Morgunblaðið - 18.03.2006, Page 59
Veiðisafnið – Stokkseyri | Uppstoppuð
veiðidýr ásamt skotvopnum og veiði-
tengdum munum. Opið alla daga kl. 11–
18. Sjá nánar á hunting.is.
Leiklist
Vestmannaeyjar | Leikfélag Vest-
mannaeyja frumsýnir í kvöld leikritið
Nunnulíf sem byggt er á myndinni Sister
act. Leikstjóri og handritshöfundur er
Laufey Brá Jónsdóttir. Leikrit sem flétt-
ar saman lífi reglusystra og lífi undir-
heimanna. Sýningar fara fram í Bæj-
arleikhúsinu.
Dans
Breiðfirðingabúð | Átthagafélag
Strandamanna heldur vorball í kvöld.
Húsið opnað kl. 22. Hljómsveitin Klassík
leikur fyrir dansi. Miðaverð 1.000 kr.
Þjóðleikhúskjallarinn | Argentínskt
tangóball hefst kl. 21.30, með opnum
byrjendatíma í umsjón Kathrinar
Schmucker. Diskótek með tangótónlist
frá ýmsum tímum hefst upp úr kl. 22. Í
hléi sýna Hany Hadaya og Bryndís Hall-
dórsdóttir tangó. Aðgangseyrir 1.000 kr.
og 500 kr. fyrir námsmenn. Nánar á
tango.is
Skemmtanir
Cafe Catalina | Hörður G. Ólafsson spil-
ar og syngur.
Grand Rokk | Dikta og Ókind spila frá kl.
23.30, 500 kr. inn.
Klúbburinn við Gullinbrú | Stelpukvöld
Klúbbsins og hárgreiðslustofunnnar
Stubbalubba. Kynningar, sýningar o.fl.
Húsið opnað fyrir matargesti kl. 19, dag-
skrá hefst kl 21, húsið opnar fyrir karla
kl. 24. Frítt inn til kl. 22. Hljómsveitin
Fönn leikur.
Kringlukráin | „Labbi í Mánum“ og
hljómsveitin Karma með dansleik.
Saltfisksetrið í Grindavík | Írsk þjóð-
lagastemning í Saltfisksetrinu, Þjóðlaga-
sveit Tónlistarskólans í Grafarvogi kemur
í heimsókn ásamt kennara sínum Wilmu
Young í dag, kl. 17. Sveitin spilar þjóðlög
frá Írlandi, Skotlandi, Svíþjóð og Hjalt-
landseyjum.
Vélsmiðjan Akureyri | Hljómsveit Rún-
ars Þórs skemmtir föstudag og laug-
ardag. Húsið opnað kl. 22, frítt inn til
miðnættis.
Uppákomur
Borgarbókasafn – aðalsafn | Sögustund
19. mars. Ingibjörg Hafliðadóttir les úr
barnabókum.
Kaffi Hljómalind, lífrænt kaffihús |
Kiirtan (möntrusöngur) og hugleiðsla
mun fara fram kl. 10.
Hótel Borg | Vínþjónasamtökin standa
fyrir kynningu á vínum frá Suður-Afríku
á Skuggabarnum, kl. 14–17. Aðgangseyrir
er 500 kr.og lágmarksaldur gesta er 20
ár. Einnig verður forkeppni fyrir Evr-
ópumeistaramót vínþjóna sem verður
haldið í Reims í Frakklandi í júní.
Fyrirlestrar og fundir
Ásatrúarfélagið | Umræðu- og kynning-
arfundur um fyrirhugaða hofbyggingu
Ásatrúarfélagsins verður kl. 14–17. Fram-
sögumaður er Hilmar Örn Hilmarsson,
allsherjargoði.
Gerðuberg | Barnabókaráðstefna kl.
10.30–13, fyrirlesarar: Sölvi Sveinsson,
Kristín Ragna Gunnarsdóttir, Sólveig
Ebba Ólafsdóttir og Helgi Már Frið-
geirsson. Nánari upplýsingar á
www.gerduberg.is. Ókeypis aðgangur.
