Morgunblaðið - 18.07.2006, Side 44
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Opið 8-24 alladaga
í Lágmúla og Smáratorgi
ÚTLIT er fyrir sumarblíðu víðast
hvar á landinu út þessa viku og allt
til helgarloka samkvæmt spám
Veðurstofu Íslands. Gera má ráð
fyrir því að margir séu orðnir lang-
eygir eftir góðu sumarveðri og líta
nú spár Veðurstofunnar vel út í því
tilliti, líkt og þessir gestir Perl-
unnar í gær sem gátu séð dulúðugt
skýjafarið.
Haraldur Eiríksson, veðurfræð-
ingur hjá Veðurstofu Íslands, sagði
í samtali við Morgunblaðið spána
vera góða. „Á morgun [í dag] má
gera ráð fyrir mjög svipuðu veðri
og var í dag [í gær], hægur vindur
og skýjað með köflum. Víðast þurrt
og þokkalega hlýtt. Svo er heldur
hlýnandi eftir það. Miðvikudagur,
fimmtudagur og föstudagur má
segja að verði góðviðrisdagar,
mjög hlýtt inn til landsins en
kannski má vænta þoku út við sjó-
inn.“
Um hitastig sagði Haraldur að
hiti gæti verið um 20 gráður inn til
landsins en almennt veðurblíða á
landinu. Aðspurður hvað valdi
þessu blíðviðri sagði Haraldur það
vera hæðarhryggur sem verður yf-
ir landinu með sólfarsvindum og
hafgolu. Hann sagði jafnframt að
það liti út fyrir að veðrið myndi
vera gott í öllum landshlutum og í
innsveitum. Hann vonaðist til að
veðrið myndi halda sér sem lengst
en spáin væri til helgarloka og nú
væri mál að krossa fingur og vonast
til að blíðan haldi sér. Morgunblaðið/ÞÖK
Beðið eftir
sólinni
SAMTALS voru gerðir kaupsamn-
ingar um 116 eignir á höfuðborgar-
svæðinu í síðustu viku, sem er tals-
vert minni umsvif á fasteigna-
markaði en verið hefur, en 150
kaupsamningar voru gerðir að með-
altali á viku sé litið til síðustu tólf
vikna, samkvæmt upplýsingum
Fasteignamats ríkisins.
Það er að vísu hefðbundið að minni
umsvif eru á fasteignamarkaði yfir
hásumarið, þó minna hafi borið á
þeim samdrætti síðustu ár sem verið
hafa mjög annasöm, jafnt á sumrin
sem í annan tíma. Þannig var nær
fjórðungssamdráttur í fasteigna-
markaði í júnímánuði miðað við maí
og samdrátturinn er ívið meiri sé
miðað við júnímánuð í fyrra. Sam-
drátturinn er enn meiri sé eingöngu
horft til kaupsamninga um íbúðar-
húsnæði. Þannig eru 40% færri
kaupsamningar gerðir í júní í ár um
íbúðir í fjölbýli en var í maí og sam-
drátturinn er einnig verulegur í
kaupsamningum um sérbýli eða
30%, samkvæmt upplýsingum Fast-
eignamatsins.
Samdrátturinn er hins vegar mun
minni ef horft er til annars ársfjórð-
ungs í heild eða um 10% miðað við
fyrsta ársfjórðung og tæp 20% ef
miðað er við annan ársfjórðung í
fyrra. Jafnframt er áberandi mun
meiri fækkun á samningum um eign-
ir í fjölbýli en í sérbýli á þessu tíma-
bili.
120% hækkun á
sérbýli frá 2002
Verð á fasteignum hefur hækkað
jafnt og þétt undanfarin misseri og
ár og er í sögulegu hámarki sam-
kvæmt vísistölu fasteignaverðs sem
Fasteignamat ríkisins reiknar út á
grundvelli gerðra kaupsamninga.
Þannig hefur verð á íbúðarhúsnæði
að meðaltali nær tvöfaldast á und-
anförnum fjórum árum frá því vorið
2002. Á þessu tímabili hafa íbúðir í
fjölbýli hækkað um 90%. Sérbýlið
hefur þó hækkað mun meira á þess-
um fjórum árum eða um 120% sam-
kvæmt vísitölu Fasteignamatsins.
Umsvif á fasteignamark-
aðnum fara minnkandi
Verð á fasteignum hefur tvöfaldast á fjórum árum
Eftir Hjálmar Jónsson
hjalmar@mbl.is
#(%N
&
#% -
&
B"*M -("-2$ (
47A #B7A
segir er ekki víst að langtímaáhrif lækkunar-
innar verði umtalsverð og því er hugsanlegt að
vextir verði lítið breyttir eftir næsta útboð
sjóðsins.“
Guðmundur segir lækkunina ekki hafa kom-
ið á óvart, enda hafi hún legið í loftinu und-
anfarna mánuði, eða allt frá því að matsfyr-
irtækið setti sjóðinn á athugunarlista með
neikvæðar horfur.
