Morgunblaðið - 12.06.2006, Qupperneq 30
30 MÁNUDAGUR 12. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Raðauglýsingar 569 1100
Tilkynningar
BORGARTÚN 3 - 105 REYKJAVÍK - SÍMI 411 3000 - MYNDSENDIR 411 3090
Auglýsing um breytingu á
Aðalskipulagi Reykjavíkur
Í samræmi við 18. gr. skipulags- og bygging-
arlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, er
hér með auglýst til kynningar tillaga að breyt-
ingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024.
Landnotkun á austursvæði Vatnsmýrar.
Tillagan gerir ráð fyrir að svæðið suður af
Loftleiðahóteli, sem í gildandi aðalskipulagi
er táknað sem svæði til ráðstöfunar eftir
skipulagstímabil (blönduð byggð eftir 2024,
sbr. 2. mynd í Greinargerð I og svæðisskipu-
lag höfuðborgarsvæðisins), verði merkt sem
miðsvæði (M5b) sem komi til uppbyggingar
á skipulagstímabilinu. Svæðið vestur af hót-
elinu og suður með Öskjuhlíð, sem í gildandi
skipulagi er merkt sem miðsvæði, stofnbraut
og opið svæði til sérstakra nota, verði merkt
sem blanda miðsvæðis og opins svæðis til
sérstakra nota, sem komi til uppbyggingar
á skipulagstímabilinu. Á umræddum svæð-
um er gert ráð fyrir stofnunum og atvinnu-
húsnæði vegna uppbyggingar Háskólans í
Reykjavík, rannsóknastofnanna og annarra
þekkingarfyrirtækja, alls um 115.000 m2, auk
35.000 m2 íbúðarhúsnæðis fyrir stúdenta.
Ennfremur er lagt til að Loftleiðasvæðið og
svæðið þar norður af, sem áður var skilgreint
sem blönduð byggð og miðsvæði (sbr. 1.
mynd í Greinargerð I), verði skilgreint í heild
sem miðsvæði (M5a). Á því svæði er m.a.
gert ráð fyrir alhliða samgöngumiðstöð og
starfsemi tengd flugrekstri auk blandaðrar
starfsemi sem samræmist landnotkun á mið-
svæðum.
Jafnframt þessu er lagt til að gangamunni
fyrirhugaðra Öskjuhlíðarganga verði færður
eilítið norðar. Stofnstígur sem liggur undir
Öskjuhlíð er hnikað eilítið til vegna breyttrar
legu gangamunnans og gerir tillagan ráð fyrir
göngubrú/undirgöngum við Flugvallarveg. Í
samræmi við deiliskipulag Hlíðarendasvæðis
og göngubrú á nýrri Hringbraut, er vænt-
anlegum stofnstíg norður af Flugvallarvegi
hnikað til vesturs þannig að hann liggi með
Hlíðarfæti. Ennfremur gerir tillagan ráð fyrir
að opið svæði til sérstakra nota í Nauthólsvík
verði stækkað til norðurs.
Nánar um tillöguna vísast til kynningar-
gagna.
Tillagan liggur frammi í upplýsingaskála
skipulags- og byggingarsviðs í Borgartúni 3,
1. hæð, virka daga kl. 08.20-16.15, frá 12.
júní 2006 til 24. júlí 2006. Einnig má sjá til-
löguna á vefsvæði sviðsins, skipbygg.is. Eru
þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta
hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum
og athugasemdum við hana skal skila skrif-
lega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til
skipulagsfulltrúa, merkt viðkomandi svæði
og undirritað skilmerkilega, eigi síðar en 24.
júlí 2006.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskil-
ins frests, teljast samþykkja tillöguna.
Reykjavík, 12. júní 2006
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur
Reykjavíkurborg
Skipulags- og byggingarsvið
Raðauglýsingar 569 1100
Atvinnuauglýsingar
Vélavörð og háseta
Vélavörð vantar á Pál Jónsson GK-7. Þarf að
geta leyst yfirvélstjóra af. Einnig vantar 2 há-
seta. Báturinn byrjar veiðar 8. ágúst að loknu
sumarleyfi. Páll Jónsson hefur verið meðal
aflahæstu báta landsins undanfarin ár og hefur
mikinn kvóta. Mikil veiði, góð laun.
