Morgunblaðið - 12.06.2006, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. JÚNÍ 2006 15
ERLENT
EGILSHÖLL MÁNUDAGINN 12. JÚNÍ
HLJÓMLEIKARNIR HEFJAST STUNDVÍSLEGA KL. 20.00
Veitingasala hefst í tjaldstæði við Egilshöll kl: 16.00
Roger Waters
Dark Side Of The Moon
MIÐAVERÐ:
SVÆÐI A: KR. 8.900 + 540 KR miðagjald
Svæði B Kr. 7.900 + 540 kr. miðagjald
Miðasala á midi.is og í Skífuverslunum
Laugavegi, Kringlunni og Smáralind.
Eins í BT Akureyri og BT Selfossi
uppsel
t á svæ
ði A
Ka
lli
nn
er
í k
vö
ld
!
tónleikarnir eru í kvöld
svæði
A 10.00
0 seld
ir mið
ar
Nick Mason trommari Pink Floyd kemur
Ármúla 11 - sími 568-1500
Lónsbakka - sími 461-1070
Verð frá 19.900,-
Garðsláttuvélar
3,5 hö - 6 hö
Jerúsalem. AFP. | Myndir af palest-
ínskri stúlku, sem missti alla fjöl-
skyldu sína í fallbyssuskothríð ísr-
aelskra hermanna á óbreytta borgara
á Gazaströnd á föstudag, hafa snortið
flesta Ísraela mjög djúpt.
„Harmleikur á Gazaströnd“ var að-
alfyrirsögnin í hinu útbreidda dag-
blaði Yediot Aharonot en það birti
einnig mynd af Houda Ghalia, 10 ára
stúlku, sem grét yfir líki föður síns.
Ali, faðir Houda, Raisa, móðir
hennar, og þrjú systkin létu lífið í
árásinni en þau voru þá að fá sér bita
á ströndinni.
„Kúlan, sem kveikti í Gaza“ var fyr-
irsögnin í dagblaðinu Maariv og var
þá meðal annars átt við það, að nú
hefði hernaðararmur Hamas rofið
vopnahléið, sem staðið hefur í tæp-
lega hálft annað ár.
„Myndin af stúlkunni á Gaza-
strönd, sem sá veröldina leysast upp
fyrir augum sér, verður vonandi til að
vekja okkur,“ sagði David Grossman,
einn kunnasti rithöfundur Ísraela, og
bætti við, að Ehud Olmert forsætis-
ráðherra vísaði „skipulega á bug öll-
um friðartilraunum“.
„Á Gazaströnd hefur ímynd okkar
sem þjóðar beðið mikinn ósigur,“
sagði Grossman í Maariv.
AP
Houda Ghalia, 10 ára, við útför fjölskyldu sinnar á laugardag.
Árásin á Gazaströnd
áfall fyrir Ísraela
Peking. AFP. | Stjórnvöld í Kína
skýrðu frá því á fimmtudag að
bygging nýrra orkuvera sem væru
byggð án leyfis yfirvalda væru vax-
andi vandamál, en þau raska áætl-
un stjórnarinnar um umhverfis-
vænni orkuframleiðslu í landinu í
framtíðinni.
„Nokkur ný raforkuver sem hafa
verið byggð í blóra við reglur eru
enn óleyst vandamál,“ sagði Zhang
Guobao, aðstoðarformaður nefndar
um þróun og umbætur í stjórninni.
Vegna mikils hagvaxtar og gríð-
arlegrar uppbyggingar í Kína hef-
ur eftirspurnin eftir orku farið
stöðugt vaxandi á undanförnum ár-
um. „Gríðarlegt álag á orkukerfið á
síðustu árum hefur haft örvandi
áhrif í þessa átt og verið hvati til að
reisa ný orkuver,“ sagði Zhang í
gær.
Samsetning orkunotkunar Kín-
verja er nú þannig að mikill meiri-
hluti orkunnar fæst úr kolum en
minni hluti úr olíu. Þetta er mikið
vandamál, því að bruni jarðefna-
eldsneytis hefur haft afar neikvæð
áhrif á umhverfið og heilsu milljóna
manna í kínverskum stórborgum.
Það er af þessum sökum sem
Kínverjar hafa lagt allt kapp á að
hlutfall „hreinna orkugjafa“ í raf-
orkuframleiðslunni verði sem hæst
fyrir Ólympíuleikana í Peking árið
2008. Mikið fé hefur verið lagt í
þessa áætlun og er talið að þetta
hlutfall verði komið upp í 35 pró-
sent árið 2010.
Að sögn Zhang verður orku-
skortur ekki lengur vandamál í lok
þessa árs, en skortur á rafmagni
hafði veruleg efnahagsáhrif fyrr á
þessum áratug með því að draga úr
framleiðslu og raska framkvæmd-
um.
Óleyfileg
orkuver
vandamál
Ósló. AFP. | Norska stjórnin kom í
gær í veg fyrir verkfall bankamanna,
sem hefjast átti í dag, en það hefði
lamað fjármálalífið í landinu.
Bjarne Håkon Hansen atvinnu-
málaráðherra kvaðst í gær mundu
leggja fyrir þingið ályktun um, að
verkfallið væri óheimilt vegna þess
skaða, sem það myndi vinna sam-
félaginu. Búist var við, að ályktunin
yrði samþykkt en norsk stjórnvöld
hafa oft áður gripið inn í verkfalls-
aðgerðir, séu þær taldar stefna
heilsu manna eða efnahagslífsins í
voða.
Samtök bankastarfsmanna boð-
uðu til verkfallsins á laugardag en
það hefði náð til 24.000 félaga þeirra.
Hefði þá öll banka- og trygginga-
starfsemi hætt og hraðbankar tæmst
á svipstundu. Samtök atvinnurek-
enda svöruðu verkfallsboðuninni
með verkbanni.
Bannaði verk-
fall í bönkum
Skýringin sögð
mikil eftirspurn
♦♦♦