Morgunblaðið - 19.08.2006, Síða 30

Morgunblaðið - 19.08.2006, Síða 30
30 LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. HALLDÓR KVEÐUR Halldór Ásgrímsson kvaddiflokk sinn, Framsóknar-flokkinn, í gær eftir lang- an feril og fyrir hádegi í dag hverf- ur hann af vettvangi stjórnmálanna. Þar með er merk- um stjórnmálaferli lokið sem seinni árin hefur einkennzt af um- róti og átökum. Enginn forystumaður í stjórn- málum getur siglt lygnan sjó allan sinn feril. Raunar má segja að þá fyrst, þegar reynir á, komi í ljós hvort stjórnmálamenn hafi það bolmagn sem þarf til að standa undir því að gegna forystuhlut- verki í stjórnmálum. Halldór Ás- grímsson hefur sýnt að hann hefur haft þrek og dug til þess. Þegar horft er yfir stjórnmála- feril Halldórs Ásgrímssonar standa tvö stór mál, og bæði mjög umdeild, upp úr. Annars vegar kvótakerfið og hins vegar Kára- hnjúkavirkjun. Halldór Ásgrímsson er einn af helztu höfundum og pólitísku ábyrgðarmönnum kvótakerfisins sem gríðarlegar þjóðfélagsdeilur stóðu um á síðasta áratug. Hann hefur aldrei hvikað frá sínum grundvallarsjónarmiðum í því máli. Til þess þarf mikið þrek. Og þótt Morgunblaðið hafi verið al- gerlega ósammála fráfarandi for- manni Framsóknarflokksins í kvótamálinu ber að virða hann fyr- ir það hvernig hann hélt á sínum málstað. Þótt deilunum um kvóta- kerfið hafi lokið með því að auð- lindagjald var tekið upp er ljóst að það er enn of lágt. Og ekki fráleitt að Morgunblaðið og Halldór Ás- grímsson geti sameinast um það sjónarmið. Í viðtali við Morgun- blaðið í gær sagði Halldór: „Nú er útgerðin að greiða lágt gjald fyrir nýtingu auðlindarinnar en við skulum vona að í framtíðinni verði staðan þannig að hægt verði að hækka það.“ Undir þetta tekur Morgunblaðið og þá sennilega í fyrsta skipti sem blaðið tekur und- ir með Halldóri Ásgrímssyni um kvótamálið. Byggingu Kárahnjúkavirkjunar er að ljúka og bygging álvers á Reyðarfirði komin vel á veg. Öllum er ljóst að þessi mannvirki eru verk Halldórs Ásgrímssonar um- fram aðra. Þetta eru mjög umdeild verk en byggingu mannvirkjanna er að verða lokið. Hvað sem öðru líður fer ekki á milli mála að Kára- hnjúkavirkjun og álverið hafa þeg- ar breytt Austurlandi og lífi fólks- ins þar. Í ljósi þess að rætur Halldórs Ásgrímssonar liggja á Austurlandi hlýtur það að vera honum fagnaðarefni að skilja við sitt fólk þar með þeim hætti að framtíðin er bjartari en áður. Halldór Ásgrímsson tók við Framsóknarflokknum á erfiðum tímamótum í lífi og starfi flokks- ins. Hann gerði ákveðna tilraun til að breyta flokknum úr dreifbýlis- flokki í þéttbýlisflokk. Honum hef- ur tekizt það að hluta en því verki er ekki lokið. Þess vegna á enn eft- ir að koma í ljós hvort því verki verður lokið á þann veg að sú breyting takist að lokum en á því byggist framtíð Framsóknar- flokksins. Halldór Ásgrímsson hefur tryggt flokki sínum samfellda að- ild að ríkisstjórn í nær tólf ár. Það hafa ekki margir flokksformenn leikið eftir. Að einhverju leyti er ástæðan fyrir því að honum hefur tekizt þetta sú að hann hefur orð á sér fyrir að vera traustur og ábyrgur stjórnmálamaður. Kannski stund- um dálítið þungur á köflum. Sam- starfsmenn hafa treyst honum þótt stundum hafi reynt töluvert á samstarfið. Þegar horft er yfir liðna tíð í sögu Framsóknarflokksins má halda því fram að flestir forverar Halldórs Ásgrímssonar hafi verið býsna tækifærissinnaðir stjórn- málamenn sem hafi verið reiðu- búnir til að fórna ýmsu fyrir völdin en hann hafi verið staðfastari í því en þeir að bregða ekki á leik með mikilsverða hagsmuni þjóðarinn- ar. Til rökstuðnings fyrir þessari skoðun má benda á bæði stjórnar- myndanir 1956 og 1971 að ekki sé talað um stjórnarmyndunina 1980. Seinni árin hefur Halldór Ás- grímsson orðið fyrir meiri ágjöfum á stjórnmálaferli sínum en áður. Hann hefur augljóslega tekið það nærri sér. En fullyrða