Morgunblaðið - 12.06.2006, Page 4
4 MÁNUDAGUR 12. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Nú bjóðum við frábært tilboð á síðustu sætunum til Bologna á
Ítalíu 14. eða 21. júní. Þú kaupir 2 flugsæti en greiðir aðeins fyrir 1.
Gríptu tækifærið og skelltu þér til Ítalíu á einstökum kjörum.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
2 fyrir 1 til
Ítalíu
14. eða 21. júní
frá kr. 19.990
Síðustu sætin
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr. 19.990
Flugsæti báðar leiðir með sköttum, m.v.
2 fyrir 1 tilboð. Netverð á mann.
SAMRÁÐSÞINGIÐ um loftslags-
breytingar, sem hefst í Reykjavík í
dag, er tilraun til þess að draga að
einu borði annars vegar fulltrúa
fjölmargra helstu stórfyrirtækja í
veröldinni, fyrirtæki á sviði iðn-
aðar, orkumála, tækni og fjármála-
starfi, og hins vegar úrval þeirra
vísindamanna sem fremstir eru í
veröldinni varðandi greiningu og
rannsóknir á þessu sviði.
Þetta kom fram í máli Ólafs
Ragnars Grímssonar, forseta Ís-
lands, á blaðamannafundi á Bessa-
stöðum í gær. Þess má geta að þing-
ið sækja tæplega tvö hundruð
fulltrúar um hundrað stórfyr-
irtækja, háskóla og vísindastofnana
víða að úr veröldinni, t.a.m. Banda-
ríkjunum, Evrópu, Kína og Ind-
landi.
Forseti Íslands átti ásamt dr.
Jeffrey Sachs, hagfræðingi og for-
stöðumanni Jarðarstofnunarinnar
við Columbia-háskólann í Banda-
ríkjunum, þátt í að stofna til sam-
ráðsþingsins sem starfa mun í þrjú
ár og eiga tvo fundi á ári hverju.
Allir verða þeir fundir í Bandaríkj-
unum að þessum fundi hérlendis
undanskildum, en í því felst, að
mati Ólafs Ragnars, mikil við-
urkenning fyrir Ísland.
Mikil breyting hefur orðið
í umræðu þjóðarleiðtoga
Ólafur Ragnar sagðist á sl. árum
skynja mikla breytingu í umræðu
þjóðarleiðtoga varðandi loftslags-
breytingar. Ekki væri langt síðan
ýmsir hafi dregið hættuna í efa, en
nú væri það samdóma álit helstu
áhrifamanna heims að þetta sé
brýnasta verkefni sem mannkynið
þurfi að fást við. Sagðist hann trúa
því að nái vísindasamfélagið og við-
skiptasamfélagið saman um annars
vegar afstöðu til loftslagsbreyting-
anna og hins vegar aðgerðir þá
muni áhrifaöfl á vettvangi stjórn-
kerfa og alþjóðastofnana fylgja á
eftir.
Í tengslum við samráðsþingið
efnir Háskóli Íslands til málþings
nk. miðvikudag þar sem vís-
indamenn og sérfræðingar munu
fjalla um hreina orkugjafa framtíð-
arinnar, m.a. vetni og jarðhita, auk
þess sem nýstárlegar hugmyndir ís-
lenskra og erlendra vísindamanna
um bindingu koltvíoxíðs djúpt í
jörðu verða kynntar. Í hádeginu
sama dag mun dr. Rajendra K. Pac-
hauri, forseti Alþjóðlegs vís-
indaráðs um loftslagsbreytingar,
flytja fyrirlestur í fyrirlestraröð-
inni Nýir straumar sem forsetinn
stofnaði til fyrr á þessu ári. Fyr-
irlesturinn er haldinn í Öskju, hefst
kl. 13.15 og er hann öllum opinn.
Ungum leiðtogum boðið til
samráðsfundar hérlendis
Ólafur Ragnar kynnti á blaða-
mannafundinum einnig samráðs-
fund ungra leiðtoga á alþjóðavett-
vangi úr viðskiptum, þjóðmálum,
vísindum og tækni, nú í haust. Til
hópsins, sem nefnist Young Global
Leaders, var stofnað á vettvangi
heimsviðskiptaþingsins World
Economic Forum í Davos í Sviss, en
einn af hvatamönnum fundarins
hérlendis er Björgólfur Thor
Björgólfsson.
