Morgunblaðið - 18.07.2006, Qupperneq 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Eldklár hugmynd er lykillinn að lang-
þráðri stöðuhækkun. Ef þú trúir af öllu
hjarta á það sem þú hefur fram að færa,
er þetta borðleggjandi. Einhver heldur
að hann sé ástfanginn af einhverjum sem
hann ætti ekki að elska.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Vinir nautsins álíta það fært um hvað
sem er og því meira sem það trúir á sjálft
sig, því sannara verður álit þeirra. Fjár-
festu. Eitt af því sem þú fjárfestir í verð-
ur að veruleika.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Ef þú reynir of mikið eru minni líkur á
því að þú náir árangri. Það merkir að þú
átt að slaka á. Einhleypir takið eftir, ein-
staklega heillandi manneskja laðar. Hún
virðist svo mikið á sömu bylgjulengd og
þú að það hvarflar að þér hvort hún hafi
stundað njósnir.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Ef einhver hefur ekki komist mjög langt
áleiðis með verkefni eða í þroska skaltu
samt ekki telja eftir þér að hrósa. Vertu
klappstýra. Bogmaður eða ljón passa ein-
staklega vel í félagslíf þitt núna.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Tilfinningagreind ljónsins kemur að góð-
um notum núna. Leitaðu að kjarnanum,
ekki síst í málum sem viðkoma fjölskyld-
unni. Haltu ró þinni og talaðu þig í gegn-
um hlutina. Boðskiptin fara forgörðum ef
einhver byrjar að hækka raustina.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Táningar eða fólk sem hagar sér eins og
unglingar vill leika leiki og undir þér
komið að svipta hulunni af blekking-
unum. Til þess er leikurinn gerður. Þetta
er ein leið til þess að sýna væntumþykju
sína. Sendu einhverjum sem þú þekkir
ekki bréf, það verður þér til happs.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Hægt er að finna skapandi lausnir sem
allir eru sammála með því að tala saman
af ró og yfirvegun. Fólk í merki krabbans
og bogmannsins blæs þér frumlegustu
lausnirnar í brjóst.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Settu þér skýr markmið á starfsferlinum.
Bara það eitt leiðir til skjótari árangurs
en nokkuð annað. Um leið og þú veist fyr-
ir víst hvað þú vilt fá út úr vinnunni færðu
það hratt og sársaukalaust.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður gæti beðið yfirmann sinn eða
samstarfsfélaga að bera sig á annan hátt
til þess að auðvelda honum vinnu sína. Ef
þér líkar vinnan ekki enn eftir þær íviln-
anir er kominn tími til þess að fara að líta
í kringum sig.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Heppnin verður með steingeitinni í dag.
Þú nærð ótrúlegum árangri með venju-
legum aðferðum. Þeir sem vinna fyrir þig
hafa mikið að kenna þér. Ljón og hrútar
luma líka á úrræðum sem þú getur nýtt
þér.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Ef þér finnst að þú og maki þinn séuð að
renna saman í eina stóra persónu er
hugsanlegt að þú hafir gefið viðkomandi
of greiðan aðgang að þínum innri veru-
leika. Haltu hluta af sjálfum þér fyrir þig
til þess að viðhalda dulúðinni.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Ástardraumar fela í sér skilaboð.
Kannski laðastu að manneskju sem þú
segist ekki laðast að þrátt fyrir allt. Ein-
hver sem flæktur er í áhættusamt ást-
arsamband uppgötvar sjálfsbjarg-
arviðleitni sína í kvöld.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
Í goðsögunum var gyðjan
Venus, sem plánetan er
nefnd eftir, sköpuð úr sjáv-
arlöðri. Venus er á leið í vatnsmerkið
krabba í dag og endurskapar um leið goð-
sögnina. Krabbinn lofsyngur hennar
kvenlega þokka, aðdráttaraflið og hina
stöðugu þörf fyrir aðdáun. Karlar ættu að
hafa þetta í huga á meðan Venus er á
ferðalagi sínu í Krabbanum.
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 fikta við gald-
ur, 4 nötraði, 7 halda til
haga, 8 fuglar, 9 skolla,
11 nákomin, 13 geð-
vonska, 14 spilið, 15 fjöl,
17 auðlind, 20 sarg, 22
bogin, 23 slitið, 24 bjóða,
25 ræktaða landið.
Lóðrétt | 1 undirokun, 2
aki, 3 mjög, 4 viðlag, 5
sálir, 6 birgðir, 10 baun-
ir, 12 miskunn, 13 bók-
stafur, 15 skinnpoka, 16
rótarskapur, 18 heims-
hlutinn, 19 hægt, 20
elska, 21 syrgi.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 fannfergi, 8 færni, 9 digra, 10 tíu, 11 síðla, 13
reiða, 15 volks, 18 flesk, 21 kol, 22 messa, 23 ærleg, 24
gustmikil.
