Morgunblaðið - 03.04.2006, Page 34
34 MÁNUDAGUR 3. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
MARTIN LAWRENCE
www.xy.is
Date Movie kl. 6, 8 og 10 B.i. 14 ára
Tristan & Isolde kl. 5.45 og 10 B.i. 14 ára
Big Momma´s House 2 kl. 8
Date Movie kl. 4, 6, 8 og 10 B.i. 14 ára
Date Movie í Lúxus kl. 4, 6, 8 og 10 B.i. 14 ára
The Producers kl. 8 og 10.45
Big Momma´s House 2 kl. 3.40, 5.45, 8 og 10.15
Yours Mine and Ours kl. 4 og 6
Pink Panther kl. 3.45, 5.50 og 10.10
Kvikmyndir.com
eeee
VIV - Topp5.is
N ý t t í b í ó
Þér mun standa
af hlátri!
um ástina,
róman-
tíkina og
annan eins
viðbjóð! eeeDóri DNA
200 kr. afsláttur
fyrir XY félaga
frá öllum handritshöfundum„scary movie“2 af
6
Frá Grínsnillingnum Mel Brooks!!
Bleiki demanturinn er horfinn
og heimsins frægastarannsóknarlögregla
gerir allt til þess að klúðra málinu…
BeyoncéKnowles
steve
Martin
Kevin
Kline
Jean
reno
HLJÓMSVEITIN Leaves heldur tónleika á
skemmtistaðnum Gauki á stöng í kvöld og ætti að
vera mikið tilhlökkunarefni fyrir aðdáendur sveit-
arinnar en meðlimir hennar hafa lítið gert af því
að stíga á svið en þess í stað haldið sig við að
semja ný lög að undanförnu.
Á síðasta ári gaf sveitin út plötuna The Angela
Test undir merkjum útgáfurisans Island Records
og í kjölfarið spilaði Leaves um gjörvallar Bret-
landseyjar og hituðu m.a. upp fyrir hljómsveitina
Supergrass. Auk þess spilaði sveitin á tónlist-
arhátíðunum T in the park og V-festival. Árið 2002
hafði Leaves þá gefið út plötuna Breathe hjá dótt-
urfyrirtæki Dreamworks.
Á haustmánuðum urðu breytingar á Leaves þeg-
ar gítarleikarinn Arnar Ólafsson hætti í hljóm-
sveitinni og við það urðu áherslubreytingar á tón-
list Leaves sem áhorfendur munu vafalaust heyra
á Gauknum í kvöld, en þar mun hljómsveitin spila
nokkur vel valin brot af nýju efni í bland við eldri
lög af fyrri skífum.
Með þeim leika jafnframt hljómsveitin Lokbrá
og Bob Justman og kostar aðeins 500 krónur inn.
Tónlist | Tónleikar með Leaves á Gauk á stöng í kvöld – nýtt efni frumflutt í bland við eldri slagara
Áherslubreyt-
ingar með
færri mönnum
Hljómsveitin Leaves hefur ekki spilað mikið á tónleikum að undanförnu en kemur fram í kvöld ásamt Lokbrá og Bob Justman.
ÞEIR voru gjörólíkir áhorf-
endahóparnir sem fylgdust annars
vegar með úrslitum Músíktilrauna
í Tónabæ og hins vegar tónleikum
ungstirnisins Katie Melua í Laug-
ardalshöll á föstudagskvöldið. Því
á meðan æska landsins fylgist
spennt með tónlistargerjun ís-
lensku grasrótarinnar, var jepp-
astóði landsins þéttraðað í kring-
um höllina og inni fyrir sat
prúðbúið fólk á þrítugsaldri og yf-
ir og hlýddi á Kötu – flestir búnir
að tryggja sér miðana með góðum
fyrirvara, a.m.k. ef horft er til
þess hve snemma var orðið upp-
selt.
Og Katie Melua náði vel til
áhorfenda Laugardalshallar þetta
kvöld. Hún spjallaði við salinn á
látlausan og einlægan hátt, kynnti
lagaval sitt með sögum af sér og
tónlistinni, náði áhorfendum með
sér í samsöng og renndi fumlaust í
gegnum lagalistann með þéttri
hljómsveit sem var augljóslega vel
æfð og með á nótunum.
Hið djassaða Shy Boy gaf tón-
inn fyrir látlausa tónleika sem
fylgt var eftir við góðar und-
irtektir með smellinum 9 Million
Bicycles. Í kjölfarið kom blúslag
þeirra Arlene og Mercer, Blues in
the Night og svo hvert lagið á
fætur öðru – blús, djass, rokk og
ballöður ofnar saman í úthugsaðan
lagalista, sem gaf skýrt til kynna
að Melua vill ekki láta njörva sig
niður tónlistarlega, þó aðdáendur
hennar væru e.t.v. margir hverjir
vel sáttir yrðu hugljúfar ballöður
það eina sem stúlkan sendi frá
sér. Ballöður henta líka mjúkri og
allt að því flauelskenndri rödd
Melua einkar vel, hún naut sín t.d.
vel í hinu gullfallega Piece by
Piece, sem og djassskotnum lög-
um á borð við Halfway up the
Hindu Kush, verulega skemmti-
legri útgáfu tíunda áratugar
smells Babylon Zoo – Spaceman –
sem og John Mayall blúslaginu
Crawling up a Hill og rokkuðu til-
brigði við þá klassísku vögguvísu
Mockingbird.
Bítlalagið Lucy in the Sky with
Diamonds var líka skemmtilegt
áheyrnar, þó viðlagið virkaði ekki
alveg og Stones slagarinn 19th
Nervous Breakdown var kolrangt
lag fyrir Melua, sem upp til hópa
tókst annars – svo Idol frasinn sé
notaður – vel upp með að gera
„cover“-lögin að sínum.
Að byggja lagalista hins vegar
næstum til helminga á þekktum
lögum annarra listamanna er hins
vegar nokkuð sem ég set stórt
spurningarmerki við. Jafnvel þó
þau lög séu valin úr fjölbreytilegri
tónlistarflóru og sýni vel hversu
breitt tónlistarsvið söngkonan vill
ná yfir.
Slíkt lagaval má e.t.v. skrifast á
ungan aldur Melua, hún er jú ekki
nema 21 árs gömul, eða „formúlu-
útreikninga“ markaðsaflanna. Því
lítill vafi leikur á að Melua er
hæfileikarík söngkona sem vill
láta meta sig á veigameiri for-
sendum en sem snoppufrítt andlit
með laglega rödd. Það sýnir sviðs-
framkoma hennar og textagerð –
þó hún sé á köflum barnaleg –
sem og val „cover“-laga. Og sé það
háa hlutfall sem „cover“ lögin áttu
á lagalistanum afskrifað sem
barnabrek má teljast nokkuð
öruggt að setu Katie Melua á
vestrænum vinsældalistum er
langt í frá lokið.
Stúlkan með
flauelsröddina
Morgunblaðið/ÞÖK
Með mjúkri röddu og gítar í
hendi heillaði Katie Melua
áhorfendur Laugardalshallar
sl. föstudagskvöld.
TÓNLIST
Laugardalshöll
Föstudagskvöldið 31. mars 2005.
Ragnheiður Gröndal hitaði upp.
Katie Melua
Anna Sigríður Einarsdóttir