar undir orð þeirra sem segja að
íslenska skattkerfið sé ekki hlið-
hollt þeim einstaklingum eða fyr-
irtækjum sem vilji leggja fé í
rannsóknarsjóði eða til lista- og
menningarmála. Ágúst sagði að í
fjölmörgum löndum væri skatt-
kerfið þannig úr garði gert að
það örvaði framlög til rannsókna
og þróunarstarfs og til lista og
menningarmála, og nefndi hann
máli sínu til stuðnings að breyt-
ingar í þá átt hefðu verið gerðar
á skattalögum á Írlandi, í Frakk-
landi, Þýskalandi, Chile, Ástralíu
og í fjölmörgum ríkjum Banda-
ríkjanna. Hann sagði þetta fyr-
irkomulag hafa reynst mjög vel í
þessum löndum og því væri það
ákveðið sinnuleysi af hálfu ís-
lenskra stjórnvalda að hafa ekki
tekið þetta kerfi upp hér á landi.
Ágúst sagði að mögulegamætti draga slík framlög frá
sköttum viðkomandi fyrirtækja
eða einstaklinga eða veita þeim
skattaafslátt af einhverju tagi.
Hann bætti því við að ríkisvaldið
þyrfti ekki að óttast tekjutap
vegna þessa því sýnt hefði verið
fram á að framlög á þessu sviði
skiluðu sér mjög fljótt aftur í rík-
iskassann, einfaldlega vegna auk-
innar veltu í hagkerfinu. Ágúst
benti á að menningarstarfsemi
væri orðinn stór atvinnuvegur
víða um heim, ekki hvað síst á Ís-
landi. Hann sagði að á sviði
menningar og lista hér á landi
væru fjölmörg tækifæri til verð-
mætasköpunar, til dæmis í tón-
listar- og kvikmyndaiðnaði, sem
efldist með hverju árinu.
Taka verður undir þessi orðprófessorsins því með aukn-
um fjárframlögum til lista og
menningar mun verkefnum á því
sviði fjölga og störfum þeim
tengdum sömuleiðis. Þetta fyr-
irkomulag gæti haft meiri jákvæð
áhrif því öflugra menningarlíf á
Íslandi ætti að skila sér í auknum
fjölda ferðamanna hingað til
lands. Á undanförnum árum hef-
ur mikill fjöldi ferðamanna komið
til landsins í tengslum við hina
ýmsu menningarviðburði og svo
dæmi sé tekið komu fjölmargir
erlendir tónlistaráhugamenn og
blaðamenn á Iceland Airwaves-
hátíðina í október. Með auknu
fjármagni ætti slíkum viðburðum
að fjölga og menningarlífið ætti
almennt að eflast til mikilla
muna.
Afleiðingin yrði væntanlega sú
að fleiri ferðamenn kæmu hingað
til lands í menningartengdum er-
indagjörðum.
Ágúst sagði að þegar hann varsjálfur á þingi hefði hann
lagt fram tillögur um breytingar
á skattalögum í þá átt sem fjallað
var um hér að framan. Vel var
tekið í þessar hugmyndir hans úti
í þjóðfélaginu, en svo illa vildi
hins vegar til að hann sat í
stjórnarandstöðu og þess vegna
náði málið ekki fram að ganga.
Ríkisstjórnin ætti hins vegar að
taka sig til og leggja fram frum-
varp til breytinga á skattalögum í
þá veru sem Ágúst leggur til.
Slíkt fyrirkomulag mundi efla ís-
lenskt menningarlíf til mikilla
muna og verða öllum til góða.
Skattar og
menning
’Taka verður undir þessiorð prófessorsins því með
auknum fjárframlögum til
lista og menningar mun
verkefnum á því sviði
fjölga og störfum þeim
tengdum sömuleiðis.‘
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Hugmyndir Ágústs náðu ekki fram
að ganga þegar hann sat sjálfur á
Alþingi.
jbk@mbl.is
AF LISTUM
Jóhann Bjarni Kolbeinsson
Morgunblaðið/Árni Torfason
Fjölmargir ferðamenn komu á Iceland Airwaves-hátíðina í október.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. MARS 2006 61
„Það er unun að fylgjast með Hopkins, sem er
hér í einu sínu besta og eftirminnilegasta hlutverki.
Það stafar meiri gleði frá honum en nokkrum öðrum
leikara. Leikurinn kemur djúpt úr iðrum hans, fram hjá
geislandi brosinu og hneggjandi hlátrinum og brýst út
í gríðarlega áþreifanlegum persónuleika.
Það hefur sjaldan verið skemmtilegra
að horfa á eina kvikmynd til enda.“
- Jack Matthews, NY Daily News
OLC/RIGHTS ENTERTAINMENT TANLAY AG THE NEW ZEALAND FILM PRODUCTION FUND AND THE NEW ZEALAND FILM COMMISSION IN ASSOCIATION WITH 3 DOGS & A PONY PRESENT A ROGER DONALDSON/GARY HANNAM PRODUCTION OF A ROGER DONALDSON FILM ANTHONY HOPKINS “THE WORLD’S FASTEST INDIAN” DIANE LADD PAUL RODRIGUEZ
AARON MURPHY CASTING BY DIANNE CRITTENDEN DIANA ROWAN PRODUCTION DESIGN J DENNIS WASHINGTON ROB GILLIES EDITED BY JOHN GILBERT MUSIC J PETER ROBINSON DIRECTOR OF PHOTOGRAPHY DAVID GRIBBLE LINE PRODUCERS DONALD SHAIN MURRAY FRANCIS CO-PRODUCED BY JOHN J KELLY EXECUTIVE PRODUCERS MASAHARU INABA
CHARLES HANNAH MEGUMI FUKASAWA SATORU ISEKI BARRIE M OSBORNE PRODUCERS ROGER DONALDSON GARY HANNAM WRITTEN AND DIRECTED BY ROGER DONALDSON
www.worldsfastestindian.com
www.graenaljosid.is – Skráðu þíg á póstlistann og þú gætir farið frítt á allar myndir Græna ljóssins!
„Yndisleg kvikmynd sem fær mann til að standa á fætur
og fagna íþróttahetju sem kemur skemmtilega á óvart.
Anthony Hopkins sýnir besta leikinn á
ferlinum og á skilið að fá Óskarinn fyrir.“
- Pete Hammond, Maxim
S Ý N I N G A R E R U H A F N A R
„Stórkostleg mynd! Persónulegt og hvetjandi ferðalag
sem sannar hversu smitandi draumur eins manns getur orðið.
Anthony Hopkins sýnir á sér nýjar hliða sem feiminn, ófram-
færinn maður sem treystir á góðvild annarra en breytist í
hálfgerða ofurhetju þegar hann sest á mótorhjólið.“
- David Germain, AP
„Anthony Hopkins sýnir
hér sannkallaðan stórleik.
Hann heldur manni
hugföngnum í tvo klukkutíma.“
- Lou Lumenick, NY Post
„Ein sætasta mynd ársins.
Anthony Hopkins hittir alltaf á
réttu nóturnar og leikur
skemmtilegasta
furðufugl ársins.“
- Roger Ebert, Ebert & Roeper
„Það er hrein unun
að fylgjast með
Anthony Hopkins
í þessari hlýlegu mynd.“
- Leonard Maltin, Entertainment Tonight
STJÖRNUSPÁ mbl.is