Morgunblaðið - 19.08.2006, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 19.08.2006, Qupperneq 34
34 LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN GRUNNTÓNN yfirlýsingar rík- isstjórnarinnar og LEB og aðal- ástæða undirskriftar LEB í júlí sl. er að gjörbylta skal vistunarkerfi aldraðra og færa þjónustuna í nú- tímalegt horf. Þróun vistunarkerfis aldraðra hér á landi er tugum ára á eftir þróuninni í næstu nágranna- löndum. Í ofanálag mun dýrari í rekstri. Þetta er alþekkt staðreynd, en hér er vitnað í nýútgefna sam- norræna bók um umönnun aldraðra á Norðurlöndum. Sú bók er rituð af háskólamönnum, þar á meðal tveim- ur Íslendingum. Á meðfylgjandi töflu má sjá þennan samanburð skýrt og skorinort. Hlutfall 80 ára og eldri er lang- lægst á Íslandi, en kostnaður vegna þjónustunnar svipaður og í Dan- mörku, Noregi og Finnlandi. Hér er ekki um að ræða kostnað við heima- þjónustu því að heimahjálp er álitin rýrust á Íslandi og fær lélega ein- kunn. („Den isländska hemhjälpen sprids tunt“, eins og orðrétt er vitn- að í umrædda bók.) Frekari skýring á háum kostnaði á Íslandi skilst, ef haft er í huga að 9-10% 65 ára og eldri hér á landi vistast á öldr- unarstofnunum, en 3,4 til 5,9% á öðrum Norðurlöndum. Í nágranna- löndum þurfa þó hlutfallslega jafn margir meðal þeirra eldri einhverja aðstoð, en þar er þeim gefinn kost- ur á öryggis- og þjónustuíbúðum ásamt góðri heimaþjónustu í mun meira mæli en hér á landi. Afleið- ingin er að eldra fólk lifir virkari ellidaga, er lengur sjálfstætt og sjálfbjarga og þarfnast því ódýrari og minni þjónustu en á stofnunum. Í stofnunum í nágrannalöndunum virðist mun betur búið að eldri borgurum en hér, t.d. búa þar 85- 90% í einbýli, en hér um 50%. Af- leiðingin er m.a. að 60- 70% á stofn- unum hér á landi eru á róandi eða svefnlyfjum aðallega vegna ellileiða miðað við 30-40% í nágrannalönd- unum. Niðurstaða samráðsfunda rík- isvaldsins og LEB var yfirlýsing þar sem sérstaklega er fallist á að gerbylta þessu fyrirkomulagi sem hér hefur verið lýst. Það var skylda okkar að sjá þeim sem mestrar að- stoðar eru þurfandi fyrir við- unanlegri þjónustu. Þessu skal því verða breytt, en við viljum ekki ger- ast „próventufólk“ og fá aðeins mat og húsnæði svo vitnað sé í einn full- trúa þjóðarinnar á Alþingi. Um lífeyrisþáttinn skal tekið fram, að tillögu formanns Ásmund- arnefndarinnar um samkomulag til fjögurra ára var alfarið hafnað af LEB. Í yfirlýsingu ríkisstjórn- arinnar kemur þó fram að rík- isstjórnin vilji beita sér fyrir fram- gangi vissra úrbóta á næstu fjórum árum, sem eru of rýrar að okkar mati. Við álítum að hér sé um vilja- yfirlýsingu að ræða sem gefin er í aðdraganda alþingiskosninga, með tíu mánaða gildistíma! Því miður höfum við afar slæma reynslu af viljayfirlýsingum og samkomulagi sem gerist rétt fyrir kosningar, smbr. það sem gerðist eftir 2002. Þar var ákveðið að gefa mönnum kost á að fresta töku lífeyris gegn hærri greiðslum síðar, en við það var ekki staðið. Það að breyta við- miðunartekjum vegna greiðslna frá TR frá því að vera 18 til 24 mánaða gamlar í samtímatekjur þýddi að skerðingarhlutfallið sem var í raun um 41% hækkaði að raungildi í 45%. Og því má bæta við að oft hefur verið lofað að hætta að nota Fram- kvæmdasjóð aldraðra til