Morgunblaðið - 12.06.2006, Síða 11

Morgunblaðið - 12.06.2006, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. JÚNÍ 2006 11 MINNSTAÐUR Breiðumörk 20 810 Hveragerði adalsalan@adalsalan.is Sími 483 4550 Fax 483 4522 Fyrirtækið hefur verið starfrækt frá 1982 og áunnið sér stóran og tryggan viðskiptavinahóp Fjármögnunarmöguleikar sem vert er að skoða. Einnig að taka húseign á höfuðborgarsvæðinu upp í sem hluta af greiðslu Allar nánari upplýsingar gefa Hálfdán (gsm 893 4073) eða Ebba (gsm 660 1968) • • • Bakarí og konditori í Þorlákshöfn Til sölu gamalgróið bakarí og konditori í Þorlákshöfn sem er í fullum rekstri og er í eigin húsnæði í ört vaxandi bæjarfélagi. il l l i í it i í l í ll rekstri og er í eigin húsn ði í ört vaxandi b jarfélagi RÉTT ofan við Borgarnes í jaðri byggðarinnar, stendur lágreist fjár- hús sem lætur lítið yfir sér. Þar stundar Unnsteinn Þorsteinsson fjárbúskap ásamt Guðbjörgu Vigg- ósdóttur. Unnsteinn tók við búskapn- um eftir að faðir hans Þorsteinn Bjarnason dó fyrir fáum árum. Auð- vitað stóðu þau vaktina við sauðburð- inn í vor og sögðu hann hafa gengið vel. „Fjölskyldan hefur átt þetta fjár- hús hátt í þrjátíu ár,“ segir Unn- steinn, „þetta var áhugamál pabba, en bræður mínir sinntu þessu líka; Siggi með strákana sína þegar þeir voru litlir og Bjarni með stelpurnar sínar. Nú erum við með 28 kindur en höfum verið að fækka aðeins á síðustu ár- um.“ Unnsteinn þekkir allar kindurnar með nafni, og segir sumar þeirra ansi gæfar. Ein kindin þekkti t.d. bílinn þeirra og kom alltaf hlaupandi að hlið- inu þegar hún sá bílinn nálgast. Hann segist ekki vita hversu lengi þau fái að hafa fjárhúsið áfram, því verið sé að deiliskipuleggja svæðið undir íbúða- byggð. „Við erum mjög þakklát yfir því að hafa fengið að vera hér, bara á munnlegum samningi og aldrei hefur verið amast við búskapnum. Frekar hefur fólk verið jákvætt í okkar garð.“ Fjárhúsið er á lóð sem lengi til- heyrði Kaupfélagi Borgfirðinga, en nú hefur Borgarbyggð keypt lóðina ásamt stærra svæði. Unnsteinn segir ómetanlegt að hafa átt kost á því að vera með búskap svona nálægt. „Tengdaforeldrarnir eru búnir að bjóða mér að vera með kindur hjá þeim í Rauðanesi, sem er ágætt, en það tefur vissulega að þurfa að aka þangað til að gefa og sinna um skepn- urnar. Þegar sauðburður endar eru kindurnar og lömbin keyrð á fjöll svo ekki þarf að hafa áhyggjur af þeim um sumarið.“ Synir þeirra Unnsteins og Guð- bjargar hafa mikinn áhuga á bú- skapnum og þekkja margar kindur með nafni. „Það eru forréttindi að standa í þessu stússi,“ segir Unn- steinn, „og strákarnir okkar eru efni í bændur, þó tæplega taki þeir við á þessum stað.“ „Þakklát fyrir að hafa fengið að vera hér“ Synirnir Þorsteinn Unnar og Jón Steinar eru efnilegur bændur. Morgunblaðið/Guðrún Vala Borgarneslömbin Unnsteinn og Guðbjörg að störfum í fjárhúsinu. Stykkishólmur | Hvað St. Francisk- ussysturnar hafi hugsað fyrir 70 ár- um þegar þær stigu land í Stykkis- hólmi og hófu að reka sjúkrahús er ekki gott að segja. Eitt er víst að við- brigðin hafa verið mikil við að koma í lítið þorp á Íslandi og hefja þar braut- ryðjendastarf. Það var líka