Morgunblaðið - 19.08.2006, Side 4
4 LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ekki gleyma
ab-mjólkinni frá MS
… þessari nýju léttu með
eplum og gulrótum
NYJUNG!
Án
viðbættssykurs
EINN AF hápunktum dagskrár Menningarnætur í
Reykjavík verða klassískir stórtónleikar á Miklatúni kl.
20.
Fram koma Arndís Halla Ásgeirsdóttir, Kolbeinn
Ketilsson, Kristinn Sigmundsson, Ólafur Kjartan Sig-
urðarson og Sigríður Aðalsteinsdóttir, ásamt Sinfón-
íuhljómsveit Norðurlands sem stjórnað er af Guðmundi
Óla Gunnarssyni.
Æfingar fyrir tónleikana stóðu yfir í gær þegar
blaðamann og ljósmyndara bar að garði, og má á
myndinni sjá Víglund Þorsteinsson, stjórnarformann
BM Vallár, sem býður til tónleikanna, Mögnu Guð-
mundsdóttur, framkvæmdastjóra Sinfóníuhljómsveitar
Norðurlands, Vigdísi Finnbogadóttur, sem er verndari
tónleikanna, og Ólaf Kjartan Sigurðarson baritón sem
ræddu saman í æfingarhléi. | 53
Morgunblaðið/Eyþór
Óperuperlur og ástsæl einsöngslög
ÍSLANDSMÓTIÐ í skák sem hefst
á morgun sunnudag, er fyrir ýmissa
hluta sakir sögulegt en yngsti kepp-
andinn í landsliðsflokki frá upphafi,
hinn 13 ára Hjörvar Steinn Grét-
arsson, vann sér rétt til þátttöku á
mótinu í ár eftir frækilega fram-
göngu í áskorendaflokki Skákþings
Íslands á síðasta ári.
Hjörvari líst vel á komandi átök
og hann segist mæta vel undirbúinn
til leiks. „Mér líst mjög vel á þetta
tækifæri og þetta verður eflaust
mjög gaman,“ segir Hjörvar en síð-
astliðnar þrjár vikur hefur hann búið
sig undir mótið undir styrkri hand-
leiðslu stórmeistarans Helga Ólafs-
sonar og Davíðs Ólafssonar. Hann er
því hvergi banginn en í fyrstu um-
ferð mótsins mætir hann alþjóðlega
meistaranum Braga Þorfinnssyni.
„Það hefði getað verið verra og ég
lent á móti Hannesi Hlífari. Ég veit
þó hvernig Bragi teflir og er ágæt-
lega sáttur með þetta. Við höfum
teflt einu sinni saman áður en þá
tapaði ég. Sú skák stóð reyndar yfir í
rúmlega fjórar og hálfa klukku-
stund.“
Hjörvar segir að það hefði verið
skemmtilegra að tefla eftir hefð-
bundnu fyrirkomulagi og eiga þess
kost að etja kappi við alla hina
reyndu skákmeistara.
„Ég hefði kosið að það hefðu allir
teflt við alla en það væri leiðinlegt að
detta út snemma því þá er maður
bara búinn. Maður verður þó að
reyna en fyrst verð ég að komast í
gegnum Braga og það verður án efa
nokkuð erfitt.“
Yngsti keppandinn á Íslandsmótinu í
skák segist hvergi banginn
„Þetta verður ef-
laust mjög gaman“
Morgunblaðið/Ásdís
Hjörvar Steinn Grétarsson
Skákþáttur | 43
GEÐHJÁLP hefur opnað nýjan vef
þar sem finna má ýmsar upplýsingar
um geðheilsu og skyld málefni. Sig-
ríður Sara Þorsteinsdóttir, fræðslu-
og upplýsingafulltrúi hjá Geðhjálp,
segir að markmiðið með vefnum sé að
gera málefni geðsins gagnsæ, þannig
að allir hafi aðgang að þeim upplýs-
ingum sem eru fyrir hendi. Til standi
að uppfæra vefinn daglega og gert sé
ráð fyrir að hann stækki með tíman-
um.
Sigríður Sara segir að vefurinn sé
ekki aðeins hugsaður fyrir fólk með
geðraskanir heldur einnig fyrir að-
standendur geðsjúkra, fagfólk og alla
þá sem áhuga hafa á málefninu. Geð-
heilsa komi öllum við og „þarna verð-
ur hægt að nálgast upplýsingar varð-
andi einkenni og úrræði og birtar
verða allskyns skýrslur og fréttir,“
segir Sigríður Sara. Þá verði hægt að
senda inn fyrirspurnir um geðheilsu.
Vefurinn nýi er byggður upp með
þarfir lesblindra, heyrnarlausra,
hreyfihamlaðra, blindra og alvarlega
sjónskertra í huga. Blindir og sjón-
skertir munu geta notað talgervla og
sérhönnuð lyklaborð með síðunni eða
stækkað letrið og lesblindir geta
breytt um bakgrunnslit og hreyfi-
hamlaðir geta vafrað án þess að nota
músina.