LÆKKUN matsfyrirtækisins Standard &
Poor’s á lánshæfismati Íbúðalánasjóðs, sem
tilkynnt var í gær, mun hafa áhrif á gengi
íbúðabréfa á millibankamarkaði, að minnsta
kosti til skamms tíma, en ekki er víst að þau
áhrif verði langvarandi. Þetta segir Guðmund-
ur Bjarnason, forstjóri Íbúðalánasjóðs, í sam-
tali við Morgunblaðið.
„Hvað varðar vexti á íbúðalánum sjóðsins
munu þeir ekki breytast fyrr en eftir næsta
útboð íbúðabréfa hjá sjóðnum. Eins og áður
„Aukin markaðshlutdeild viðskiptabank-
anna á íbúðalánamarkaði auk þeirrar óvissu
sem verið hefur um framtíð sjóðsins veldur
lækkuninni, eins og fram kom í tilkynningu
fyrirtækisins, og hefur ákvörðun um breyt-
ingu á lánshæfismati verið frestað nokkrum
sinnum hjá Standard og Poor’s, en nú hefur sú
ákvörðun verið tekin og lítið við því að gera,“
segir Guðmundur.
Greiningardeild KB banka sagði í Hálf-
fimmfréttum sínum í gær, að lækkun Stand-
ard & Poor’s á lánshæfismati Íbúðalánasjóðs
hlyti að vera áfall fyrir stjórn sjóðsins en gott
lánshæfismat hafi stafað af skilyrðislausri rík-
isábyrgð fremur en af gæðum eignasafnsins
og góðri áhættudreifingu. Gengi krónunnar
lækkaði um 0,6% í gær eftir tilkynningu
Standard & Poor’s og hlutabréfaverð lækkaði
einnig.
KB banki segir, að ef dragi úr ríkisábyrgð,
til dæmis ef sjóðnum sé breytt í heildsölu-
banka eða ef gæðum eignasafns sjóðsins hrak-
ar, gæti lánshæfismat hans lækkað enn frekar.
Lánshæfismat Íbúðalánasjóðs lækkað
Guðmundur Bjarnason, forstjóri sjóðsins, segir
lækkunina hafa legið í loftinu undanfarna mánuði
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
ÍSLENSKA landsliðið í stærðfræði
náði besta árangri sínum á 47.
Ólympíuleikunum í stærðfræði sem
fram fóru í Ljubliana í Slóveníu
dagana 12.–13. júlí sl., með samtals
63 stig og lenti þar með í 59. sæti,
en alls tóku 92 þjóðir þátt í leik-
unum. Örn Stefánsson náði þeim
árangri annað árið í röð að hljóta
bronsverðlaun á leikunum, en Örn
var aðeins einu stigi frá silfur-
verðlaunum. Alls voru Íslending-
arnir sex sem skipuðu liðið að þessu
sinni með fimm fullkomnar lausnir,
sem er þremur lausnum meira en í
meðalári.
Þegar Morgunblaðið náði tali af
Erni að lokinni verðlaunaafhend-
ingu í gærkvöldi sagðist hann auð-
vitað vera afar ánægður með bæði
sinn árangur og árangur liðsins í
heild sinni. Spurður hvort hann
kynni einhverja skýringu á góðu
gengi sagði hann liðið einfaldlega
gott og þrotlausar æfingar síðustu
vikna að skila sér. Þetta er þriðja
árið sem Örn tekur þátt í Ólympíu-
leikunum í stærðfræði. | 4
Hlaut brons
annað árið í röð
ÁKVEÐIÐ hefur verið að fram-
lengja verkefni Íslenskrar ný-
orku, sem falið hefur í sér rekst-
ur vetnisknúinna strætisvagna í
Reykjavík til janúar 2007, en til
stóð að hætta rekstrinum í lok
síðasta árs.
Að sögn Baldurs Péturssonar,
deildarstjóra í viðskipta- og iðn-
aðarráðuneytinu, starfar nefnd
innan ráðuneytisins sem fjallar
um aðild opinberra aðila að al-
þjóðlegum vetnisverkefnum og sú
nefnd mun skila niðurstöðum
fljótlega. | 8
Framlengja
vetnisverkefnið
Morgunblaðið/Árni Sæberg
SKAGAMENN komust í gærkvöldi
úr fallsæti úrvalsdeildarinnar í
knattspyrnu í fyrsta skipti í sumar
þegar þeir sigruðu KR-inga, 3:2, í
stórskemmtilegum leik í Vestur-
bænum. Undir stjórn Arnars og
Bjarka Gunnlaugssona, sem tóku
við þjálfun liðsins fyrir skömmu,
hafa þeir unnið alla þrjá leiki sína í
deild og bikar og hafa hleypt gíf-
urlegri spennu í fallbaráttu Íslands-
mótsins. | Íþróttir
Skagamenn
af botninum