Morgunblaðið - 19.08.2006, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2006 43
KIRKJUSTARF
Helgistund og
gönguferð að Prests-
vörðu á Miðnesheiði
Sunnudaginn 20. ágúst verður farin
gönguferð að Prestsvörðu á Mið-
nesheiði þar sem haldin verður
helgistund. Fólk mæti við kirkjuna
kl. 11 og verður ekið þaðan að golf-
skálanum. Þeir sem ekki koma ak-
andi geta þá fengið far. Frá golf-
skálanum verður gengið að
vörðunni sem er innan við hálftíma
gangur. Þar verður helgistund.
Loks verður haldið aftur að kirkj-
unni þar sem boðið verður upp á
kaffiveitingar.
Hjarðarholts- og
Hvammsprestakall
Sunnudaginn 20. ágúst verður hald-
ið upp á síðbúið 100 ára afmæli
Hjarðarholtskirkju en kirkjan hefur
verið kölluð fyrsta nútímakirkja ís-
lensk, teiknuð af Rögnvaldi Ólafs-
syni. Hátíðarguðsþjónusta hefst kl.
14 og mun biskup Íslands, herra
Karl Sigurbjörnsson, blessa nýtt
þjónustuhús við kirkjuna, en það
verður til sýnis frá kl. 13. Guðsþjón-
ustan er hluti af vísitasíu biskups Ís-
lands til safnaðarins. Allir velkomn-
ir.
110 ára vígsluafmæli
Akraneskirkju
Þess verður minnst á morgun, 20.
ágúst, kl. 14 að 110 ár eru liðin frá
því að Akraneskirkja var vígð. Af
því tilefni verður efnt til hátíðarguð-
sþjónustu.
Vígslubiskupinn í Skálholti, hr.
Sigurður Sigurðarson, prédikar. Sr.
Eðvarð Ingólfsson sóknarprestur og
sr. Þorbjörn Hlynur Árnason, pró-
fastur Borgfirðinga, þjóna fyrir alt-
ari. Sóknarnefndarfólk tekur þátt í
athöfninni.
Kirkjukór Akraness syngur. Frið-
rik Vignir Stefánsson leikur á orgel.
Að guðsþjónustu lokinni verður
kirkjugestum boðið til kaffi-
samsætis í Safnaðarheimilinu Vina-
minni.
Af selum og
sjávarskrímslum
Hinn árlegi kirkjudagur í Strand-
arkirkju í Selvogi verður nk. sunnu-
dag 20. ágúst 2006. Dagurinn hefst
með Maríumessu kl. 14 þar sem dr.
Pétur Pétursson, prófessor og
kirkjuvörður, predikar, sr. Baldur
Kristjánsson sóknarprestur þjónar
fyrir altari, Björg Þórhallsdóttir
söngkona syngur einsöng. Organisti
verður Hilmar Örn Agnarsson
Klukkan 16 verður samkoma í kirkj-
unni þar sem dr. Gunnlaugur A.
Jónsson prófessor flytur erindi:
Stríðsmenn Faraós og Strand-
arkirkju; Af selum og sjáv-
arskrímslum. dr. Terry Gunnell dós-
ent flytur erindi: Strendur sem
landamæri í íslenskri þjóðtrú. Kári
Bjarnason kynnir Rósu, íslenskt
Maríusálmahandrit frá síðmið-
öldum. Guðrún Ásmundsdóttir leik-
kona les úr Rósu. Björg Þórhalls-
dóttir söngkona syngur valin erindi
úr Rósu. Séra Baldur Kristjánsson
flytur hugvekju og bæn. Gaman
væri að sjá sem flesta á þessum
kirkjudegi og eins og allir vita er
veitingahús í Selvogi og einnig
handverksfólk sem sýnir og selur.
Laugarneskirkja
vaknar
Nú rumskar Laugarneskirkja af sín-
um árvissa sumardvala og hringir til
messu sunnudagskvöldið 20.8. kl.
20. Um leið hefur hver liður safn-
aðarstarfsins göngu sína að nýju og
hvetjum við fólk til að fylgjast með
því á vefsíðu safnaðarins, ‘laug-
arneskirkja.is’. í vikunni framundan
mun 12 spora fólk koma saman á
þriðjudagskvöldið kl. 20, þótt form-
legir fundir hefjist ekki fyrr en í
þeirri næstu. Mömmumorgunn
verður á sínum stað á miðvikudegi
kl. 10 og gönguhópurinn Sólar-
megin leggur af stað frá kirkjudyr-
um þennan miðvikudagsmorgun
eins og alla aðra miðvikudags-
morgna ársins kl. 10.30. Þar er frá-
bær félagsskapur hraustra eldri
borgara á ferð sem öllum stendur
opinn. Kyrrðarstund verður svo í
hádegi á fimmtudaginn. Sunnudag-
inn 27.8. verður svo fyrsta morg-
unmessan kl. 11 ásamt sunnudaga-
skólanum sem nú sem fyrr er í
umsjá sr. Hildar Eirar Bolladóttur
og Þorvaldar Þorvaldssonar söngv-
ara, en þeim til fulltingis verður ung
og bráðefnileg menntaskólastúlka,
Stella Rún að nafni. Það er nýtt og
kröftugt starfsár framundan í Laug-
arneskirkju og hvetjum við fólk til
virkrar þátttöku.