Að sögn Ólafs Ragnars er mark-
mið fundarins að taka til umræðu
orkumál framtíðarinnar ekki síst
örugga orku sem ekki ógni lífríki
jarðar í framtíðinni.
Alþjóðlegt samráðsþing um loftslagsbreytingar hefst í dag
Samráð um aðgerðir
og rannsóknir
Morgunblaðið/Ómar
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, kynnti samráðsþingið um lofts-
lagsbreytingar á blaðamannafundi á Bessastöðum í gær.
Tæplega 200
fulltrúar taka þátt
ÞORSTEINN Gunnarsson, rektor
Háskólans á Akureyri, segir það
tímaskekkju í nútíma þekkingar-
þjóðfélagi hve hátt hlutfall ríkis-
starfsmanna búi í Reykjavík; þar er
hlutfallið tæplega 9% en 2% á lands-
byggðinni. Þetta kom fram í ávarpi
hans á Háskólahátíð á laugardag.
Alls brautskráðust 342 kandídatar
frá HA að þessu sinni.
Á tíu árum hefur nemendum HA
fjölgað úr rúmlega 350 í tæplega
1.500 og háskólinn hefur aukið hlut-
deild sína af heildarfjölda háskóla-
nema úr 5% í rúm 9% á sama tíma.
„En það er alkunna að magn er
ekki sama og gæði. Við höfum fylgst
vel með brautskráðum nemendum
og hvernig þeim hefur vegnað,“
sagði Þorsteinn m.a.
Hann sagði jafnframt að mikil-
vægi háskólamenntunar fyrir upp-
byggingu sjálfbærs samfélags sem
hefur velferð þegnanna að leiðarljósi
komi sífellt skýrar í ljós. „Í kynn-
isferð sem ég fór nýlega, í breska há-
skóla, kom vel fram áhersla þeirra á
hlutverk skólanna í svæðisbundinni
þróun þannig að háskólarnir í sam-
vinnu við atvinnulífið og hið opin-
bera, þ.e. ríki og sveitarfélög, taki
þátt í að endurskapa atvinnulíf í sínu
nærumhverfi. Hér á landi væri þetta
kölluð byggðastefna sem jaðrar við
skammaryrði hjá höfuðborgarmið-
uðum stjórnmálamönnum. En í
framsækinni atvinnustefnu stjórn-
valda í þeim löndum sem við viljum
bera okkur saman við er uppbygging
atvinnulífs í tengslum við háskóla
helsta leiðarljós þeirra til framtíð-
ar.“
Hann fagnaði nýsamþykktri
byggðaáætlun þar sem gert er ráð
fyrir frekari eflingu Háskólans á Ak-
ureyri og að hann gegni áfram lyk-
ilhlutverki í uppbyggingu háskóla-
náms í landinu.
„Þau rök heyrast gjarnan frá tals-
mönnum höfuðborgarsvæðisins að
opinber störf skipti ekki máli fyrir
atvinnuuppbyggingu. Þessi staðhæf-
ing er röng, sem sést m.a. á því hve
mikil áhersla hefur verið lögð á að
fjölga opinberum störfum í höfuð-
borginni,“ sagði rektor.
Byggðastefna jaðrar
við skammaryrði
Rektor Háskólans á Akureyri
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Þorsteinn Gunnarsson ásamt nokkrum útskriftarnemanna í myndatöku.
SEXTÁN ára réttindalaus öku-
maður missti stjórn á fólksbif-
reið sem hann ók í Ártúns-
brekku í Reykjavík um klukkan
tvö í fyrrinótt. Lenti bíllinn á
ljósastaur og var ökumaðurinn
fluttur á slysadeild ásamt fjór-
um farþegum sínum sem allir
voru aldrinum fjórtán til fimm-
tán ára.
Ein farþeganna sem er
stúlka, var síðar flutt á gjör-
gæsludeild með alvarlega höf-
uðáverka og reyndist hún höf-
uðkúpubrotin. Samkvæmt
upplýsingum frá Landspítalan-
um sem fengnar voru í gær-
kvöldi var ástand hennar batn-
andi og hún komin úr
öndunarvél.
