Morgunblaðið - 12.06.2006, Qupperneq 1
EINN af aðstoðarutanríkisráð-
herrum Bandaríkjanna sagði í
gær, að sjálfsmorð þriggja fanga í
Guantanamo á Kúbu hefði verið
„gott auglýsingabragð“ en lög-
fræðingar mannréttindasamtaka
segja, að örvænting hafi rekið
mennina í dauðann. Frammámenn
í báðum flokkum á Bandaríkja-
þingi gagnrýndu ástandið í Guant-
anamo harðlega í gær.
Colleen Graffy, einn af aðstoð-
arutanríkisráðherrum Bandaríkj-
anna, sagði í viðtali við BBC,
breska ríkisútvarpið, að sjálfsmorð
fanganna hefði verið „gott auglýs-
ingabragð“ og úthugsuð aðferð við
að vekja athygli á málstað þeirra,
„hinu heilaga stríði“. Mannrétt-
indasamtök segja hins vegar, að
fangarnir viti ekki annað en þeir
verði um alla framtíð í Guant-
anamo og því sé örvænting líkleg-
asta skýringin.
Komið var að föngunum, tveim-
ur Sádi-Aröbum og einum Jemena,
látnum í klefum sínum á laugar-
dagsmorgni og höfðu þeir hengt
sig. Hefur atburðurinn aukið gagn-
rýni á ástandið í búðunum og Arlen
Specter, kunnur repúblikani og
formaður dómsmálanefndar öld-
ungadeildarinnar, sagði í gær, að
rétta yrði sem fyrst yfir föngunum.
Sagði hann, að sumir þeirra sætu
aðeins inni fyrir „ómerkilegar
sögusagnir“.
Demókratinn Jack Reed, sem
hefur látið hermál til sín taka, tók
undir þetta og sagði, að ríkisstjórn-
in ætti nú orðið að vita hverjir
fanganna væru hryðjuverkamenn
og hverjir ekki. Svo virtist þó ekki
vera.
„Lögleysunni“ verði hætt
Mannréttindasamtökin Am-
nesty International skoruðu í gær
á Bandaríkjastjórn að binda enda á
„lögleysuna“ í Guantanamo og
undir það tóku samtök múslíma í
Bretlandi. Sagði framkvæmda-
stjóri þeirra, að það væri „ótrúleg
smekkleysa“ og lýsti raunar mann-
fyrirlitningu að kalla dauða fang-
anna þriggja „auglýsingabragð“.
„Auglýsingabragð“
eða örvænting?
Eftir Svein Sigurðsson
svs@mbl.is
Búist við | 14
Reuters
Í Guantanamo
Tveir hermenn færa fanga til
klefa síns. Margir fanganna hafa
verið í búðunum frá árinu 2002 án
þess að vera ákærðir.
STOFNAÐ 1913 158. TBL. 94. ÁRG. MÁNUDAGUR 12. JÚNÍ 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Aldrei of seint
að byrja
Hópþjálfun með einkaþjálfara
hefur gefið góða raun | Daglegt líf
Íþróttir | Svíar í sárum eftir jafntefli Frakkar líklegir Blik-
ar náðu stigi af FH Stuðningsmenn velja Þórð í úrvalslið Genk
Fasteignir | Nýtt kaffihús í Ólafsvík Blóm vikunnar
Íþróttir og Fasteignir í dag
Bannað að
horfa á HM
Mogadishu. AFP. | Til uppþota kom í Mo-
gadishu, höfuðborg Sómalíu, á laug-
ardag þegar íslamskir klerkar bönnuðu
fólki að horfa á heimsmeistarakeppnina í
knattspyrnu. Sögðu þeir hana siðspill-
andi.
