Morgunblaðið - 19.08.2006, Síða 42

Morgunblaðið - 19.08.2006, Síða 42
42 LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ ÚR VESTURHEIMI ÞJÓÐRÆKNISFÉLAG Íslendinga og fleiri hafa í auknum mæli skipu- lagt ferðir á Íslendingaslóðir í Vesturheimi og í þessum ferðum hafa margir hitt ættingja sína í fyrsta sinn. Ættfræðimiðstöð hefur verið starfrækt í tengslum við Íslend- ingahátíðina í Mountain í Norður- Dakota undanfarin ár og hefur hún notið mikilla vinsælda. Á nýliðinni hátíð leiddi hún óvænt saman Ís- lending og tvær amerískar frænk- ur hans. Á sama stað á sama tíma Laxdal-systurnar Norma Thomp- son frá Onamia, Minnesota, og Laurel Bowles frá Milton, Norður- Dakota, heimsóttu ættfræðimið- stöðina í þeim tilgangi að afla upp- lýsinga um ömmu sína, Sigríði Jón- atansdóttur. Hún flutti frá Íslandi 1888 og fjölskyldutengslin við Ís- land rofnuðu. George Freeman og Pam (Olafson) Furstenau sjá um ættfræðimiðstöðina og hafa þau að- stoðað marga í gegnum tíðina. Pam var laus og systurnar fengu hana til að aðstoða sig. Hún fann nöfn foreldra Sigríðar, upplýsingar um brúðkaup þeirra og skírn Sig- ríðar á Myrká í Eyjafirði. Þessar upplýsingar eru geymdar á örfilmu og ráðlagði Pam systrunum að fá sér filmuna. Systurnar þökkuðu fyrir sig og héldu áleiðis út úr húsinu. Á sama tíma gekk Sigþór Guðmundsson inn í húsið ásamt konu sinni Maríu Marteinsdóttur. Þau voru í hópferð á vegum Ferðaþjónustu bænda á Íslandi og Sigþór vildi nota tæki- færið til að fá upplýsingar um afa sinn og fjölskyldu hans sem flutti vestur frá Íslandi skömmu fyrir 1890. Hann sá að Pam var laus, gekk rakleiðis til hennar og sýndi henni það sem hann hafði um afa sinn. Pam renndi yfir blöðin til að sjá hvort hún kannaðist við kunn- uglegt nafn eða nöfn og sá fljótlega að afi Sigþórs og amma Laxdals- systranna höfðu verið systkin. Pam stökk upp úr stólnum, veifaði út öllum öngum og kallaði: „Komið aftur, komið aftur, þið eruð frænd- systkin.“ Systurnar voru enn í hús- inu og þeim brá óneitanlega við hrópin. Þær vissu ekki hvaðan á sig stóð veðrið og því síður Sigþór en gleði þeirra var mikil þegar málið hafði verið útskýrt fyrir þeim. Eiginmaður Sigríðar var Sig- mundur Sigurðsson. Þau settust að nálægt Garðar í Norður-Dakota og þar sem svo margir Sigurdsson bjuggu á svæðinu breyttu þau nafninu í Laxdal enda höfðu þau búið í Laxárdal á Íslandi. Þetta vissi Sigþór ekki en hann fann það sem hann leitaði að, þökk sé ætt- fræðimiðstöðinni í Mountain. Sigþór og María komu til lands- ins í gærmorgun og létu vel af ferðinni. „Þú hefðir átt að sjá stúlk- una,“ segir María um viðbrögð Pam. „Það var svo gaman að fylgj- ast með viðbrögðum hennar og við vissum ekkert hvað var í gangi þegar hún stökk upp úr stólnum og kallaði á konurnar.“ „Þetta var ótrúleg tilviljun,“ bætir Sigþór við. „Ég vissi af ættingjum mínum vestra en átti ekki von á að hitta einhverja þeirra á þessum stað. Þetta gerðist svo snöggt og við átt- uðum okkur ekki almennilega á þessu en ég náði að taka mynd af frænkum mínum.“ Nýtt hús Ættfræðimiðstöðin var í nýju húsi að þessu sinni. Tim og Susan (Sigurdson) Powers keyptu hús í Mountain og gerðu það upp og með hjálp margra sjálfboðaliða tókst þeim að gera húsið tilbúið fyrir ættfræðimiðstöðina áður en hátíðin hófst. Fann frænkur sínar í ættfræðimiðstöðinni í Mountain Ljósmynd/Sigþór Guðmundsson Laxdal-systurnar Norma Thompson frá Onamia, Minnesota, og Laurel Bowl- es frá Milton, Norður-Dakota, utan við ættfræðimiðstöðina í Mountain. Morgunblaðið/ÞÖK Sigþór Guðmundsson og María Marteinsdóttir eftir heimkomuna í gær. „Ótrú- leg til- viljun“ Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is ÞEGAR Íslendingar settust að vest- an við Winnipegvatn, þeir fyrstu 21. október 1875, mættu þeir margri mótspyrnunni. Þeir áttu þó óvæntan hauk í horni, frumbyggjahöfðingj- ann John Ramsay sem bjó skammt norðan við Íslendingafljót rétt hjá þar sem síðar varð Riverton og að- stoðaði þá á margan hátt fyrstu