Morgunblaðið - 12.06.2006, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 12.06.2006, Blaðsíða 16
SNYRTISETRIÐ h ú ð f e g r u n a r s t o f a Domus Medica – sími 533 3100 CELL RESTRUCTURE Yngjandi andlitsmeðferð Árangur strax Betri en Botox!? Afsláttur af 5 og 10 tíma kortum Umbo›s- og sölua›ili sími: 551 9239 www.birkiaska.is Vali› fæ›ubótarefni ársins 2002 í Finnlandi Minnistöflur B ryndís Lúðvíksdóttir hefur undanfarinn mánuð verið í hóp- þjálfun hjá einkaþjálf- aranum Ingu Þóru Ingadóttur í Hreyfingu, en þar er boðið upp á slíka hópþjálfun sem fer þannig fram að fjórir eru sam- an um einkaþjálfara. „Ég byrjaði í Hreyfingu fyrir 13 árum,“ segir Bryndís, „og þá hafði ég ekki verið í líkamsrækt í mörg mörg ár. Ég hef verið hér af og til síðan, en allt- af í lokuðum leikfimistímum alls- konar.“ Nú nýlega kom að þeim tímapunkti að Bryndísi langaði að prófa eitthvað nýtt. „Af því að mér fannst ég ekki fá nógu mikla styrk- ingu, það er það sem mig vantar.“ Bryndís þarf ekki að létta sig, er einmitt frekar grönn. Hún ákvað, eftir að hafa séð auglýsingu um þessa hópþjálfun, að prófa hana. „Ég finn strax mun, bara á þessum eina mánuði, eftir að hafa mætt hingað tvisvar í viku hjá einkaþjálf- aranum.“ Inga Þóra hefur séð um að kenna Bryndísi í tímunum og með þeim hafa í hverjum tíma verið þrjár aðrar konur. „Það er einmitt gríðarlega mikilvægt fyrir eldri einstaklinga að styrkja sig akkúrat á þessum tímapunkti,“ segir Inga Þóra. „Upp á jafnvægi og bein- þynningu sem byrjar að gera vart við sig á þessum aldri.“ Í hópnum sem Bryndís var í eru tvær „eldri“ konur, milli fimmtugs og sextugs, og tvær yngri, milli þrítugs og fer- tugs. „Ég var aðallega með þær í lyftingatækjunum, en tók með þrek og brennslu, svona í bland,“ segir Inga Þóra. Að hennar ráði bættu konurnar við einum leikfimistíma á viku. „Það er talað um að allir þurfi að hreyfa sig í þrjátíu mín- útur á dag,“ segir Inga Þóra. „Þær voru hjá mér tvisvar í viku í klukkutíma og ég sagði þeim síðan að þær þyrftu að mæta í allavega eitt skipti í viðbót.“ Fer í tíma til að skemmta sér Það hentar Bryndísi vel að blanda saman styrktaræfingum og annars konar hreyfingu, t.d. tím- um. „Af því að mér finnst mjög skemmtilegt í tímum. Það er tónlist og myndast einhver ákveðin stemn- ing. Ég fer sko í tímana til að skemmta mér,“ segir hún og hlær við. Námskeiðinu sem Bryndís skráði sig á í þetta sinn er nýlokið. Inga Þóra sleppir þó ekki alveg hendinni af skjólstæðingum sínum heldur fá dömurnar plan sem þær eiga að fara eftir áfram. „Ég mun halda áfram að æfa,“ segir Bryndís. „Ég fékk mjög gott plan hjá henni Ingu Þóru, það er mjög skýrt og gott að fara eftir því. Það er líka hvati í því fólginn að sjá og finna árangur eins og ég hef gert.“ Bryndís bendir á að það sem höfðaði til hennar á þessu námskeiði hafi verið tíma- lengdin. „Það sem hefur verið í boði hingað til hafa verið miklu lengri námskeið. Mér fannst þetta svo kærkomið tækifæri; að koma í mánuð og prófa þetta. Sjá hvernig mér líkaði. Þá getur maður í fram- haldinu ákveðið hvort þetta hentar manni og hvort þetta er eitthvað sem maður vill halda áfram að gera.“ Bryndís fann sig vel í einka- þjálfuninni og telur einsýnt að hún muni fara á annað svona námskeið í haust. Ástandið metið Inga Þóra hefur fundið fyrir því að vaxandi áhugi er meðal kvenna, fimmtugra og eldri, á að komast í form. „Ég finn sérstaklega fyrir því að konur sem komnar eru með slitgigt eða mikla beinþynningu koma til mín. Þá þarf að meta ástandið og gera æfingar sam- kvæmt því. Það er mjög gott fyrir konur að koma sér af stað af því að það er í raun meiri áhætta af því að hreyfa sig ekki heldur en að hreyfa sig.“ Inga Þóra telur að að- ferðin sem hún notar, þ.e. að fá nokkrar konur saman í hóp, sé vel til fundin. „Þær fá félagsskap og fræðslu, ég kenni þeim á tækin og sleppi þeim ekki frá mér fyrr en ég finn að þær eru tilbúnar.“ Hún fylgist svo gjarnan með því sem þær eru að gera í salnum, spjallar við þær þegar hún hittir þær á göngunum og svarar fyrirspurnum frá þeim í tölvupósti. Í lokin var Inga Þóra beðin um ráð til þeirra sem eru að hugsa um að drífa sig af stað að hreyfa sig. „Í rauninni getur fólk farið beint til einkaþjálfara,“ segir hún. „Við met- um ástandið á hverjum fyrir sig og ef það er eitthvað að vísum við við- komandi til læknis. En það er um að gera að koma sér af stað og tala við fagaðila, sjá hvað er í boði.“ Hún segir að mikilvægt sé að byrja hægt og í stuttan tíma, síðan má auka tímann áður en erfiðið er auk- ið. „Það má til dæmis byrja á því að ganga í tíu mínútur, hvíla aðeins og svo eftir viku taka tuttugu mín- útur. Bæta við sig smátt og smátt. Svo þegar fólki finnst tími til kom- inn að gera meira má bæta við hreyfingu í líkamsræktarstöð og þá gjarnan með aðstoð einkaþjálfara. Allir geta hreyft sig og það er aldr- ei of seint að byrja,“ klykkir Inga Þóra út með.  HREYFING | Hópþjálfun með einkaþjálfara hefur gefið góða raun Allir geta hreyft sig – aldrei of seint að byrja Morgunblaðið/Kristinn Inga Þóra einkaþjálfari aðstoðar Bryndísi Lúðvíksdóttir við lyftingarnar.Það er ákaflega mikilvægt að æfingarnar séu gerðar á réttan hátt.  FRÆÐSLA Beinvernd með nýtt vefsetur HINN 23. maí sl. opnaði Bein- vernd nýtt vefsetur, www.bein- vernd.is Þar er hægt að finna mikinn fróðleik um hinn alvarlega sjúk- dóm beinþynningu s.s. grein- ingu hans, meðferð og helstu forvarnir auk þess sem flest það efni sem félagið hefur gefið út hefur verið sett á vefinn. Einnig er hægt að taka gagnvirkt áhættupróf. Nýtt fréttabréf er komið út og er hægt að nálgast það á vefsetri félagsins. Einnig er unnt að panta það í gegnum netfangið beinvernd@bein- vernd.is og fá það sent. Fréttir á SMS Best er að byrja hægt og hreyfa sig í stuttan tíma í einu. sia@mbl.is júní Daglegtlíf

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.