Lóðrétt: 2 afræð, 3 neita, 4 eldur, 5 gegni, 6 ofns, 7 fata,
12 lok, 14 ell, 15 voma, 16 lustu, 17 skatt, 18 flæmi, 19
efldi, 20 kugg.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Tónlist
Kaffi Hljómalind | Síbylur, skapandi sum-
arhópur hjá Hinu húsinu, leikur stef úr út-
varpi, sjónvarpi og kvikmyndum á tónleikum
með afrakstri sumarsins 20. júlí kl. 20. Að-
gangur er ókeypis.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Á Sum-
artónleikum kl. 20.30 í kvöld flytja þeir Þor-
björn Björnsson barítón og þýski píanóleik-
arinn Jan Czajkowski söngva og aríur.
Myndlist
101 gallery | Steinunn Þórarinsdóttir sýnir
til 22. júlí. Opið fim., föst., laug. kl. 14–17.
Aurum | Helena Ragnarsdóttir sýnir ónefnt
akrílverk unnið á pappír. Til 21. júlí.
Café Karólína | Sýningin „Hlynur sterkur
Hlynur“ (portrett af Hlyni Hallssyni mynd-
listarmanni) er til 4. ágúst.
Café Mílanó | Reynir Þorgrímsson – Rey-
nomatic-myndir, nærmyndir af náttúrunni,
einstakar ljósmyndir unnar á striga.
DaLí gallerí | Joris Rademaker sýnir rým-
isverk til 26. ágúst eða fram yfir menning-
arvöku. Opið virka daga og laug.kl. 14–18 .
Gallerí BOX | Þórarinn Blöndal, Finnur Arn-
ar og Jón Garðar með sýninguna „Far-
angur“. Til 27. júlí.
Gallerí Humar eða frægð! | Sýning um diskó
og pönk í samstarfi við Árbæjarsafn. Myndir
og munir frá árunum 1975–1985. Til 31. júlí.
Gallerí Úlfur | Eiríkur Árni Sigtryggsson
sýnir í júlí. Opið kl. 14–18 alla daga.
Gel Gallerí | Ljósmyndasýningin Lífsýni. Þar
sýnir Björn M. Sigurjónsson 10 ljósmyndir af
lífsýnum. Til 20. júlí.
Hafnarborg | Yfirskrift sýningarinnar „hin
blíðu hraun“ er frá Jóhannesi Kjarval. Lista-
mennirnir tólf sem að sýningunni koma hafa
allir sýnt víða og lagt drjúgan skerf til lista-
lífsins undanfarin ár. Til 28. ágúst.
Hallgrímskirkja | Sumarsýning Listvina-
félags Hallgrímskirkju. Ásgerður Búadóttir
sýnir í forkirkju. Til 26. ágúst.
Handverk og hönnun | Á sumarsýningu er
til sýnis hefðbundinn ísl. listiðnaður og nú-
tíma hönnun úr fjölbreyttu hráefni eftir 37
aðila. Til 27. ágúst. Aðgangur er ókeypis.
Hrafnista, Hafnarfirði | Ósk Guðmunds-
dóttir sýnir í Menningarsal til 15. ágúst.
Húsið á Eyrarbakka | Sýningin Einfarar í
borðstofu Hússins. Á sýningunni er einstakt
úrval næfistaverka. Til 31. júlí.
Jónas Viðar Gallerí | Snorri Ásmundsson
sýnir til 30. júlí.
Kaffi Kjós | Ólafur Jónsson, (iló) Berjalandi,
Kjós, með málverkasýningu. Opið í sumar,
alla daga kl. 12–20.
Karólína Restaurant | Joris Rademaker
sýnir ný verk Mjúkar línur/ Smooth lines.
Kirkjuhvoll Akranesi | Listsýning á verkum
eftir 12 nýútskrifaða nema frá Listaháskóla
Íslands. Listasetrið er opið alla daga nema
mánudaga frá kl. 15–18. Til 13. ágúst.
Listasafn ASÍ | Daði Guðbjörnsson, Eiríkur
Smith, Hafsteinn Austmann og Kristín Þor-
kelsdóttir sýna nýjar vatnslitamyndir. Einnig
eru sýndar vatnslitamyndir eftir Svavar
Guðnason í eigu Listasafns ASÍ. Opið 13–17.
Aðgangur ókeypis. Til 13. ágúst.
Listasafn Einars Jónssonar | Opið daglega
nema mánudaga kl. 14–17. Höggmyndagarð-
urinn við Freyjugötu er alltaf opinn.
Listasafnið á Akureyri | Yfirlitssýning Lo-
uisu Matthíasdóttir til 20. ágúst.
Listasafn Íslands | Sýning á íslenskri lands-
lagslist frá upphafi 20. aldar og túlkun þjóð-
sagna. Verk úr safneign og Safni Ásgríms
Jónssonar. Sýning á íslenskri landslagslist
frá upphafi 20. aldar og túlkun þjóðsagna.
Leiðsögn á ensku þriðjudaga og föstudaga
kl. 12.10 í júlí. Kaffitár í kaffistofu. Ókeypis
aðgangur. Opið daglega kl. 11–17, lokað
mánudaga.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Yfirlits-
sýning á verkum Guðmundar Einarssonar
frá Miðdal. Í samvinnu við Náttúru-
fræðistofu Kópavogs. Til 30. júlí.
