Morgunblaðið - 12.06.2006, Page 34
34 MÁNUDAGUR 12. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Fólk talar um verkefni og ásetning eins
og ekki sé hægt að lifa innihaldsríku lífi
án þess. En þau þurfa ekki að vera fyr-
irframákveðin eða vitsmunaleg. Af
hverju ekki að gera skemmtilegt líf að
meginreglu?
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Nautið heldur sínu striki í ótilgreindum
viðskiptahugleiðingum og myndi alveg
þiggja fjárfesti í augnablikinu. En það er
ekki ráðlegt að falast eftir fé hjá nánum
vinum, fjölskyldu eða maka. Hugsaðu út
fyrir þinn innsta hring.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Veldu þér tjáskiptamiðil svo þú getir
komið skilaboðum áleiðis til eins stórs
hóps og mögulegt er. Lykilmanneskjur
rísa upp úr mannhafinu, fólk sem skilur
og á margt sameiginlegt með þér.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Dagurinn passar fullkomlega, en bara
ekki inn í áætlanir þínar. Óvæntir at-
burðir eru þeir allra frábærustu.
Kannski er snilldin í áætlun þinni sú að
þú skildir hana ekki þegar þú bjóst hana
til.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljónið á stóran vinahóp. Það er kominn
tími til þess að nýta þá auðlind. Deildu
þörfum þínum og þrám með öðrum. Það
er til fólk sem elskar þig og myndi elska
að fá að létta aðeins undir með þér.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það er alveg óþarfi að sýna hæversku.
Möguleikar þínar margfaldast ef þú læt-
ur hæfileika þína í ljós. Ástvinir eru
kröfuharðir, eða ert þú að halda þig til
hlés? Hættu því og vittu hvað gerist.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú skilur augljóslega allt sem ástvinir
þínir eru að reyna að segja þér. Af
hverju gerðu þeir það ekki fyrr? Þú tek-
ur stjórnina þar sem þú getur og lætur
það sem ekki er hægt að stjórna í hendur
náttúruöflunum.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Ef þú ert fastur einhverra hluta vegna,
er dagurinn í dag sá rétti til þess að losa
sig. Ef þú heyrir af fleiri möguleikum,
hefurðu um meira að velja. Þú gætir
fundið hinn fullkomna lærimeistara eða
að minnsta kosti fundið bók sem þig
vantar.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Skemmtun dagsins í dag felst í því að
rusla til og óhreinka á sér hendurnar. Þú
tengist vináttuböndum í millitíðinni og
ávinnur þér virðingu jafningjanna og
traust.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Himintunglin liðsinna steingeitinni við
að kanna margvíslegar aðferðir til þess
að taka höndum saman við aðra og vinna
að einhverju markmiði. Loftsmerki, það
er tvíburi, vog og vatnsberi, gera upp-
lifun hennar dýrmætari.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Himintunglin eru meðmælt því að vatns-
berinn seilist út til annarra. Hringdu í
vin eða alla vinina. Gefðu þér tíma til
þess að segja takk við einhvern sem hef-
ur alltaf stutt við bakið á þér. Undir-
staðan sem þú byggir á eftir að halda þér
uppi.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Leyfðu þinni ljóðrænu sál að skína gegn.
Þú þarft ekki að ganga um og ríma allt
sem þú lætur út úr þér, þó að það sé ein
aðferðin. Líklega er nóg fyrir þig að
meta hið líflega og þýðingarmikla mynd-
mál sem er allt í kringum þig.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
Vinnuvikan byrjar
snemma undir geislum
hins iðna tungls í steingeit,
en áður en alvarleikinn fer úr böndunum
tryggir sól undir áhrifum hins galsa-
fengna og málgefna tvíbura að vinnuum-
hverfið sé spennandi og vinsamlegt. Þeg-
ar manni finnst gaman flýgur stundin
ekki einasta hratt, heldur í lúxusfarrými
með bestu þjónustu.
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 viðbragðs-
fljótur, 8 í ætt við, 9 sálir,
10 greinir, 11 skyld-
mennið, 13 líffærið, 15
foraðs, 18 annmarki, 21
ástfólginn, 22 dóni, 23
bárur, 24 ánamaðkur.
Lóðrétt | 2 þvinga, 3 bæk-
urnar, 4 púkann, 5 sárs, 6
kvenfugl, 7 andvari, 12
myrkur, 14 fiskur, 15
harmur, 16 gamli, 17
húð, 18 mjó, 19 bleyðu, 20
sjá eftir.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 kvars, 4 fúlum, 7 ávalt, 8 loppu, 9 tól, 11 skap,
13 snös, 14 útlit, 15 spöl, 17 ófær, 20 aða, 22 rollu, 23 fíf-
an, 24 kætin, 25 seiga.
