Morgunblaðið - 03.07.2006, Side 24
24 F MÁNUDAGUR 3. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Reykjavík - Fasteignasalan fasteign.is er með í sölu hús-
eignina á horni Ingólfsstrætis og Bankastrætis, Banka-
stræti 12. Um er að ræða járnklætt timburhús, alls skráð
160 fm, byggt 1920.
Veitingastaðurinn Prikið er nú í meirihluta húsnæð-
isins og enn fremur er þar til húsa gullsmíðaverkstæði
með verslun. Möguleiki er á langtímaleigusamningi við
leigutaka til allt að 10 ára. „Þarna eru miklir möguleikar
fyrir fjárfesta, bæði með tilliti til útleigu í núverandi
mynd og einnig með í huga að hugsanlega er bygging-
arréttur á lóðinni,“ segir Gísli Rafn Guðfinnsson hjá fast-
eign.is.
Að sögn eiganda er búið að endurnýja rafmagn og
skolplagnir.
Lóðin er 215 fm.
„Miðað við framtíðarskipulag miðborgarinnar, Kvos-
arinnar og hafnarsvæðisins með tilliti til uppbyggingar
telst þetta mjög álitlegur fjárfestingarkostur,“ segir
Gísli Rafn Guðfinnsson.
Óskað er eftir tilboðum í eignina.
Bankastræti 12
Fasteignasalan fasteign.is er með í sölu húseignina í Bankastræti 12. Óskað er eftir tilboðum í eignina.
Fréttir í tölvupósti
Foss fasteignasala, Hátúni 6a, sími 512 12 12, fax 512 12 13, netfang foss@foss.is
Bragi Björnsson
lögmaður og
löggiltur
fasteignasali
Úlfar Þ. Davíðsson
sölustjóri
Börkur Hrafnsson
lögmaður og
löggiltur
fasteignasali
HÁTÚN 6A
SÍMI:
5 12 12 12
FAX:
5 12 12 13
NETFANG:
foss@foss.is
FASTEIGNASALA
VANTAR
VEGNA MIKILLAR SÖLU UPP Á SÍÐKASTIÐ VANTAR OKKUR ALLAR GERÐIR
EIGNA Á SKRÁ. ENDILEGA HAFIÐ SAMBAND VIÐ SÖLUMENN OKKAR
MARTEINSLAUG - STÓR 3JA HERB.
Opin og rúmgóð 106 fm 3ja her-
bergja íbúð við Marteinslaug í Graf-
arholti. Íbúðinni fylgir stæði í opnu
bílskýli. Sérþvottahús í íbúð. Gegn-
heilt eikarparket og flísar á gólfum.
Hiti í gólfi í forstofu og baðherbergi.
Góðar svalir. Verð 24,9 milljónir.
SÓLVALLGATA - 2JA HERB. NÝLEG
Björt og falleg íbúð á 2. hæð, alls
71,4 fm auk stæðis í bílskýli í nýlegu
lyftuhúsi á afar efirsóttum stað í
Vesturbænum. Íbúðin skiptist í
stofu og borðstofu í alrými, parket á
gólfum. Opið eldhús með snyrtilegri
innréttingu. Rúmgott svefnhergi
með fataskápum. Svalir sem snúa í
átt að sjónum. Fallegt útsýni yfir
hafið. Verð 24,9 milljónir.
UNNARSTÍGUR - EINBÝLISHÚS
Fallegt einbýlishús á þremur hæð-
um á eftirsóttum stað í gamla Vest-
urbænum. Húsið er alls 299 fm, þar
af er 18,4 fm bílskúr/geymsluskúr.
Húsið var tekið í gegn að utan fyrir
10 - 15 árum síðan, þá var m.a. skipt
um gler og glugga að mestu ásamt
járni á húsi og þaki. Verð 57 milljón-
ir.
STARENGI - 3JA HERBERGJA
Erum með í sölu mjög góða 3ja her-
bergja í íbúð með sérinngangi af
svölum í litlu fjölbýlishúsi við Star-
engi í Grafarvogi. Íbúðin er 86,5 fm.
Útgengt á rúmgóðar svalir. Verð
19,2 milljónir.
SÖRLASKJÓL - 3JA HERBERGJA
Björt og falleg 90 fm 3ja herbergja
íbúð í kjallara á eftirsóttum stað í
Vesturbænum. Íbúðin er endurnýj-
uð að stórum hluta. Sérinngangur.
Andyrri með fallegum dökkum flís-
um. Parketlagt hol. Innaf holi er
barnaherbergi. Fallegt nýtt eldhús
með eikarinnréttingu og flísum á
milli efri og neðri skápa, vönduð
tæki frá AEG. Stofa og borðstofa í alrými. Rúmgott hjónaherbergi með park-
eti á gólfi. Verð 22,5 milljónir.
MIÐTÚN - 3JA HERBERGJA
Mjög góð 71,3 fm íbúð í kjallara við
Miðtún í Reykjavík. Hús og íbúð eru
nýlega standsett. Hol, flísar á gólfi.
