Morgunblaðið - 12.06.2006, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. JÚNÍ 2006 41
NÝ GAMANMYND FRÁ LEIKSTJÓRA „AMERCAN PIE“ & „ABOUT A BOY“
FRÁ FRAMLEIÐENDUM „BRIDGET JONE’S DIARY“ OG „LOVE ACTUALLY“
eee
L.I.B.Topp5.is
NÚ ER KOMIÐ
AÐ HENNI AÐ SKORA
ÆNA / DIGITAL BÍÓIÐ Á ÍSLANDI
SAMBÍÓ ÁLFABAKKA SAMBÍÓ KRINGLUNNI
SÝNDAR Í
STAFRÆNNI
ÚTGÁFU,
MYND OG HLJÓÐ
BÍÓDIGITALPOSEIDON kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 14.ára.
POSEIDON... VIP kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10
X-MEN 3 kl. 3:30 - 5:45 - 8 - 10:20 B.I. 12 ára
AMERICAN DREAMZ kl. 5:50 - 10:10
SHE´S THE MAN kl. 3:30 - 5:45 - 8 - 10:20
SHAGGY DOG kl. 3:40 - 5:50
MI : 3 kl. 8 - 10:30 B.I. 14 ára
SCARY MOVIE 4 kl. 4 - 8 B.I. 10 ára
SHE´S THE MAN kl. 5:45 - 8 - 10:15
POSEIDON ADVENTURE kl. 6 - 8 - 10:10 B.I. 14 ára
MI : 3 kl. 10:10 B.I. 14 ára
AMERICAN DREAMZ kl. 8
SHAGGY DOG kl. 6
eee
V.J.V.Topp5.is
eee
B.J. BLAÐIÐ
eee
S.V. MBL.
VERÐUR HANN
HUNDHEPPINN
EÐA HVAÐ!
FRÁ J.J. ABRAMS, HÖFUNDI LOST OG ALIAS
eeee
VJV, Topp5.is
S.U.S. XFM
DIGITAL
Bíó
SAMBÍÓIN KRINGLUNNI
M
EÐ
HI
NU
M E
INA SANNA HUGH GRANT
Námsráðgjafar og kennarar skólans verða til viðtals og
geta nemendur innritað sig á staðnum.
Nemendur kynna félagslífið í máli og myndum.
Gestir geta skoðað húsakynni skólans.
Léttar veitingar.
Nánari upplýsingar á www.verslo.is og á skrifstofu
skólans í síma 5 900 600.
•
•
•
•
•
NÝ SÓLÓPLATA Gumma Jóns,
gítarleikara Sálarinnar, kemur í
verslanir í dag. Platan heitir Jaml
og kallast titillinn þannig á við heiti
fyrstu sólóplötu Gumma, Japl, sem
hann gaf frá sér fyrir tveimur ár-
um. Öll tónlist og textar á plötunni
eru eftir Gumma sjálfan, auk þess
sem útsetningar, söngur, hljóðfæra-
leikur og upptaka er nær alfarið í
hans höndum.
Einlægir textar
Tónlistin á plötunni er frekar lág-
stemmd og þó hljóðheimurinn sé á
köflum margbrotinn er kassagít-
arinn ráðandi. Það er augljóst að
yrkisefnið skiptir Gumma máli og
einlægnin svífur yfir vötnum. „Ég
er samt ekkert að skera úr mér
hjartað og gráta opinberlega. En
þetta eru persónulegir textar og ég
hef leitast við að hafa plötuna ein-
læga. Ég vildi syngja um eitthvað
sem er mér hugleikið, ekki bara
eitthvað út í loftið til að komast í
útvarpið.“
Hluti af þríleik
Um tilurð plötunnar segir
Gummi að það hafi alltaf verið
stefnan hjá sér að gefa út aðra
sólóplötu. Reyndar ljóstrar hann
því upp að markmiðið sé að gera
þriðju plötuna og að hann hafi horft
til þess allt frá útkomu Japls að
gera trílógíu: Japl, Jaml og Fuður.
Þriðja platan er samt ekki vænt-
anleg alveg á næstunni. Gummi sér
enda fram á annasamt sumar með
Sálinni. „Ég er venjulega á fullri
ferð með Sálinni. Við erum hins
vegar búnir að vera í smá fríi þann-
ig að mér gafst tími til annarra
verka. Ég fór þá bara að taka þessa
plötu upp heima hjá mér,“ segir
Gummi en platan hefur verið í
vinnslu frá áramótunum. Hann
kveðst vera ánægður með afrakst-
urinn. „Ég er búinn að vera eitt-
hvað svo frjór og skapandi þessi
misserin og svo hef ég gefið mér
góðan tíma í þetta.“
Eins og segir var Gummi allt í
öllu við vinnslu plötunnar. „Það eru
nokkrar leiðir til að gera sólóplötu.
Það er hægt að gera eins og margir
lagasmiðir hafa gert með góðum ár-
angri, fá landslið poppara til að
syngja og spila með sér; eða maður
getur farið hina leiðina og gert allt
sjálfur, sem er svolítið erfiðara.“
Hann segir hvoruga leiðanna vera
betri en hina. Það hafi einfaldlega
hugnast honum best að fara svona
að. Það hafi einnig legið beint við
að taka plötuna upp sjálfur enda er
hann búinn að vera upptökustjóri í
mörg ár.
Eini listamaðurinn sem leggur
Gumma lið er Magnús Þór Sig-
mundsson sem syngur dúett með
Gumma í laginu „Ég trúi...“.
Útgáfutónleikar
og tónleikaferð
Sálin fer af stað um mitt sumar
en áður heldur Gummi í tónleika-
ferð til að kynna nýju plötuna og þá
með kassagítarinn einan að vopni.
Sú ferð hefst 20. júní og stendur
fram í miðjan júlí. Eins eru útgáfu-
tónleikar handan hornsins, en á
fimmtudaginn, 15. júní, mun
Gummi halda tónleika á Sólon með
liðsinni Valdimars Kolbeins Sig-
urjónssonar kontrabassaleikara og
Benedikts Brynjólfssonar trommu-
leikara. Tónleikarnir hefjast klukk-
an 22.
Tónlist | Gummi Jóns með nýja plötu Ný sólóplata Gumma Jónskemur út í dag. Platan heitir
Jaml og er önnur í röðinni af
fyrirhuguðum þríleik.Einlægur einyrki
Eftir Flóka Guðmundsson
floki@mbl.is