Morgunblaðið - 19.08.2006, Page 2
2 LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
HALLDÓR KVEÐUR
Halldór Ásgrímsson, formaður
Framsóknarflokksins, kom víða við
er hann flutti ræðu á þingi flokksins
sem hófst í gær en nýr formaður
verður kjörinn á þinginu í dag. M.a.
ræddi hann um að lækka þyrfti
vörugjöld og breyta innflutnings-
vernd á landbúnaðarvörum til að
lækka matarverð. Þá ræddi hann um
mál sem hann kom að á löngum
stjórnmálaferli, og sagði pólitík snú-
ast um meira en kvótann, sölu banka
og stóriðu. Hann ræddi fíkniefna-
vandann sem hann sagði ekki hafa
tekist að vinna bug á og að herða
þyrfi baráttuna gegn honum.
Heimili eyðilögð
Allt að þrjátíu þúsund heimili
eyðilögðust í árásum Ísraela á Líb-
anon sem stóðu yfir í mánuð, að sögn
ráðherra neyðaraðstoðar í Finnlandi
sem var að koma af svæðinu. Sam-
einuðu þjóðirnar hvöttu í gær evr-
ópsk ríki til að bjóðast til að senda
fleiri friðargæsluliða til Líbanons en
þau hafa gert.
Vopn í hendur ofbeldismanna
Alþjóðahúsið hefur til skoðunar
mál sex kvenna frá ríkjum utan
EES-svæðisins sem leitað hafa að-
stoðar vegna dvalar- og atvinnuleyfa
eftir að hafa yfirgefið eiginmenn
sem beittu þær ofbeldi. Einni þeirra
hefur þegar verið vísað úr landi en
lögfræðingur Alþjóðahúss segir að
stefna stjórnvalda í þessum málum
leggi ofbeldismönnum ákveðið vopn
upp í hendur.
Eldgos í Ekvador
Að minnsta kosti fimm manns
hafa látið lífið af völdum eldgoss í
Ekvador og hús í fimm þopum hafa
eyðilagst vegna gjósku og hrauns.
Forseti landsins hefur lýst yfir neyð-
arástandi.
Y f i r l i t
Í dag
Fréttaskýring 8 Umræðan 32/35
Viðskipti 14 Kirkjustarf 43
Erlent 18/19 Minningar 36/41
Minn staður 20 Myndasögur 48
Akureyri 22 Dagbók 48/51
Suðurnes 22 Víkverji 48
Landið 22 Staður og stund 50
Árborg 23 Bíó 54/57
Daglegt líf 26/27 Ljósvakamiðlar 58
Menning 24,52/53 Staksteinar 59
Forystugrein 30 Veður 59
* * *
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jó-
hann Björnsson, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is
Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jóns-
dóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum til
Costa del Sol þann 24. ágúst. Þú bókar og tryggir þér sæti
og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir. Gríptu
tækifærið og tryggðu þér sumarfrí á frábærum kjörum á
vinsælasta sumarleyfisstað Íslendinga.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Stökktu til
Costa del Sol
24. ágúst
frá kr. 29.990
Allra síðustu sætin
Verð kr. 29.990
Netverð á mann, m.v. 2-4 saman í íbúð í
viku. Flug, skattar, gisting og íslensk
fararstjórn. Aukavika kr. 10.000.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
ÞRÁTT fyrir að hún hafi legið grafin
í um þúsund ár virðast örlög beina-
grindarinnar, sem fannst í Hrings-
dal í vikunni sem nú er að líða, ekki
enn ráðin. Hún verður nú flutt til
Reykjavíkur til rannsóknar og er
talið að hún verði svo forvarin og
sett í geymslu. Hilmar Einarsson,
landeigandi í Hringsdal, sagðist í
samtali við Morgunblaðið vilja fá
beinagrindina aftur í dalinn, en eins
og kom fram í Morgunblaðinu í gær,
er talið að hún sé af Hring land-
námsmanni þeim sem dalurinn er
nefndur eftir.