Kjarval – Kraftur heillar þjóðar. Verk í eigu
Landsbanka Íslands. Í tilefni af 100 ára af-
mæli bankans. Til 30. júlí.
Listasafn Reykjanesbæjar | „Tíminn tvinn-
aður“. Alþjóðlegi listhópurinn Distill sýnir
verk sem spannar sviðið frá tvívíðum hlut-
um í skúlptúra og innsetningar. Til 31. júlí.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Sýning á úrvali verka úr safneign Ásmund-
arsafns, sem sýnir með hvaða hætti lista-
maðurinn notaði mismunandi efni – tré, leir,
gifs, stein, brons og aðra málma.Til 31. des.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Sýning
á listaverkum sem voru valin vegna úthlut-
unar listaverka– verðlaunanna Carnegie Art
Award árið 2006. Til 20. ágúst. Erró – Graf-
ík. Myndirnar eru frá ýmsum tímabilum í list
Errós þær nýjustu frá sl. ári. Til 31. des.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Sýning á verkum úr eigu safnsins þar sem
fagurfræði er höfð að leiðarljósi við val verk-
anna og hefðbundin listasöguleg viðmið lát-
in víkja fyrir samhljómi þeirra. Til 17. sept.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Sýning á
völdum skúlptúrum og portettum. Opið dag-
lega nema mán. kl. 14–17. Tónleikar á þriðju-
dagskvöldum. Sjá nánar á www.lso.is
Norræna húsið | Sumarsýning í anddyri
Norræna hússins til 27. ágúst. Ljósmyndir
frá Austur-Grænlandi eftir danska ljós-
myndarann Ole G. Jensen.
Óðinshús | Dagrún Matthíasdóttir og Guð-
rún Vaka með sýningu til 30. júlí.
Reykjavíkurborg | Stella Sigurgeirsdóttir
sýnir skilti á 20 stöðum víða um borgina.
Safn | Tvær af fremstu myndlistarkonum í
Evrópu; Karin Sander & Ceal Floyer, sýna
nýleg verk sín í bland við eldri. Aðgangur er
ókeypis. Leiðsögn á laugardögum.
Salfisksetur Íslands | Ari Svavarsson með
sýningu í Listsýningasal til 6. ágúst.
Skaftfell | Nú stendur yfir sýning bræðr-
anna Sigurðar Guðmundssonar og Kristjáns
Guðmundssonar í Skaftfelli.
Skriðuklaustur | Bandaríska listakonan Ka-
milla Talbot sýnir vatnslitamyndir af ís-
lensku landslagi.
Skriðuklaustur | Listakonan Ingrid Larssen
frá Vesterålen í Norður-Noregi sýnir háls-
skart sem hún vinnur úr silki, ull, perlum og
fiskroði.
Thorvaldsen Bar | Jónína Magnúsdóttir,
Ninný, með myndlistarsýninguna Í góðu
formi til 11. ágúst.
Þjóðminjasafn Íslands | Sýningin Huldukon-
ur í íslenskri myndlist fjallar um ævi og verk
tíu kvenna sem voru nær allar fæddar á síð-
ari hluta 19. aldar.
Í Myndasal eru til sýnis ljósmyndir Marks
Watson og Alfreds Ehrhardt af Íslandi sum-
arið 1938.
Söfn
Árbæjarsafn | Sýningin Húsagerð höf-
uðstaðar, saga byggingatækninnar í Reykja-
vík frá 1840–1940.
Gamli bærinn í Laufási | Kirkjan í Laufási
var byggð 1865. Búsetu má rekja allt aftur
til heiðni. Bærinn er nú búinn húsmunum og
áhöldum eins og tíðkaðist í kringum alda-
mótin 1900. Þjóðlegar veitingar í Gamla
Prestshúsinu. 500 kr. inn. Frítt fyrir börn.
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Gljúfra-
steinn er opinn alla daga í sumar kl. 9 – 17.
Hljóðleiðsögn á íslensku, ensku, þýsku og
sænsku. Margmiðlunarsýning og gönguleið-
ir í nágrenninu. www.gljufrasteinn.is
Iðnaðarsafnið | Á safninu gefur að líta vélar
og verkfæri af öllum stærðum og gerðum,
framleiðsluvöru o.fl. Opið daglega frá 13–17
til 15. sept. 400 kr. inn, frítt fyrir börn.
Kotbýli kuklarans | Sýning á Klúku í Bjarn-
arfirði sem er bústaður galdramanns og litið
er inn í hugarheim almúgamanns á 17. öld og
fylgst með hvernig er hægt að gera morg-
undaginn lítið eitt bærilegri en gærdaginn.
Opið alla daga kl. 12–18 til 31. ágúst.
Landsbókasafn Íslands, Háskólabókasafn |
Myrkraverk og misindismenn. Reykjavík í ís-
lenskum glæpasögum. Reykjavík hefur
löngum verið vinsælasta sögusvið íslenskra
glæpasagnahöfunda.
Ritað í Voðir. Sýning Gerðar Guðmunds-
dóttur. Sumir safna servíettum, aðrir safna
Skráning viðburðar í Staður og stund er á
heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos
Skráning viðburða