Háskólabíó | Þjóðarhreyfingin – með
lýðræði, boðar til almenns borg-
arafundar kl. 13–14.45, í Háskólabíói (sal
1). Ávörp flytja: Ólafur Hannibalsson rit-
höfundur, Andri Snær Magnason rithöf-
undur og Ari Alexander Magnússon kvik-
myndagerðarmaður. Einnig verða sýndar
tvær heimildarmyndir um innrásina í
Írak eftir Sigurð Guðmundsson myndlist-
armann og Ara Alexander Magnússon
kvikmyndargerðarmann.
Ísland Panorama | Stofnfundur samtak-
anna Ísland Panorama verður í dag kl.
14, í Norræna húsinu og er öllum opinn.
Ísland Panorama eru grasrótarsamtök
sem ætlað er að standa vörð um fjöl-
breytni og vinna gegn mismunun. Þau
hafa það að markmiði að beita sér í bar-
áttunni gegn fordómum, útlendingafælni
og hverskonar mismunun á grundvelli
trúar, útlits eða uppruna.
Krabbameinsfélagið | Samhjálp kvenna
verður með opið hús í Skógarhlíð 8, 21.
mars kl. 20. Á dagskrá verður: Tískuráð-
gjöf á vegum Debenhams, Erla Lúðv.
stílisti sýnir vortískuna og veitir ráðgjöf.
Snyrtifræðingur kynnir nýjungar og leið-
beinir. Ingibjörg Sigurbj. gullsmiður sýnir
skartgripi. Vöfflur með rjóma.
Norræna húsið | Stofnun Vigdísar Finn-
bogadóttir efnir til Vigdísarþings kl. 9–
13. Þar verður rætt um hvernig íslenskar
fornbókmenntir voru meðvitað notaðar
til þess að byggja upp þjóðerniskennd á
Norðurlöndum, í Skotlandi og Þýskalandi
á 19. öld. Aðgangur er ókeypis og allir
velkomnir.
Fréttir og tilkynningar
Aðalþjónustuskrifstofa Al-Anon | Upp-
lýsingar um fundarstaði og tíma al-
mennra funda, sporafunda og nýliða-
funda er á heimasíðunni, www.al-anon.is
Al-Anon og Alateen er félagsskapur
karla, kvenna og unglinga sem hafa orð-
ið fyrir áhrifum af drykkju ættingja eða
vinar.
GA- fundir | Er spilafíkn að hrjá þig eða
þína aðstandendur? Hægt er að hringja í
GA-samtökin (Gamblers Anonymous) í
síma: 698 3888.
Tungumálamiðstöð HÍ | Háskóli Íslands
heldur 12. maí nk., hin alþjóðlegu DELE
próf í spænsku. Innritun fer fram í
Tungumálamiðstöð HÍ sem staðsett er í
kjallara Nýja Garðs. Frestur til innritunar
rennur út 7. apríl. Nánari upplýsingar
um prófin og innritun: http://www.hi.is/
page/dele
Waldorfskólinn í Lækjarbotnum | Opið
hús verður í Waldorfskólanum í Lækj-
arbotnum ( v. Suðurlandsveg) kl. 14–17.
Eldsmiðjan er opin, handverk og önnur
vinna nemenda liggur frammi. Kennarar
og foreldrar verða til viðtals og elsti
bekkurinn verður með kaffisölu.
Frístundir og námskeið
ITC-Fífa | Fundur 1. ráðs ITC verður kl.
12, í Kríunesi við Elliðavatn. Úr-
slitakeppni deilda í mælsku og rökræð-
um, fræðsla um AP kerfið, félagsmál og
óvissuferð. Hátíðarkvöldverður og
skemmtidagskrá. Skráning og uppl. itc-
fyrstarad@simnet.is og í síma 698 0144.