Fermingarstarf
Fríkirkjunnar
í Hafnarfirði
Fermingarstarfið er nú að hefjast í
Fríkirkjunni í Hafnarfirði og stend-
ur skráning yfir. Kynningarfundir
með fermingarbörnum voru nú í
vikunni og þau sem enn eiga eftir að
mæta á kynningarfund eru beðin að
mæta í safnaðarheimilið á þriðju-
daginn kl. 17. Annað kvöld verður
svo guðsþjónusta í kirkjunni kl. 20
og að henni lokinni fundur með
væntanlegum fermingarbörnum og
foreldrum þeirra. Á fundinum verð-
ur rætt um fyrirkomulag ferming-
arstarfsins, væntanlegt ferðalag og
fermingardagana í vor.
Þorvaldur Halldórsson
og Margrét Scheving í
Seltjarnarneskirkju
Þorvaldur Halldórsson og Margrét
Scheving koma í heimsókn í Sel-
tjarnarneskirkju sunnudaginn 20.
ágúst kl. 11. Þau hjónin munu leiða
sálmasöng og flytja okkur ljúfa og
létta tóna eins og þau eru þekkt fyr-
ir. Verið hjartanlega velkomin í
notalega lofgjörðarmessu. Sr. Arna
Grétarsdóttir.
Menningarnótt
í Hallgrímskirkju
Laugardaginn 19. ágúst verður
Menningarnótt í Reykjavík. Hall-
grímskirkja verður opin frá kl. 9–
20. Dagskráin í kirkjunni þennan
dag verður með þessum hætti: Há-
degistónleikar kl. 12. Björn Steinar
Sólbergsson organisti leikur á orgel
kirkjunnar, ókeypis aðgangur. Kór-
tónleikar kl. 16. Grænlenski kórinn
Ingeratsila syngur kirkjulega tón-
list, ókeypis aðgangur. Kvöldbæn kl.
18. Sr. Birgir Ásgeirsson.
Fermingarbörn og kór
frá Grænlandi í aðal-
hlutverki í guðsþjónust-
unni í Árbæjarkirkju á
sunnudag
Guðsþjónusta verður að venju kl. 11
á sunnudaginn í Árbæjarkirkju.
Undanfarin vika hefur verið lífleg
og skemmtileg með föngulegum
hópi fermingarbarna sem ætla að
fermast vorið 2007. Þetta hefur ver-
ið vika full af fræðslu, útiveru, söng
og gleði. Fermingarbörnin munu
taka virkan þátt í guðsþjónustunni
með ritningarlestri, söng, helgileik
og bænagjörð. Ein stúlka úr hópn-
um, Sæunn Ragnarsdóttir, leikur á
fiðlu og einnig munu fermingarbörn
taka á móti þeim sem koma til
kirkju. Kirkjukórinn fór í heimsókn
til Tasiilaq, höfuðstaðar Austur-
Grænlands, í sumar og tók þar þátt í
kóramóti. Nú er kominn kór í heim-
sókn frá Tasiilaq og mun taka þátt í
Menningarnótt og einnig guðsþjón-
ustunni í Árbæjarkirkju. Kórinn
mun syngja við upphaf og lok guðs-
þjónustunnar og fögnum við komu
þessara vina okkar innilega. Org-
anisti er Krisztina Kalló Szklenár.
Að guðsþjónustunni lokinni verður
stuttur fundur með foreldrum ferm-
ingarbarnanna þar sem farið verður
yfir starfið framundan.
Þingvallaferð
Nessafnaðar
Sunnudaginn 27. ágúst verður farin
safnaðarferð Neskirkju til Þing-
valla. Farið verður frá Neskirkju kl.
13. Á Þingvöllum mun hópurinn
sækja messu í Þingvallakirkju kl. 14.
