Morgunblaðið - 03.04.2006, Page 4
4 MÁNUDAGUR 3. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ársfundur Lífeyrissjóðs verzlunarmanna verður haldinn
mánudaginn 3. apríl 2006 kl. 17 í Hvammi á Grand Hótel.
Dagskrá fundarins:
1. Venjuleg ársfundarstörf.
2. Önnur mál.
Sjóðfélagar og lífeyrisþegar sjóðsins eiga rétt til setu á ársfundinum.
Fundargögn verða afhent á fundarstað.
Reykjavík 3. mars 2006
Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna
Sími: 580 4000 • Myndsendir: 580 4099 • Netfang: skrifstofa@live.is
Ársfundur 2006
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
20
56
4
MIKIÐ hik er á vorinu þetta árið og far-
fuglar sem venjulega eru að streyma í
heimahagana um þetta leyti láta bíða
eftir sér. Þessar álftir eru þó komnar
norður í Vatnsdalinn þrátt fyrir kulda
og klaka en ekki var fjöldanum fyrir að
fara. Skógarþrestirnir sem undanfarin
ár hafa hafið upp söng sinn þann 31.
mars steinþegja og láta lítið fyrir sér
fara enda lítil ástæða til annars. Grá-
gæsirnar sem venjulega fara að koma
norður í Húnaþing í lok mars sjást
hvergi og hettumávurinn sem sumir
rugla saman við kríu er hvergi sjáan-
legur. Það er svo sannarlega hik á vor-
inu og er jafnvel að heyra á marg-
reyndum mönnum, hoknum af veðurbiti,
að þessi vetrartíð muni vara fram yfir
páska – ganga sumir svo langt að segja
að þarna hafi okkur hefnst fyrir hina
góðu tíð fyrri hluta mars. En eitt er víst
að öll él birtir upp um síðir og bráðum
kemur betri tíð með blóm í haga. Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Álftirnar
kvaka í kulda
og klaka
BÆJARSTJÓRN Vesturbyggðar
hefur kært úrskurð Skipulagsstofn-
unar frá því í febrúar um mat á um-
hverfisáhrifum varðandi Vestfjarða-
veg nr. 60, Bjarkalundur – Eyri í
Reykhólahreppi. Skipulagsstofnun
féllst á framkvæmd svokallaðrar leið-
ar B með skilyrðum en lagðist gegn
þeim hluta framkvæmdarinnar sem
fól í sér að Djúpifjörður og Gufufjörð-
ur yrðu þveraðir. Til þess að þvera þá
þyrfti að fara í gegnum Teigsskóg, en
hann er á Náttúruminjaskrá. Annar
möguleiki sem helst er í umræðunni,
leið D, felur í sér endurbætur á leið
sem liggur meðal annars yfir Hjalla-
háls og Ódrjúgsháls.
„Við viljum styttri, einfaldari,
þægilegri, snjólausari, beinni og betri
veg,“ segir Geir Gestsson, bæjar-
stjórnarmaður í Vesturbyggð. Hann
segir að vissulega hafi bæjarstjórnin
áhyggjur af raski á náttúrunni sem
óhjákvæmilega yrði ef leið B væri
farin, en að ekki sé hægt að sætta sig
við að íbúarnir séu settir í annað sæt-
ið. Þá bendir hann á að Skipulags-
stofnun hafi fengið þær hugmyndir
frá Vegagerðinni að aðeins ein leið
væri fær í gegnum skóginn.
„Við erum búin að margbenda á að
hægt er að fara margar leiðir, fyrir
ofan hann og neðan hann og mismun-
andi leiðir í gegnum hann og síðan
eru til margar leiðir við að leggja veg.
Það þarf ekki endilega að eyðileggja
skóg sem nemur öllu helgunarsvæði
vegarins,“ segir Geir. „Það þarf ekki
að gera þetta eins stórkostlega flókið
og Vegagerðin lagði til í sinni umsögn
til Skipulagsstofnunar. Hún var
skrítin því Vegagerðin mælti á end-
anum með því að fara eftir lausn B.“
Mikil slysahætta á fjallvegum
Geir segir enga Íslendinga fá að
kynnast fjallvegum eins svakalega og
Vestfirðingar. „Okkur finnst til há-
borinnar skammar að þegar við eig-
um möguleika á að taka tvo fjallvegi í
burtu, þá sé sagt nei vegna nokkurra
hríslna,“ segir hann. „Á sama tíma
erum við að berjast fyrir að koma
Látrabjargi á kortið varðandi meiri
vernd, erum að græða upp allt í
kringum okkur og fleira en svo er lát-
ið bitna á okkur að við viljum láta fara
í gegnum smá kjarrlendi.“
Geir segir leið D ekki ásættanlega
þrátt fyrir að endurbætur yrðu að
veruleika. „Þetta er og verður fjall-
vegur. Sjálfur hef ég tvisvar sinnum
farið út af á þessum vegi,“ segir hann
og nefnir að vegrið hafi vantað á fjall-
vegum á Vestfjörðunum.
„Við höfum mestar áhyggjur af
slysahættunni en líka vegalengdinni.
Þetta yrði 22 kílómetra bein stytting
en ígildi 60 kílómetra styttingar með
því að færa fjallveg á láglendi.“
Geir kveðst bjartsýnn á framhaldið
þar sem hin lausnin sé alls ekki nógu
góð. Kæran var póstlögð þann 30.
mars og ráðherra hefur átta vikur til
þess að úrskurða í málinu.
