Morgunblaðið - 24.05.2006, Side 8

Morgunblaðið - 24.05.2006, Side 8
8 MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR – allt fyrir garðinn – allt til bygginga Þegar fjárfesta á í garðinum er ómetanlegt að sérfróðir fagaðilar séu með í ráðum. Við hjá MEST fylgjum viðskiptavinum okkar alla leið og veitum honum alhliða fag- þjónustu varðandi garðinn. MEST býður upp á gott úrval af hellum & garðeiningum, skrautsteypu og skrautsteinum. Hjá MEST getur þú fengið aðstoð landslagshönnuða við að skipuleggja garðinn þinn. Hafðu samband og fáðu nánari upplýsingar í síma 4 400 400. Landslagsráðgjöf MEST Til hamingju Ísland, þetta er nú bara æðislega töff reikningur fyrir svona ógeðslegan fimmaura skítabrandara, Palli minn, hvað ef djókið hefði nú unnið, góði? Rannsóknir GuðnaTh. Jóhannesson-ar sagnfræðings á símahlerunum stjórnvalda í kalda stríðinu hafa m.a. beint kastljósinu að síma- hlerunum almennt. Í lög- um um meðferð opinberra mála, frá árinu 1991, eru veittar heimildir til síma- hlerana í þágu rannsókn- ar, eins og það er orðað. Meðal annars er kveðið á um það að síma- eða fjar- skiptafyrirtæki skuli leyfa lögreglunni að hlera síma. Til þess þarf þó fyrst úr- skurð dómara. Einnig þurfa eft- irfarandi skilyrði að vera fyrir hendi: a) „að ástæða sé til að ætla að upplýsingar, sem skipt geta miklu fyrir rannsókn máls, fáist með þessum hætti“, b) „að rann- sókn beinist að broti sem varðað getur að lögum átta ára fangelsi eða ríkir almannahagsmunir eða einkahagsmunir krefjist þess.“ Auk þessa er í lögunum kveðið á um það að upptökur af símtölum skuli eyðileggja jafnskjótt og þeirra er ekki lengur þörf í þágu máls, eins og það er orðað í lög- unum. Síðan segir: „Þegar aðgerð [...] er lokið skal þeim sem aðgerð beinist að, þar á meðal sakborn- ingi og eiganda eða umráðamanni síma eða fjarskiptafyrirtækis, birtur úrskurður um hana eða til- kynnt hún og skal það gert svo fljótt sem verða má, þó þannig að það skaði ekki frekari rannsókn málsins.“ Í skriflegu svari dómsmálaráð- herra við fyrirspurn Björgvins G. Sigurðssonar, þingmanns Sam- fylkingarinnar, fyrr í vetur kemur fram að dómstólar landsins hafi veitt samtals 766 heimildir til símahlerana á árunum 2000 til 2005. Þar af veitti Héraðsdómur Reykjavíkur samtals 583 heimild- ir til símahlerana. Sé litið á fjölda einstaklinga, á bakvið þessar heimildir, kemur m.a. fram í svarinu að alls hafi símar 230 ein- staklinga verið hleraðir frá árinu 2000 til ársloka 2005. Í svarinu segir að ekki hafi ver- ið unnt að sundurgreina þær ástæður sem lágu að baki þeim 583 heimildum sem veittar voru til símahlerunar í Héraðsdómi Reykjavíkur. „Til þess að það hefði verið mögulegt hefði þurft að lesa hvern einasta úrskurð,“ segir í svarinu. „Hins vegar feng- ust þær upplýsingar frá dóminum að í yfirgnæfandi fjölda tilfella væri um að ræða grun um sölu eða dreifingu fíkniefna.“ Lögreglan í Reykjavík annast hlerun símtala fyrir öll embætti landsins, að sögn Ingimundar Einarssonar, varalögreglustjóra í Reykjavík. Hlerunartækin eru, segir hann, staðsett í húsakynnum lögreglunnar við Hverfisgötu í Reykjavík. „Þetta er tiltölulega einfaldur tölvubúnaður sem er þróaður af okkar lögreglumönn- um.