Morgunblaðið - 19.08.2006, Side 56
56 LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
SAMBÍÓ AKUREYRI SAMBÍÓ KEFLAVÍK
VINCE VAUGHN JENNIFER ANISTON
H.J. MBL.
eee
S.U.S. XFM 91,9
LADY IN THE WATER kl. 6 - 8:20 - 10:40 B.i. 12.ára.
PIRATES OF CARIBBEAN 2 kl. 5:30 - 7 - 8:30 - 9 - 10:30 B.i. 12.ára.
SUPERMAN kl. 6 B.i. 10.ára.
THE BREAK UP kl. 5:30 - 8 - 10:30 Leyfð
JOHNNY DEPP ORLANDO BLOOM KIERA KNIGHTLEY
57.000 GESTIR
TVEIR BRÆÐUR. EIN
HELGI. ENGIN SKÖMM.
MEÐ CHRIS KLEIN ÚR “AMERICAN PIE” MYNDUNUM.
SAMBÍÓIN KRINGLUNNI ER EINA
Frá leikstjóra Sixth Sense, Signs og Village.
PAUL GIAMATTI (SIDEWAYS) SÝNIR STJÖRNULEIK
með hinum knáa
Freddie
Highmore
úr
„Charlie &
the
Chocolate
Factory“
og
„Finding
Neverland„
Allt getur gerst
ef þú bara trúir á það.
úr smiðju Jim Henson
Frábær
skemmtun
fyrir alla
fjölskylduna
OVER THE HEDGE M/ísl tali kl. 2 - 4
STORMBREAKER kl. 6 - 8
SILENT HILL kl. 10
PIRATES OF THE CARIBBEAN: 2 kl. 6
ÁSTRÍKUR OG VÍKINGARNIR kl. 2 - 4
MIAMI VICE kl. 9
5 CHILDREN AND IT kl. 2 - 4 Leyfð
HALF LIGHT kl. 8 - 10:20 B.i.16
OVER THE HEDGE M/ísl tali kl. 2 - 4
PIRATES OF THE CARIBBEAN: 2 kl. 6 - 9
THE LONG WEEKEND kl. 6 B.I.14
eee
V.J.V - TOPP5.IS
Rússinn Wladimir Kam-iner, einn allra vinsæl-asti rithöfundur Þýska-lands um þessar mundir
er staddur á landinu ásamt Olgu
konu sinni í boði Goethe Institut
og Eddu útgáfu. Hann ætlar að
lesa úr verkum sínum í Bókabúð
Máls og menningar að Laugavegi
18 í kvöld kl. 21, og verður uppá-
koman eflaust hin frjálslegasta, en
Kaminer er þekktur fyrir alls
kyns uppátæki. Þorsteinn Guð-
mundsson leikari mun svo lesa
upp úr bók Kaminer, Plötusnúður
Rauða hersins, sem nýlega kom út
á íslensku.
Kaminer hefur búið í Þýska-
landi, nánar tiltekið í Berlín, frá
árinu 1990 og gert það ákaflega
gott þar í landi en hann er einnig
einn þekktasti plötusnúður Þýska-
lands. Hann sérhæfir sig í sér-
stakri blöndu af rússneskri dans-
tónlist og stendur ásamt fleirum
að útgáfunni Russendisko, sem
gefið hefur út fjölda safndiska í
gegnum tíðina. Hann tók sig til og
þeytti skífum fyrir Íslendinga á
NASA í gær og hélt svokallað
„Rússadiskó“ sem er orðið ansi
þekkt fyrirbæri.
Eldri plötusnúðar klikkaðir
Kaminer segir að tónlistaráhug-
inn hafi kviknað á undan áhug-
anum á hinu ritaða máli. „Það er
ekkert mál að sameina þetta
tvennt. Ég skrifa alla vikuna og
sem plötusnúður er ég fyrst og
fremst að vinna um helgar. Núna
er þetta reyndar að byrja að verða
svolítið mikið fyrir mig. Ég er
næstum orðinn fertugur og þetta
er ekki alveg eins auðvelt og þetta
var. Allir þeir sem eru yfir fertugt
og halda áfram að vera plötusnúð-
ar eru klikkaðir. Einn vinur minn
frá Ungverjalandi á heimsmetið í
dj-i, hann spilaði samfleytt ung-
verska þjóðlagatónlist í þrjá daga
eða eitthvað álíka. Og hann er
fimmtugur,“ segir Kaminer og út-
skýrir í framhaldi hvers vegna
Rússadiskóið heilli enn. „Það kem-
ur oft upp að mér fólk sem hefur
mætt á Rússadiskó í gegnum tíð-
ina og sýnir mér mynd af barni og
segir: Við hittumst fyrst á Rússa-
diskói og þetta barn varð svo til.“
Kaminer segist eiga fjöldann allan
af myndum af Rússadiskóbörnum.