Í tilkynningu vegna nýja vefjarins
segir að engar reglur gildi hérlendis
um aðgengi að heimasíðum, en í ná-
grannalöndum okkar sé komið í lög að
heimasíður opinberra stofnana sem
og flestra fyrirtækja eigi að vera að-
gengilegar öllum notendum, óháð
fötlun eða getu. Tíu til tólf prósent
þjóðarinnar séu fötluð á einhvern hátt
og hafi þessi hópur jafnvel meiri not
af heimasíðunni en aðrir.
Vefráðgjafarfyrirtækið Sjá hefur í
samstarfi við Öryrkjabandalagið lag-
að alþjóðlegan staðal fyrir aðgengi á
netinu og sniðið listann að íslenskum
aðstæðum. Hefur hann verið prófað-
ur af notendum með margs konar
fötlun.
Upplýsingar um
geðheilsu á nýjum vef
TENGLAR
..............................................
www.gedhjalp.is
VEGAGERÐIN hefur kannað um-
hverfismatsskyldu á lagningu nýs
vegarslóða við fjallveg F88 sem
nær frá hringveginum suður að
Herðubreiðarlindum og Öskju.
Ekki hefur enn verið gefið út leyfi
vegna framkvæmdanna, en það er
sveitarstjórn Skútustaðahrepps
sem tekur ákvörðun um hvort sótt
verði um slíkt leyfi. Framkvæmdin
snýst um að færa vað yfir Lindá,
sem rennur yfir slóðann, sunnar
vegna vatnavaxta.
Ingvar Teitsson ferðafélagsmað-
ur segir að mikið vandamál hafi
skapast á slóðanum þar sem Jök-
ulsá á Fjöllum hafi sífellt fært sig
vestar að Lindarhrauni sem liggi
norðan Herðubreiðarlinda en þar
liggur slóðinn í gegn og hafi áin því
oft náð að éta upp veginn.
„Þarna lá við stórslysi árið 2000
þegar það munaði hársbreidd að
það færist þarna hópur af aust-
urrískum ferðamönnum. Jökulsá át
þá veginn í burtu. Svo hélt hún
áfram að éta sig áfram í fyrra og þá
eyðilagðist vaðið sem gert var árið
2000 þannig að við þurfum að flýja
ennþá sunnar og leggja veginn
sunnar í hrauninu þannig að slóðinn
liggi ekki niður úr hrauninu fyrr en
mun sunnar en nú er. Með því
myndi Jökulsá ekki skemma þessa
slóð næstu árin,“ segir Ingvar.
Guðmundur Heiðreksson, yfir-
maður nýframkvæmda hjá svæð-
isstöð Vegagerðarinnar á Akureyri,
tekur undir að vatnavextir og át
Jökulsárinnar hafi verið vandamál
og að lagning nýs slóða sé í skoðun.
Að sögn Guðmundar gæti breyt-
ingin orðið til þess að leiðin yrði
lengri yfirferðar. „Þetta yrði hins
vegar mun öruggari leið,“ segir
hann.
Hjá Vegagerðinni stendur einnig
til að leggja heilsársveg frá hring-
veginum austan við Mývatn, niður
að Dettifossi og þaðan niður í
Kelduhverfi skammt frá Ásbyrgi. „Í
umhverfismati er lagst gegn einni
veglínunni og verið er að skoða
hvernig leyst verður úr því,“ segir
Guðmundur að lokum. Eins og
menn vita er núverandi slóði að
Dettifossi erfiður yfirferðar og hafa
margir ferðamenn lent í vandræð-
um þar.
Jökulsáin étur upp veginn
Morgunblaðið/Friðþjófur Helgason
Fjölmargir innlendir og erlendir ferðamenn leggja leið sína að Öskju árlega.
Eftir Berg Ebba Benediktsson
bergur@mbl.is
BÚAST má við töfum á afhend-
ingu inflúensubóluefna vegna
árstíðabundinnar inflúensu á
komandi vetri. Þetta stafar af
óvæntum erfiðleikum við fram-
leiðslu bóluefnanna vegna ófull-
nægjandi afraksturs við rækt-
un inflúensuveiru af stofni
H3N2, sem WHO hefur mælt
með að nota í bóluefni fyrir árið
2006–2007. Þetta kemur fram í
tilkynningu frá Samtökum evr-
ópskra framleiðenda bóluefna
(The European Vaccine Manu-
facturers) sem borist hefur
Landlæknisembættinu.
Af þessum sökum má búast
við að bóluefni berist ekki til
landsins fyrr en í byrjun októ-
ber nk. Sóttvarnalæknir mun
senda læknum dreifibréf á
næstunni með frekari upplýs-
ingum.
Tafir á af-
hendingu
bóluefna