Morgunblaðið - 24.05.2006, Page 16

Morgunblaðið - 24.05.2006, Page 16
16 MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ dagmóður. Leik- skólinn á að verða hluti af samfélagslegri þjónustu sveitar- félaga og að því munum við stefna.“ Telur þú unnt að auka stuðning við fjölskyldur í Reykjanesbæ og hvaða atriði ættu þá að hafa for- gang á næsta kjörtímabili? „A-listinn er framboð sem legg- ur áherslu á velferð íbúanna og því vega áherslur tengdar þjón- ustu við fjölskyldur mjög þungt í stefnuskrá okkar. Ég hef áður nefnt lækkun leikskólagjalda, en ég vil að auki nefna „Þátt- tökukort“ að andvirði kr. 25.000 ári. Þau munu auka möguleika grunnskólabarna til þátttöku, hvort heldur er í íþróttum eða tómstundum. Einnig verður hægt að nýta þau til að greiða fyrir list- nám, s.s. tónlistarnám. Með þessu stuðlum við að auknum jöfnuði og börnum verða gefin aukin tæki- færi, þau geta tekið þátt án tillits til fjárhagslegrar stöðu uppalenda. Þá vil ég nefna ókeypis skóla- máltíðir sem Samfylkingin í Reykjanesbæ lagði fram sem áhersluatriði fyrir kosningarnar 2002. Nú eru mjög margir sam- mála um að þetta sé bæði eðlilegt og sjálfsagt og hefur m.a. Morg- unblaðið tekið undir það sjón- armið. Þá mun A-listinn lækka fasteignaskatta elli- og örorkulíf- eyrisþega og miða við tekjur. Þannig er það gert í flestum sam- anburðarsveitarfélögum, en sjálf- stæðismenn í Reykjanesbæ hafa ekki haft skilning á þessu. M.a. felldu þeir slíka tillögu frá okkur fyrir síðustu áramót.“ Styður þú áframhaldandi sam- vinnu við Fasteign hf. um uppbygg- ingu og rekstur húsnæðis fyrir bæjarfélagið eða telur þú að kaupa eigi til baka þær eignir sem lagðar hafa verið inn í Fasteign? Hvað ræður afstöðu þinni? „A-listinn hefur það á stefnu- skrá sinni að kaupa til baka þær fasteignir sem seldar voru inn í Fasteign hf. Það sem ræður af- stöðu okkar er að þær forsendur sem lagt var upp með hafa engan veginn staðist. Gert var ráð fyrir fleiri stofnaðilum eins og Lands- bankanum og Orkuveitu Reykja- víkur í Fasteign hf. og að þau sveitarfélög sem stæðu að stofnun þess legðu fasteignir sínar inn í félagið. Þessi áform gengu ekki eftir. Ekkert sveitarfélaga utan Reykjanesbæjar lagði allar sínar fasteignir inn í Fasteign hf. og flest þeirra ekki neinar. Einhver smærri sveitarfélög hafi komið að Fasteign hf. eftir stofnun þess en það vegur ekki upp óhagræðið sem varð við að stærstu aðilarnir kusu að standa utan við það. Hin meginforsendan sem lögð var til grundvallar sölu eigna inn í Fast- eign hf. var að verulegur arður skapaðist af því fjármagni sem fengist fyrir eignirnar. Það var grundvallarforsenda fyrir sölu eignanna, en hefur algjörlega brugðist vegna viðvarandi halla- reksturs sveitarfélagsins undir stjórn sjálfstæðismanna.“ Hvernig vilt þú að bæjarfélagið beiti sér vegna breytinga hjá varn- arliðinu á Keflavíkurflugvelli? Hvaða tækifæri telur þú að kunni að felast í stöðunni? „Reykjanesbær hefur verið að beita sér vegna þeirra breytinga sem hafa orðið hjá varnarliðinu. Sveitarfélagið stóð ásamt stétt- arfélögum á svæðinu að stofnun ráðgjafarþjónustu fyrir starfs- menn, þeim til aðstoðar, og var öll bæjarstjórnin sammála um að það skyldi gert. Það þarf að leggja áherslu á að ríkisvaldið eyði ekki alltof löngum tíma í viðræður við Bandaríkjamenn um eitthvað sem ekkert er. Það sem þarf að semja um er skil á landi og mannvirkjum og að þannig sé skilið við starfs- menn að einhver sómi sé að. Við þurfum að fá yfirráðarétt yfir landinu sem liggur að flugvellinum sem fyrst til þess að hægt verði að nýta það undir starfsemi tengda flugi. Þá vil ég ítreka þörfina á aukinni þjónustu á Heilbrigð- isstofnun Suðurnesja, sem er grundvallarforsenda þess að ein- hver starfsemi verði flutt hingað suður. A-listinn hefur mótað metn- aðarfulla atvinnustefnu sem hægt er að nálgast á slóðinni alistinn.is. Þar er að finna áhersluatriði sem tengjast breytingum á varn- arsvæðinu.