Morgunblaðið - 19.08.2006, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2006 45
FRÉTTIR
LEIÐRÉTT
Sandgerðisdagar
felldir niður
RANGHERMT var í frétt blaðsins í
gær að Sandgerðisdagar yrðu fluttir
til 26. til 27. ágúst vegna banaslyssins
á Garðskagavegi. Hið rétta er að þeir
hafa verið felldir niður. Einnig leið-
réttist að Guðmundur Adam Óm-
arsson sem lést í slysinu bjó ekki í
Reykjanesbæ, heldur Sandgerði.
Beðist er velvirðingar á mistökunum.
Adolf tók myndina
ADOLF Friðriksson, forstöðumaður
Fornleifastofnunar, tók myndina af
beinagrindinni sem fannst í Hrings-
dal í Arnarfirði á dögunum og birtist í
blaðinu í gær. Ranghermt var að
Ragnar Axelsson (RAX) hefði tekið
myndina. Beðist er velvirðingar á
mistökunum.
Vörur án
virðisaukaskatts,
verð breytist þó ekki
EFTIRFARANDI árétting barst í
gær frá Einari Þór Sigurgeirssyni,
rekstrarstjóra Office 1.
„Í verðkönnun ASÍ á nýjum náms-
og orðabókum frá því í gær, 17. ágúst,
kom fram að lægsta verð þessara
bóka er í langflestum tilfellum hjá Of-
fice 1. Þetta eru vissulega góðar frétt-
ir fyrir starfsfólk okkar sem leggur
hart að sér að tryggja námsmönnum
vörur á hagstæðu verði.
Í morgun kom í ljós að bilun í tölvu-
kerfi Office 1 hafði orsakað það að
nokkrir hillumiðar á könnuðum bók-
um voru án 14% virðisaukaskatts.
Alls voru þetta 8 titlar af þeim 33 sem
kannaðir voru. Í öllum þessum 8 til-
fellum var lægsta verðið hjá Office 1,
hvort sem verð var án virð-
isaukaskatts eða að honum með-
töldum.
Í kjölfar þess að villa þessi upp-
götvaðist var tafarlaust haft samband
við ASÍ og látið vita af þessum mis-
tökum. Office 1 stendur við verðið
sem fram kemur í könnuninni og hef-
ur nú þegar verð þessara 8 titla verið
leiðrétt í samræmi við verð könn-
unarinnar.
Um leið og við hörmum að þessi
bilun skyldi koma upp þökkum við
frábær viðbrögð viðskiptavina við
verðkönnuninni það sem af er degi.“
Skutlað í miðbæinn
FYRIRTÆKIÐ Skutlan ehf. býður
upp á skutl á sunnudaginn fyrir 500
krónur frá öllu höfuðborgarsvæð-
inu fyrir fólk sem vill ná í farartæki
sín sem skilin hafa verið eftir í mið-
bænum.
Viðkomandi gengur frá sunnu-
dagsskutli í strætósjoppunni við
Lækjartorg á Menningarnótt.
Skutlþjónustan verður á sunnudag-
inn og er viðkomandi sóttur heim
til sín milli kl. 14 og 17 og keyrður í
miðbæ Reykjavíkur.
Stækka GSM-kerfið
á Menningarnótt
SÍMINN hefur gert ráðstafanir til
að bregðast við auknu álagi á
GSM-kerfi sitt á Menningarnótt.
Vegna hátíðarinnar verður fær-
anlegum GSM-stöðvum komið fyr-
ir í miðbænum. Einnig mun Sím-
inn auka afkastagetu annarra
stöðva sem fyrir eru á höfuðborg-
arsvæðinu.
Í Stykkishólmi, þar sem haldnir
eru danskir dagar þessa sömu
helgi, hefur Síminn þegar meira
en tvöfaldað afkastagetuna á
svæðinu.
Einnig eru Töðugjöld á Hellu,
en þar hefur afkastageta sömu-
leiðis verið tvöfölduð, segir í
fréttatilkynningu.
STJÓRN Kennarasambands Ís-
lands (KÍ) hefur sent frá sér álykt-
un þar sem lýst er yfir undrun á
ákvörðun nýs meirihluta í borg-
arstjórn Reykjavíkur um stofnun
leikskólaráðs og bendir á að ekk-
ert samráð hafi verið haft við fag-
stéttir eða foreldra um ákvörð-
unina. Ályktunin var samhljóða
samþykkt á fundi stjórnar KÍ á
fimmtudag.
Þar segir að á undanförnum
misserum hafi umræða um skóla-
mál miðað að því að eyða sem mest
skilum á milli skólastiga þannig að
hún falli saman við hugmyndir um
fljótandi skil skólastiga. „Þetta
kallar á að fjallað sé um skólamál í
leik- og grunnskólum sem eina
heild og þess vegna er það spor
aftur á bak að kljúfa núverandi
menntaráð í tvennt og færa mál-
efni leikskóla undir sérstakt leik-
skólaráð. Engin fagleg rök hafa
verið færð fyrir þessari ákvörðun
þótt eftir því hafi verið leitað.“
Stjórn KÍ gagnrýnir einnig svo-
kallað samráð meirihlutans en
þegar ákveðið var að fara í þessa
framkvæmd voru fulltrúar kenn-
ara og stjórnenda kallaðir til
skyndifundar í miðju sumarleyfi og
þeim tilkynnt ákvörðunin og það
kallað samráð. „Það er deginum
ljósara að engin fagleg rök liggja
að baki þessari ákvörðun og öll
málsmeðferðin minnir á áratuga-
gamla stjórnunarhætti. Ákvörðun
af þessu tagi er í hrópandi and-
stöðu við stefnu Kennarasambands
Íslands, menntamálaráðuneytisins
og kennaramenntunarstofnana um
málefni leik- og grunnskóla og
menntun kennara á þeim skólastig-
um,“ segir í ályktuninni og einnig
að stjórnin fordæmi vinnubrögð
borgarstjórnar og vænti þess að
hún endurskoði ákvörðun sína.
Kennarasambandið undrast
ákvörðun borgarstjórnar
HEKLA opnar í dag nýjan sýning-
arsal fyrir Skoda á Laugavegi 172.
Opnunarhátíðin fer fram í dag,
laugardaginn 19. ágúst, kl. 11–16
og eru allir velkomnir. Þar verður
forsýning á nýjustu framleiðslu
Skoda-verksmiðjanna – Skoda Ro-
omster – fimm dyra liprum og spar-
neytum fólksbíl með gott innra
rými. Einnig fer fram kynning á of-
urbíl frá Skoda, fólksbílnum Oc-
tavia RS með 200 hestafla vél.
Í tilefni dagsins verður jafnframt
boðið upp á opnunartilboð á Skoda.
Einnig verður boðið upp á veit-
ingar; grillaðar pylsur, gos og
íspinna, og börnin fá blöðrur.
Forsýning á
Skoda í nýjum
sýningarsal