Hilmar segir að það yrði eftirsjá
að honum ef hann færi fyrir fullt og
allt úr dalnum: „Nú er Hringur far-
inn og það sem gerist næst er að
hann fer inn á Þjóðminjasafn, þar
sem hann verður forvarinn og það er
mjög gott, en hvað verður um þenn-
an mann? Ég segi: Ég vil fá Hring
aftur í Hringsdal,“ sagði Hilmar í
léttum tón og bætti því við að þessar
hugsanir hans væru sprottnar út frá
hans eigin heimspekilegu pælingum:
„Af hverju á þessi maður, sem var
höfðingi, og er búinn að liggja þarna
í þúsund ár, að rykfalla í pappakassa
inni á Þjóðminjasafni. Maður fer í
eitthvert ástand þegar maður horfir
á tóma gröf og hugsar – þetta er bú-
ið,“ og sagði hann ennfremur að við-
brögð margra fyrir vestan væru á þá
leið að Hringur yrði að koma aftur:
„Þetta er tilfinning manns, ég er
þarna landeigandi og á þetta í raun-
inni og ég hugsa að nú sé Hringur
farinn og maður verður hreinlega
sorgbitinn.“
Aðspurður hvort þessi hugmynd
hans væri framkvæmanleg sagði
Hilmar að hann hefði ekki kannað
það til hlítar þar sem þetta væri
ennþá á hugmyndastigi: „Kannski
gengur þetta ekki upp, en það getur
vel verið að það sé hægt að útbúa að-
stöðu í Arnarfirði þar sem fyrsti
Arnfirðingurinn yrði til frambúðar.
Hringur verður að koma í aftur í
Arnarfjörð, hvernig sem það verður
leyst,“ sagði Hilmar og vildi koma á
framfæri miklu þakklæti til starfs-
manna Fornleifastofnunar Íslands
sem stóðu að uppgreftrinum og
sagði hann þá hafa unnið af mikilli
fagmennsku.
Hilmar sagðist ekki hafa velt því
fyrir sér hvort hann vildi grafa
Hring aftur eða koma upp ferða-
mannaaðstöðu en taldi að á end-
anum mundi þetta alltaf snúast um
kostnað við verkið: „Allt er fram-
kvæmanlegt ef viljinn er fyrir
hendi.“
Vill fá Hring aftur í Hringsdal
Morgunblaðið/RAX
Hilmar Einarsson með höfuðkúpu
Hrings við uppgröftinn í vikunni.
Eftir Sigurð Pálma Sigurbjörnsson
siggip@mbl.is
ÓSKAR Jensen fagnaði 100 ára af-
mæli sínu á Vífilsstöðum í gær þar
sem hann hefur búið síðastliðið
eitt og hálft ár við gott atlæti að
eigin sögn. „Hér býr margt gam-
alt fólk og hér er yndislegt að
vera. Fólkið sem hugsar um mig
er afar elskulegt og ég vona að
hér fái ég að vera á meðan hjart-
að slær,“ sagði Óskar við blaða-
mann í þann mund er veislan var
að hefjast.
Ullarvinnsla og garðrækt
Óskar fæddist á Ísafirði 18.
ágúst árið 1906 en foreldrar hans
voru þau Jens Frederik frá Fær-
eyjum og Málfríður Magnúsdóttir
frá Ísafirði. Þau eignuðust ellefu
börn en tvö þeirra dóu snemma.
Óskar missti síðan móður sína
þegar hann var sjö ára gamall og
var í kjölfarið sendur í fóstur í
Færeyjum ásamt fjórum systk-
inum sínum. Í Færeyjum lagði
Óskar stund á prentnám og fór
einnig til sjós.
Þegar Óskar var 19 ára gamall
hélt hann aftur heim til Íslands.