“ er hins vegar nauðsynlegt að fylgja verðþróun sem verður á meðal stærri sveitarfélaga í landinu.“ Telur þú unnt að auka stuðning við fjölskyldur í Reykjanesbæ og hvaða atriði ættu þá að hafa forgang á næsta kjör- tímabili? „Við trúum því að velferð sér- hvers einstaklings skipti máli til að skapa velferð samfélagsins. Við höfum einsett okkur að sinna þessu verkefni af meiri alúð en sést hefur hingað til í stjórn- málum á Íslandi. Við höfum náð saman um verkefni sem skila ein- staklingum heilbrigðari, hamingju- samari og getumeiri út í lífið. Ég nefni tvö mikilvæg dæmi: Fyrstu árin í lífi barns skipta gríðarlega miklu máli fyrir þroska þess og velferð til framtíðar. Með því að bjóða foreldrum og for- ráðamönnum ókeypis uppeldis- námskeið sl. fjögur ár og fylgja því eftir með vandaðri aðstoð eru nú komnar fram sterkar vísbend- ingar um að tekist hafi að draga úr þunglyndi barna og unglinga og erfiðri hegðun. Innlögnum barna frá Reykjanesbæ á BUGL hefur fækkað og er langt undir viðmið- unarmörkum við höfuðborg- arsvæðið. Erfiðum agamálum sem vísað er til Fræðsluskrifstofu hef- ur einnig fækkað. Hlutfall barna sem geta lesið sér til gagns á fyrstu árum í grunnskóla hefur hækkað um 10% á þremur árum, frá því sérstöku lestrarmenningarverkefni var hleypt af stokkunum. Við munum enn herða róðurinn í að styrkja þessi verkefni, því auk þess að börnum líði vel í skólanum er lesskilningur undirstaða náms- árangurs á flestum sviðum.“ Styður þú áframhaldandi sam- vinnu við Fasteign hf. um uppbygg- ingu og rekstur húsnæðis fyrir bæjarfélagið eða telur þú að kaupa eigi til baka þær eignir sem lagðar hafa verið inn í Fasteign? Hvað ræður afstöðu þinni? „Hagkvæmni og skynsemi ræð- ur för. Þetta var samþykkt 10:0 í bæjarstjórn eftir vandlega yf- irferð. Fjármálastjórinn okkar, sem nú er hættur og prýðir hóp mótherja, mælti m.a. með þessu. Þrennt mælti með þessu: Hag- stæðari eða svipuð lánskjör með stærra félagi, aukin sérhæfing stærra félags til að ná niður bygg- ingarkostnaði og aukin sérhæfing og þekking til að sinna vönduðu viðhaldi. Það eina sem hefur breyst frá upphafinu er að áður leit út fyrir að fjármálastofnanir myndu hafa meirihlutann. Nú hafa níu sveitarfélög meirihlutaeign í félaginu. Það er ótvíræður kostur. Reykjanesbær á 35% í félaginu og fær arð í samræmi við það. Með styrkum eignarhlut okkar og meirihlutaeign sveitarfélaganna erum við í betri stöðu en upp- haflega var ætlað. Félagið hefur nú sparað okkur í byggingarkostn- aði um 500 milljónir kr. og viðhald er til mikillar fyrirmyndar. Við settum sjálf inn í reglur að geta tekið eignirnar til baka. Miðað við árangurinn væri það óskyn- samlegt. Allt tal um að hægt sé að hagnast um 180 milljónir kr. á ári og fjármagna kosningaloforð, ef við tækjum eignirnar til baka, er algjörlega óraunhæft enda hafa þeir sem halda því fram ekki þor- að að leggja fram útreikninga sína.