Morgunblaðið - 18.07.2006, Side 19
Við hjólum hringveginn ogætlum að vera með smáuppákomur á leiðinni,“segir Gísli Hvanndal
Ólafsson. „Stefnan er að stoppa í öll-
um stærri kaupstöðum, spila á gítar,
syngja og lesa ljóð,“ bætir Dag-
bjartur Ingvarsson við.
Tilgangur ferðarinnar hjá strák-
unum er að kynna SPES-samtökin
en þau byggja upp og reka þorp fyr-
ir munaðarlaus börn í þróunarlönd-
unum og er fyrsta þorp þeirra nú að
rísa í borginni Lóme í Afríkuríkinu
Tógó. Samtökin leggja áherslu á að
SPES sé heimili en ekki stofnun og
börnin eiga að haga lífi sínu eins
eðlilega og kostur er. „SPES-
samtökin voru stofnuð í Frakklandi
árið 2000 og Íslandsdeildin var
stofnuð í kjölfarið. Njörður P.
Njarðvík er einn af þremur frum-
kvöðlum SPES og er nú formaður
fulltrúaráðs alheimssamtakanna.
Við erum hrifnir af þessum sam-
tökum, þetta er hugsjónafélag sem
hefur að kjörorði; Sá sem bjargar
einu barni bjargar mannkyninu. Allt
stjórnarstarf er unnið í sjálfboða-
vinnu, skrifstofu- og umsýslukostn-
aður er enginn og beinn kostnaður
er innan við eitt prósent. Þeir sem
styrkja SPES vita hvert peningur
þeirra fer, á síðu samtakanna má sjá
sundurliðuð útgjöld fyrir hvert barn.
Skilaboðin frá yfirvöldum í Tógó eru
að ef samtökin hefðu ekki byggt
þorpið og tekið þessi börn til sín þá
væru þau dáin í dag,“ segir Gísli.
Þurfum að axla ábyrgð
Guðjón Heiðar Valgarðsson, þriðji
meðlimurinn, bætir við að þeir séu
líka að vekja athygli á því að svona
þurfi þetta ekki að vera. „Við þyrft-
um ekki að hjóla hringveginn til að
vekja athygli á þessu ef misskipt-
ingin í heiminum væri ekki svona
mikil. Við erum líka að vekja athygli
á því að það geta allir lagt sitt af
mörkum til að bæta heiminn. Við er-
um t.d. ekki íþróttamenn en hjólum
samt hringveginn því við getum
það.“
Þótt strákarnir fari í þessa ferð til
að vekja athygli á SPES-samtök-
unum þá ætla þeir líka að nota ferð-
ina til að mótmæla stóriðjustefnu
ríkisstjórnarinnar, auk þess sem
þeir mótmæla stríði í heiminum, of-
beldi og vopnaframleiðslu.
Ferðin hefst á Ingólfstorgi í
Reykjavík í dag og áætla þeir heim-
komu 7. ágúst. „Við byrjum á að fara
austur, gefum okkur tíu daga til
Kárahnjúka þar sem við stefnum að
því að spila við mótmælin 29. júlí,“
segir Gísli.
Strákarnir eru allir úr Seljahverf-
inu og voru saman í Fjölbrauta-
skólanum í Breiðholti. Guðjón og
Dagbjartur skipa saman hljómsveit-
ina Palindrome og verða þeir með
kassagítara, munnhörpu og tölvu á
hringleiðinni til að flytja tónlist. Gísli
er ljóðskáld og mun flytja ljóð fyrir
áheyrendur. Ekkert mun kosta inn á
uppákomur strákanna en á staðnum
verður baukur sem gestir geta
stungið pening í og rennur upp-
hæðin sem safnast öll óskipt til
SPES-samtakanna. Auk þess getur
fólk lagt pening inn á reikning
SPES. Gísli segir að markmiðið sé
ekki endilega að safna sem mestum
pening heldur líka að vekja athygli á
samtökunum og safna fleiri styrkt-
arforeldrum.