Organisti er Guðmundur Vilhjálms-
son. Prestur er sr. Sigurður Árni
Þórðarson. Eftir messu mun hann
fara um þinghelgi og ræða um Þing-
velli. Síðan verður ekið um Gríms-
nes og kaffiveitingar verða í hinum
nýja Þrastarlundi. Fararstjórar
verða formaður og varaformaður
sóknarnefndar Neskirkju, Ingibjörg
R. Guðmundsdóttir og Hanna Jo-
hannessen. Skráning er í Neskirkju í
s. 511-1560. Þingvellir laða og opna
fangið. Komið fagnandi.
Fyrsta altarisganga
fermingarbarna
Stór hluti væntanlegra ferming-
arbarna næsta vors í Neskirkju hef-
ur sótt námskeið alla þessa viku í
kirkjunni og fræðst um kristna trú.
Við messu á sunnudaginn kl. 11 fá
þau að ganga til altaris í fyrsta sinn
og er þess vænst að foreldrar eða
forráðamenn þeirra taki þátt í mess-
unni með þeim. Fyrri hluta nám-
skeiðsins lýkur með þessari messu
en svo tekur við starf í allan vetur
þar sem fermingarbörnin mæta
reglulega í kirkju, taka þátt í hjálp-
arstarfi og sinna ýmsum verkefnum.
Fjölskyldan tekur þátt í ferming-
arfræðslunni til að mynda með því
horfa á valdar kvikmyndir með
þeim og er tilgangurinn með því að
þau verði læs á myndmál kvikmynda
og átti sig betur á þjóðfélagslegri
ábyrgð kristinnar kirkju.
Kaffisala í
Ölveri 20. ágúst
Hin árlega kaffisala Ölvers sum-
arbúða KFUK verður næstkomandi
sunnudag: 20. ágúst. Frá kl. 14.30–
18. Boðið er upp á glæsilegt kaffi-
hlaðborð á sanngjörnu verði til
styrktar starfinu í Ölveri, sum-
arbúðum KFUK, undir Hafnarfjalli.
Öll leiktæki verða opin, þar á meðal
stærsta hengirúm á Íslandi, hopp-
kastali en þá verður candy-flos-vél á
staðnum. Starfinu í Ölveri fer senn
að ljúka en rúmlega 400 stúlkur
dvöldu í Ölveri í sumar. Kaffisalan
er að sjálfsögðu öllum opin og gott
tækifæri fyrir alla fjölskylduna til
að fara í góðan sunnudagsbíltúr í
Borgarfjörð og kíkja í Ölver í leið-
inni.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Laugarneskirkja
ÍSLANDSMÓTIÐ í skák eða
Skákþing Íslands, landsliðsflokkur,
eins og það heitir víst réttu nafni,
hefst sunnudaginn 20. ágúst kl.
14.00 í Skákhöllinni Faxafeni 12.
Það var fyrst keppt um Íslands-
meistaratitilinn árið 1913 og eru því
sjö ár í að keppnin um æðstu met-
orðin í íslensku skáklífi verði 100 ára
gömul. Fyrsti Skákmeistari Íslands
var Pétur Zóphóníasson og hélt
hann titlinum í 5 ár eða þar til að
Eggert Gilfer varð Íslandsmeistari
árið 1918. Eggert varð afar sigur-
sæll á Íslandsmótinu og vann titilinn
alls sjö sinnum, síðast árið 1942.
Baldur Möller hafði þá haslað sér
völl í skáklistinni en hann varð Ís-
landsmeistari fyrst árið 1938 og
vann keppnina einnig alls sjö sinn-
um, síðast árið 1950.
Á síðasta ári varð stórmeistarinn
Hannes Hlífar Stefánsson Íslands-
meistari í sjöunda skipti og jafnaði
þar með met Eggerts og Baldurs.
Hannes varð Íslandsmeistari árið
1998 og hefur unnið öll mót síðan þá
nema árið 2000 þar sem hann tók
ekki þátt. Í ár er hann á meðal kepp-
enda og er hann stigahæstur þeirra.
Fyrirfram búast margir við því að
hann nái að verja titilinn og slái þar
með met í fjölda Íslandsmeistara-
titla. Keppnin verður hinsvegar
sjálfsagt hörð en fyrirkomulag
hennar verður á þá lund að í upphafi
taka 16 skákmenn þátt og tefla þeir
tveggja skáka einvígi. Sigurvegar-
inn heldur áfram í átta manna úrslit
og svo koll af kolli þar til eftir
standa tveir skákmenn sem etja
kappi um Íslandsmeistaratitilinn.
Í fyrstu umferð mótsins tefla
saman eftirfarandi skákmenn:
Hannes Hlífar Stefánsson (2569) – Snorri G.
Bergsson (2335)
Henrik Danielsen (2517) – Sigurbjörn
Björnsson (2342)
Stefán Kristjánsson (2491) – Tómas Björns-
son (2180)
Þröstur Þórhallsson (2461) – Jóhann H.