“ Hvernig vilt þú að bæjarfélagið beiti sér vegna breytinga hjá varn- arliðinu á Keflavíkurflugvelli? Hvaða tækifæri telurðu að kunni að felast í stöðunni? „Við höfðum frumkvæði að því að leggja fram þríþættar tillögur um aðgerðir. Þær fólust í því að hefja strax stuðning við starfsfólk á varnarsvæðinu við að útvega önnur störf. Við stofnuðum til þess ráðgjafarstofu ásamt starfs- greinafélögunum á svæðinu. Fyr- irtæki eru nú að bjóða laus störf og um 80 starfsmenn eru þegar komnir til annarra starfa, auk þeirra 140 sem fengu áfram vinnu við flugreksturinn. Vel á annað hundrað manns hafa sótt und- irbúningsnámskeið tengt atvinnu- leit. Í öðru lagi lögðum við fram hugmyndir um leiðir til að Kefla- víkurflugvöllur yrði áfram miðstöð varna, og þá meira tengt innri vörnum s.s. eftirlit á alþjóða- flugvelli, sem nauðsynlegt er að auka verulega. Í þriðja lagi lögðum við fram hugmyndir um fjölmörg ný at- vinnutækifæri. Nú er verið að vinna úr þeim með fagfólki. Ég kvíði því ekki að úr þessu vaxi ekki góð tækifæri fyrir okkur. Það hefur verið hægt annars staðar þar sem herflugvöllum hefur verið breytt. Við höfum safnað saman allri þeirri reynslu og munum leggja hugmyndir fram í samstarfi við ríkisstjórnina.“ Árni Sigfússon, D-lista leikskóla með því að Reykja- nesbær verði skilgreindur sem reynslusveit- arfélag fyrir gjaldfrjálsa leik- skóla. Þannig má nýta arð Hitaveitu Suð- urnesja. Einnig að nýta auknar tekjur Reykjanesbæjar sem skap- ast af nýbyggingum í þetta verk- efni.“ Telur þú unnt að auka stuðning við fjölskyldur í Reykjanesbæ og hvaða atriði ættu þá að hafa for- gang á næsta kjörtímabili? „Frjálslynd og óháð vilja að full heilbrigðisþjónusta verði veitt all- an sólarhringinn í Reykjanesbæ. Hraðað verði uppbyggingu Heil- brigðisstofnunar Suðurnesja og hún verði fullmönnuð starfsfólki. Einnig að stórátak verði gert í máefnum fatlaðra og fjölskyldna þeirra, einnig verði stórátak í mál- efnum aldraða og öryrkja, til að mynda með afslætti á fast- eignagjöldum þannig að þeim sé betur gert kleift að lifa mannsæm- andi lífi af tekjum sínum í eigin húsnæði. Einnig vilja Frjálslyndir og óháðir auka búsetumöguleika aldraðra þannig að aldraðir eigi fleiri valkosti og þurfi alls ekki að líða skort á dvalar- eða hjúkr- unarheimilum.“ Styður þú áframhaldandi sam- vinnu við Fasteign hf. um uppbygg- ingu og rekstur húsnæðis fyrir bæjarfélagið eða telur þú að kaupa eigi til baka þær eignir sem lagðar hafa verið inn í Fasteign? Hvað ræður afstöðu þinni? „Frjálslyndir og óháðir í Reykjanesbæ vilja endurheimta þær eignir sem seldar hafa verið til Fasteignar hf. Frjálslyndir og óháðir sjá engan kost við að þurfa að leigja eigur sínar af Fasteign hf., þar sem Fasteign hf hefur td. hækkað leigu félagslegra íbúða þar sem meðal annars aldraðir og öryrkjar leigja dýrum dómi.“ Hvernig vilt þú að bæjarfélagið beiti sér vegna breytinga hjá varn- arliðinu á Keflavíkurflugvelli? Hvaða tækifæri telur þú að kunni að felast í stöðunni? „Þar sem fyrir liggur að Banda- ríkjaher fer 1. september þá vilja Frjálslyndir og óháðir í Reykja- nesbæ að Bandaríkjaher skili öllu svæðinu og fasteignum svo flýta megi uppbyggingu annarrar at- vinnustarfsemi. Frjálslyndir og óháðir vilja efna til hugmynda- samkeppni um framtíð vallarsvæð- isins þar sem hugmyndir um hvernig íbúar Reykjanesbæjar og Reykjanesbær hagnist sem best á svæðinu.