rekstrar stofnana – en núna fyrst segist rík- isstjórnin ætla að standa við það! LEB féllst á að undirrita yfirlýs- inguna vegna þess að við fengum skýr skilaboð um að ella yrði allt í lausum reipum varðandi þjón- ustuþáttinn. Próventuhugsunin virðist vera ríkjandi meðal margra miðaldra ráðamanna hér á landi. Við munum koma aftur í haust með þær kröfur sem ekki var sinnt. Þessar kröfur eru m.a. að gera ít- arlega úttekt á tryggingalöggjöf- inni, og breyta henni m.a. á þann veg að unnt sé að draga verulega úr skerðingum, sérstaklega fyrir þá sem lægstu ellilaun hafa. Í öðru lagi að taka upp að minnsta kosti tvö skattþrep, því að allir í nefndinni, ásamt fulltrúum fjármálaráðuneytis og fulltrúum beggja stjórnarflokk- anna voru sammála um að skatt- byrði hefði aukist verulega á lægstu laun undanfarin ár. Einstaka þing- menn stjórnarflokkanna hafa þó viðurkennt þessa staðreynd og munum við banka upp á hjá þeim í vetur. Í þriðja lagi að taka þegar í stað upp frítekjumark nýrrar tekju- tryggingar og hækka það verulega á næstu árum. Við munum berjast fyrir þessum úrbótum af fullum huga í vetur og vitum að fé- lagsmenn okkar styðja okkur af alefli. Eins og sagt var við forsætisráð- herra í Kastljósi; „Við komum aftur í haust“. Fyrsta skrefið er stigið. Við erum ekki próventufólk* Ólafur Ólafsson, Pétur Guð- mundsson og Einar Árnason ’Við munum koma afturí haust með þær kröfur sem ekki var sinnt.‘ Pétur Guðmundsson Ólafur er formaður Landssambands eldri borgara, Einar er hagfræðingur eldri borgara, Pétur er verkfræð- ingur og fyrrverandi stjórnarmaður í Félagi eldri borgara í Reykjavík. Ólafur Ólafsson Einar Árnason * fólk sem hefur gefið öðrum fjármuni og eig- ur sínar með því skilyrði að þiggjendur sjái gefendum fyrir mat og húsnæði í ellinni. Hlutfall 80 ára og eldri og kostn- aðurvegna umönnunar þeirra á Norðurlöndum, mælt sem hlutfall af vergri þjóðarframleiðslu: Kostn. v. þjónustu% Ísland 2,8 1,7 Danmörk 4,0 1,8 Finnland 3,6 1,4 Noregur 4,5 2,0 Svíþjóð 5,6 2,8 Heimild: Äldreomsorgsforskning i Norden 2005. LÍKT og á vakning- arsamkomu hafa for- ystumenn ríkisstjórn- arinnar fallið fram síðustu vikur og játað mistök sín í ríkisfjár- málum, aga og að- haldsleysi og að hafa gripið allt of seint til aðgerða vegna þensl- unnar. Hið síðasttalda kenndi fjármálaráð- herra þó Hagstofunni því hún hafi ekki reiknað þensluna rétt! Blasti hún þó við hverjum manni og hirti ríkisstjórnin í engu um gagn- rýni innlendra og erlendra greining- ardeilda fremur en ábendingar okk- ar í stjórnarandstöðunni. Þegar nú venjulegt fólk og fyr- irtæki þurfa að þola hæstu vexti í heimi og verðbólgu margfalt hærri en jafnvel eigin mark- mið stjórnvalda þá er auðvitað gott að játn- ingarnar liggi fyrir. Þær munu eflaust hjálpa kjósendum við að fella dóm í vor. Árum saman hafa fjárlög verið notuð meira til áróðurs um góðæri en til fjárstýr- ingar ríkisins og er munurinn á glansmynd frumvarpsins og nið- urstöðu tugir milljarða og ýmis van- eða ofáætlað verulega á helming fjár- lagaliða. Þetta virðingarleysi fyrir fjárlögum hefur leitt af sér lausa- Játningar í ríkisfjármálum Helgi Hjörvar skrifar um ríkisfjármál Helgi Hjörvar SPJÓTIN hafa beinst að bændum í þeirri miklu og þörfu umræðu um matarverð á Íslandi sem átt hefur