Morgunblaðið - 19.08.2006, Síða 20
Heimsferðir bjóða frábært tilboð til
Króatíu 23. ágúst. Bjóðum, vegna
forfalla, 4 íbúðir á Diamant
íbúðahótelinu á frábæru verði.
Glæsilegar íbúðir með góðum
aðbúnaði. Skelltu þér til Króatíu og
njóttu lífsins í sumarfríinu.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Króatía
23. ágúst
Sértilboð - Diamant íbúðir
frá kr. 29.990
Aðeins 4 íbúðir
Verð kr. 29.990
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2
barn, 2-11 ára, í íbúð á Diamant í viku.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr. 39.990
Netverð á mann, m.v. 2 í íbúð á Diamant
í viku.
Seyðisfjörður | Unnið er hörð-
um höndum um þessar mundir
á Tækniminjasafni Austurlands
á Seyðisfirði við undirbúning
hátíðarhaldanna vegna 100 ára
afmælis símasambands við út-
lönd.
Á afmælisdeginum, 25. ágúst
nk., verður afhjúpað myndverk
eftir listamanninn Guðjón Ket-
ilsson sem Síminn hefur látið
gera og setja upp. Verkið mun
standa nálægt þeim stað sem
sæsímastrengurinn var tekinn í
land árið 1906. Einnig verður
opnuð sýning á eftirlíkingu af
Kabelhúsinu, þar sem Ísland
tengdist umheiminum í fyrsta
sinn og að auki sýning á verk-
um sem lýsa sögu símans frá
upphafi.
Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson
100 ára afmæli símasambands
Tækni
Landið | Akureyri | Árborg
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri sími 569-1100, Skapti Hallgrímsson,
skapti@mbl.is, 669-1114. Vesturland Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og
Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir,
frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Grímur Atlason, nýráðinn bæjar-stjóri Bolungarvíkur, og fjöl-skylda hans voru boðin velkomin
til bæjarins á fjölskylduhátíð í Víkurbæ í
fyrradag. Grímur var boðinn formlega
velkominn til starfa með því að Halla
Signý Kristjánsdóttir, staðgengill bæj-
arstjóra, stóð upp fyrir honum úr tákn-
rænum bæjarstjórastól og hann fékk sér
sæti. Grímur tekur við bæjarstjóra-
stólnum af Einari Péturssyni sem tók við
sem bæjarstjóri í byrjun ársins 2003. Áð-
ur hafði Ólafur Kristjánsson verið bæj-
arstjóri í sextán ár.
Á fréttavefnum bb.is kemur fram að
Grímur fái verðlaun nái hann að fjölga
bæjarbúum á meðan hann situr í bæjar-
stjórastólnum.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Bæjarstjóri boðinn velkominn
Kristján BersiÓlafsson fór áHólahátíð:
Löngun hjá mér til ferða er fátíð
með fótaorkuna skerta.
En núna fer ég á Hólahátíð
heilaga jörð að snerta.
Stefán Vilhjálmsson
sendi honum kveðju:
Þó að gerist fótafúinn
til ferðar kappinn nú er búinn,
kveður á göngu kvæði og rímur
Kristján Bersi, pílagrímur.
Að lokinni Hólahátíð
orti Kristján Bersi:
Að lokinni Hólahátíð
færist helgislepjan í þátíð.
Nú gleymum við guði
og göngum að puði.
Þessi afstaða er ekki svo fátíð!
G. Þorkell Guðbrands-
son heimsótti Kristján:
Að Hólastað í Hjaltadal,
hugði að rótum versa
átti tveggja manna tal
við tiginn Kristján Bersa
Úti norðri napurt hvein
svo næddi um bein og sinar
inni birta andans skein
af arni göfugs vinar.
Til baka hélt á heimaslóð
huldi þokan vegi.
Muna vil ég lengi ljóð
er lærði á þessum degi.
Af Hólahátíð
pebl@mbl.is
♦♦♦
MEÐALFJÖLDI kennsludaga í fram-
haldsskólum í fyrra var 146, sem er einum
degi meira en lög gera ráð fyrir og standa
framhaldsskólar hér á landi sig almennt
vel í að uppfylla kröfur um fjölda kennslu-
daga, segir í nýrri úttekt Hagstofunnar.
Meðalfjöldi kennsludaga í fyrra var ein-
um fleiri en skólaárið á undan en sami
fjöldi og skólaárið 2003–2004. Eftir skólum
var þó misjafnt hve margir dagar væru
kenndir, allt frá 142 og upp í 149.