Kennslustofa FSA, Akureyri | Fræðslu-
námskeið fyrir fólk með vefjagigt, hefst
á Akureyri í dag. Markmið námskeiðsins
er að miðla aukinni þekkingu till þátttak-
enda um sjúkdóm sinn, afleiðingar hans
og hvað þeir geti sjálfir gert til að
stuðla að betri líðan. Skráning á nám-
skeiðið á skrifstofu Gigtarfélagsins í
síma 530 3600.
Safamýrarskóli | Námskeið í Taiji verður
í Safamýraskóla Safamýri 5, 18. mars kl.
9.30–12.30 og kl. 14–17. Um morguninn
verður farið í Reeling Silk sem er und-
irstöðuæfingar fyrir taiji og eftri hádegi
í Laoja sem er kallað gamla kerfið.
Kennari er Kinthissa.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. MARS 2006 59
DAGBÓK
Verð frá 2.390.000,-
Opið: Mánudaga - föstudaga kl. 9:00–18:00 og laugardaga kl. 12:00–16:00Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is
Hrísmýri 2a
800 Selfoss
482-3100
Sæmundargötu 3
550 Sauðárkróki
453-5141
Eyralandi 1
530 Hvammstanga
451-2230
Holtsgötu 52
260 Njarðvík
421-8808
Óseyri 5
603 Akureyri
461-2960
Sindragötu 3
400 Ísafirði
456-4540
Dalbraut 2b
300 Akranesi
431-1376
Víkurbraut 4
780 Höfn í Hornafirði
478-1990
Búðareyri 33
730 Reyðarfirði
474-1453
Kemst hvert sem er
og ratar þangað líka
Aukabúnaður á mynd: Sóllúga.
Garmin GPS leiðsögutæki með íslensku
vega- og hálendiskorti. Virkar um allan
heim og spilar MP3. Andvirði 96.550,-
Leiðsögutæki fylgir hverjum
seldum Legacy
TILBOÐ:
Jakob Kristinsson.
Norður
♠KG10432
♥G3 S/AV
♦Á2
♣864
Vestur Austur
♠D986 ♠5
♥K42 ♥Á10987
♦D106 ♦G9875
♣G105 ♣Á2
Suður
♠Á7
♥D65
♦K43
♣KD973
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- 1 grand
Pass 2 hjörtu * Pass 2 spaðar
Pass 4 spaðar Allir pass
Jakob Kristinsson hefur um nokk-
urra ára skeið búið í Michigan í
Bandaríkjunum ásamt bandarískri
konu sinni, Gail Hanson. Þau una
hag sínum vel og spila töluvert, eink-
um í svæðamótum. Jakob er í góðu
formi, eins og marka má af spilinu að
ofan, sem kom upp í svæðamóti í Or-
lando í janúar síðastliðnum.
Eftir grandopun og yfirfærslu
varð Jakob sagnhafi í fjórum spöðum
í suður. Vestur kom út með smátt
hjarta og vörnin tók á tvo efstu.
Vestur skipti svo yfir í laufgosa, sem
austur drap og spilaði enn hjarta.
Þá var komið að þætti Jakobs.
Engan slag mátti gefa á tromp og
Jakob sá möguleika á að ráða við
drottninguna fjórðu í vestur með
trompbragði. En þá varð að stytta
blindan í spaða og Jakob hóf strax
undirbúninginn með því að trompa
hjartadrottninguna!
Framhaldið var handavinna. Jakob
tók spaðaás og svínaði gosanum.
Þegar austur henti í slaginn, tók
Jakob laufhjónin og stakk lauf. Síðan
tvo efstu í tígli og spilaði að borðinu
í tveggja spila endastöðu, þar sem
vestur átti D9 í spaða, en blindur
K10.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
Félagsstarf
60+ Hafnarfirði | Aðalfundur 60+
Hafnarfirði verður 19. mars kl. 14, á
Strandgötu 21 (skóbúðinni). Venjuleg
aðalfundarstörf, bæjarstjóri Lúðvík
Geirsson ræðir um sveitarstjórn-
arkosningarnar. Kaffiveitingar.
