Morgunblaðið - 12.06.2006, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. JÚNÍ 2006 39
Sýnd kl. 8 og 10:10 B.i. 12 ára
eeee
-MMJ kvikmyndir.com
Sýnd kl. 5:45 B.i. 16 ára
Sýnd kl. 5:30, 8 og 10:20 B.i. 16 ára
Á 6. degi 6. mánaðar árið 2006
mun dagur hans koma. Þorir þú í bíó?
Mögnuð
endurgerð af
hinni klassísku
The Omen !
Sýnd kl. 6, 8 og 10:10 B.i. 14 ára
Sími - 551 9000
Yfir 51.000 gestir!
Mannbætandi og þrælfyndin rómantísk gaman-
mynd með með Uma Thurman
og Meryl Streep í fantaformi!
400 KR.
Í BÍÓ
*
* Gildir á allar
sýningar í
Regnboganum
merktar með rauðu
The Omen kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 16 ára
16 Blocks kl. 5.50, 8 og 10.10 B.i. 14 ára
Da Vinci Code kl. 6 og 9 B.i. 14 ára
Hoodwinked/Rauðhetta m. ensku tali kl. 10.15
Rauðhetta/Hoodwinked m. ísl. tali kl. 6
Prime kl. 8
eee
L.I.B.Topp5.is
eee
DÖJ,
Kvikmyndir.com
HÖRKUGÓÐUR
SPENNUTRYLLIR
MEÐ BRUCE
WILLIS FRÁ
LEIKSTJÓRA
LETHAL
WEAPON
MYNDANNA.
-bara lúxus
HÖRKUGÓÐUR
SPENNUTRYLLIR MEÐ
BRUCE WILLIS FRÁ
LEIKSTJÓRA LETHAL
WEAPON MYNDANNA.
eee
L.I.B.Topp5.is
eee
DÖJ, Kvikmyndir.com
eee
H.J. Mbl.
eee
H.J. Mbl.
MAGNI Ásgeirsson, söngvari
hljómsveitarinnar Á móti sól, komst
í gær í 18 manna hóp söngvara sem
keppast um 15 laus sæti í nýrri
syrpu raunveruleikaþáttarins Rock
Star, sem nú er kenndur við hljóm-
sveitina Supernova, en áheyrnar-
prufur hafa staðið yfir í Los Angeles
að undanförnu. Fjórir Íslendingar
komust í 35 manna úrslit, en auk
Magna voru það þau Hreimur Örn
Heimisson, söngvari hljómsveitar-
innar Land og synir, Heiða Idol-
stjarna og Kristófer Jensson, söngv-
ari hljómsveitarinnar Lights on the
Highway. Magni var hins vegar sá
eini þeirra sem komst í 18 manna
hópinn. Hinn 20. júní fara síðustu
áheyrnarprufurnar fram og þá
munu þrír til viðbótar detta út. Þeir
15 sem þá standa eftir komast í þátt-
inn, og því eru líkurnar á því að Ís-
land muni eiga sinn fulltrúa nokkuð
miklar. Sigurvegarinn í þættinum
verður aðalsöngvari hinnar nýstofn-
uðu hljómsveitar Supernova, sem er
skipuð trommaranum Tommy Lee
úr Motley Crüe, bassaleikaranum
Jason Newstead úr Metallica og gít-
arleikaranum Gilby Clarke úr Guns
N’Roses. Sigurvegarinn mun svo
ásamt öðrum meðlimum Supernova
fara í hljóðver og taka upp plötu. Að
því loknu verður lagst í heimsreisu.
Minni en hann hélt
Í samtali við blaðamann Morgun-
blaðsins í Los Angeles í gær sagðist
Magni vera gríðarlega spenntur
vegna þessa, en hann telur sig eiga
góða möguleika á því að komast í
þáttinn. Magni hefur hlustað á
Metallica, Guns N’Roses og Motley
Crüe frá blautu barnsbeini og því
þótti honum gaman að hitta átrún-
aðargoðin, þótt það hafi hins vegar
komið honum á óvart hvað þeir eru
lágvaxnir. Ef Magni kemst í þáttinn
þarf hann að vera í Los Angeles
næstu mánuðina því tökur á þátt-
unum hefjast strax og búið er að
velja söngvarana.
