Morgunblaðið - 18.07.2006, Síða 16
Útimálning
Viðarvörn
Lakkmálning
Þakmálning
Gólfmálning
Gluggamálning
Innimálning Gljástig 3, 7, 20
Verð frá kr. 298 pr.ltr.
Gæða málning á frábæru verði
Sætúni 4 ⁄ Sími 517 1500
ÍSLANDS MÁLNING
Allar Teknos vörur eru framleiddar skv. ISO 9001 gæðastaðli.
40%
Sérhönnuð málning fyrir íslenskar aðstæður.
Afsláttur af málningarvörum
SUMARTILBOÐ
Frítt blómaker fylgir
ef þú verslar Woodex
málningu eða
viðarvörn fyrir
10.000.- kr.
Húsavík | Ýmislegt forvitnilegt
er að sjá og finna í gamla bíla-
og tækjahaugnum við sam-
gönguminjasafnið á Ystafelli í
Köldukinn. Nú nýverið þegar
fréttaritari Morgunblaðsins var
þar á ferð hitti hann fyrir
Hjörvar Gunnarsson, 10 ára
gutta frá Húsavík, sem stóðst
ekki mátið með að setjast undir
stýri gamallar dráttarvélar af
FAHR-gerð. En þrátt fyrir að
vera allur af vilja gerður gat
Hjörvar ekki gangsett traktor-
inn sem greinilegt var að hafði
ekki verið hreyfður í ansi langan
tíma. Hann lét sér því nægja að
sitja fyrir á myndinni.
Morgunblaðið/Eggert
Prufukeyrði FAHR-dráttarvél
Undir
stýri
Akureyri | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri sími 569-1100, Skapti Hallgrímsson,
skapti@mbl.is, 669-1114. Vesturland Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og
Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir,
frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Þórshafnarhátíðin Kátir dagar er að baki
og fóru hátíðahöld vel og friðsamlega
fram. Veður var þokkalega gott, þó ekki
kæmi sú „bongóblíða“ sem veðurfræð-
ingar höfðu spáð. Dagskrá hátíðarinnar
var nokkuð hefðbundin; kassabílarallí, úti-
markaður, dorgveiðikeppni og krafta-
keppni á Skálum á Langanesi.
Dansleikir helgarinnar voru vel sóttir
og gömul fermingarsystkini komu saman
til að rifja upp minningar og gleðjast sam-
an. Kátir dagar eru vinsæll tími fyrir
hvers konar samfundi og brottfluttir Þórs-
hafnarbúar velja gjarnan þann tíma til að
heimsækja fornar slóðir svo fjölmennt var
í plássinu um helgina.
Hundarnir slógu í gegn | Það sem e.t.v.
kom fólki mest á óvart í skemmtidagskrá
helgarinnar var dúettinn Hundar í óskil-
um, sem fór á kostum í félagsheimilinu
Þórsveri á föstudagskvöldið. Þeir gerðu
slíka lukku að fagnaðarlátum fólks ætlaði
seint að linna. Sviðsframkoma þeirra var
óþvinguð, húmorinn hárfínn og tónlistin
stórgóð. Tónleikagestir fóru heim alsælir
– eða sumir beint á ball á Eyrina – og með
strengi í maganum af hlátri.
Á miðjum tónleikum var gert hlé og þá
tilkynnti Björn Ingimarsson sveitarstjóri
hver hefði unnið í samkeppni um nafn á
hið nýja sameinaða sveitarfélag; Þórs-
hafnar- og Skeggjastaðahrepp, sem nú
hefur hlotið nafnið Langanesbyggð.
Verðlaunin hlaut Bakkfirðingurinn
Hrefna Högnadóttir; grip eftir gullsmið-
inn Sigmar Maríusson. Það er líkan af
sveitarfélaginu, greipt í silfur, sem situr á
litlum blágrýtisstöpli. Á fæti gripsins er á
lítilli silfurplötu gerð grein fyrir tilurð
gripsins og hver hlaut hann.
Að baki svona hátíð liggur alltaf mikil
vinna og skipulagning og þeir sem þar
standa í eldlínunni hafa unnið mikið og
gott verk. Alltaf getur eitthvað óvænt
komið upp á sem ekki hefur verið séð fyrir
en aðalatriðið er að skemmta sér og njóta
þess sem vel er gert en almennur áhugi er
fyrir því að Kátir dagar verði árviss við-
burður á Þórshöfn.