„Tónlistin sem ég spila sameinar
fólk. Þetta er gleðitónlist. Fólk
kemur til að kynnast öðru fólki,
það er dimmt inni og fólk er miklu
fallegra í myrkri.“
Það ósýnilega er ómissandi
Kaminer hefur vakið mikla at-
hygli fyrir skemmtilegar frásagnir
frá sovéskri fortíð sinni. Hann
fjallar mikið um fyrri tíma í verk-
um sínum, margt í menningu fyrr-
um Sovétríkjanna virðist heilla og
hefur hann t.d. nýlega gefið út
kokkabók með safni gamalla
kommúnistarétta ásamt Olgu konu
sinni. „Það varð til ákveðin menn-
ingarhefð í Austur-Evrópulönd-
unum. Það er merkilegt að rifja
hana upp. Það er mikið fjallað um
þessa menningu í dag. Eins og t.d.
í kvikmyndum á borð við Goodbye
Lenin og fleirum, þá gerast þær í
fortíðinni eða fjalla um hana á ein-
hvern hátt. Það virðist sem mörg-
um listamönnum finnist Þýskaland
nútímans ekkert sérlega spenn-
andi.“
Kaminer ætlar í kvöld að segja
frá ferð sinni til Íslands fyrir
þremur árum, en sú saga mun
birtast í næstu bók hans. „Ég ætla
jafnvel að segja frá annarri reisu
sem var töluvert klikkaðri. Ég les
yfirleitt ekki upp úr bókum sem
þegar eru komnar út. Ég vil frek-
ar kynna fólk fyrir nýjum hlutum
sem ég hef verið að vinna að,“
segir Kaminer og það fer ekki á
milli mála að hann skemmti sér
vel í síðustu ferð sinni hér á landi.
„Mér fannst ótrúlega merkilegt að
það sem er ómissandi að sjá á Ís-
landi er ósýnilegt. Eins og t.d. álf-
ar og tröll og þingið á Þingvöllum.
Maður sér þessa hluti ekki, þó svo
að ómissandi sé að sjá þá. Ég var
með magnaðan og afar áhuga-
saman leiðsögumann. Honum
fannst bókstaflega allt merkilegt
og hafði ekki undan við að benda á
allt. Og þá meina ég allt.“ Að lok-
um segir Kaminer að sér líki ákaf-
lega vel við Íslendinga. „Í suðrinu
er fólk oft að skella upp brosum. Í
norðrinu sést meira á fólki að lífið
er oft smá vandamál og það þarf
að takast á við það. Það er meira
eins og ég upplifi það.“
Fólk | Vinsæli rithöfundurinn og plötusnúðurinn Wladimir Kaminer staddur á landinu
Skrifar á virkum
dögum og þeytir
skífum um helgar
Eftir Jón Gunnar Ólafsson
jongunnar@mbl.is
Morgunblaðið/ Jim Smart
Wladimir Kaminer ásamt Olgu konu sinni. Hann ætlar að segja Íslendingum ferðasögur í kvöld.
Í MORGUNBLAÐINU sl. mánudag
var því haldið fram að bloggi Unnar
Birnu fegurðar-
drottningu hefði
verið lokað vegna
kröfu frá að-
standendum
keppninnar
Ungfrú Alheim-
ur. Hið rétta er
að Unnur ákvað
sjálf að læsa síð-
unni tímabundið
og breyta gamalli
færslu sem henni fannst ekki eins
sniðug og þegar hún skrifaði hana.
Það leiðréttist hér með og er Unnur
beðin velvirðingar á mistökunum.
Leiðrétting
Unnur Birna
Vilhjálmsdóttir