Lóðrétt: 1 kláfs, 2 apana, 3 sótt, 4 full, 5 læpan, 6 maurs,
10 óglöð, 12 púl, 13 stó, 15 skræk, 16 örlát, 18 fífli, 19
renna, 20 auðn, 21 afls.
Tónlist
Salurinn, Kópavogi | Söngtónleikar
þriðjudaginn 13. júní kl. 20. Þorsteinn Ár-
björnsson og Janette A. Zilioli flytja
skemmtilega og fallega tónlist tileinkaða
ástinni. Miðaverð: 2000/1600. Uppl. í
síma 570 0 400. www.salurinn.is
Seltjarnarneskirkja | The Elizabethan
Madrigal Singers, ungmennakór úr
listaháskóla í Wales, heldur tónleika í Sel-
tjarnarneskirkju þriðjudaginn 13. júní kl.
20.30. Á efnisskránni eru madrígalar,
þjóðlög, negrasálmar og léttmúsík, auk
kórperlna frá Íslandi. Stjórnandi kórsins er
Catrin Holland og er aðgangur ókeypis.
Myndlist
101 gallery | Steinunn Þórarinsdóttir sýnir
til 22. júlí. Opið fimmtudaga, föstudaga,
laugardaga frá 14–17.
Anima gallerí | Erla Þórarinsdóttir, Dældir
og duldir. Til 25. júní.
Árbæjarsafn | Margrét O. Leópoldsdóttir
sýnir Íslenskar lækningajurtir á línlöberum
í Listmunahorni Árbæjarsafns.
Bókasafn Seltjarnarness | Jón Axel Eg-
ilsson sýnir vatnslitamyndir til 16. júní.
Sýningin er opin á opnunartíma safnsins
frá kl. 10 til 17 alla virka daga.
Byggðasafn Garðskaga | Bergljót S.
Sveinsdóttir sýnir vatnslitamyndir til 14.
júní.
Café Karólína | Sunna Sigfríðardóttir.
Myndirnar eru af blómum. Myndirnar eru
allar unnar með bleki á pappír. Til 30. júní.
Energia | Sandra María Sigurðardóttir –
Málverkasýningin moments stendur yfir.
Til 30. júní.
Gallerí Sævars Karls | Reiter sýnir um
20 myndverk sem hann hefur málað und-
ir hughrifum frá Íslandsferð fyrir einu og
hálfu ári. Þá ferðaðist hann um óbyggðir
landsins og má sjá áhrif þess í myndunum
sem hann sýnir. Til 5. júlí.
Gerðuberg | Guðjón Stefán Kristinsson –
Sagnir og seiðmenn. Á sýningunni er að
finna verk úr rekaviði og vegghleðslu úr
grjóti og gleri. Ketill Larsen – Andblær frá
öðrum heimi. Ketill sýnir ævintýraleg
landslagsmálverk. Jón Ólafsson – Kvunn-
dagsfólk. Portrettmyndir málaðar með ak-
rýllitum. Sjá www.gerduberg.is Til 30. júní.
Hafnarborg | Sýning á ljósmyndum og
málverkum norska listmálarans og ljós-
myndarans Patrik Huse til 3. júlí.
Myndhöggvarar eru kynntir sérstaklega í
Hafnarborg í samstarfi við Mynhöggv-
arafélagð í Reykjavík. Einn félagsmaður
sýnir þá verk á sérstöku sýningarrými í
anddyri safnsins. Sólveig sýnir eitt skúlp-
túrverk unnið í Marmara Rosso Verona.
Hallgrímskirkja | Sumarsýning Listvina-
félags Hallgrímskirkju. Ásgerður Búadóttir
sýnir í forkirkju Hallgrímskirkju. Ásgerður
er frumkvöðull nútímaveflistar á Íslandi
og hafa verk hennar ætíð haft sterka skír-
skotun til landsins og til náttúrunnar. Sýn-
ingin er í samvinnu við Listasafn Háskóla
Íslands. Til 26. ágúst.
Hrafnista Hafnarfirði | Eiríkur Smith list-
málari sýnir í Menningarsal til 12. júní.
Húsið á Eyrarbakka | Sýningin Einfarar í
borðstofu Hússins á Eyrarbakka. Á sýn-
ingunni er einstakt úrval næfistaverka í
eigu hjónanna Áslaugar G. Harðardóttur
og Jóns Hákonar Magnússonar. Meðal
listamanna má nefna Ísleif Konráðsson,
Þórð frá Dagverðará, Stórval og Kötu
saumakonu. Til 31. júlí.