árin. Betsey, eiginkona Johns, dó úr bólusótt rétt eins og margir Íslend- ingar og aðrir íbúar á svæðinu vet- urinn 1876–1877 og John féll frá fyr- ir 1910. Hann var jarðaður við hlið konu sinnar á Sandy Bar við River- ton. Eftir að hún dó gekk John sem leið lá suður til Selkirk, um 120 km, til að láta útbúa legstein og bar hann svo á bakinu til baka að Sandy Bar og setti á leiðið. Í Geysisbyggð bjó smiður sem hét Trausti Vigfússon. Eina nótt dreymdi hann að til sín kæmi glæsi- legur indjánahöfðingi sem bað hann um að smíða grind og koma henni fyrir umhverfis leiðið á Sandy Bar. Nokkrum árum síðar eða sumarið 1917 uppfyllti hann drauminn og setti hvíta grind umhverfis leiði Ramsay-hjónanna. Fyrir skömmu ákvað Wanda And- erson, umsjónarmaður Snorraverk- efnisins vestra, að snyrta í kringum leiðið og mála grindina og lítur hún nú út eins og ný eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Guttormur J. Guttormsson skáld við leiðið árið 1935. Snyrt í kringum leiðið Ljósmynd/Svava Sæmundsson Leiðið á Sandy Bar. Winnipegvatn í baksýn. NÝLEGA var Neil Ófeigur Bardal sæmdur æðstu viðurkenningu Manitoba- fylkis, The Order of Manitoba, við hátíðlega athöfn í þinghúsinu í Winnipeg. Hann er þriðji maðurinn af íslenskum ættum til þess að hljóta þessa við- urkenningu en hinir eru dr. Baldur R. Stefansson plöntuerfðafræðingur og John Harvard, fylkisstjóri Manitoba. Að þessu sinni fengu 12 manns viðurkenninguna The Order of Manitoba. Henni var komið á 1999 og er hún veitt árlega en Neil er í hópi 97 manns sem hafa verið sæmdir henni. Hún er veitt einstaklingum í Manitoba sem hafa skarað fram úr á einhverju sviði og vakið athygli fyrir framgöngu sína. John Harvard (t.v.) afhendir Neil Bardal viðurkenninguna í Winnipeg. Neil Bardal heiðraður JÓNAS Þór sagnfræðingur hefur stofnað félagið Vest- urheim sf. og er markmið þess að efla tengsl Íslend- inga við afkomendur íslenskra vesturfara í Ameríku. Áhersla verður lögð á ferðir til Vesturheims í sam- vinnu við Þjóðræknisfélag Íslendinga, ÞFÍ, og rann- sóknir og útgáfu efnis er varðar sögu Íslendinga í Vesturheimi. „Ég verð nokkurs konar verktaki fyrir Þjóðræk- isfélagið,“ segir Jónas, sem hefur skipulagt ferðir vest- ur um haf undanfarin fimm sumur fyrir ÞFÍ og farið með marga hópa á slóðir íslenskra vesturfara. Hann segir að haldið verði áfram á sömu braut. Skipulagðar verði ferðir Íslendinga vestur til Bandaríkjanna og Kanada, á staði sem á einn eða annan hátt tengjast sögu vesturfaranna og afkomenda þeirra. Ennfremur verði skipulagðar ferðir frá Vesturheimi til Íslands. „Allar ferðir félagsins verða unnar í samvinnu við ÞFÍ og deildir Þjóðræknisfélags Íslendinga í Vesturheimi svo og félög Íslendinga vestanhafs,“ segir Jónas. Jónas segir að ennfremur sé tilgangur félagsins að stuðla að rannsóknum og útgáfu efnis í hvers kyns mynd er varðar sögu Íslendinga í Vesturheimi auk þess sem áhersla verði lögð á kynningu íslenskrar menningar vestan hafs. Á næsta ári verða farnar fjórar ferðir. Sú fyrsta á Þjóðræknisþingið í Winnipeg í Manitoba í apríl. Í maí verður farið í íslenska nýlendu í Minnesota, á sérsvæði indíána og í nýlendu amish-fólksins í Iowa þar sem tækifæri gefst til að kynnast bútasaumi þessa sérstaka trúarhóps. Í þriðja lagi verður árleg ferð á Íslend- ingadaga í Mountain í Norður-Dakota og Gimli í Mani- toba. Haustið 2007 verður síðan ferð um íslenskar ný- lendur í Austur-Kanada. Farið verður til Marklands í Nýja-Skotlandi og þaðan ekið til Quebec, Ontario, þar sem farið verður til Kinmount og Rosseau en á þessum stöðum reyndu íslenskir vesturfarar fyrst landnám í Kanada. Ætlar Vest- urheimi sf. að efla tengslin Morgunblaðið/Kristinn Fyrir um fjórum árum kom út í Winnipeg í Kanada bók eftir Jónas Þór sagnfræðing, Icelanders in America: The First Settlers eða Landnámssaga Íslendinga í Vesturheimi en tilgangur félags hans er m.a. útgáfa efnis varðandi sögu Íslendinga í Vesturheimi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.