Upplýsingar hjá skipstjóra í síma 893 3878.
Vísir hf., Grindavík.
Fáðu úrslitin
send í símann
þinn
Golfnámskeið
fyrir fötluð börn
GOLFSAMTÖK fatlaðra á Íslandi
verða með námskeið fyrir fötluð
börn í sumar og hefst það í dag, 12.
júní, kl. 16 í Básum Golfklúbbs
Reykjavíkur. Kennari verður David
G. Barnwell.
Námskeiðið verður haldið á
mánudögum og föstudögum frá
kl.16 til 17 og er ætlað börnum á
aldrinum 8 til 15 ára. Námskeiðs-
gjald er 5.200 kr. Í tilkynningu frá
golfsamtökunum kemur fram að
nauðsynlegt sé að barn hafi með sér
golfkylfu. Skráning fer fram á
staðnum og á netfanginu hordu-
r@ehp.is.
Almenn golfkennsla fer áfram
fram á miðvikudögum kl. 16 á sama
stað. Lögð verður sérstök áhersla á
þá sem hafa misst framan af hendi
eða misst hluta af fæti.
Aukinn áhugi á
siglingum á
norðurslóðum
BANDARÍKJAMENN hafa áhuga
á að auka olíuviðskipti við Rúss-
land, m.a. vegna þess hve þeir eru
háðir olíu frá Arabalöndunum.
Þetta ásamt fleiru hefur valdið því
að áhugi á siglingum með olíu á
norðurslóðum, frá Rússlandi til N-
Ameríku, hefur aukist. Um þessi
mál verður fjallað á málþingi á veg-
um Háskólans á Akureyri á mið-
vikudaginn, en málþingið ber yf-
irskriftina „Ísland í þjóðleið –
siglingar á norðurslóðum og tæki-
færi Íslands.“
Miklu minna um ís á þessum
slóðum en áður var
Þór Jakobsson veðurfræðingur,
einn fyrirlesara á málþinginu, sagði
að áhugi á siglingaleiðinni um
Norður-Íshaf hefði aukist mikið á
síðustu árum. Tæknilegir mögu-
leikar manna til að nýta sér þessa
siglingaleið hefðu aukist með gervi-
hnattamyndum af ís, betri fjar-
skiptum og betri ísbrjótum. Það
sem mestu skipti væri hins vegar
sú staðreynd að miklu minna væri
um ís á þessum slóðum en áður var.
Á síðustu 10 árum hefði ís minnkað
verulega á þess-
um slóðum. Þór
tók fram að það
væri þó langt í
það að íslaust
yrði á þessari
siglingaleið.
Landfræðileg
staðsetning Ís-
lands gefur okk-
ur ný tækifæri
samhliða aukinni skipaumferð. Um
þetta verður m.a. fjallað á ráðstefn-
unni. Þór sagði að þessu fylgdi jafn-
framt aukin hætta á mengunarslys-
um.
Á málþinginu flytja erindi Róbert
Trausti Árnason, Gestur Ólafsson,
Steingrímur Jónsson, Þór Jakobs-
son, Gísli Viggósson, Soffía Guð-
mundsdóttir, Jón Þorvaldur Heið-
arsson, Björn Gunnarsson og
Trausti Valsson.
Jón Þorvaldur mun á málþinginu
kynna nýja skýrslu um möguleika á
að byggja upp umskipunarhöfn í
Eyjafirði.
Málþingið fer fram á Hótel KEA
á Akureyri og stendur milli kl. 9:30
og 16:00.
Þór Jakobsson
Gera tilraun
um samnýtingu
upplýsinga úr
læknisvottorði
TILRAUNAVERKEFNI um sam-
nýtingu upplýsinga úr læknisvott-
orði vegna krabbameinssjúklinga
hófst um síðustu mánaðamót. Um
er að ræða samvinnuverkefni
Tryggingastofnunar ríkisins og
Landspítala – háskólasjúkrahúss.
