Morgunblaðið - 03.04.2006, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. APRÍL 2006 17
DAGLEGT LÍF Í APRÍL
„ÉG ÁTTAÐI mig á því að þörfin
fyrir sundboli af þessari gerð var
mjög mikil,“ segir Kristín Ein-
arsdóttir, eigandi verslunarinnar
Sigurbogans sem selur m.a. sund-
boli fyrir konur sem misst hafa ann-
að brjóstið eða bæði. „Í merkinu
sem ég hafði verið með frá árinu
2000 var mjög takmarkað úrval og
þess vegna ákvað ég árið 2003 að
byrja með þessa línu.“ Í línunni sem
hún vísar til er hægt að fá sundboli
fyrir konur af öllum stærðum og
gerðum og konur sem af ein-
hverjum ástæðum hafa misst annað
brjóstið eða bæði geta fengið sund-
bol við sitt hæfi hjá Kristínu. „Það
vantaði sundboli sem eru meira for-
mandi, veita aðhald. Flotta boli fyrir
konur sem þurfa stærri númer og
stærri skálar.“
Kristín hóf leitina að merki sem
hentaði þessum konum og fann það
hjá Anita. „Anita er þýskt merki og
er mjög frægt fyrir undirfatnað og í
því er líka framleitt ýmislegt fyrir
konur sem hafa misst brjóst.“
Lykilorðið er „grennandi“
Kristín segir að konur sjái fleira
jákvætt við að geta fengið boli hjá
henni. „Konum finnst gott að geta
komið inn í svona venjulega búð til
að versla. Að þurfa ekki að fara inn í
sérverslanir til að kaupa sér svona
fatnað.“ Að þessu sögðu grípur
Kristín einn sundbolinn og sýnir
blaðamanni. „Hér eru vasar í skál-
unum sem hægt er að setja gel-
brjóst inn í.“ Annan bol grípur hún
líka og heldur áfram. „Þessi er sér-
styrktur, hann er tvöfaldur og form-
ar líkamann, veitir mikið aðhald.“
Hún bendir jafnframt á að bolirnir
séu ekki mjög hátt skornir. Hægt er
að fá sundboli upp í stærðir 50–52.
„Þennan verð ég að sýna þér,“ segir
Kristín og er komin með enn eina
gerðina. „Hann er númer 48 og er
sérstyrktur, allur tvöfaldur, kall-
aður „súperformed“. Hann er með
sérsauma niður eftir maganum til
að búa til mitti og forma líkamann.
Þannig að hann lætur konurnar líta
út fyrir að vera þremur kílóum létt-
ari en þær eru. Viljum við ekki allar
vera grannar?“ segir Kristín hlæj-
andi og bætir við: „Lykilorðið er
„grennandi“.“
Kristín hefur verið í viðræðum við
Tryggingastofnun um að konur sem
fengið hafa brjóstakrabbamein fái
styrk til að kaupa sundboli af þess-
ari gerð, svipað og er með hárkollu-
kaup og hefur fengið jákvæðan úr-
skurð. „Fyrir um tveimur árum fór
Tryggingastofnun að taka þátt í
kaupum á sundbol. Nú er nægj-
anlegt fyrir konu að koma með úr-
skurð frá TR í verslunina og festa
kaup á sundbol. Verslunin inn-
heimtir síðan kostnaðinn hjá Trygg-
ingastofnun.“
TÍSKA | Sundbolir fyrir allar konur
Morgunblaðið/Ásdís
Sundbolir og tvískipt sundföt fyrir konur af öllum stærðum og gerðum.
Annað brjóstið
eða hvorugt
„Nú er nægjanlegt fyrir konu að
koma með úrskurð frá TR í versl-
unina og festa kaup á sundbol.
Verslunin innheimtir síðan kostn-
aðinn hjá Tryggingastofnun,“ segir
Kristín Einarsdóttir, eigandi Sig-
urbogans á Laugavegi.
sia@mbl.is
NÝ RANNSÓKN bendir til þess
að langvarandi notkun á maríjúana
leiði til heilaskemmda, þ.e. neyt-
endurnir eigi erfiðara með að læra
eitthvað nýtt og muna nýjar upp-
lýsingar. Þetta kemur fram á vefn-
um forskning.no.
Rannsóknin var gerð við há-
skólasjúkrahúsið í Patras í Grikk-
landi og voru bornir saman hópar
stórreykingamanna maríjúana og
fólks sem ekki hafði reykt marí-
júana reglulega heldur af og til. Í
ljós kom að því lengur sem fólk
hafði notað efnið, því meiri voru
neikvæð áhrif á hugsanagetu.
Þátttakendur í rannsókninni voru
á aldrinum 17–49 ára. Í fyrsta
hópnum voru tuttugu manns sem
höfðu reykt a.m.k. fjórar jónur á
viku í tíu ár eða meira. Í öðrum
hópnum voru tuttugu manns sem
höfðu reykt jafnmikið á viku en
ekki lengur en tíu ár. Í þriðja
hópnum voru 24 sem höfðu prófað
maríjúana en ekki reykt meira en
20 jónur alls. Enginn þátttakenda
hafði notað önnur fíkniefni síðast-
liðin tvö ár eða í meira en þrjá
mánuði nokkurn tíma á lífsleiðinni.
Enginn hafði heldur reykt maríj-
úana 24 klukkustundir áður en
rannsóknin fór fram.
Þátttakendurnir gengust undir
ýmis próf til að athuga minni og
hugsun. Í ljós kom að geta fyrr-
nefndu hópanna tveggja var minni
en þeirra sem reyktu ekki maríj-
úana reglulega. Verst stóðu lang-
tímanotendurnir sig. Í einu prófi
áttu þeir að leggja lista með 15
orðum á minnið og gátu að með-
altali munað sjö orð. Þeir sem ekki
reyktu mundu hins vegar að með-
altali tólf orð.
Maríjúana leiðir til heilaskemmda
HEILSA