Barðstrendingafélagið og Borgfirð-
ingafélagið | Félagsvist í Konnakoti
Hverfisgötu 105, kl. 14.
Dalbraut 18–20 | Fastir liðir; fé-
lagsvist á þriðjudögum kl. 14. Leikfimi,
postulín, framsögn o.fl. Snúður og
Snælda sýna 19. mars kl. 14. Handa-
vinnustofa Dalbraut 21–27 opin alla
virka daga.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Af-
mælisvika FEB: Bókmenntaveisla í
Stangarhyl 4, í dag kl. 14. Rithöfundar
lesa úr verkum sínum, félagar úr söng-
vökunni leiða fjöldasöng. Á sunnudag
verður hátíðarsamkoma á Hótel Sögu
kl. 14. Hátíðarræðu flytur Ólafur R.
Grímsson forseti og Steinunn Valdís
Óskarsdóttir borgarstjóri flytur ávarp,
söngur o.fl.
Félagsheimilið Gjábakki | Krumma-
kaffi kl. 9 og Hana-nú ganga kl. 10.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Gönguhópur fer frá Kirkjuhvolskjall-
aranum kl. 10. Allir velkomnir.
Félagsstarf Gerðubergs | Opnar sýn-
ingar kl. 13–16. Heilsuefling aldraðra
(fræðsla, kynning o.fl.), í samvinnu við
Heilsugæslu Efra-Breiðholts sem vera
átti 20. mars færist til 3. apríl kl. 13.
Alla virka daga er fjölbreytt dagskrá
og veitingar í hádegi og kaffitíma í
Kaffi Berg. Strætisvagnar nr. S4, 12 og
17 stansa við Gerðuberg.
Hæðargarður 31 | Leikfimi, félagsvist,
tölvukennsla, postulín, glerskurður,
framsögn, gönguferðir, ljóðlist-
arnámskeið, nyndlist o.fl. Snúður og
Snælda 19. mars kl. 14. Sími 568 3132.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
DOMINIQUE Ambroise er með sýningu á nýjum olíumálverkum í Listhúsi
Ófeigs, Skólavörðustíg 5. Sýninguna nefnir hún Sjónhorn.
Þetta er sautjánda einkasýning Dominique en að auki hefur hún tekið
þátt í fjölmörgum samsýningum hérlendis og erlendis. Nánari upplýsingar
um Dominique er að finna á heimasíðu hennar www.dominique-am-
broise.net
Sýningin er opin virka daga kl. 10–18 og laugardaga kl. 11–16 og stend-
ur til 5. apríl.
Dominique sýnir hjá Ófeigi
NEMENDUR á keramikkjörsviði
Myndlistaskóla Reykjavíkur, sem
starfrækt er í samvinnu við Iðn-
skólann í Reykjavík og nemendur
af myndlistar- og hönnunarsviði,
opna sýningu á verkum sínum í
dag kl. 16 í Gallerí Tukt, sýning-
arsal Hins hússins.
Á sýningunni verða lágmyndir
úr jarðleir, þar sem nemendur
túlka áhrifamikla náttúru Reykja-
ness. Einnig verða á stöplum ný-
renndir samsettir leirskúlptúrar.
Nemendur af myndlistar- og
hönnunarsviði sýna lokaverkefni
úr ljósmyndaáfanga þar sem lögð
var áhersla á notkun myndramm-
ans, samband augnabliksins og
mynduppbyggingar sem og eigin
tjáningar.
Í kjallara Hins hússins milli kl.
16.00 og 18.00 mun ungt fólk, sem
var á námskeiðinu Myndlist rokk-
ar, gera ýmsar tilraunir á mörk-
um myndlistar og tónlistar á
staðnum.
Sýning | Myndlistaskólinn í Reykjavík
Fjölbreytni í Hinu húsinu