„Það eru samt fordæmi fyrir að
það hafi tekið fimm til sex mánuði,“
segir Geir. „Við erum búnir að bíða
eftir góðum vegum í þúsund ár og
verðum bara að hinkra aðeins leng-
ur.“
Skiptar skoðanir um Vestfjarðaveg milli Bjarkalundar og Eyrar
Vesturbyggð hefur kært
úrskurð Skipulagsstofnunar
Eftir Hrund Þórsdóttur
hrund@mbl.is
HÆSTIRÉTTUR hefur með
dómi sínum hækkað bætur sem
héraðsdómur dæmdi fyrrverandi
starfsmanni Varnarliðsins sem
höfðaði mál gegn ríkinu vegna
ákvörðunar sýslumannsins á
Keflavíkurflugvelli um að svipta
hann aðgangsheimild að varnar-
svæðunum til bráðabirgða í nóv-
ember 2002 vegna tollalaga-
brota. Fólust þau í því að hann
keypti heimildarlaust dekk og
pantaði varahluti fyrir bíl sinn
inni á varnarsvæðunum.
Starfsmaðurinn vann málið í
héraði og fékk eina milljón króna
í bætur vegna vinnumissis en
Hæstiréttur dæmdi honum 2,5
milljónir króna. Taldi dómurinn
að sýslumaður hefði réttilega
mátt svipta starfsmanninn að-
gangsheimildinni. En með vísan
til þeirra brýnu hagsmuna
mannsins sem tengdust að-
gangsheimildinni á svæðinu, en
hann komst ekki til vinnu sinnar
án hennar, var sá dráttur sem
varð á að fella bráðabirgðasvipt-
inguna úr gildi talinn ólögmætur
að mati Hæstaréttar. Var ekki
sýnt fram á að efnisleg skilyrði
hefðu verið til að svipta hefði
mátt manninn varanlega heimild
sinni eins og loks var gert 1. apr-
íl 2003. Taldi Hæstiréttur að rík-
ið bæri ábyrgð á því tjóni sem af
þessu leiddi. Manninum voru
dæmdar bætur vegna launamiss-
is fram til loka aprílmánaðar
2003 er ráðningarsamningur
hans rann út, en ekki vegna ætl-
aðs fjártjóns hans eftir 1. maí
sem hann reisti á því að hafa
ekki fengið vinnu annars staðar.
Kröfu hans um miskabætur var
þá hafnað.
Málið dæmdu hæstaréttar-
dómararnir Árni Kolbeinsson,
Ingibjörg Benediktsdóttir og
Jón Steinar Gunnlaugsson.
Björn Ólafur Hallgrímsson
hrl. flutti málið fyrir stefnanda
og Einar Karl Hallvarðsson fyrir
stefnda, ríkið.
Dæmdar bætur
vegna ólögmæts
dráttar
sýslumanns
SAMNINGUR Vélstjórafélags Ís-
lands og Landssambands íslenskra
útvegsmanna sem gerður var um
seinustu áramót og talið var að hefði
verið felldur í atkvæðagreiðslu telst
nú hafa verið samþykktur, þrátt fyr-
ir að meirihluti félagsmanna Vél-
stjórafélagsins, sem tóku þátt í at-
kvæðagreiðslu, hafi greitt atkvæði
gegn samningnum.
Gerð er grein fyrir gangi þessa
máls í fréttafrásögn á vefsíðu Véla-
stjórafélagsins. Í ljós kom þegar at-
kvæði um samninginn voru talin 20.
febrúar sl. að alls greiddi 301 fé-
lagsmaður atkvæði um hann eða
45% félagsmanna. 148 sögðu nei, 146
sögðu já, auðir seðlar voru 2 og
ógildir 5. Var það þá sameiginlegur
skilningur VSFÍ og LÍÚ að samning-
urinn hefði verið felldur.
Samningaviðræður voru teknar
upp að nýju en höfðu ekki skilað ár-
angri þegar nýjar upplýsingar komu
fram. 23. mars s.l. hafði Ragnar
Árnason hjá Samtökum atvinnulífs-
ins samband við Helga Laxdal, for-
mann Vélstjórafélagsins, og benti
honum á að sennilega teldist samn-
ingurinn samþykktur vegna þess að
ógild og auð atkvæði teldust með í
fjölda greiddra atkvæða.
Samkvæmt lögum þurfi meiri-
hluta greiddra atkvæða til að fella
samninga og því hefði 151 þurft að
greiða atkvæði gegn umræddum
samningi til að fella hann. Er það nú
niðurstaðan og sameiginlegur skiln-
ingur samningsaðilanna að samn-
ingurinn hafi því í raun verið sam-
þykktur.
Samningur sem tal-
inn var fallinn telst
nú samþykktur
HÓPSLAGSMÁL brutust út á dans-
leik vélsleðamanna í félagsheim-
ilinu á Iðuvöllum á Héraði á laug-
ardagskvöldið. Að sögn
lögreglunnar á Egilsstöðum var
einn maður færður undir lækn-
ishendur, en hann var ekki talinn
alvarlega meiddur. Enginn var
settur í fangageymslu og að sögn
lögreglu gekk greiðlega að stöðva
slagsmálin með aðstoðar dyravarða
á staðnum. Mikil ölvun og órói var í
mönnum að sögn lögreglu. Á þriðja
hundrað manns sótti dansleikinn.
Vélsleðamenn
slógust á balli