má að engir stjórnmálamenn ná svo langt á ferli sínum sem Halldór hefur gert án þess að verða fyrir einhverjum hremmingum. Það mátti Ólafur heitinn Jóhannesson reyna ekki síður en Halldór. Nákvæm rann- sókn á þeim ásökunum sem beint var að Ólafi Jóhannessyni á sínum tíma mundi leiða í ljós að ekki stendur steinn yfir steini í gagn- rýni og ásökunum andstæðinga hans. Þeir sem borið hafa Halldór Ásgrímsson þungum sökum und- anfarin ár hafa ekki getað stutt mál sitt nokkrum haldbærum rök- um. Í þessu sambandi má heldur ekki gleyma því að þjóðmálaumræður á Íslandi eru óvægnari en áður og á vettvangi fjölmiðlanna fara þær út fyrir öll mörk. Þess vegna er líf forystumanna í stjórnmálum erf- iðara nú en það var áður, þegar fjölmiðlun var með öðrum hætti. Morgunblaðið hefur átt marg- vísleg og mikil samskipti við Hall- dór Ásgrímsson á stjórnmálaferli hans. Þau samskipti hafa yfirleitt verið góð en stundum sviptinga- söm. Nú þegar Halldór Ásgríms- son hverfur af vettvangi stjórn- málanna þakkar Morgunblaðið þau samskipti og óskar honum og fjölskyldu hans farsældar á kom- andi árum. S kynsamir menn í Sjálfstæðisflokknum hljóta nú að sjá að skoða þarf margt í samstarfinu við Bandaríkjamenn í nýju ljósi,“ sagði Halldór Ásgrímsson í ræðu sinni á flokksþingi Framsókn- arflokksins á Hótel Loftleiðum í gær. Í ræðu sinni fór Halldór vítt og breitt yfir stöðu flokks- ins, störf sín í stjórnmálum og einstök málefni á sviði stjórnmálamanna. Hvað varnarmálin varðar sagði Halldór að Atlantshafstengslin væru að veikjast, NATO að þróast í tvær stoðir Evrópu og Ameríku og við yrðum að styrkja böndin við Evrópu. Einhliða ákvörðun Bandaríkjamanna um að fara með allt sitt lið og búnað héðan sagði Halldór að hefði skapað trúnaðarbrest og ekki væri hægt að treysta Bandaríkjunum í einu og öllu og oftrú á samstarfið við þá voru mistök. Styrkja böndin við Evrópu „Við þær aðstæður verðum við að styrkja böndin við vini okkar í Evrópu, einkum Norð- urlöndin. Þannig verður fullveldi okkar best tryggt. Í þessu samhengi verður ekkert umflúið að ræða form slíks samstarfs. Er það best komið eins og það er, eða ef til vill með aðild að Evrópu- sambandinu? Því er haldið fram að ég hafi farið offari í þeirri umræðu. Hún hafi ekki verið tíma- bær. En ég spyr, hvenær er tímabært að ræða framtíðina og hvenær er það ekki tímabært? Í mínum huga er ávallt tímabært að ræða framtíð- ina, hvort sem það er óþægilegt eða ekki,“ sagði Halldór. Hann sagði að ekkert lægi á aðild að Evrópu- sambandinu og margt gæti haft áhrif, til dæmis afstaða hinna EFTA-þjóðanna, framtíð evr- unnar og geta okkar til að viðhalda stöðugleika á grundvelli okkar eigin gjaldmiðils. Varar við tómlæti í ESB-umræðu „Ég vara samt við tómlæti og kæruleysi í þessu máli. Stórar ákvarðanir sem varða framtíð þjóðarinnar á að taka á eigin forsendum og á þeim tíma sem okkur hentar best en ekki þegar við getum ekkert annað. Reynslan af varnarsamstarfinu við Bandarík- in ætti að vera okkur nægileg lexía í þessum efn- um. Sjálfstæðisflokkurinn hefur farið fremst þeirra sem hafa haft oftrú á samstarfinu við Bandaríkin og skynsamir menn á þeim bæ hljóta að sjá að nú þarf að skoða margt í nýju ljósi.“ Halldór fór yfir störf núverandi ríkisstjórnar og sagði hana hafa staðið fyrir velferðarstjórn og leitast við að skapa sátt á sem flestum sviðum. Benti hann á því til stuðnings að heildar- útgjöld ríkisins hefðu aukist um 20% að raun- gildi frá 1998 og að framlög til heilbrigðismála, almannatrygginga og velferðarmála, fræðslu- mála og háskólastigsins hefðu öll aukist að raun- gildi á sama tímabili. Breyta þarf innflutningsverndinni Hann gerði matvælaverð meðal annars að um- talsefni sínu og nýja skýrslu um málið þar sem glögglega kæmi fram að matvælaverð hér væri mun hærra en í þeim löndum sem við bærum okkur saman við. „Það kemur jafnframt fram að lækkun