“ Kristinn Guðmundsson, F-lista unar barna á leik- skólum? „Reykjanes- bæjarlistinn telur nauðsynlegt að koma á gjald- frjálsum leikskóla í áföngum. Við viljum svo finna nýjar tekjur sem geta tryggt að leikskóli geti orðið gjaldfrjáls að fullu. Þess vegna leggjum við mikla áherslu á atvinnu- mál því það er undirstaða velferðar hvers bæjarfélags. Við teljum at- vinnumál hafa setið á hakanum mjög lengi hér í Reykjanesbæ þar sem bæjarstjórnin hefur verið of upp- tekin við að breyta eigum sínum í peninga til að getað fegrað bæinn og um leið búið til atvinnu tímabundið. Það hefur falið á sama tíma raun- verulegt atvinnustig hér í bænum sem hægt er að byggja á til fram- tíðar. Við viljum leggja niður Sam- band sveitarfélaga á Suðurnesjum til hagræðis og sameina Suð- urnesjabyggðir í eitt sterkt sveitar- félag til mótvægis við höfuðborg- arsvæðið, það myndi stórauka tekjurnar sem tryggði að hægt yrði að klára dæmið að koma á gjald- frjálsum leikskóla á öllu svæðinu og gott betur.“ Telur þú unnt að auka stuðning við fjölskyldur í Reykjanesbæ og hvaða atriði ættu þá að hafa forgang á næsta kjörtímabili? „Reykjanesbæjarlistinn vill að fólk með lágar tekjur fái tækifæri til að sækja sér vinnu inn á höfuðborg- arsvæðið og verði styrkt af bæj- arfélaginu til þeirra ferða. Við skil- greinum lágar tekjur laun sem eru lægri en 170.000 krónur á mánuði. Reykjanesbæjarlistinn vill að farið verði gaumgæfilega ofan í verklags- reglur fjölskylduþjónustunnar, til dæmis að meðlagsgreiðendur verði skilgreindir sem framfærendur barna sinna. Við viljum aðlaga grunnskólana enn frekar að þörfum barnanna og fjölskyldna þeirra, og sérstaklega líta til með þeim sem eiga erfitt uppdráttar, börnum með ofvirkni, athyglisbrest og annað sem snýr að geðheilbrigði sem dæmi.“ Styður þú áframhaldandi sam- vinnu við Fasteign hf. um uppbygg- ingu og rekstur húsnæðis fyrir bæj- arfélagið eða telur þú að kaupa eigi til baka þær eignir sem lagðar hafa verið inn í Fasteign? Hvað ræður af- stöðu þinni? „Reykjanesbæjarlistinn telur það hafa verið mistök að fara þá leið á sínum tíma að selja fasteignir bæj- arins en eins og umhorfs er í at- vinnumálum hér á svæðinu í dag teljum við að það sé ekki tímabært að eyða orkunni í að hrófla við þessu. Við getum ekki séð að það sé ódýr- ara að taka marga milljarða króna lán, gengistryggt með tilheyrandi kostnaði af lántökunni og af stimp- ilgjöldunum. Reykjanesbær hefur selt allar fasteignir sínar til Fast- eignar hf. sem leigði svo Reykja- nesbæ eignirnar strax eftir gerð af- sala. Þetta er nú allur galdurinn við það hvers vegna svo mikið eigið fé varð til í bæjarsjóði allt í einu sem gerði Reykjanesbæ svo kleift að fara í miklar framkvæmdir hér und- anfarin ár sem sannalega hafa fegr- að bæinn okkar mikið. Reykjanes- bær mun hér eftir að óbreyttu gera leigusamninga fyrirfram við Fast- eign hf., svo semja þeir við viðkom- andi verktaka um að reisa byggingu fyrir Fasteign hf. sem bærinn tekur svo við að framkvæmd lokinni sam- kvæmt leigusamningi, sem dæmi má nefna nýju sundlaugina. Hér er um að ræða gengistryggða leigusamn- inga sem hafa hækkað um 30% frá áramótum vegna gengisfalls krón- unnar. Reykjanesbær á 35% í Fast- eign hf. í formi hlutabréfa og erfitt er að átta sig á verðmæti þeirra því erfitt er að sjá hver vill kaupa hlut í grunnskólabyggingu, til dæmis.“ Hvernig vilt þú að bæjarfélagið beiti sér vegna breytinga hjá varn- arliðinu á Keflavíkurflugvelli? Hvaða tækifæri telur þú að kunni að felast í stöðunni? „Reykjanesbæjarlistinn leggur áherslu á í samningum við Banda- ríkjamenn að við fáum full afnot af olíubirgðastöðinni í Helguvík og að hún sinni eldsneytisþörf Keflavík- urflugvallar og Suðurnesja í heild sinni. Ef fram fer sem horfir með herinn mun flugtengd starfsemi á al- þjóðavísu aukast stórlega í framtíð- inni.Við viljum einnig beina því til stjórnvalda að vegna brotthvarfs hersins verði leyfðar frjálsar króka- veiðar smábáta við Reykjanesið allt að 6 sjómílur út og svæðið lokað öll- um öðrum veiðarfærum. Þessi heim- ild verði aðeins veitt þeim aðilum sem skráðir eru og landa aflanum á svæðinu. Þessi aðgerð myndi líka leggja af leiguliðaútgerðir (nútíma- þrælahaldið) sem flestar eru hér á landinu. Þá fyrst gætu menn gert út með reisn og skilað einhverju til samfélagsins hér í stað þess, eins og það hefur verið allmörg ár, að allur ágóðinn fari beint til sægreifanna sem búa ekki hér svæðinu og skað- inn sé okkar.