mikil breyting fyrir Hólmara að fá systurn- ar til búsetu. Þær fluttu með sér menningarstrauma sem höfðu sín áhrif og eins færði sjúkrahúsið íbúum staðarins öryggi og þjónustu sem ekki þekktist áður. Á þessu ári eru 70 ár frá því að St. Franciskusspítalinn í Stykkishólmi tók til starfa, en tilskilin leyfi fyrir rekstri sjúkrahússins fengust árið 1936. Þessara tímamóta í sögu Stykkis- hólms er minnst með glæsilegri sögu- sýningu sem opnuð var með formleg- um hætti laugardaginn 10. júní. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, kom vestur af þessu tilefni og opnaði sýninguna. Hann flutti þakkarávarp til St. Franciskussystra og þakkaði þeim fórnfúst starf í þágu landsmanna í 70 ár. Í máli hans kom fram að starf systranna hefur verið fjölbreytt og vakið athygli, ekki að- eins í Stykkishólmi, heldur um allt land og sem lítill drengur vestur á fjörðum hafi hann vitað af starfsemi þeirra sem honum fannst mikið til um. Við opnunina voru einnig viðstadd- ir Ólafur Skúlason, biskup og Jó- hannes Gijsen, biskup katólskra á Ís- landi. Ávörp fluttu Guðrún Gunnarsdóttir, formaður safna- og menningarnefndar, Róbert Jörgen- sen, forstöðumaður sjúkrahússins, Erla Friðriksdóttir, bæjarstjóri og Sjöfn Haraldsdóttir, listamaður. Börn í leikskóla og grunnskóla sungu fyrir gesti og sýndu leiki sem syst- urnar hafa kennt börnum þessa bæj- ar í gegnum árin. Það er safna- og menninganefnd Stykkishólmsbæjar sem stendur fyr- ir sýningunni. Hönnun sýningarinnar var í höndum Steinþórs Sigurðsson- ar, sem þekkir vel til starfsemi systr- anna frá sinni barnæsku. Sýningin sýnir á lifandi hátt fjölbreytt starf sem systurnar í Hólminum hafa stað- ið fyrir á þessu tímabili. Þær komu hingað til að líkna, og kærleikur til allra manna hefur einkennt þeirra störf. Sýningin er haldin í sal Tónlistar- skólans og er opin daglega til 19. ágúst. Aðgangur er ókeypis. Forseti Íslands opnaði sýningu um starf St. Franciskussystranna í Stykkishólmi Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, ásamt systrunum. Sjúkrahúsið hefur starfað í sjötíu ár „ÉG held að það sé óhætt að segja að Landnáms- setrið hafi hitt í mark,“ segir Sig- ríður Margrét Guðmundsdóttir, hjá Landnáms- setrinu, en setrið var opnað í vor í gömlum húsum við Brákarsund í Borgarnesi. Í setrinu eru tvær sýn- ingar, Egilssýning og Landnáms- sýning, en auk þess verða þar leik- sýningar í allt sumar á leikritinu Mr. Skallagrímsson. Sigríður Margrét segir að auk heimamanna komi margir af höfuð- borgarsvæðinu og víðar að til að skoða Landnámssetrið. Hún segir að börn hafi hrifist mjög af sýningunni. Einleikurinn Mr. Skallagrímsson hefur fengið mjög góða dóma, en sýningin er unnin af Benedikt Er- lingssyni. Sýningar verða á verkinu í allt sumar, en sýnt er föstudags-, laugardags- og sunnudagskvöld. Sigríður Margrét segir að Þor- gerður Brák, fóstra Egils Skalla- grímssonar, sé farin að ganga um gólf í Landnámssetrinu og segja sög- ur úr uppvexti Egils. Sögur hennar hafi fengið afar góðar viðtökur hjá ungu kynslóðinni. Góð aðsókn að Land- námssetrinu Benedikt Erlingsson VESTURLAND

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.