sér stað að und- anförnu. Gagnrýni á bændastéttina hefur gengið það langt að bændur hafa beinlínis verið sakaðir um að halda öllu matarverði hérlendis himinháu. Þetta er fjarri sanni. Við samanburð á verði matvæla milli landa er gjarnan stuðst við ítarlegar kannanir sem Euros- tat, hagstofa Evrópu- sambandsins, gerir reglulega. Í nýjustu könnuninni kemur fram að brauð, korn- vörur, gosdrykkir, ávextir og grænmeti er hlutfallslega dýrara hérlendis en kjöt og mjólkurvörur, sé miðað við lönd ESB. Það er með öðrum orðum minni verðmunur á íslenskum land- búnaðarafurðum en öðrum mat- vælum miðað við meðalverð þeirra í þeim fimmtán löndum ESB sem könnunin náði til. Forsætisráðherra skipaði sér- staka nefnd til þess að fjalla um helstu orsakaþætti hins háa mat- arverðs á Íslandi og gera tillögur sem miða að því að færa matarverð nær því sem gengur og gerist í helstu nágrannaríkjum okkar, eins og segir í skipunarbréfi nefnd- arinnar. Eins og kunnugt er voru sjónarmið nefndarmanna það ólík að einungis formaður hennar skrifaði undir svokallaða lokaskýrslu nefnd- arinnar sem fyrir vikið er frekar greinargerð nefndarformannsins. Erfitt er að finna í greinargerð- inni ástæður fyrir háu matarverði. Lega landsins er nefnd sem hugs- anleg ástæða, óhagstætt loftslag, hár flutningskostnaður, fjarlægð frá alþjóðlegum mörkuðum og erfiðar aðstæður á fámennu markaðssvæði. Önnur meginástæða háa mat- arverðsins sem nefnd er í grein- argerðinni er há laun og mikill kaup- máttur hérlendis. Laun eru verulegur hluti framleiðslukostn- aðar og hækkun launa undanfarin ár hafa hækkað verð á matvælum. Ekkert af þessu er bændum að kenna. Stjórnvöld hafa veruleg áhrif á verð matvæla með skattlagningu sinni. Hér á landi höfum við vöru- gjald, virðisaukaskatt og tolla. Vöru- gjaldið, sem lagt er á sumar mat- vörur, er dæmi um afar slæma skattlagningu sem hefur margfeldis- áhrif á verðlagið. Ofan á vörugjaldið bætist við álagning verslana og virð- isaukaskatturinn. Mikil hætta er á því að vörugjaldið brengli verðvit- und neytenda. Auk þess sem gjaldið og áhrif þess veitir svigrúm til hærra verðs og meiri álagningar á þær mat- vörur sem ekki bera vörugjald. Það kæmi því neytendum vel ef vörugjald á matvæli verður fellt niður. Virðisaukaskatturinn hefur ekki margfeldis- áhrif eins og vöru- gjaldið. Lækkun hans ætti að hafa bein áhrif á matvælaverð í landinu. Hins vegar verða breyt- ingar á virðisaukaskatt- inum að einfalda kerfið og það verður að tryggja að lækkanirnar skili sér alla leið til neytenda. Tollar á matvæli hafa einnig áhrif á verð þeirra til neytenda. Tilgangur tollasetningar er meðal annars að vernda innlenda framleiðslu, stýra neyslu neytenda til þess að draga úr eftirspurn á vörum sem taldar eru óhollar eða óæskilegar. Tollar eru einnig tekjuöflun fyrir ríkissjóð. Í matarnefnd forsætisráðherra voru uppi tvenns konar sjónarmið varð- andi tolla á matvæli. Annars vegar að fella niður tolla sem fyrst, eða bíða þar til Alþjóða viðskiptastofn- unin (WTO) nái samningum, sem illa hefur gengið til þessa, þar sem reiknað er með lækkun verndartolla, minni framleiðslustyrkjum og aukn- um möguleikum á innflutningi bú- vara. Ég tel rétt og eðlilegt að bíða eftir nýjum samningi WTO þannig að leikreglurnar séu þær sömu hér og