Morgunblaðið - 18.07.2006, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 2006 15
ERLENT
20% afsláttur af öllum vörum í dag
Velkomin í nýja
og glæsilega
verslun á
Laugavegi 82 !
Laugavegi 82-101-Reykjavík-Sími: 551 4473
Afgreiðslutími
9 - 18 virka daga
10 - 16 laugardaga
Ný og spennandi
Laugavegur 82
Sn
o
rr
ab
ra
u
t
HverfisgataHverfisgata
Laugavegur 4
Skólavörðustígur
Njálsgata
Fr
ak
ka
st
íg
u
r
Grettisgata
B
ar
ó
n
ss
tí
g
u
r
Lundúnir. AP, AFP. | Breskir lögreglu-
menn sem skutu til bana Brasilíu-
mann á lestarstöð í Lundúnum í
fyrrasumar, verða ekki sóttir til
saka, að því er saksóknarar til-
kynntu í gær. Lögreglumennirnir
skutu manninn því þeir héldu að
hann væri sjálfs-
morðsárásarmað-
ur sem bæri
sprengju á sér.
Saksóknarar
sögðu „ekki næg-
ar sannanir“ til
að sækja ein-
staka menn til
saka vegna dauða
mannsins.
Hins vegar
verður Lundúna-
lögreglan kærð í málinu fyrir að
brjóta lög um heilbrigði og öryggi.
Jean Charles de Menezes, 27 ára
rafvirki, var skotinn til bana á neð-
anjarðarlestarstöð 22. júlí í fyrra,
tveimur vikum eftir hryðjuverka-
árásirnar í borginni þar sem 52 létu
lífið og degi eftir að reynt var að
gera aðra árás. Lögregla hafði
fylgst með íbúðablokk í suðurhluta
Lundúna þar sem hún taldi að mað-
ur sem hún leitaði vegna árásanna
daginn áður, byggi. Þeir tóku
Menezes í misgripum fyrir hinn
grunaða þegar hann kom út úr
blokkinni og eltu hann á lestarstöð-
ina í Stockwell þar sem þeir skutu
hann.
Fjölskylda Menezes gagnrýndi
niðurstöðuna harkalega en hún
hafði lýst því yfir að öll ráð yrðu
skoðuð til að hægt yrði að koma
þeim sem bæru ábyrgð á dauða
hans fyrir dómstóla. „Ég er mjög
vonsvikin. Þetta er skammarlegt,“
sagði Patricia da Silva Armani,
frænka Menezes.
Ekki talið glæpsamlegt brot
Stephen O’Doherty, yfirlögfræð-
ingur hjá embætti saksóknara,
sagði ekki raunhæfar líkur á að ein-
staklingar í hópi lögreglumannanna
yrðu fundnir sekir um glæpsamlegt
athæfi. „Þrátt fyrir að nokkrir ein-
staklingar hafi gert mistök við
skipulagningu og í samskiptum og
afleiðingin af því orðið hinn sorglegi
dauði Menezes, tel ég ekki að neinn
hafi gerst sekur um glæpsamlegt
brot,“ sagði hann.
„Lögreglumennirnir tveir sem
báru ábyrgð á banaskotunum skutu
því þeir héldu að Menezes væri
sjálfsmorðsárásarmaður og ef þeir
skytu hann ekki myndi hann
sprengja upp lestina og drepa fjölda
fólks.“
Ekki sóttir
til saka fyrir
dráp á Bras-
ilíumanni
Jean Charles
de Menezes
Grenoble. AFP. | 45 ára gömul frönsk
göngukona hékk á hvolfi í tvo og
hálfan klukkutíma með annan fót-
inn flæktan í lítilli rót eftir að hafa
fallið fram af hengiflugi í Ölpunum.
Henni var síðan bjargað en björg-
unarsveitarmenn áttu erfitt með að
komast að henni.
Þyrlu var lent nálægt staðnum
þar sem konan hékk í rótinni en
hún var minna en fjögurra senti-
metra löng.
Konan var í göngu á Bauges-
svæðinu á sunnudagseftirmiðdegi.
„Við gátum ekki farið með þyrl-
una að klettinum, við vorum hrædd
um að vindurinn af þyrluspöðunum
myndi feykja henni og hún losna.
Við náðum loks að bjarga henni
með því að koma ólum á hana,“
sagði Pierre Pelceneur í björg-
unarsveit lögreglunnar. Hún var
flutt á sjúkrahús en að því frátöldu
að henni var mjög brugðið virtist
hún ekki hafa slasast alvarlega.
Hékk í rót
í tvo tíma
♦♦♦