Ragnarsson (2111)
Héðinn Steingrímsson (2449) – Dagur Arn-
grímsson (2327)
Guðlaug Þorsteinsdóttir (2133) – Arnar E.
Gunnarsson (2432)
Jón Viktor Gunnarsson (2406) – Þorvarður
F. Ólafsson (2140)
Hjörvar Steinn Grétarsson (2139) – Bragi
Þorfinnsson (2379)
Ef að líkum lætur ættu fá óvænt
úrslit að líta dagsins ljós í fyrstu
umferð. Hinsvegar verður spenn-
andi að fylgjast með gengi stór-
meistarans Henriks Danielsens en
hann fékk íslenskan ríkisborgara-
rétt um sl. áramót. Einnig verður
áhugavert að fylgjast með gengi al-
þjóðlega meistarans Héðins Stein-
grímssonar en ekki er ólíklegt að
hann og Hannes tefli saman í 2. um-
ferð mótsins. Héðinn lagði Hannes
að velli þegar hann varð Íslands-
meistari aðeins 15 ára gamall árið
1990 og á grundvelli tignarinnar
fékk hann sæti í íslenska landsliðinu
sem tók þátt í Ólympíuskákmótinu í
Novi Sad í Júgóslavíu árið 1990.
Yngsti keppandinn er Hjörvar
Steinn Grétarsson og er talið að
enginn keppandi á Íslandsmótinu
hafi verið jafnungur og hann. Hinn
13 ára Rimaskólakappi mun án efa
bíta frá sér í einvíginu gegn alþjóð-
lega meistaranum Braga Þorfinns-
syni. Mótið er einnig sögulegt í ljósi
þess að þetta er í annað skipti sem
kona teflir á Skákþingi Íslands,
landsliðsflokki. Íslandsmeistara
kvenna, Guðlaugu Þorsteinsdóttur,
var sérstaklega boðið á mótið og
mun hún án efa gera sitt besta til að
standa upp í hárinu á alþjóðlega
meistaranum Arnari E. Gunnars-
syni.
Teflt verður daglega á Íslands-
mótinu og á virkum dögum hefjast
skákirnar kl. 17.00 en kl. 14.00 um
helgar. Hægt verður að fylgjast með
gangi mála á heimasíðu mótsins,
www.skaksamband.is., en Orkuveita
Reykjavíkur er aðalstyrktaraðili
mótsins. Þegar nokkrir dagar hafa
liðið af mótinu hefst samhliða því
áskorendaflokkur Skákþings Ís-
lands. Í því móti verður einnig teflt
um Íslandsmeistaratign í flokki 20
ára og yngri sem og í öldungaflokki.
Keppnin hefst 25. ágúst og stendur
til 2. september næstkomandi. Teflt
verður í Skákhöllinni í Faxafeni 12
en nánari upplýsingar um mótið er
að finna á www.skak.is.
Bragi Halldórsson
hlutskarpastur á stórmóti
Árbæjarsafns og TR
Sunnudaginn 13. ágúst sl. fór
fram stórmót Árbæjarsafns og Tafl-
félags Reykjavíkur. Skákhátíðin
hófst með því að skákmeistararnir
Bragi Halldórsson og Guðmundur
Kjartansson tefldu saman með lif-
andi taflmönnum, þ.e. fólki var leikið
á stóru taflborði. Þetta uppátæki
heppnaðist vel þó að samankomið
væri fólk úr öllum áttum. Viðstaddir
höfðu gaman af en skákinni lauk
með sigri Guðmundar eftir fingur-
brjót Braga.
Á mótinu sem hófst eftir þetta
sýndi Bragi hinsvegar fáum mis-
kunn og varð hann hlutskarpastur á
því þegar hann fékk 6½ vinning af 7
mögulegum. Næstur kom Hjörvar
Steinn Grétarsson með 6 vinninga
en Hrannar Baldursson hreppti
þriðja sætið. Alls tóku 27 skákmenn
þátt í þessu líflega móti en teflt var í
óvenjulegu umhverfi Kornhússins.
Þetta er þriðja árið í röð sem mótið
er haldið og í ár var það vel sótt af
yngstu kynslóðinni.
Íslandsmótið
í skák hefst
á morgun
SKÁK
Skákhöllin Faxafeni 12
ÍSLANDSMÓTIÐ Í SKÁK 2006
20. ágúst–2. september 2006
Helgi Áss Grétarsson
daggi@internet.is
Morgunblaðið/Ómar
Mun hinn 13 ára Hjörvar Steinn slá
í gegn á Íslandsmótinu?
Morgunblaðið/Ómar
Slær Hannes met í ár með því að
verða Íslandsmeistari í skák í 8.
skipti?