í þeim löndum sem við berum okkur saman við. En það er ekki einvörðungu mat- arverðið sem er hærra hér á landi en í löndum sem við berum okkur sam- an við. Nýverið birti Eurostat könn- un á verði á þjónustu í löndum ESB og niðurstöðurnar eru sláandi. Verð- lag á þjónustu hótela og veitinga- húsa hérlendis er 91% hærra en að meðaltali í ríkjum ESB. Samgöngur voru 76% dýrari hér, menning og af- þreying voru 47% dýrari. Fjarskipti voru 15% dýrari og orka 8% dýrari, svo eitthvað sé nefnt. Að öllu samanlögðu er ljóst að bændur bera ekki ábyrgð á háu mat- arverði á Íslandi! Stjórnvöld gætu lækkað matarverð Magnús Ólafsson skrifar um matarverð Magnús Ólafsson ’… bændurbera ekki ábyrgð á háu matarverði á Íslandi!‘ Höfundur er forstjóri Osta- og smjörsölunnar. NÚ ER verslunarmannahelgin liðin með öllum sínum hátíðahöld- um. Það vakti athygli mína að margar hátíð- anna voru ætlaðar fjölskyldum og tókust þær vel til eftir því sem fréttir herma. Má þar nefna Unglinga- landsmót UMFÍ að Laugum í Þingeyj- arsýslu. Það er ánægjulegt að hug- arfar okkar Íslendinga er að breytast í þá átt að okkur þykir sjálf- sagt að börn og for- eldrar skemmti sér saman og án áfengis. Það er í eðli okkar að leitast við að hafa gaman af lífinu og sem betur fer eru til ótal leiðir til að skemmta sér á heilbrigðan hátt. Þegar eitthvað bjátar á talar fólk um hversu dýr- mætt sé að eiga góða fjölskyldu. Það er ekki sjálfsagt að eignast börn og góða fjölskyldu, því er það mikill fjársjóður sem þarf að hlúa að. Þegar við eignumst barn tökum við að okkur átján ára ábyrgð sem í flestum tilfellum er okkur bæði ljúf og skyld. Stærstu stundir fjöl- skyldunnar eru þegar eitthvað skemmtilegt er gert og það er dýrmætt að eiga góðar minningar með fjölskyldunni eins og að hafa átt góða verslunarmannahelgi saman. Heilt ár í næstu verslunar- mannahelgi en þangað til eiga eftir að gefast mörg tækifæri fyrir foreldra og börn að skemmta sér og eiga góðar stundir saman. Nú líður að því að skólarnir byrji aftur og þá skiptir miklu máli að for- eldrar standi saman um velferð barna sinna. Oft er æskilegt að for- eldrar taki þátt í ferðum eða ýms- um atburðum á vegum skólanna og er það gott tækifæri fyrir foreldra að vera með börnum sínum, kynn- ast félögum þeirra og öðrum for- eldrum. Með þeim hætti styrkjum við samfélag okkar allra, bæði barna og fullorðinna. Ég hvet for- eldra að taka eins mikinn þátt í lífi barna sinna og þeir geta og standa saman um lög og reglur hvað varð- ar útivistartíma, tóbaks- og áfeng- isnotkun. Leyfum börnum okkar að vera börn og unglingunum okkar að vera unglingar og leiðbeinum þeim með heilbrigðar tómstundir. Unglingsárin eru ekki nema sjö, frá þrettán ára til tvítugs, og mik- ilvægt að þessi ár séu uppbyggileg og skemmtileg. Njótum þess að vera virkir foreldrar með því að sýna ábyrgð og gott fordæmi. Stuðlum að því að æska og ung- lingsár barna okkar verði góðar minningar fullorðinsáranna. Fjölskyldan saman Guðrún Snorradóttir skrifar um samfélagsmál ’Nú líður að því að skól-arnir byrji aftur og þá skiptir miklu máli að for- eldrar standi saman um velferð barna sinna.‘ Guðrún Snorradóttir Höfundur er verkefnisstjóri í forvörnum hjá UMFÍ. Fréttir í tölvupósti

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.