Morgunblaðið - 18.07.2006, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 18.07.2006, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 2006 17 MINNSTAÐUR LANDIÐ Norðurland vestra | Einkahluta- félag um bættar vegsamgöngur, Leið ehf., hefur kært ákvörðun Skipulagsstofnunar þess efnis að framkvæmdir við hringveg milli Brúar og Staðarskála í Hrútafirði væru ekki líklegar til að hafa í för með sér talsverð umhverfisáhrif og skyldu því ekki háðar mati á um- hverfisáhrifum. Vegagerðin hefur fyrirhugað að endurgera hringveg í Hrútafirði á 7,6 km kafla sem þverar Hrútafjörðinn á nýjum stað og endar 1 km norðan Staðarskála. Hluthafar í Leið ehf. vilja að fjallað verði um möguleika á annarri legu vegarins en fram kemur í áætlun Vegagerð- arinnar. Telja þeir að taka verði til skoðunar þann möguleika að þvera fjörðinn mun norðar, á móts við Reyki og yfir á Kjörseyri á Strönd- um. Við það mundi leiðin yfir fjörð- inn milli Vestfjarða og Norðurlands vestra styttast um 30 km í stað 7 km, eins og hugmyndir Vegagerðarinnar gera ráð fyrir. Hluthafar Leiðar ehf. benda á að fjörðurinn sé aðeins 1.300 metra breiður og tiltölulega grunnur auk þess sem langt rif gangi út í fjörðinn á þeim stað sem mælt er með. Línuhönnun vann grófa kostnað- aráætlun fyrir Leið ehf. sem gerir ráð fyrir að kostnaðurinn við framkvæmdina gæti numið allt að 1.300 milljónum króna og efnis- magnið yrði nær tífalt meira en í fyr- irhuguðum aðgerðum Vegagerðar- innar. Mikill ávinningur Þrátt fyrir að vera mun kostnað- arsamari er það mat hluthafa Leiðar ehf. að framkvæmdin geti haft já- kvæð áhrif á samgöngur og skilað sér aftur til samfélagsins. Er bent á að ef hugmyndin yrði að veruleika yrði um mestu styttingu við þverun fjarðar á Íslandi að ræða að Hval- fjarðargöngunum undanskildum. Þar að auki hefðu framkvæmdirnar í för með sér að umferð væri hægt að beina um Laxárdalsheiði í stað Holtavörðuheiðarinnar, sem hefur reynst steinn í götu margra vegfar- enda. Í kæru sinni vekja hluthafar í Leið ehf. jafnframt athygli á því að framkvæmdin sé hvorki í samræmi við aðalskipulag Húnaþings vestra 2002–2014 né aðalskipulag Bæjar- hrepps 1995–2015 og kalli því á breytingar á þeim. Leið ehf. var stofnað árið 2001 og beitir félagið sér fyrir framþróun í samgöngum á landi m.a. með því að annast fjármögnun og eftir atvikum gerð og rekstur vega og annarra samgöngumannvirkja. Rúmlega 30 aðilar eiga hlut í félaginu og meðal þeirra má nefna Ásdísi Leifsdóttur, sveitarstjóra í Hólmavíkurhreppi, Harald Líndal Haraldsson, sveitar- stjóra í Dalabyggð og Jónas Guð- mundsson, sýslumann á Bolung- arvík. Hrúta- fjörður verði þveraður norðar . 0! # !"! 1 23  23 ! 4 .5 6!)!7! ' ! "  !!          Siglufjörður | Þeir sem leggja leið sína til Siglufjarðar reka eflaust augun í húsvegg sem snýr að helstu umferðargötu bæjarins, Túngöt- unni. Þannig er mál með vexti að veggurinn hefur allur verið klæddur með Morgunblaðinu. Fríða Gylfa- dóttir, handverkskona á Siglufirði, hefur fundið gömlum upplögum blaðsins þennan nýstárlega farveg. „Ég byrjaði fyrir nokkrum árum á því að vinna með Morgunblaðið í litlum myndum, stækkaði svo smám saman það sem ég var að vinna með og var á endanum farin að klæða húsgögn í dagblöð. Svo þegar ég flutti vinnustofuna hingað, klæddi ég húsið sjálft í Morgunblaðið. Þetta var sjálfstætt framhald af því sem ég hafði verið að gera áður. Hvað kem- ur eftir það, veit enginn,“ segir Fríða. Morgunblaðið segist Fríða hafa valið til verksins vegna þess að blað- ið státi af myndrænasta letrinu í heiti blaðsins auk þess sem letrið sé oftast svart-hvítt á síðum Morg- unblaðsins. Fríða hefur ásamt manni sínum og syni búið við Túngötuna í nokkur ár og þegar húsnæðið handan göt- unnar losnaði í lok síðasta árs réðust þau hjónin í að kaupa það. Hún hef- ur verið í óða önn að koma sér fyrir á vinnustofunni og opnaði hana form- lega sama dag og Þjóðlagasetrið var opnað hinn níunda júlí síðastliðinn. „Þetta verður vinnustofan mín en allt verður til sölu og fólki er vel- komið að kíkja inn og skoða, en ef það kemst ekki norður til okkar þá verður fljótlega opnuð vefsíðan www.frida.is, þar sem gefur að líta allt það sem ég er að gera,“ segir Fríða. Á vinnustofu Fríðu kennir ýmissa grasa en hún málar á tré og léreft, lampaskerma, húsgögn og hurðir svo eitthvað sé nefnt. Á myndinni gefur að líta Fríði Gylfadóttur í anddyri laglega skreyttrar vinnustofunnar við Tún- götu. Klætt með Mogganum Morgunblaðið/Örn Þórarinsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.