Tveir menn létu lífið í óeirðunum en
til þeirra kom eftir að vopnaðir menn á
vegum íslömsku dómstólanna tóku raf-
magnið af kvikmyndahúsum þar sem
verið var að sýna beint frá heimsmeist-
arakeppninni. Talsmaður dómstólanna
sagði, að vestrænar kvikmyndir væru
siðspillandi og líka heimsmeistarakeppn-
in, sem hefði áhrif á hugsunarhátt barna
og unglinga.
Kvikmyndahúsaeigendur, sem hafa
lagt í mikinn kostnað til að geta sýnt frá
HM, eru ævareiðir eins og margir borg-
arbúar. Einn þeirra, Dahir Abubakar
Hassan, sagði rangt að kúga fólk.
„Ég hlakkaði til að sjá HM og gleyma
um stund því ömurlega og tilbreyting-
arsnauða lífi, sem við lifum, en nú er það
ekki hægt,“ sagði Hassan.
ÍSLENSKA landsliðið í hand-
knattleik vann frækilegan sigur á
Svíum, 32:28, í fyrri viðureign
þjóðanna í undankeppni heims-
meistaramótsins í handknattleik
karla í Stokkhólmi í gær. Þetta
var fyrsti sigur íslenska hand-
knattleikslandsliðsins á Svíum á
sænskri grund. Þótti mörgum
löngu vera kominn tími til að
Svíagrýlan, sem lengi hefur fitn-
að eins púkinn á fjósbitanum af
samneyti sínu við íslenska hand-
knattleiksmenn, mætti örlögum
sínum þegar mikið lægi við.
Alfreð Gíslason, landsliðsþjálf-
ari, sagði eftir leikinn að varn-
arleikur íslenska liðsins hefði
komið Svíum í opna skjöldu en
leiknar voru þrjár mismunandi
útgáfur. „Nú dugir þetta ekki
lengur. Við þurfum að finna eitt-
hvað nýtt fyrir seinni leikinn,“
sagði Alfreð við Morgunblaðið.
Claudio Bresciani/SCANPIX
Sigfús Sigurðsson átti stórleik í vörn íslenska landsliðsins gegn Svíum í Globen í Stokkhólmi. Hér tekur hann Kim Andersson föstum tökum.
Er hún gamla grýla dauð?
VERÐI ekki nýtt fjármagn veitt til forn-
leifarannsókna á Íslandi eru allar líkur á
að ekkert eða lítið verði um rannsóknir á
fornleifum í Skálholti, Hólum, Þingvöll-
um, Gásum, Kirkjubæjarklaustri og
Skriðuklaustri á næsta ári. Í ár er síðasta
árið sem Kristnihátíðarsjóður veitir fjár-
muni til fornleifarannsókna, en hann hef-
ur styrkt rannsóknir á fornminjum.
„Komi ekki nýtt fjármagn til fornleifa-
rannsókna sé ég ekki fram á að það verði
haldið áfram að neinu ráði með forn-
leifauppgröft í Skálholti. Það sama á
væntanlega við um allar rannsóknir sem
Kristnihátíðarsjóður hefur styrkt, að vísu
hefur rannsóknin á Hólum fengið styrki
víðar að,“ segir Mjöll Snæsdóttir forn-
leifafræðingur, sem stjórnað hefur rann-
sóknum í Skálholti.
Kristnihátíðarsjóður ver í ár tæplega 60
milljónum til fornleifarannsókna, en sjóð-
urinn hefur á síðustu fimm árum varið 500
milljónum til fornleifarannsókna. Lögum
samkvæmt átti sjóðurinn aðeins að starfa í
fimm ár.
Dr. Kristín Huld Sigurðardóttir, for-
stöðumaður Fornleifaverndar ríkisins,
segist ekki trúa öðru en nýju fjármagni
verði varið til þessara mála og sagðist
raunar vita að þetta væri til skoðunar í
menntamálaráðuneytinu. | 8
Morgunblaðið/Árni Torfason
Unnið hefur verið að rannsóknum á forn-
leifum í Skálholti undanfarin ár.
Óljóst um
framhald forn-
leifarannsókna
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is