Stofa og borðstofa í alrými. Tvö
svefnherbergi. Baðherbergi með
sturtuklefa, flísalagt hólf í gólf. Eld-
hús er flísalagt, nýleg innrétting.
Geymsla er í íbúð. Nýlegur 20 fm
viðarsólpallur. Hús og íbúð eru í
toppástandi. Verð 16,9 milljónir.
FISKAKVÍSL - STÓR ÚTSÝNISÍBÚÐ
Mjög góð 209 fm (þar af 29,8 fm bíl-
skúr) endaíbúð á 2. hæð auk ris-
hæðar í litlu fjölbýlishúsi á eftirsótt-
um stað í Kvísla-hverfi í Árbænum.
Fjögur svefnherbergi í íbúð auk 22,4
fm nýstandsetts íbúðarherbergis í
kjallara. Frábært útsýni og eftirsótt
staðsetning.
KAPLASKJÓLSVEGUR - 3JA HERB.
Björt og rúmgóð íbúð með frábæru
útsýni á 4. hæð í fjölbýlishúsi í vest-
urbæ Reykjavíkur. Íbúðin er stað-
sett nálægt Háskólanum. 2 svefn-
herbergi, rúmgóð stofa og snyrti-
legt eldhús. Risloft yfir íbúð, mögu-
leiki á að stækka íbúð. Svalir með
frábæru útsýni, m.a. yfir KR völlinn,
Keili og Snæfellsjökul. Verð 17,3
milljónir.
SÓLTÚN - 4RA HERBERGJA
4ra herbergja 93,3 fm íbúð á jarð-
hæð (götuhæð) með sérinngangi og
sérgarði. Íbúðin er 93,3 fm. Inn-
gangur/forstofa, flísar á gólfi og
fataskápur. Góð tölvuaðstaða. 3
svefnherbergi. Tengi fyrir þvottavél
á baðherbergi. Stofa, borðstofa og
eldhús í alrými. Góð íbúð á afar eft-
irsóttum stað í Reykjavík. Verð 21,9
milljónir.
TÓMASARHAGI - EFRI SÉRHÆÐ
Björt og falleg efri sérhæð með
góðu útsýni á eftirsóttum stað við
Tómasarhaga í vesturbæ Reykja-
víkur. Hæðin er 116,6 fm, auk þess
er ris sem ekki er inn í skráðum fer-
metrafjölda. 30 fm bílskúr fylgir
eigninni. Heildarfermetrar fyrir utan
ris eru 147 fm. Fjögur svefnherbergi
og tvær stofur. Tvennar svalir.
Parket og flísar á gólfum. Stórir og fallegir gluggar. Verð 41,9 millj.
VESTURVALLAGATA - FALLEG
Falleg og rúmgóð 65,4 fm 2ja her-
bergja íbúð á 4. hæð við Vesturval-
lagötu í Reykjavík. Íbúðin er afar
snyrtileg með nýlegum gólfefnum á
eftirsóttum stað í Vesturbænum.
Frábært útsýni. Stórt eldhús. Rúm-
góðar svalir sem snúa til suðurs.
Svefnherbergi með fataskápum.
Verð 15,7 milljónir
EFSTIHJALLI - 4RA HERBERGJA
Falleg 83,5 fm íbúð ásamt geymslu
sem ekki er inní skráðu fermetra-
fjölda. Íbúðin er 4ra herbergja á 2.
hæð í litlu fjölbýli í Efstahjalla í
Kópavogi. Þrjú svefnherbergi, svalir
útfrá stofu. Parket og flísar á gólf-
um. Verð 21 milljón.
UM ER AÐ RÆÐA FALLEGA 4RA
HERBERGJA ÍBÚÐ VIÐ EFSTA-
HJALLA Í KÓPAVOGI.
Í SÍMA 512 1212
FASTEIGNASALA
HÁTÚNI 6a
SÍMI 512 1212 FAX 512 1213
Bragi Björnsson lögmaður og löggiltur fasteignasali
OPIÐ HÚS
TÓMASARHAGI 27, 107 REYKJAVÍK
Foss fasteignasala, Hátúni 6a, sími 512 12 12, fax 512 12 13, netfang foss@foss.is
Opið hús í dag frá kl. 18-19. Björt og falleg efri sérhæð með
góðu útsýni á eftirsóttum stað við Tómasarhaga í vesturbæ
Reykjavíkur. Hæðin er 116,6 fm en að auki er ris sem ekki er inn í
skráðum fermetrafjölda. 30 fm bílskúr fylgir eigninni. Heildarfer-
metrar fyrir utan ris eru 147 fm. Fjögur svefnherbergi og tvær
stofur. Tvennar svalir. Parket og flísar á gólfum. Stórir og fallegir
gluggar. Verð 41,9 millj.
Úlfar tekur vel á móti væntanlegum kaupendum
í dag frá kl. 18-19.