Hringferðin er áramótaheit
Hugmyndin að hringferðinni
kviknaði hjá þeim vinunum rétt eftir
seinustu áramót og varð það síðbúið
áramótaheit hjá þeim að fara hana í
sumar. Gísli hefur séð um skipulagn-
ingu ferðarinnar og jafnvel dregið
Guðjón og Dagbjart í líkamsrækt og
út að hjóla nokkru sinnum með von
um að ná þeim í betra form. En þeg-
ar ferðin var ákveðin var Gísli sá eini
af þeim sem átti hjól. „Við hjólum
ekki mikið dagsdaglega og því er
þetta mikil áskorun fyrir okkur,“
segir Guðjón en hann og Dagbjartur
voru svo heppnir að útivistarbúðin
GÁP skaffaði þeim Mongoose-
fjallahjól til ferðarinnar.
Aðspurðir hvort þeir kvíði ekki
fyrir að hjóla í harðri náttúru Ís-
lands svara þeir neitandi. „Við kvíð-
um mest fyrir umferðinni, bíl-
stjórum sem taka ekki tillit til
hjólreiðamanna í vegkantinum,“
segir Dagbjartur.
Yfirskrift hjólatúrsins er SPES-
björgunarhringur og er merki hans
Íslandskort með björgunarhring í
miðjunni. „Við getum svo vonandi
farið einhvern tímann til Tógó og séð
afrakstur þess góða starfs sem sam-
tökin vinna í SPES-barnaþorpinu
þar,“ segir Gísli og drengirnir brosa
hringinn.
Morgunblaðið/Kristinn
Dagbjartur, Gísli og Guðjón horfa brosandi fram veginn á Ingólfstorgi áð-
ur en lagt er af stað í hjóla- og tónleikaferð hringinn í kringum landið.
Hjóla hringveginn
til styrktar börnum
Í dag leggja þrír ungir menn af stað í hjóla- og tón-
leikaferð hringinn í kringum landið til að vekja athygli
á SPES-samtökunum. Ingveldur Geirsdóttir hitti
hjólagarpana Gísla, Guðjón og Dagbjart á kaffihúsi til
að ræða tilgang ferðarinnar.
ingveldur@mbl.is
Heimasíða SPES-samtakanna er
www.spes.is.
Hægt er að leggja pening inn á
reikning SPES: 1151-26-2200 og
kennitala: 471100-2930.
Góð og fagleg leiðsögn er ein afforsendum þess að ferða-menn njóti heimsóknar sinn-
ar til Íslands og að hún verði þeim
minnisstæð,“ segir Lára Hanna Ein-
arsdóttir, sem er eigandi, umsjón-
armaður og ábyrgðarmaður nýrrar
heimasíðu þar sem sjálfstætt starf-
andi leiðsögumenn eru að kynna
þjónustu sína.
Um þrjátíu leiðsögumenn eru nú
skráðir á síðuna og eru þar að kynna
þjónustu sína, en eflaust eiga mun
fleiri eftir að bætast í hópinn, að
sögn Láru Hönnu, sem sjálf ferðast
um landið með ferðamenn á eigin bíl.
Veffang nýju síðunnar, sem ennþá
er eingöngu á ensku, er www.icel-
andguide.is, en til stendur að bæta
við leitarmöguleikum, fleiri tungu-
málum og öðru, sem kann að auð-
velda notkun síðunnar og útbreiðslu
hennar.
Vilja efla fagmennsku
Leiðsögumenn Íslands eru hópur
faglærðra leiðsögumanna, sem allir
hafa útskrifast frá Leiðsöguskóla Ís-
lands og hafa því réttindi sem leið-
sögumenn ferðamanna. Markmið
hópsins er að efla fagmennsku leið-
sögumanna, auka skilning á mik-
ilvægi þeirra í íslenskri ferðaþjón-
ustu og virðingu meðal ráðamanna
og aðila ferðaþjónustunnar.