Gríðarlegur áhugi er á þættinum
og blaðamenn frá öllum heimsálfum
voru viðstaddir áheyrnarprufurnar.
Samkvæmt upplýsingum frá að-
standendum þáttanna horfðu um 20
milljónir manna um allan heim á síð-
ustu syrpu, Rock Star: INXS, þar
sem leitað var að nýjum söngvara
fyrir hljómsveitina INXS.
Rock Star: Supernova verður
sýndur um allan heim næsta vetur,
en hér á landi verður þátturinn
sýndur á Skjá einum.
Tónlist | Magni Ásgeirsson nálægt því að komast í næstu syrpu raunveruleikaþáttarins Rock Star
Í hópi þeirra átján bestu
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
Ljósmynd/Matthías Árni Ingimarsson
Magni ásamt þremur öðrum keppendum í Los Angeles í gær: Patrice Pike, Lukas Rossi, Magni og Jill Gioia.
AÐLAGANIR að leikritum Shakespeares
birtast með ýmsum hætti í kvikmyndum, allt
frá hástemmdum tíðarandauppfærslum með
upprunalegum texta til kvikmynda sem stað-
færa Shakespeare, umskapa hann eða byggja
lauslega á verkum hans. Kvikmyndin Hún er
maðurinn (She’s the Man) fellur undir síðast-
nefnda flokkinn, en hér er um að ræða tilraun
til þess að færa Shakespeare-gamanleikinn
Þrettándakvöld inn í hefð bandarískra ung-
linga- og íþróttakvikmynda. Það tekst þó ekki
betur en svo að Shakespeare-efniviðurinn
drukknar í klisjum fyrrnefndra kvikmynda-
hefða. Kannski er réttara í því samhengi að
tala um kvikmynd sem sækir til grunn-
hugmyndar leikritsins en aðlögun. Karen
McCullah Lutz og Kirsten Smith, sem skrif-
uðu handritið ásamt tveimur öðrum, eru þó
ekki að stíga sín fyrstu spor á braut Shake-
speare-aðlagana, en þær skrifuðu einnig hand-
ritið að gamanmyndinni 10 Things I Hate
About You, sem er öllu sterkari aðlögun á
gamanleiknum Skassið tamið. Lutz og Smith
unnu einnig saman að handriti hinnar vinsælu
Legally Blonde, en í þessari nútímavæddu
túlkun á Þrettándakvöldi, eru höfundarnir
ekki á ósvipuðum slóðum, þar segir af ungri
stúlku sem neitar að sætta sig við hefðbundnar
afmarkanir á heimi kvenna og karla, og tekur
djarft skref yfir á yfirráðasvæði strákanna.
Hér er það unglingsstelpan Viola (Amanda
Bynes) sem gerir usla er hún ákveður að dul-
búa sig sem strák til þess að geta keppt í
strákaliði í fótbolta. Knattspyrna er hennar
ástríða, en þegar stelpulið skólans er lagt nið-
ur og hún fær ekki að ganga í strákaliðið neitar
hún að horfa upp á óréttlætið aðgerðalaus.
Þegar Sebastian bróðir Violu stingur af í tón-
leikaferð til London, ákveður hún að bregða
sér í gervi Sebastians til þess að geta gengið í
strákaliðið í öðrum skóla sem keppir á móti
strákaliðinu sem henni var neitað um að æfa
með. Í anda gamanleikja Shakespeares flækj-
ast málin hratt og örugglega eftir að Viola tek-
ur að leika tveimur skjöldum, einkum hvað
ástarmál sögupersóna varðar. Hér er um
skemmtilega hugmynd að ræða, sem ekki
tekst að moða úr nema miðlungs gamanmynd.
Barna- og unglingastjarnan Amanda Bynes
fer með hlutverk Violu og á þar brokkgenga
frammistöðu, en túlkun hennar á piltinum
Sebastian fer of langt út í ýkjur til þess að geta
borið kómedíuna uppi.
Unglingamynd með
Shakespeare-ívafi
KVIKMYNDIR
Sambíóin
Leikstjórn: Andy Fickman. Aðalhlutverki: Amanda
Bynes, Channing Tatum, Laura Ramsey, Vinnie Jon-
es. Bandaríkin, 105 mín.
Hún er maðurinn (She’s the Man)
„Í anda gamanleikja Shakespeares flækjast málin hratt og örugglega.“
Heiða Jóhannsdóttir