Úr
bæjarlífinu
ÞÓRSHÖFN
LÍNEY SIGURÐARDÓTTIR
FRÉTTARITARI
Hellissandur | Þótt veðrið léki ekki við
Sandarana um helgina tókst Sand-
aragleðin með ágætum. Vinir og burt-
fluttir Sandarar komu í hópum og
skemmtu sér með heimafólki en boðið
var upp á fjölbreytt atriði. Við setningu
hátíðarinnar var um leið vígt upplýs-
inga- og söguskilti við Keflavíkurvörina
á Hellissandi. Það var kefsarinn Guð-
bjartur Þorvarðarson sem afhjúpaði
skiltið en hann sótti sjóinn úr vörinni hér
áður fyrr.
Um miðjan dag á laugardag var at-
höfn í trjágarðinum Tröð og gróðursetti
Einar Kristinn Guðfinnsson sjávar-
útvegsráðherra þar trjáplöntu og opnaði
svæðið sem Opinn skóg, ásamt því að
sunginn var fjöldasöngur.
Ljósmynd/Hrefna Magnúsdóttir
Sandarar skemmtu sér
Kvæðamanna-félagið Iðunnkvað við vígslu
kirkjunnar í Úthlíð. Sig-
urður Sigurðarson orti:
Björn í Úthlíð byggja réð
bjartan sal og víðan
sem auðgar líf og gleður geð
og glæðir trúna síðan.
Tvö eru hérna túngarð við
tákn um guðstrú hlýja
hofgarður úr heiðnum sið
og háreist kirkjan nýja.
Bjarni Valtýr Guð-
jónsson orti:
Göfugur var goðinn sá
Geir sem bjó hér forðum
ráð af honum fýsti að fá
flesta í merkum orðum.
Bjargey Arnórsdóttir:
Sagnir enn um goðann Geir
geymast Árnesingum;
í Biskupstungum búa þeir
sem bindast kappa slyngum.
Loks Jói í Stapa:
Áheyrn drottins víst er væn
til varnar syndapínum.
Hér má gera bestu bæn
með bögu í fjórum línum.
Glæst er bygging, gjörv og traust
af góðum vilja sprottin;
hátt því vil ég hefja raust
í húsi þínu drottinn.
Af kirkjuvígslu
pebl@mbl.is
♦♦♦
Hornafjörður | Fyrir 14 árum var byrjað
að bora eftir heitu vatni í landi Hoffells í
Nesjum og núna eru menn fullir bjartsýni
á að þessi leit beri góðan árangur, segir á
vef sveitarfélagsins Hornafjarðar. Þar er
haft eftir Þrúðmar Sigurðssyni bónda í
Miðfelli, að hann hafi alltaf haft mikla trú á
að heitt vatn fyndist þar og nóg væri af því.
Nú er búið er að bora niður í 504 metra
dýpi þar sem fengist hefur um 60 gráðu
heitt vatn sem gefur um 3 sek.lítra af 54°
heitu vatni. Núna rennur upp úr þrem hol-
um og eru hitastigin 30 gráður, 28 gráður
og vænlegasta holan með 54 gráðu heitt
vatn. Reiknað er með að halda áfram borun
í haust og bora niður á 8–900 metra dýpi.
Þrúðmar ætlar að koma heitavatnslögn
heim að húsi sínu í haust og nýta vatnið til
húshitunar en hann er nú með rafmagns-
hitatúbu á vatnskerfinu.
Hefur hann í hyggju að tengja heita
vatnið inn á vatnshitakerfið sem fyrir er í
húsinu en ekki er mikill kostnaður því sam-
fara. Opnar það ýmsa möguleika, s.s. að
geta nýtt afrennslið frá húsinu. Slíkt verð-
ur mikil breyting frá því sem nú er.
Morgunblaðið/Sigurður Mar
Heitt vatn í
landi Hoffells
Hvolsvöllur | Ragnar Sigrúnarson hefur
opnað sýningu á verkum sínum í galleríi
Sögusetursins á Hvolsvelli. Hann er fædd-
ur í Reykjavík 30. desember 1980 og lagði
stund á ljósmyndun við „The National Col-
lege of Photography“ í Pretoriu í S-Afríku
og lauk þar námi í nóvember 2005. Þetta er
fyrsta einkasýning hans hér á landi.
Verkin á sýningunni eru öll ljósmyndir.
Þar er um að ræða landslags- og umhverf-
ismyndir frá Íslandi og Grænlandi, unnar á
stafrænan máta en um leið í anda fyrstu
áratuga ljósmyndunar. Sýningin stendur
til 10. ágúst næstkomandi og er opin frá kl.
9 til 18 virka daga
Ragnar sýnir
á Sögusetri
Fáðu fréttirnar
sendar
í símann þinn