hlut- falls virðisaukaskatts á matvæli er ekki jöfn- unaraðgerð eins og ég hef alltaf haldið fram. Ég tel að eftir lestur þessarar skýrslu sé augljóst að það þurfi að fella niður vörugjöld. Skattur á mat- væli þarf að vera sá sami, þar á meðal á hótelum og veitingaþjónustu. Það þarf að breyta inn- flutningsverndinni þannig að samkeppni aukist og ég vil nefna í því sambandi og spyrja, hvað réttlætir það til dæmis að við þurfum að borga miklu hærra verð fyrir kjúklinga og svínakjöt en aðrir neytendur í Evrópu. Það er enginn eðl- ismunur á þessari framleiðslu og margvíslegri annarri framleiðslustarfsemi í landinu sem býr við óhefta samkeppni við önnur lönd.“ Góðar skattabreytingar Halldór ræddi nokkuð skattamál í ræðu sinni og gat þess að skattar væru eitt mikilvægasta tæki til jöfnunar í þjóðfélaginu. Hann sagði að breytingar á skattkerfinu hefðu tekist að mörgu leyti vel og miðað að því að gera Ísland sam- keppnishæfara í sívaxandi alþjóðlegri sam- keppni. Eftirtektarvert væri að þrátt fyrir mikla lækkun á tekjuskatti fyrirtækja skiluðu þau miklu meira til samfélagslegra þarfa en áður. Skattahækkun hefði öfug áhrif Hann vék einnig að fjármagnstekjuskattinum og rifjaði upp að þegar Framsóknarflokkurinn hefði komið í ríkisstjórn 1995 hefði enginn fjár- Halldór Ásgrímsson hélt lokaræðu sína sem formaður á Skoða þarf sams Halldór Ásgrímsson kvaddi í gær m.a. með þeim or lófaklapp, m.a. frá núverandi stjórnarmönnum og f FRAMBJÓÐENDUR til embætta í forystu- sveit Framsóknarflokksins kynntu flokks- mönnum sig og málefni sín í almennum um- ræðum á Hótel Loftleiðum í gærkvöldi. Nokkur eftirvænting var eftir ræðuhöldum frambjóðenda enda oft sagt að þær skipti miklu máli þegar kemur að því að kjósa. Fyrstur á svið var Haukur Haraldsson, sem býður sig fram til formanns flokksins. Haukur sagðist bjóða sig fram vegna kær- leiks og ástar á Framsóknarflokknum sem hann hafi fylgt frá yngri árum. Haukur var nokkuð gagnrýninn í erindi sínu og sagði m.a. að flokkseigendaklíkan í flokknum hefði stoppað hann af og útilokað frá því að geta tjáð sig og komið fram í fjölmiðlum. Hann viðraði auk þess hugmynd sína um fríversl- unarríki á Íslandi og sá hann fyrir sér Kefla- víkurflugvöll í því samhengi. Formennska krefst úthalds Jón Sigurðsson var annar frambjóðandi til formanns sem tók til máls. Jón sagðist ætla sætta ólík sjónarmið og að styrkja þurfi inn- viði flokksins áður en átök hefjast fyrir kosn- ingar næsta vor. „Við getum vel eflt Fram- sóknarflokkinn og hafið kröftuga sókn til vaxandi fylgis af metnaði og stolti hér í sagði Gu manna u Jónína flokkurin þurfi hin við ef flo áfram að félag. „V sjálfsvir samað si flokknum okkar,“ sagði Jón og bætti við að það hefði oft ásannast á liðnum tíma og það muni gerast á nýjan leik að þegar þjóðin þurfi á samstöðu eða skynsamlegum mála- miðlunum að halda þá séu framsóknarmenn kallaðir til. Siv Friðleifsdóttir var síðust frambjóð- enda til embættis formanns á svið. Hún sagðist vera baráttuglöð manneskja sem hefði bæði unnið og tapað í stjórnmálastarfi sínu fyrir flokkinn. Sagðist hún vita að for- mennska í stjórnmálaflokki krefjist mikils andlegs og líkamlegs úthalds sem hún telur sig hafa og sé reiðubúin til að taka starfið að sér. Kjark þarf til að stíga fram á við Tveir frambjóðendur eru til embættis vara- formanns flokksins, þau Guðni Ágústsson og Jónína Bjartmarz. Guðni ræddi um að of- urgróði og ofurlaun stingi í augu hans og að græðgin í þjóðfélaginu þyrfti að víkja fyrir samstöðu sem lítil þjóð þarf á að halda. Guðni sagðist ungur hafa gefið pólitíkinni og flokknum sitt hálfa líf og bað hann um trún- að og stuðning til að halda áfram sem vara- formaður. „Þið þekkið störfin mín, unnin í ykkar anda – í bjartsýni og trú og gleði,“ Frambjóðendur kynntu baráttumál sín Jónína B með virk

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.