Morgunblaðið - 19.08.2006, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 19.08.2006, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR LISTAMENN frá Litháen munu væntanlega setja svip sinn á Menn- ingarnótt en hingað til lands kemur um 150 manna sendinefnd frá Litháen og er þar á meðal fjöldi listamanna sem taka mun þátt í há- tíðahöldunum í Reykjavík. Á Bessastöðum verður jafnframt undirritaður vinabæjarsáttmáli milli Vilnius og Reykjavíkur af borgarstjórum borganna. Gintau- tas Babravicius fyrrverandi þing- maður í Litháen hefur verið frum- kvöðull að undirbúningi þessara samskipta. „Þessar vinaþjóðir eru að efla sín tengsl ennþá frekar og þetta er ánægjuleg viðleitni til að sýna í verki þann hug sem Litháar bera til íslensku þjóðarinnar. Þetta er allt í þakkarskyni við íslensku þjóðina fyrir atfylgi í sjálfstæðisbaráttunni sem lauk fyrir 15 árum síðan er þeir endurheimtu sjálfstæði sitt,“ segir Jakob Frímann Magnússon sem annast hefur undirbúning og útfærslu heimsóknarinnar. Fulltrúar sendinefndarinnar munu afhenda forseta Íslands milli tvö og þrjú hundruð þúsund undir- skriftir frá fólki sem vottar ís- lensku þjóðinni þakklæti fyrir veitta aðstoð á sínum tíma. Ljósmyndir, listflug, lúðrar og LT United Jón Baldvin Hannibalsson hefur opnað litháska ljósmyndasýningu sem ber heitið 24 stundir. Á sýning- unni eru myndir sem teknar voru af fjölda ljósmyndara daginn sem Litháen gekk í Evrópusambandið fyrir tveimur árum. Sýningin er í húsi Tryggingamiðstöðvarinnar við Aðalstræti 6 og verður opin áfram eftir Menningarnótt. Lúðrasveitin Trimitas mun flytja tónlist á götum Reykjavíkur í dag og litháskur listflugmaður mun sýna listir sínar á sérútbúinni flug- vél yfir Reykjavíkurhöfn klukkan 17. Litháska veitin LT United tekur þátt í tónlistardagskrá Menning- arnætur og stígur á svið á Ingólfs- torgi kl. 21:30. Er um að ræða eina vinsælustu rokksveit Litháens og var hún framlag Litháa til söngva- keppni evrópskra sjónvarpsstöðva í fyrra og lenti í sjötta sæti með lagið „We are the winners of Eurovisi- on.“ Morgunblaðið/RAX Litháískur listflugmaður, Jurgis Kairys, mun sýna listir sínar á sér- útbúinni flugvél yfir Reykjavíkurhöfn kl. 17 í dag, á Menningarnótt. Litháískir lista- menn með á Menningarnótt Tískuveldi Lindu K. Bennett á morgun SÖKUM dagskrár Menning- arnætur í Reykjavík í dag, laug- ardag, mun lögregla loka Sæ- braut frá Geirsgötu í vestri að Kringlumýrarbraut í austri, frá klukkan 15 í dag. Þá mun Hverf- isgata vera lokuð fyrir almennri umferð frá klukkan 10 þar sem umferð sjúkrabíla verður beint um hana. Fleiri götum verður lokað bæði vegna Reykjavíkurmaraþons og dagskrár Menningarnætur og mun lögregla sinna umferð- arstjórnun um Sæbraut, Hring- braut, Miklubraut, Bústaðaveg og á fleiri stöðum. Eru ökumenn beðnir um að sýna þolinmæði og lipurð og fylgja fyrirmælum lög- reglu. Þá eru íbúar miðbæjarins beðn- ir um að takmarka notkun einka- bifreiða eins og kostur er. Hvað bílastæði varðar bendir lögregla á bílastæði við Mið- bakka, Háskólann, Valsheimili, Hallgrímskirkju, Kjarvalsstaði og ofarlega á Sæbraut. Frá bílastæð- unum er gestum hátíðarinnar bent á að taka strætisvagn, en vagnar munu ganga sérstakan menningarhring og ferja öku- menn á áfangastaði. Lokanir vegna maraþons og Menningarnætur                           !          "" #$" % & #$   " "' #( )  *"')  #+' #   ,  &    --      -,  #     !                           MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi athugasemd frá Önnu Sigríði Guðnadóttur, varaformanni Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ: „Oddviti Vinstri grænna í Mos- fellsbæ kýs að hlaupast frá eigin gjörðum og freistar þess í viðtali við blaðamann Morgunblaðsins sem birtist 17. ágúst, að drepa umfjöllun um umhverfi Varmárinnar á dreif með kveinstöfum yfir greinaskrifum í bæjarblaðið í Mosfellsbæ. Greina- skrifum sem einna helst hafa gengið út á það að kalla eftir stefnu núver- andi meirihluta. Eftirtektarvert er að í viðtalinu minnist oddviti Vg ekki einu orði á tengibrautina milli Skeiðholts og Leirvogstungu sem væntanleg er yf- ir Varmána. Því miður kemur ekki fram í frétt Morgunblaðsins að til- laga Samfylkingarinnar, sem Vinstri grænir felldu með fulltingi sam- starfsflokksins, var um að sú fram- kvæmd yrði sett í umhverfismat. En sú þögn er í góðum takti við hróp- andi þögn fulltrúa Vg í bæjarstjórn og bæjarráði þegar málefni tengd Varmánni eru til umfjöllunar þar. Í frétt Morgunblaðsins var því miður ekki greint frá tillögum Sam- fylkingarinnar en þeim sem vilja kynna sér málið nánar er bent á sam- antekt fundargerða á vef Samfylk- ingarinnar í Mosfellsbæ, www.xs.is/ mos eða á vef Mosfellsbæjar, www.mos.is.“ Athuga- semd vegna frétta um Varmá ♦♦♦ SIV Friðleifsdóttir er líklegri en Jón Sigurðsson til þess að auka fylgi Framsóknarflokksins í kom- andi alþingiskosningum. Þetta kem- ur fram í símakönnun sem IMG Gallup framkvæmdi að beiðni Stuðningsmanna Framsóknar- flokksins, sem eru stuðningsmenn Sivjar. Í könnuninni voru þátttakendur spurðir hvort meiri líkur væru á að viðkomandi myndi kjósa Framsókn- arflokkinn í næstu alþingiskosning- um undir formennsku Jóns Sigurðs- sonar eða Sivjar Friðleifsdóttur. Alls sögðu 34% svarenda líklegra að þeir myndu kjósa Framsóknar- flokkinn ef Siv leiddi hann en 12,6% sögðu meiri líkur á að þeir myndu kjósa flokkinn ef Jón leiddi hann. 6,5% svarenda sögðu það ekki hafa áhrif hvort þeirra leiddi flokkinn. Alls sögðust 46,9% svarenda ekki myndu kjósa Framsóknarflokkinn. Þegar svörin eru greind meðal þeirra sem sögðust mögulega kjósa Framsóknarflokkinn sögðust 64,1% frekar vilja Siv sem formann, 23,7% sögðust vilja sjá Jón sem formann, en 12,2% töldu það ekki hafa áhrif hvort þeirra leiddi flokkinn. Könnunin náði til 590 einstak- linga á aldrinum 18–75 ára á öllu landinu og var svarhlutfall 61,5%. Siv líklegri til að auka flokksfylgi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.