Morgunblaðið - 12.06.2006, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. JÚNÍ 2006 9
FRÉTTIR
Mánudagur 12. júní
Grænmetislasagne m/pestó
Þriðjudagur 13. júní
Hummus, buff & bakað grænmeti
Miðvikudagur 14. júní
Engiferpottur & kartöflubakstur
Fimmtudagur 15. júní
Afrískur pottréttur m/steiktum
bönunum
Föstudagur 16. júní
Linsubaunabollur & cashewkarrý
Helgin 17.-18. júní
Burritos m/chillisósu & guacamole
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• sími 581 2141
Hörskyrtur og buxur
Ókeypis prjónaklúbbur
Skráning á www.tinna.is
Verslunar- og
lagerpláss óskast
Hef verið beðinn um að útvega góðum
leigutaka atvinnuhúsnæði sem hér segir:
A. 500 - 700 fm verslunarhúsnæði á
svæðinu frá Smárahvammi að Grafarholti.
B. 1.000 - 1.300 fm lagerpláss með
góðri aðkomu og útiplássi.
Plássin þurfa ekki að vera á sömu hendi né
liggja saman.
Afhending samkvæmt samkomulagi.
Upplýsingar í síma 896 2222,
Ragnar Tómasson,
netfang: ragnar@samningar.is
Mörkinni 6, sími 588 5518.
Opið virka daga frá kl. 10-18
Útsala 20-50%
afsláttur
þurfti fjörutíu hjóla tengivagn aftan
í öflugan dráttarbíl til að koma hon-
um milli staða. Ækið og farmurinn
vógu um 160 tonn og meðalhraði
milli staða var innan við 10 km á
klst.
Landsvirkjun samdi við VA
TECH Escher Wyss GmbH í
Þýskalandi um framleiðslu og upp-
setningu véla- og rafbúnaðar fyrir
Kárahnjúkavirkjun fyrir um 7,5
milljarða króna á verðlagi ársins
2003. Um er að ræða sex 115 MW
vélasamstæður (hverfla og rafala)
ásamt öllum tilheyrandi búnaði.
Hverflarnir voru framleiddir í
Þýskalandi en rafalar og annar bún-
aður í Austurríki. Fyrsta vélin verð-
ur tekin í notkun í apríl 2007 skv.
áætlun Landsvirkjunar.
Kárahnjúkavirkjun | Fyrsti rafall
Kárahnjúkavirkjunar var fluttur inn
að stöðvarhúsinu í Fljótsdal aðfara-
nótt sunnudags. Hann var fluttur
frá Mjóeyrarhöfn í Reyðarfirði og
upp í Egilsstaði um laugardagsnótt-
ina í fylgd lögreglu og geymdur
skammt innan við Egilsstaði á laug-
ardag. Á miðnætti var svo haldið af
stað inn að stöðvarhúsi Kárahnjúka-
virkjunar í Fljótsdal með rafalinn og
gekk ferðin vel miðað við hraða og
þyngd ækisins.
Rafallinn er engin smásmíði og
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Fyrsti rafall virkjunarinnar kominn
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
steinunn@mbl.is
TORFHILDUR Torfadóttir var elsti
þátttakandinn í Kvennahlaupi ÍSÍ
sem fram fór um helgina á yfir 90
stöðum um land allt. Torfhildur er
102 ára gömul og búsett á Ísafirði.
Henni fannst hressandi að fá sér
göngutúr en reyndar gerir hún það
á hverjum degi þegar veður er gott.
Sigrún Lísa Torfadóttir, átta ára
sonardóttir Torfhildar, er með
ömmu sinni á myndinni til hægri.
Áætlað er að á bilinu 16-17.000
konur hafi tekið þátt hérlendis en
íslenskar konur á erlendri grundu
tóku líka þátt í hlaupinu, meðal ann-
ars var hlaupið í Belgíu, Kanada,
Namibíu og Sviss en myndin að ofan
er af þeim sem þátt tóku í hlaupinu í
Namibíu.
Yfirskrift hlaupsins í ár var
„Hvert skref skiptir máli“ en ÍSÍ og
UNIFEM á Íslandi hafa skrifað und-
ir samstarfssamning með það að
markmiði að vekja athygli á starfi
UNIFEM í þágu kvenna, sérstak-
lega í Afganistan, og hvetja íslensk-
ar konur til að sýna samstöðu með
mannréttindum kvenna um leið og
þær efla eigin heilsu.
Íslenskar konur víða um heim tóku þátt í kvennahlaupi ÍSÍ
Ljósmynd/Gunnar Jörgensen
Elsti þátttak-
andinn 102
ára gamall
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Fréttir í
tölvupósti