Morgunblaðið - 12.06.2006, Page 12
12 MÁNUDAGUR 12. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERINU
Síðumúla 13
sími 588 2122
www.eltak.is
VOGIR
Eltak sérhæfir sig í
sölu og þjónustu á
vogum.
Bjóðum mesta úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES)
leggur til að síldveiðar í Norðursjó
verði skornar niður um 40% á
næsta ári. Þetta þýðir að heimild-
irnar fara úr 455 þúsund tonnum í
240 þúsund tonn árið 2007, en að
auki er gert ráð fyrir 35 þúsund
tonna meðafla. Ástæðan fyrir nið-
urskurðinum er skv. ACFM, ráð-
gjafanefnd ICES, sú að síðastliðin
fjögur ár hafi nýliðun í síldarstofn-
inum verið mjög léleg.
Í fréttatilkynningu frá ICES er
vitnað í Gerd Hubold, aðalritara
ICES, og segir hann að þótt stofn-
inn sé nú í góðu ásigkomulagi og
um 1,7 milljónir tonna, þá sé vitað
að erfiðir tímar séu framundan
vegna lélegrar nýliðunar. „Rann-
sóknir okkar sýna að hrygning hef-
ur gengið vel, en af einhverjum or-
sökum ná seiðin ekki að komast á
legg. Í framtíðinni munum við því
beina rannsóknum okkar að þess-
um þætti og reyna að komast til
botns í þessari ráðgátu,“ segir Hu-
bold.
Milljarða tap í Noregi
Í norska blaðinu Fiskeribladet er
sagt að gangi niðurskurðurinn eftir
muni það þýða tap upp á minnst
150 milljónir norskra króna, eða
tæpa 1,8 milljarða íslenskra króna.
Þar sem ICES leggur til enn frek-
ari niðurskurð árið 2008, segir
blaðið að á næstu tveimur árum
muni tapið nema um 350 milljónum
norskra króna, sem samsvarar um
4 milljörðum íslenskra króna.
Síldarverð hefur verið mjög hátt
að undanförnu og í kjölfar minnk-
andi framboðs má búast við að það
muni hækka enn frekar. Þetta háa
verð mun vega að einhverju leyti
upp á móti samdrættinum.
ICES leggur til 40%
skerðingu á síld-
veiðum í Norðursjó
Hátt verð vegur upp á móti samdrætti
STAR Airlines, dótturfélag Avion
Group, hefur eignast 100% hluta-
fjár í frönsku ferðaskrifstofunni
Crystal, sem sérhæfir sig í heild-
sölu ferða á netinu. Kaupverð er
sem fyrr sagt trúnaðarmál en velta
Crystal á síðasta ári var um 14
milljónir evra, jafnvirði um 1.300
milljóna króna.
Hagnaður félagsins fyrir skatta
var 750 þúsund evrur, um 70 millj-
ónir króna. Áætlanir gera ráð fyrir
16 milljónum evra í veltu á yf-
irstandandi fjárhagsári og einni
milljón evra í hagnað.
Farþegar Crystal á síðasta ári
voru 32 þúsund, sem var þreföldun
frá árinu áður og áætlanir fyrir yf-
irstandandi ár gera ráð fyrir 38
þúsund farþegum. Gert er ráð fyrir
frekari aukningu farþega á næstu
árum þar sem mikill vöxtur er í
sölu ferða á netinu, segir í tilkynn-
ingu til Kauphallar Íslands.
Crystal selur ferðir til áfanga-
staða á borð við Króatíu, Marokkó,
Mexíkó, Kúbu, Brasilíu, Dóminíska
lýðveldið og Túnis.
Ferðaskrifstofan hóf starfsemi í
ágúst árið 2003 og er ætlað að
styðja við núverandi starfsemi Star
Airlines í Frakklandi. Star Airlines,
sem er annað stærsta leiguflugfélag
Frakklands, var keypt af Avion
Group í febrúar á þessu ári til að
byggja upp starfsemi Charter &
Leisure sviðs Avion utan Bretlands.
Star Airlines flutti á síðasta ári
rúmlega 900 þúsund farþega til yfir
tuttugu áfangastaða. Eftir kaupin
flytur Avion Group um sjö milljónir
farþega á ári þegar tekið hefur ver-
ið tillit til farþega Star Airlines og
Crystal.
Dótturfélag Avion
kaupir franska
ferðaskrifstofu
FL Group hefur lagt 300
milljónir danskra króna,
jafnvirði tæplega 3,8 millj-
arða íslenskra króna, til
lágfargjaldaflugfélagsins
Sterling vegna rekstrar-
taps að undanförnu. Þetta
kemur fram í frétt í danska
viðskiptablaðinu Børsen. Í
frétt blaðsins segir að
rekstrartap Sterling á síðasta ári hafi
numið 296 milljónum danskra króna,
sem sé það mesta í sögu félagsins, og
stafi það meðal annars af yfirtöku á
flugfélaginu Maersk Air á síðasta ári.
Þá segir að tap Sterling á fyrsta
fjórðungi þessa árs nemi um 200
milljónum danskra króna.
FL Group keypti Sterling af Fons,
eignarhaldsfélagi þeirra Pálma Har-
aldssonar og Jóhannesar Kristins-
sonar, í október á síðasta ári fyrir 1,5
milljarða danskra króna, sem þá
svöruðu til um 14,6 milljarða ís-
lenskra króna. Nokkrum mánuðum
áður, eða í lok júnímánaðar, keypti
Sterling hins vegar Maersk-flug-
félagið.
Í frétt Børsen er þeirri
spurningu velt upp hvort
fjárframlag FL Group til
Sterling sé hugsanlega
til þess að gera félagið
söluvænna í ljósi um-
ræðna um hugsanlegan
samruna við sænska lág-
fargjaldaflugfélagið
FlyMe. Segir í fréttinni
að Pálmi Haraldsson, stjórnarfor-
maður Sterling og stærsti hluthafinn
í FlyMe, vilji ekkert tjá sig um það.
Blaðið hefur hins vegar eftir honum
að það hafi legið fyrir að Sterling
þyrfti aukið fjármagn í reksturinn
vegna taprekstrar á síðasta ári. Ætl-
unin hafi hins vegar verið að sjá fyrst
hvernig rekstarafkoman á fyrsta
fjórðungi þessa árs yrði áður en
ákvörðun yrði tekin um það.
Børsen hefur eftir Almari Erni
Hilmarssyni, forstjóra Sterling, að
tap félagins komi ekki á óvart eftir
kaupin á Maersk Air. Reksturinn það
sem af er þessu ári hafi hins vegar
gengið betur en áætlanir gerðu ráð
fyrir.
Kostnaðarsamur
samruni Sterling
og Maersk
FL Group leggur fé til Sterling
SKIP Eskju, Aðalsteinn Jónsson og Jón Kjartansson, sigldu um Eskifjörð
þegar Sjómannadagurinn var þar hátíðlegur í gær, líkt og víða um land.
Morgunblaðið/Albert Kemp
Stolt siglir fleyið mitt
VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF