Morgunblaðið - 18.07.2006, Qupperneq 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
FARNIR FRÁ LÍBANON
Sex Íslendingar sem eftir voru í
Líbanon eru komnir til Damaskus í
Sýrlandi eftir tíu tíma rútuferð. Gert
var ráð fyrir að þeir flygju af stað til
Kaupmannahafnar kl. 7 í morgun.
Fasteignavelta minnkar
116 kaupsamningar voru gerðir
um fasteignir á höfuðborgarsvæðinu
í síðustu viku sem er umtalsvert
minna en áður hefur verið. Verð á
fasteignum hefur tvöfaldast á fjór-
um árum.
Lánshæfismat ÍLS lækkað
Matsfyrirtækið Standard &
Poor’s lækkaði í gær lánshæfismat
Íbúðalánasjóðs. Forstjóri sjóðsins
segir þetta ekki koma sér á óvart.
KB banki segir þetta vera áfall fyrir
stjórn sjóðsins.
Unnið að lausn í Líbanon
Átök í Líbanon héldu áfram í gær
og hafa alls yfir 230 manns látist á
sex dögum. Frakkar og Bandaríkja-
menn segja að afvopnun Hizbollah-
samtakanna sé lykillinn að lausn
deilunnar en Ísraelar gáfu í skyn í
gær að þeir myndu hugsanlega slaka
á kröfum sínum um að samtökin
verði leyst upp og fallast á vopnahlé
ef hermönnum yrði sleppt úr haldi
og látið yrði af árásum.
Flóðbylgja á Jövu
Sterkur jarðskjálfti varð sunnan
við eyjuna Jövu við Indónesíu í gær
og létust 105 þegar flóðbylgja skall á
eynni. Viðvörunarbúnaður vegna
flóðbylgja virkaði ekki á eynni. Alls
er 127 manns saknað, þar á meðal
tveggja sænskra barna og fjögurra
ferðamanna frá Hollandi.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Umræðan 21/25
Fréttaskýring 8 Forystugrein 22
Úr verinu 12 Bréf 25
Viðskipti 13 Minningar 25/30
Erlent 14/15 Dagbók 32/35
Heima 16 Víkverji 32
Landið 17 Velvakandi 33
Akureyri 18 Staður og stund 34
Austurland 18 Ljósvakamiðlar 42
Daglegt líf 19 Veður 43
Menning 20 Staksteinar 43
* * *
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jó-
hann Björnsson, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is
Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jóns-
dóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
LÖGREGLAN í Reykjavík yfir-
heyrði í gærdag fjóra karlmenn á
aldrinum 16 til 21 árs vegna gruns
um aðild að tilraun til að nauðga 16
ára stúlku á sunnudagskvöld.
Mennirnir eru allir af erlendu bergi
brotnir en búa hér á landi, og hafa
einhverjir þeirra komið við sögu
lögreglunnar áður. Var þeim sleppt
að loknum yfirheyrslum en rann-
sókn málsins er ekki lokið.
Aðdragandi málsins var sá að
tvær sextán ára stúlkur leituðu til
lögreglunnar í Reykjavík um klukk-
an hálfeitt aðfaranótt mánudags.
Bar önnur þeirra fram kæru á
hendur karlmanni sem hún sagði
hafa gert tilraun til að þvinga hana
til samræðis í bifreið á ferð. Stúlk-
urnar voru báðar fluttar á neyð-
armóttöku fyrir fórnarlömb nauðg-
ana á Landspítala – háskóla-
sjúkrahúsi til skoðunar. Mennirnir
voru handteknir í kjölfarið og fengu
að gista fangageymslur lögreglunn-
ar yfir nótt og voru tekin úr þeim
lífsýni.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglu virðist sem stúlkurnar hafi
þekkt einhverja af mönnunum og
falast eftir því að fá far með þeim
eftir kvikmyndahúsaferð. Eftir að
hafa keyrt um bæinn í einhvern
tíma, en þá var m.a. áfengi haft um
hönd, var annarri stúlkunni ekið til
síns heima. Það var svo á leiðinni
heim til hinnar stúlkunnar sem til-
raun til nauðgunar var gerð. Er
einum mannanna gefið að sök að
hafa á leiðinni gengið mjög langt í
því að reyna að hafa við stúlkuna
kynmök í bifreiðinni.
Reyndi að fá stúlkuna
til samræðis í bifreið
Fjórir grunaðir um aðild að tilraun til að nauðga sextán ára stúlku
Eftir Andra Karl og
Örlyg Stein Sigurjónsson
vegna líkhúsgjalds sem innheimt er
af dánarbúum og eftirlifandi afkom-
endum látinna einstaklinga til
greiðslu kostnaðar af rekstri líkhúss-
ins. Umboðsmaður sagði m.a. í áliti
sínu að ekki yrði ráðið af þeim breyt-
ingum sem gerðar hefðu verið á síð-
ari árum á lagareglum um kirkju-
garða að horfið hefði verið frá því
fyrirkomulagi að þar sem líkhúsum
hefði verið komið upp við kirkjugarða
teldust þau hluti af nauðsynlegum
mannvirkjum kirkjugarðs og að um
kostnað vegna þeirra færi á sama
hátt og um kostnað af öðrum lög-
mæltum verkefnum kirkjugarðanna.
Þá áréttaði hann reglur um nauðsyn
gjaldtökuheimildar fyrir þjónustu op-
inberra aðila og að almenningur ætti
að jafnaði ekki að greiða sérstaklega
fyrir lögmælta þjónustu nema lög
heimili það sérstaklega.
UMBOÐSMAÐUR Alþingis telur að
Kirkjugarðar Reykjavíkurprófasts-
dæma hafi ekki haft lagaheimild til að
innheimta svokallað líkhúsgjald fyrir
geymslu á líkum í líkhúsi kirkjugarð-
anna í Fossvogi. Hefur umboðsmað-
ur því beint þeim tilmælum til
Kirkjugarða Reykjavíkurprófasts-
dæmis að þeir taki gjaldtökuna til
endurskoðunar.
Umboðsmaður hefur jafnframt
ákveðið að beina þeim tilmælum til
dóms- og kirkjumálaráðherra að
hann taki sérstaklega til athugunar
hvort ákvæði laga um kirkjugarða,
greftrun og líkbrennslu séu nægilega
skýr um hvaða þjónustu ætlast er til
að kirkjugarðar láti almenningi end-
urgjaldslaust í té.
Umboðsmaður kemst að þessum
niðurstöðum í áliti sínu frá 11. júlí sl.
en tilefnið var kvörtun einstaklings
Líkhúsgjaldið
var óheimilt
Ráðherra beðinn að athuga lög
STÆRSTA seglskip heims, rúss-
neska skipið Sedov, leggst að
Grandabakka í Reykjavíkurhöfn
föstudaginn 19. júlí. Skipið er tæpir
118 metrar á lengd og flatarmál
segla þess er ríflega fjórir fer-
kílómetrar. Sedov er fjögurra
mastra seglskip og hefur siglt
undir rússneskum fána frá árinu
1945.
Skipið þjónar nú sem skólaskip
fyrir Tækniháskólann í Murmansk
og til landsins með skipinu koma 110
kadettar ásamt 50 manna áhöfn.
Áhugasömum gefst kostur á að
skoða skipið kl. 10–22 hinn 20. júlí.
Stærsta seglskip heims
kemur í Reykjavíkurhöfn
OFSAAKSTUR mótorhjóla í
Reykjavík hefur aukist undanfarin
misseri að mati lögreglunnar sem nú
hefur gripið til sérstaks eftirlits á
Suðurlandsvegi vegna tilkynninga
um ofsaakstur bifhjólamanna. Stund-
um sjást allt að þrjú hjól saman á
gríðarlegum hraða og eru það vegfar-
endur sem látið hafa lögreglu vita
með þeim afleiðingum að ástæða
þótti til að byrja með sérstakt eftirlit.
En það er víðar en á Suðurlands-
vegi sem lögreglan hefur áhyggjur af
bifhjólamönnum og í ofanálag hefur
það færst í aukana að bifhjólamenn á
ofsahraða reyni beinlínis að stinga
lögreglu af og hlýði ekki stöðv-
unarmerkjum með bláum blikk-
ljósum.
Lögreglan hefur talsverðar
áhyggjur af þessu framferði. Stund-
um tekst bifhjólamönnum að stinga
lögreglu af en lögreglumenn meta
það hverju sinni hvort hefja skuli eft-
irför. Nýlegur myndbandsupp-
tökubúnaður í lögreglubílum hefur
hins vegar komið að góðum notum
við að ná skráningarnúmerum hjól-
anna til að gera lögreglu kleift að
hafa uppi á ökumönnunum. En
ástandið er orðið þannig að varla líð-
ur sá dagur að ekki komi upp tilvik
þar sem bifhjólamenn reyni að flýja.
Hefur lögreglan spurnir af því að ein-
hverjir bifhjólamenn reyni vísvitandi
að fela eða skyggja númeraplötur á
hjólum sínum til að torvelda lögreglu
störf sín. Í gær var bifhjólamaður
handtekinn eftir flóttatilraun á göt-
um borgarinnar og færður á lög-
reglustöð.
Lögreglan hvetur vegfarendur til
að láta vita af glæfraakstri bifhjóla og
skrá númer þeirra niður ef mögulegt
er, því oft hefur náðst til lögbrjótanna
fyrir tilstilli hins almenna borgara.
Aðgerðir
vegna ofsa-
aksturs
bifhjóla
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
Morgunblaðið/Jim Smart
EKKI skal fullyrt hvort hvalbátar Hvals hf. eru á leið
á hvalveiðar en að minnsta kosti blés einn þeirra
kröftuglega frá sér í gær þegar ljósmyndari Morgun-
blaðsins átti leið um. Ekki náðist í talsmenn Hvals en
líklegast má telja að vél bátsins hafi verið ræst vegna
viðhalds.
Bátarnir hafa nú legið við bryggju í 17 ár, eða frá
árinu 1989, og er tveimur þeirra haldið við á meðan
tíminn leikur hina tvo grátt. Óvíst er hvort þeir muni
sigla aftur í nánustu framtíð, enda hafa hvalveiðar ver-
ið bannaðar frá árinu 1986 að undanskildum vísinda-
veiðitímabilum.
Morgunblaðið/ÞÖK
Hvalbátarnir að fara á veiðar?