“ Hann vill ekki útskýra nánar hvernig búnaðurinn virkar. Hann vill heldur ekki upplýsa hve marg- ir lögreglumenn vinna við hlerun að staðaldri. Þegar símtöl eru hleruð eru þau tekin upp og upptökurnar geymd- ar. Samkvæmt lögum ber hins vegar að eyða þeim, þegar þeirra er ekki lengur þörf. Ingimundur segir aðspurður að svo sé gert. Um það hvort viðkomandi aðilum sé tilkynnt um hlerunina þegar „aðgerð“ eins og það er kallað er lokið, segir hann: „Úrskurðir [um símahleranir] eru alltaf tíma- bundnir. Þegar þeim [tíma] er lok- ið og við óskum ekki eftir fram- lengingu ber okkur að tilkynna um það – og það gerum við.“ Spurður nánar út í það hvernig viðkomandi einstaklingum sé til- kynnt þetta segir hann: „Rann- sakandinn hefur samband við við- komandi og lætur hann vita af því, ýmist skriflega eða munnlega.“ Í fyrrgreindu svari dómsmála- ráðherra um símahleranir kemur fram að heimildum til hlerana hafi fjölgað nokkuð á undanförnum ár- um, eða frá 117 á árinu 2000 til 157 heimilda á árinu 2005. Aðspurður segir Ingimundur að símahlerun- um hafi fjölgað í réttu hlutfalli við fjölgun mála, þá aðallega fíkni- efnamála. Ekki fást alltaf heimildir til símahlerana. Ragnar Aðalsteins- son lögmaður bendir m.a. á að í málum sem þessum takist á rann- sóknarhagsmunir lögreglu, trún- aðarskylda fjarskiptafyrirtækis- ins og vernd friðhelgi þeirra sem hleranirnar beinast að. „Þegar lögreglan biður um hlerun er sú tilkynning send síma- fyrirtækinu, en það er enginn sem gætir hagsmuna þess sem hlerun- in beinist að.“ Ragnar segir að fjarskiptafyrirtæki geti því neitað að hlíta fyrirmælum um aðgang að símtölum, séu þau í vafa um að öll lagaskilyrði séu uppfyllt. Fyr- irtækin geti þannig skotið málum til Hæstaréttar. Hann bendir á í þessu sambandi að fjarskiptafyr- irtæki hafi mjög ríkar skyldur gagnvart viðskiptavinum sínum. Bregðist þau þeim skyldum geti þau skapað sér refsi- og/eða skaðabótaábyrgð. Ingimundur er ekki sammála Ragnari. „Við lítum svo á að fyrirtækjum beri að fara að kröfum lögreglunnar þegar fyrir liggur úrskurður.“ Fréttaskýring | Símahleranir í brennidepli Símahlerunum hefur fjölgað Í símahlerunum takast á rannsóknar- hagsmunir lögreglu og vernd einkalífsins Símahleranir eru aftur komnar í umræðuna. Skýr lagaákvæði um síma- hleranir lögfest árið 1941  Guðni Th. Jóhannesson sagn- fræðingur hefur fundið skrif- legar heimildir sem sýna að stjórnvöld fengu sex sinnum leyfi dómsvalda, á kalda stríðs- árunum, til að hlera símanúmer. Í erindi, sem hann flutti um helgina, segir hann að skýr laga- ákvæði um símahleranir hafi fyrst verið sett árið 1941. Skv. þeim mátti lögreglan hlera sím- töl þegar öryggi landsins krefð- ist þess eða um mikilsverð saka- mál væri að ræða. Til þess þurfti þó skriflegan úrskurð dóms- málaráðherra. Eftir Örnu Schram arna@mbl.is Innihaldið skiptir máli

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.