Hönnunarsafn Íslands | Sýningin 3x3 er
þriðja samsýning leirlistakvennanna Guð-
nýjar Magnúsdóttur, Koggu og Kristínar
Garðarsdóttur. Öll verk á sýningunni eru
ný og unnin sérstaklega fyrir þessa sýn-
ingu. Til 18. júní.
Ís-café | Bjarney Sighvatsdóttir sýnir
teikningar frá tveimur námskeiðum árin
1953 og 1998.
Karólína Restaurant | Joris Rademaker
sýnir ný verk Mjúkar línur/ Smooth lines.
Til 6. okt.
Listasafn Einars Jónssonar | Opið dag-
lega nema mánudaga kl. 14–17. Högg-
myndagarðurinn við Freyjugötu er alltaf
opinn.
Listasafn Íslands | Sýning á verkum Birg-
is Andréssonar og Steingríms Eyfjörð til
25. júní. Ókeypis aðgangur. Vegleg
fræðsludagskrá í tengslum við sýninguna,
sjá á: www.listasafn.is.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Yf-
irlitssýning á verkum Guðmundar Ein-
arssonar frá Miðdal. Unnið í samstarfi við
Náttúrufræðistofu Kópavogs. Safnbúð og
kaffistofa. Til 3. júlí.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Sýning á úrvali verka úr safneign Ás-
mundarsafns, sem sýnir með hvaða hætti
listamaðurinn notaði mismunandi efni –
tré, leir, gifs, stein, brons og aðra málma –
og hvernig sömu viðfangsefni birtast í
ólíkum efnum. Til 31. des.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Sýn-
ing á listaverkum sem voru valin vegna
úthlutunar listaverka-verðlaunanna
Carnegie Art Award árið 2006. Sýningin
endurspeglar brot af því helsta í norrænni
samtímalist en meðal sýnenda eru fjórir
íslenskir listamenn, meðal annars listmál-
arinn Eggert Pétursson sem hlaut önnur
verðlaun þetta árið. Til 20. ágúst.
Erro – Grafík. Myndirnar eru frá ýmsum
tímabilum í list Errós, þær nýjustu frá síð-
astliðnu ári. Við vinnslu málverka sinna
gerir Erró samklipp, þar sem hann klippir
og límir saman myndir sem hann hefur
sankað að sér úr prentmiðlum samtím-
ans. Til 31. des.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Sýning fyrir unga listunnendur sem sett
er upp í tengslum við útgáfu nýrrar bókar
Eddu útgáfu um myndlist fyrir börn þar
sem kynnt eru verk úr safneign Lista-
safns Reykjavíkur. Til 3. des.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Sýning
á völdum skúlptúrum og portrettum Sig-
urjóns Ólafssonar. Opið daglega nema
mánudaga 14–17. Kaffistofan opin á sama
tíma. Sumartónleikar hefjast 11. júlí.
Listasalur Mosfellsbæjar | Þórdís Alda
Sigurðardóttir sýnir lágmyndir sem gerð-
ar eru m.a. úr járni og textíl. Sýningin er
opin á afgreiðslutíma Bókasafns Mosfells-
bæjar. Til 24. júní.
Pakkhúsið í Ólafsvík | Hugrenningar –
Málverkasýning Sesselju Tómasdóttur
myndlistarmanns til 17. júlí. Viðfangsefni
sín sækir hún í Snæfellsjökul og hugsandi
andlit, sem hún vinnur með akrýl- og olíu-
málningu á striga.
Reykjavíkurborg | Stella Sigurgeirsdóttir
sýnir skilti á 20 stöðum víða um borgina
til 28. ágúst.
Saltfisksetur Íslands | Í Saltfisksetrinu
stendur yfir sýning í máli og myndum um
fiskveiðar Portúgala á norðurslóðum. Sýn-
ingin kemur frá Ílhavo, vinabæ Grindavík-
ur, og segir frá fiskveiðum Portúgala frá
árinu 1500 til dagsins í dag. Þetta er bæði
skemmtileg og fræðandi sýning sem vert
er að sjá. Til 10. júlí.
Söfn
Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Sýning
Borgarskjalasafns í anddyri Laugardals-
laugar um Laugarnesskóla í 70 ár. Sögu-
legur fróðleikur, ljósmyndir og skjöl. Opin
eins og laugin. Allir velkomnir. Til 30. júní.
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Gljúfra-
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Skráning viðburðar í Staður og stund er á
heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos
Skráning viðburða