Fram kemur á heimasíðu Trygg-
ingastofunar að tilgangur verkefn-
isins sé að samnýta læknisfræðileg-
ar upplýsingar í því skyni að
einfalda afgreiðsluferlið. Gert er
ráð fyrir að verkefnið verði fyr-
irmynd að einföldun umsóknarferla
í öðrum málaflokkum TR. Þessi
breyting þýðir að nú þarf aðeins
eitt grunnvottorð læknis vegna um-
sókna fyrir sama einstakling um
ýmsar bætur s.s. lyfjaskírteini,
ferðakostnað, endurhæfingarlíf-
eyri, örorkulífeyri, næringarstyrk,
hjálpartæki og heimahjúkrun.
Þessu fylgir mikil hagræðing fyrir
alla sem koma að vinnunni. Vonast
er eftir að þetta flýti einnig fyrir
vinnslu mála.
Nýtt eyðublað, „Grunnvottorð
læknis vegna krabbameins“, er
komið á heimasíðu TR. Leiðbein-
ingum með grunnvottorði hefur
verið dreift til lækna og annarra
heilbrigðisstarfsmanna LSH og
starfsfólks TR. Tilraunaverkefnið
er til eins árs.
„ÞAÐ ER margt sem þarf að laga
í málefnum hreyfihamlaðra og
vandamálin má nálgast á margan
hátt,“ segir Leifur Leifsson einn
aðstandenda heimasíðunnar
www.oryrki.net. „Við viljum
breyta til og gera eitthvað nýtt til
að bæta staðalímynd öryrkjans.“
Heimasíðan er þáttur í sum-
arstarfi á vegum Ný-Ungar, ung-
liðahreyfingar Sjálfsbjargar, sem
unnið er í samstarfi við Reykja-
víkurborg og Hitt húsið.
Níu ungmenni á aldrinum 18–23
ára taka þátt í verkefninu sem ber
heitið Götuhernaður. Að sögn
Leifs er markmiðið með síðunni að
snúa gildum samfélagsins á haus
með birtingu afþreyingarefnis af
ýmsu tagi þar sem fjallað er um
hreyfihömlun með opinskáum
hætti.
Morgunblaðið/Jim Smart
Þeir sem standa að heimasíðunni eru ánægðir með hvernig til hefur tekist.
„Götuhernaður“
hreyfihamlaðra
ungmenna
STYRKUR svifryks og köfnunar-
efnisdíoxíðs var mjög sambæri-
legur á gatnamótum Langholts-
vegar og Skeiðarvogs og við
Grensás. Þetta eru niðurstöður
mælinga sem gerðar voru á tíma-
bilinu 3. desember 2005 – 2. janúar
2006.
Þessi niðurstaða kemur stjórn-
endum Mengunarvarna hjá Reykja-
víkurborg á óvart þar sem umferð-
arþungi er minni í íbúðabyggð við
Langholtsveg en við Miklubraut.
Árið 2005 keyrðu 12.630 bílar
Skeiðarvog á sólarhring en Miklu-
braut við Grensásveg 44.554 bílar.
Umferðin er helsta uppspretta
loftmengunar í Reykjavík og mátti
fyrirfram ætla að styrkur loft-
mengandi efna yrði töluvert minni
við Langholtsveg en við helstu um-
ferðargötu borgarinnar. Í tilkynn-
ingu frá Mengunarvörnum segir að
vera kynni að nálægð Sæbrautar
sem mikillar umferðaræðar skýri
að einhverju leyti háan styrk
mengunarefna við Langholtsveg en
einnig kemur til greina að þun-
gaumferð um Skeiðarvog og Lang-
holtsveg sé meiri en í venjulegri
íbúðabyggð.
Þessar niðurstöður kalla á frek-
ari mælingar á þessu svæði og
fleiri gatnamótum í íbúðabyggð í
Reykjavík að mati starfsmanna
Mengunarvarna Reykjavík-
urborgar.
Sama mengun
á Langholtsvegi
og Miklubraut