“ Baldvin Nielsen, R-lista stuðning við fjöl- skyldur í Reykja- nesbæ og hvaða atriði ættu þá að hafa forgang á næsta kjör- tímabili? „Markmið okk- ar er að allir íbúar Reykjanesbæjar fái lifað með reisn alla sína ævi. Við höfum sett það í forgang hjá okkur að Reykjanesbær taki frum- kvæði í málefnum innflytjenda í Reykjanesbæ. Við viljum taka betur á móti því fólki með aukinni íslensku- kennslu og gera með okkur sérstakt samstarf við Alþjóðahúsið. Við viljum auka aðgengi að menntun og stór- bæta öldungadeild Fjölbrautaskóla Suðurnesja og Miðstöð símenntunar. Við viljum að aldraðir verði ekki fluttir í annað bæjarfélag vegna þess að við getum ekki sinnt þeim eins og staðan er núna. Við viljum útrýma of- beldi og klámi úr bænum. Við viljum byrja strax á því að endurhanna skrúðgarðinn okkar. Það vantar grænan blett til að slaka á hér í bæ. Það að Sjálfstæðisflokkurinn skuli ekki vera búinn fyrir löngu að end- urhanna hann segir allt um það hversu mikið þeir eru að huga að andlegri og félagslegri heilsu okkar.“ Styður þú áframhaldandi samvinnu við Fasteign hf. um uppbyggingu og rekstur húsnæðis fyrir bæjarfélagið eða telur þú að kaupa eigi til baka þær eignir sem lagðar hafa verið inn í Fasteign? Hvað ræður afstöðu þinni? „Þetta er auðvitað skelfilegt mál hvernig hefur verið farið með eignir bæjarins. Bæjarbúar hafa ekkert verið með í neinum ráðum um nokk- urn skapaðan hlut. Fólk hefur aðeins horft til þeirra breytinga sem orðið hafa á Hafnargötunni og aðgengi bæjarins án þess að vita nokkuð um hvaðan peningarnir hafa komið. Allir dásama Árna bæjarstjóra fyrir að hafa bætt útlit bæjarins sem vissu- lega var þörf á. Fólk spyr sig ekki lengra. Það er komin upp flókin staða varðandi fasteignir bæjarins og það er ekki auðvelt að svara því hvað eigi að gera. Okkar grunnafstaða í þessu máli miðast alltaf við það að eignir bæjarins eru eignir fólksins sem í bæjarfélaginu býr. Við erum ekki hlynnt því að mikilvægar samfélags- legar eignir séu seldar. Fólk borgar skatta og á að geta sagt með stolti þegar það gengur fram hjá mik- ilvægum eignum sem þjóna okkur öllum: „Þetta á ég.““ Hvernig vilt þú að bæjarfélagið beiti sér vegna breytinga hjá varn- arliðinu á Keflavíkurflugvelli? Hvaða tækifæri telur þú að kunni að felast í stöðunni? „Við erum alveg með hreinar línur í sambandi við herinn. Loksins eru bæjarbúar farnir að nota orðið her- inn í staðinn fyrir varnarliðið og það finnst okkur góður árangur. Við vilj- um að herinn komi sér úr landi og hreinsi upp eftir sig öll þau gríð- arlegu óhreinindi sem eftir hann liggja. Við viljum fá skýr svör strax og þrýsta á stjórnvöld um að gera eitthvað til þess. Það mætti lengi telja upp ýmsar hugmyndir um hvernig við getum nýtt okkur svæðið til atvinnusköpunar. Við finnum það hjá fólki að það er á sömu línu og við með þetta. Fólk vill fá svör og síðan getur sköpunargáfan ráðið ferðinni hjá okkur um hvernig við nýtum þetta svæði.“ Sigurður Eyberg Jóhannesson, V-lista Guðbrandur Einarsson, A-lista

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.