Flutt á gjörgæsludeild
Eftir Berg Ebba Benediktsson
bergur@mbl.is
KÆRUNEFND jafnréttismála birti
á dögunum úrskurð þar sem Háskóli
Íslands er talinn hafa brotið gegn
ákvæðum laga um jafna stöðu og
jafnan rétt kvenna og karla í máli
þar sem kona, Anna Ingólfsdóttir,
sótti um stöðu dósents við tölvunar-
fræðiskor skólans.
Í úrskurðinum eru þau ákvæði
jafnréttislaga rakin sem snúa að
málinu. Þar segir m.a. að ef líkur séu
leiddar að beinni eða óbeinni mis-
munun vegna kynferðis skal at-
vinnurekandi sýna fram á að aðrar
ástæður en kynferði hafi legið til
grundvallar ákvörðuninni. Dóm-
nefnd sem gaf umsögn um hæfi taldi
báða umsækjendur hæfa en fundir í
tölvunarfræðiskor og verkfræðideild
mæltu með þeim sem var ráðinn í
stöðuna og féllst rektor Háskólans á
tillögu þeirra.
Ráða skal það kyn
sem er í minnihluta
Upphaflegur rökstuðningur verk-
fræðideildar var á þá leið að efla
þyrfti grunnnám innan tölvunar-
fræðinnar og því ætti fremur að
leggja áherslu á kennslureynslu í
skyldugreinum en reynslu af rann-
sóknarstörfum. Er rektor innti eftir
frekari rökstuðningi kom fram í
bréfi frá deildinni að einstakir kenn-
arar hefðu mælt með þeim sem ráð-
inn var.
Kærunefndinni þótti þetta ekki
nægilega málefnalegar ástæður til
að víkja frá meginreglunni. Jafn-
framt var vísað í jafnréttisáætlun
Háskóla Íslands þar sem segir að
séu tveir eða fleiri umsækjendur um
starf metnir jafnt að starfinu komnir
eigi að ráða þann sem er af kyni sem
er í minnihluta á umræddu starfs-
sviði. Konur eru í minnihluta meðal
fastráðinna kennara við verkfræði-
deild Háskólans.
Í úrskurðinum eru þau rök Há-
skólans rakin að með ráðningunni
hafi verið leitað eftir manneskju sem
myndi efla kennslu í grunnnámi og
að umsækjendum hefði mátt vera
það ljóst. Kærunefndin taldi ráðn-
ingarferlið ekki gefa þessa ósk nægi-
lega til kynna.
Anna Ingólfsdóttir, sem sótti um
starfið, telur niðurstöðuna eðlilega.
Hún segir að við ráðninguna hafi
ekki verið gætt nægilega að þeim
gögnum sem hún lagði fram, en
reynsla hennar sem háskólakennari
er mest frá Háskólanum í Álaborg í
Danmörku. Hún segir óeðlilegt að
ummæli ónefndra kennara við tölv-
unarfræðiskorið um hinn umsækj-
andann gangi framar þeim meðmæl-
um sem hún lagði fram og skrifuð
eru af erlendum háskólamönnum.
Íhugar stöðu sína
Að öðru leyti íhugar Anna stöðu
sína. Hún segir að mögulega muni
hún láta reyna á málið frammi fyrir
umboðsmanni Alþingis. Þar fyrir ut-
an er dómstólaleiðin en Anna telur
ekki útilokað að krefjast skaðabóta
vegna ráðningarinnar. Hún hefur
hinsvegar ekki lengur áhuga á starf-
inu, enda segir hún að erfitt yrði að
vinna í því andrúmslofti sem nú hef-
ur skapast.
Háskólinn braut jafn-
réttislög við ráðningu
Kærunefnd jafnréttismála úrskurðar í máli vegna
ráðningar dósents í tölvunarfræði við Háskóla Íslands
KRISTÍN Ingólfsdóttir, rektor Há-
skóla Íslands, segir ákvörðun sína
um ráðninguna byggða á nið-
urstöðu verk-
fræðideildar.
„Deildin lagði
mat á rannsókn-
arvirkni, árang-
ur í rannsóknum,
árangur í
kennslu, sam-
skiptahæfileika,
bæði við sam-
starfsfólk og
nemendur.
Það kemur mér á óvart að nefnd-
in skuli ekki taka tillit til þessa
verklags sem við höfum“, sagði
Kristín.
Ráðningarferlið
ítarlegt
Kristín
Ingólfsdóttir