Það var árið 1925. Hann hafði
ýmsan starfa á Íslandi og vann
meðal annars við timburverk í
Reykjavík, kennslu í Staðarsveit
og ullarvinnslu í Álafossi. Hann
kynntist konu sinni, Hansínu, sum-
arið 1930 en vorið 1932 settust
þau að á Ísafirði og byggðu sér
húsið Sjónarhól. Hansína og Óskar
bjuggu á Ísafirði fram undir 1950
og eignuðust sex börn en afkom-
endur þeirra eru nú 61 talsins.
Óskar hefur ætíð verið gefinn
fyrir grænmeti og áhugamaður
um garðrækt. Þau hjónin gerðu
vel í að nýta landsvæðið sem um-
lukti Sjónarhól og komu sér upp
matjurtagarði sem þá var nokkur
nýlunda hér á landi. Þetta var víst
litið hornauga hjá Ísfirðingum á
sínum tíma en Óskar lét það sem
vind um eyru þjóta og ekki er að
sjá að honum hafi orðið meint af
grænmetinu nema síður sé.
Fiskveiðar í uppnámi
Þau fluttu til Reykjavíkur árið
1952 og dvöldu þar í eitt ár en
Óskar fékk vinnu í herstöðinni í
Keflavík. Ári síðar fluttu þau til
Danmerkur ásamt yngsta barni
sínu en þar vann Óskar við prent-
verk. Þau fluttu aftur til Íslands
árið 1956 og byggðu sér hús í
Kópavogi. Óskar starfaði sem
prentari hjá Ísafold til ársins 1977,
fyrir utan fimm ár á Alþýðu-
blaðinu en þá var hann 71 árs
gamall.
Óskar játar því að hafa orðið
vitni að miklum breytingum á
sinni lífsleið en segir blaðamanni
að samfélagið hafi ekki breyst
eins mikið á Íslandi og halda
mætti. „Þetta hefur nú ekki breyst
svo mikið fyrir utan það að allt er
í uppnámi með fiskveiðarnar,“
segir Óskar en hann telur að af-
nema ætti kvótakerfið hið fyrsta.
Samfélagið ekki
breyst eins mikið
og halda mætti
Morgunblaðið/Ómar
Óskar Jensen vonar að hann fái að vera á Vífilsstöðum meðan hjartað slær.
Óskar Jensen varð 100 ára í gær
FLUGVALLARSTJÓRINN og
Sýslumaðurinn í Keflavík sendu í
gær frá sér tilkynningu þess efnis
að slakað hefði verið á öryggis-
reglum í flugstöðinni eftir hryðju-
verkaógnina í Bretlandi í síðustu
viku.
Þar kemur fram að enn sé
óheimilt að fara með vökva og
vökvatengd efni í flug til Banda-
ríkjanna, að undanskildum nauð-
synlegum lyfjum, matvöru fyrir
ungabörn og varningi keyptum í
flugstöðinni sem afhentur er í inn-
sigluðum umbúðum. Ennfremur
mega sömu farþegar eiga von á því
að lenda í aukaöryggisleit við
brottfararhlið.
Á öðrum leiðum er heimilt að
ferðast með vökva en öryggis-
starfsmenn munu gefa vökvum og
vökvatengdum efnum sérstakan
gaum.
Ekki verður nauðsynlegt að fara
úr skóm við vopnaleit en slembileit
verður viðhöfð á skófatnaði. Við
vopnaleitina þurfa farþegar að taka
upp úr töskum sínum fartölvur og
annan rafmagnsbúnað og segir í
tilkynningunni að rétt sé að taka
það fram að engar nýjar takmark-
anir séu á meðferð slíks búnaðar þ.
á m. mp3 spilara og farsíma.
Jafnframt er farþegum bent á að
til að flýta afgreiðslu við örygg-
isleit séu allir hvattir til að taka
alla málmhluti af sér og úr vösum
og lágmarka handfarangur sinn.
Slakað á öryggis-
kröfum í Leifsstöð
Morgunblaðið/Emilía