Í úttektinni kemur fram að reglulegir
kennsludagar hafi verið að meðaltali
tveimur fleiri á vorönn en á haustönn. Þá
var fjöldi daga sem var einungis varið til
prófa og námsmats frá 12 til 31 eftir skól-
um. Hússtjórnarskólarnir tveir skáru sig
úr með 12 og 13 prófdaga en próf eru oft
tekin á kennsludögum í þessum skólum.
Aðrir framhaldsskólar vörðu a.m.k. 23 dög-
um til prófa og námsmats og að meðaltali
var 27 dögum varið til prófa og námsmats
sem var fjölgun um einn dag frá fyrra ári.
Uppfylla
kennslu-
skyldu
JÓN Bjarnason þingmaður VG hefur ósk-
að eftir fundi í samgöngunefnd Alþingis til
að fjalla um nýútkomna skýrslu FÍB um
ástand vega á Íslandi og öryggismál.
Jón vill að nefndin fari yfir stöðuna í
frestunar- og niðurskurðarákvörðun ríkis-
stjórnarinnar í vegamálum og að farið
verði yfir öryggismál í tengslum við elds-
neytisflutninga á þjóðvegum og afleiðingar
gríðarlegra þungaflutninga eftir þjóðveg-
um landsins. Einnig að athugaðir verði
möguleikar á sjóflutningum.
Samgöngunefnd
ræði vegaöryggi
Mikil uppbygging hefur verið á Akranesi und-
anfarin misseri og sér ekki fyrir endann á
þeim framkvæmdum. Ný verslunarmiðstöð
er nú að rísa á nýjum miðbæjarreit og rétt ut-
an við bæinn er verið að reisa hús undir nýja
matvöruverslun.
Margar verslanir hafa hætt á Akranesi á
undanförnum árum eftir að Hvalfjarð-
argöngin voru opnuð árið 1998 en svo virðist
sem þróunin sé að færast til betri vegar því
mikið af verslunarhúsnæði á eftir að rísa í
bænum á næstu mánuðum.
Veitingastöðum mun fjölga í bænum á næstu
vikum þar sem skyndibitakeðjan Subway hef-
ur hug á því að opna útibú á Akranesi.
Er það í fyrsta sinn sem alþjóðleg skyndi-
bitakeðja skýtur rótum sínum á Akranesi og
er það gleðiefni.
Aðeins tveir veitingastaðir hafa verið í
rekstri undanfarin ár á Akranesi en lengi vel
voru þeir þrír, en einn rekstraraðili hefur
hætt starfsemi sinni. Kafbátahernaðurinn
mun eflaust hitta í mark hjá Skagamönnum.
Það hefur ekki verið mikið um að vera í bæj-
armálunum á þessu sumri þrátt fyrir að nýr
meirihluti hafi tekið við völdum í vor. Sum-
arleyfin hafa sett svip sinn á bæjarpólitíkina.
Það er gleðiefni að nýr meirihluti í bæj-
arstjórn ætlar að leggja áherslu á uppbygg-
ingu á nýju tjaldsvæði í Garðalundi sem er
einnig þekkt sem skógræktarsvæði Akurnes-
inga. Lengi hefur verið rætt um að færa tjald-
svæðin á þetta svæði sem er skjólsælt og fal-
legt. Að auki stendur til að reisa nokkur
smáhýsi sem verða til útleigu fyrir þá sem
vilja gista í Garðalundi en margir hafa sagt að
Garðalundur sé vel geymt leyndarmál í næsta
nágrenni við golfvöllinn, Garðavöll.
Íbúar með lögheimili á Akranesi eru 5.905 og
hafa þeir aldrei verið fleiri frá stofnun kaup-
staðarins. Þann 1. desember árið 2005 voru
Akurnesingar alls 5.782 og hefur Skagamönn-
um því fjölgað um 123 einstaklinga eða 2%.
Til samanburðar voru 5.600 íbúar á Akranesi í
ársbyrjun 2003.
Úr
bæjarlífinu
AKRANES
EFTIR SIGURÐ ELVAR
ÞÓRÓLFSSON BLAÐAMANN
Kjalarnes | Undir merkjum fegrunar-
átaksins „Tökum upp hanskann fyrir
Reykjavík“ verður sjónum næst beint að
Grundarhverfi á Kjalarnesi. Hreinsunar-
dagurinn verður 26. ágúst og til undirbún-
ings honum hefur verið boðað til samráðs-
fundar með íbúum mánudaginn 21. ágúst í
Klébergsskóla kl. 20. Embættismenn borg-
arinnar kynna fegrunarátakið og segja frá
því hvernig staðið verður að verki.
Vinna að fegrun
í Grundarhverfi
♦♦♦
ókeypis
smáauglýsingar mbl.is