„Leiðsögumenn eru mjög van-
metnir sem áhrifavaldar í ferðaþjón-
ustunni. Stað-
reyndin er sú að
þeir eru oftar en
ekki ráðgjafar
ferðamanna,
álitsgjafar og al-
mennir leiðbein-
endur. Leið-
sögumenn benda
á kaffihús, veit-
ingastaði, versl-
anir, sýningar,
söfn og allt mögulegt annað sem
ferðamenn spyrja um á meðan á
veru þeirra hér stendur. Áhrif leið-
sögumanna á erlenda ferðamenn ná
því langt út fyrir leiðsögnina eina
saman. Það er því von okkar að gott
samstarf takist með leiðsögumönn-
um Iceland Guide og öllum þeim,
sem standa að eða koma á einhvern
hátt að ferðaþjónustu á Íslandi,“
segir Lára Hanna og bætir við að ef
koma þarf tilboðum, skilaboðum eða
upplýsingum til hópsins eða ef ein-
hver vill panta sér leiðsögumann
megi senda tölvupóst á
icelandguide@icelandquide.is. Það
sama á við ef fyrirtæki í ferðaþjón-
ustu eða aðrir óska eftir að skiptast
á slóðum við Iceland Guide, falast
eftir meðmælum eða auglýsingum á
vefsíðu IG.
„Hugsunin er sú að leiðsögumenn
skrá sig á heimasíðu Iceland Guide
sem einstaklingar á eigin ábyrgð.
Síðan er hinsvegar ekki ætluð sem
atvinnumiðlun að öðru leyti en því að
þar hafa faglærðir leiðsögumenn
tækifæri til að kynna sig og sína
þjónustu. Kaupendur þjónustunnar
hafa síðan samband beint við við-
komandi leiðsögumann. Iceland
Guide er ekki formlegur félags-
skapur og lýtur því ekki reglum eða
lögum formlegra félaga þótt al-
mennt sé talað um „félaga“ í Iceland
Guide. Hinsvegar eru flestir félagar
Iceland Guide í fagdeild Félags leið-
sögumanna og því er hér um hreina
viðbót að ræða,“ segir Lára.
FERÐALÖG | Íslenskir leiðsögumenn kynna sig á glænýjum vef Iceland Guide
Leiðsögumenn eru áhrifavaldar
Leiðsögumenn eru oftar en ekki ráðgjafar og álitsgjafar ferðamanna á leið þeirra um landið.
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@m bl.is
TENGLAR
.....................................................
www.icelandguide.is
Lára Hanna
Einarsdóttir
AÐ stelast til þess að leggja sig
smástund á daginn getur bætt ým-
islegt. Lúrar eru ekki bara fyrir
smábörn heldur gera líka mikið
gagn fyrir fullorðna segir á
www.msn.com. Rannsóknir sýna að
fullorðnir sem leggja sig einhvern
tíma milli kl.
14 og 16 á
daginn standa
sig betur á
prófi og eiga
samt ekki í
vandræðum
með að sofna
á kvöldin.
NASA fann
út að herflugmenn og geimfarar,
sem lögðu sig í 40 mínútur seinni-
part dags, juku árvekni um 100%
og afköst um 34%. Nýleg rannsókn
hjá Harvard-háskóla sýnir að há-
skólastúdentar sem leggja sig á
milli verkefna standa sig betur en
þeir sem leggja sig ekki.
En það skiptir máli hvernig og
hvenær lúrinn er tekinn. Lykil-
atriðið er að leggja sig snemma og í
stuttan tíma. Helst þegar dagsljós
er enn og a.m.k. fimm tímum áður
en stefnt er í rúmið um kvöldið, ein-
hvern tíma á milli kl. 14 og 16. Ef
lúrinn er tekinn seinna mun dægur-
sveiflan koma fram og líklega gera
þig ruglaða/n í ríminu þegar þú
vaknar og koma í veg fyrir að þú
sofnir á þínum venjulega háttatíma.
Lúrarnir eiga líka að vera styttri en
klukkutími, 20 til 30 mínútur er
nægur tími fyrir flest fólk.
HEILSA
Góður lúr
gerir gagn
júlí
Daglegtlíf
HJÁLPARSTARF | Björgunarhringur fyrir SPES-samtökin